Tíminn - 11.07.1996, Síða 2

Tíminn - 11.07.1996, Síða 2
2 Fimmtudagur 11. júlí 1996 Tíminn spyr... Hvemig líst þér á fyrirkomulag nýja tilvísunarkerfisins? Sighvatur Björgvinsson, fyrrver- andi heilbrigöisráöherra: Ég er mjög hlynntur tilvísunarkerf- inu og ánægður með að ráðherra skuli hafa skipt um skoöun og ætli að taka það upp. En það var henn- ar fyrsta verk þegar hún kom í ráðuneytið að afnema tilvísunar- kerfið. Eg er ekki eins hrifinn af því aö bjóba fólki upp á að kaupa við- bótartryggingu í heilbrigðiskerfinu með föstum greiðslum. Lára Margrét Ragnarsdóttir, þingmaður: Ég er ekki viss um að tilvísunarkerfi muni leiða til sparnaðar í heil- brigðiskerfinu því ríkið ber álíka mikinn kostnað af komu sjúklings til heimilislæknis og sérfræðings. Þegar maður þarf svo að tvítaka ferðir þá er kostnaður manns tvö- faldaður án þess að þess sé ætíð þörf. Auðvitað fer fólk til heimilis- læknis við ákveðnum kvillum og þegar það veit ekki hvert það á ab fara. Én í mörgum tilfellum veit fólk hvert það á að fara. Þá finnst mér ekki rétt að refsa fólki fyrir að fara milliliðalaust til sérfræðings. Gunnar Ingi Gunnarsson, fulltrúi heilsugæslulækna: Það er ekki búið að ákveba með hvaða hætti hið nýja kerfi verður sett í framkvæmd. Ef til vill verður valin sú leið að fólk greiði lága upphæð fyrirfram og mér líst vel á það eins og því er lýst í stefnu ráðu- neytisins. Með þeirri leið myndi hvort tveggja nást — að gera það auðveldara fyrir þá sem veikastir em og fæstar eiga krónurnar ab fá þjónustu og tryggja um leið betra skipulag frá faglegu sjónarmiði. Þegar þetta tvennt fer saman þá hlýtur það að vera góð leið. Ég hef ekki heyrt haldbær rök sem hníga að því að þetta kerfi verði dýrara í rekstri. Jón Guöbjartsson bifvélavirki í Bolungarvík lenti í miklu grjóthruni á Oshlíö á sunnudagskvöld. Steinarnir komu á miklum hraöa niöur hlíöina og stefndu beint á Jón þar sem hann sat í bílnum sínum: „Netið bjargabi lífi mínu" Netiö á Óshlíöarvegi, sem Císli Eiríksson for- stööumaöur Vegageröarinnar á ísafiröi hóf aö leggja 1989, er nú oröiö aö 650 metra giröingu en mikiö vantar enn. „Þetta var ævintýri. Eg hef oft lent í lífsreynslu og líklega fimm sinnum verið alveg við það að drepast. Farið útbyrðis á línubát, verið mikiö í köfunarvinnu og lent í því að festast og farið með snjóflóði niður í fjöru. Á einu augnabliki held ég að ég hafi aldrei orðið eins hræddur og þarna. En öryggisnetið hreinlega bjarg- aði því að bíllinn færi ekki í tætlur því þessir steinar vom á slíku róli. Ég er einnig alveg klár á því að þrír til fjórir steinar sem kraftajötnar okkar lyfta ekki, komu með stefn- una beint á andlitið á mér. En netiö greip þá eins og hafnabolta í leöur- lófa," segir Jón Guðbjartsson bif- vélavirki og fyrrverandi bæjarfull- trúi í Bolungarvík sem lenti í miklu grjóthruni alveg yst við Sporhamar á Óshlíð um kl. 22 á sunnudags- kvöld. Hann segir að Vegagerðin eigi miklar þakkir skildar fyrir upp- setningu netanna á Óshlíð, en þeirri vinnu er ekki lokið, auk rann- sókna á gildi þeirra. Lukka í bílnum „Þeir sögðu mér einu sinni að það kostaði 10 þúsund krónur lengdar- metrinn í grjótkassa sem búib er setja upp við efri brún vegarins. Það kostar hinsvegar 100 þúsund krón- ur hver metri í svona neti, en metri í veggsvölum kostar um eina millj- ón. Mér finnst sjálfum að mitt líf sé svo mikils virði að allur netapakk- inn á Óshlíðinni hafi sannað gildi sitt," segir Jón. Hann telur einsýnt að gjóthmnib sé afleiðing þeirra miklu þurrka sem höfðu verið á norðanverðum Vest- fjörðum. En um sjö bílar vom á þessum slóðum á Óshlíðinni þegar þetta gerðist og var Jón á leið til síns heima frá bílasýningu á Patreksfirði þar sem hann hafði verið að sýna bíla frá Bifreiðum og landbúnaðar- vélum og var sjálfur á lánsbíl Reno 19 þar sem búið var að selja alla bíla á sýningunni, en Jón er umboðs- maður BL þar vestra. Þrátt fyrir hamaganginn á hlíbinni sást ekkert á bílnum og meira að segja vildi einn kaupa bílinn strax daginn eftir vegna þess að þab væri lukka í hon- um. „Ég ætla að eiga heima hérna og fór því strax daginn eftir inní Hnífs- dal. Ég meira að segja sneri bílnum á staðnum þar sem þetta gerðist og fann ekki fyrir því að þetta hefði gert mér neitt. Þannig að ég held að ég sé alveg heill og óskemmdur," segir Jón. Hann telur, einnig að hann hafi oft á tíbum verið jafn hætt kominn í umferðinni í Reykja- vík og keyra eftir Óshlíðinni. Hann segir ab obbinn af stærstu steinunum hefði komið niður fyrir utan netið, flogið yfir veginn og langt niður í fjöru og útí sjó. Nokkr- ir hefðu lent á veginum og spunnib sig þaðan upp og út fyrir veg og nið- ur í sjó. Aðrir hefðu hinsvegar lent á veginum og bremsað þar og búið til 15-20 sentimetra djúpar holur um einn fermetra að stærð á hvern kant. Hnullungarnir stefndu beint á mig „Ég þekki veginn mjög vel og var að reyna stilla útvarpið. Þegar ég lít upp frá útvarpinu þá sé ég ab ég er kominn inní skribu. Ég negli bílinn niður og fer eitthvað ab fálma í gír- stöngina til að reyna að bakka út úr þessu. Þá sé ég hvar steinar eru í loftinu og ákveð með sjálfum mér að leggjast ekki niður í bílinn. Ég slepp við þennan og þessi fer rétt yf- ir bílinn, ef hann kemur í hann þá er það á framhornið. Þá dettur mér í hug að bakka og auðvitað er ég að fumast þarna þennan tíma. Ég lít uppí hlíðina og aftur niður á gír- stöngina og hendi frá mér lokinu af útvarp- inu. Þegar ég finn ab bíllinn er kominn í bakkgír og ætla að rífa bílinn aftur á bak, þá sé ég hvar þessir hnullungar koma í netið og ég stari svolít- ið á þá vegna þess að ég var hræddur um að netið gæfi sig. Þegar sá fyrsti kemur meb stefnuna á miðjan bíl- inn og fer ekki í gegn um netið, læt ég vaba afturábak. Þarna var ég hættur að geta fylgst með því hvort einhverjir fleiri steinar væru að koma í loft- inu fyrir aftan mig. Steinninn sem þá var lenda rétt fyrir aftan mig fer hinsvegar áfram niður í sjó. í fyrstu hélt ég ab hann hefði komið í bílinn því hann hristist svo mikiö. Þá var það bara hola sem hann bjó til fyrir aftan afturstuðarann. Þegar ég fór út úr bílnum, þá stóð ég ekki í lappirnar. Ég greip því bara um höf- uðiö og lét rassinn í bílinn og þakk- aði mínum sæla fyrir að vera enn lífs," segir Jón. „í þessu augnabliki, einn, tveir og þrír, þá var erigu að síður mikið sem maður sá. Ég hefði t.d. aldrei tekib eftir því hvað steinarnir spinnast al- veg svakalega upp, eins og þyril- vængja eða eins og hreyfill á flug- vél. Þegar steinn kemur ofan úr fjalli og lendir 50-100 metrum fyrir ofan mig í hlíðinni og flýgur síðan aftur á stað, þá svífur hann ekki heldur spinnst eins og fótbolti með góðum snúning. Ég man hvab ég glápti á þetta og það situr í hausn- um því ég tók mér einhverjar sek- úndur til festa þessa sjón í hugan- um," segir Jón. Hann segir ab hann hefði sofnað eðlilega um kvöldið, enda langþreyttur eftir ferðalag um helgina með bílasýningu um fjórð- unginn. Þegar hann fór síðan ab rifja upp atburði kvöldsins á Ós- hlíðinni við vinnufélaga sinn morg- uninn eftir, hefðu þeir komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði bara átt að leggjast niöur í bílinn þar sem hann stöövaöist í upphafi vegna þess ab trúlega hefði enginn steinn lent á þeim bletti. -grh )avíb tekur mdir kröfur iaunafólks f/V/IÐER KIUKKAN BOGG/? w>«6t «r h* -rt ,t> fotsaetlstíbhem shj" & undit ktöfu verknlyhv Treyflngaiinnai um stytUngu rtnnutimans oK b*13 ^tibhettahaaisiílíusfa^ komib 4 övart, enda hdur tiö- hertaýiababþessuþittumMuu og þí sétstaVleita t»~* Sagt var... Nú er þab blóbugt „Sumir vilja sjá blób." Er haft eftlr nýjum formannl í félagi garbyrkjumanna í Alþý&blabinu í gær um stórfelldan fjárdrátt sem fyrrum formabur félagsins varb uppvís ab. Varab vib kynskiptum „Ég vil meb þessum línum vara ykkur vib, sem bíbib eftir kynskiptingu. Þab er enn tími til ab bæta ráb sitt." Segir Moggalesandi í bréfi til blabsins sem var birt í gær um kynskiptingar og samkynhneigb. Dýraverndunarsinnum haldib góbum „Ég óttast ab ég myndi meb þessu athæfi kalla yfir mig reibi félaga í dýraverndunarsamtökum." Meb þessum orbum afþakkabi hinn stóri og digri kanslari Þýskalands, Helmut Kohl, reibtúrinn sem honum stób til boba þegar hann var gerbur ab heibursfélaga í þýskum skotklúbbi. Bonn. Reuter. Þab svínvirkar „Notar svín til hreinsunar" Segir í fyrirsögn Tímans í gær. Þar var verib ab vísa til nýs hreinsibúnabar sem Hitaveita Suburnesja notabi til ab hreinsa abalæb vatnsveitunnar. Haltu kjafti og vertu sæt „Ég bendi þér jafnframt á í fullri ein- lægni, ab ég tel ab þú hafir sáralítinn stubning sem formabur nýs stjórn- málaflokks, og látir þú til skarar skríba veldur árangurinn sennilega ekki öbru en vonbrigbum." SegirÁrni Gunnarsson, abstobarmabur félagsmálarábherra og formabur Sam- bands ungra framsóknarmanna í opnu bréfi til Gubrúnar Agnarsdóttur um vibbrögb hennar vib niburstöbum for- setakosninganna í Tímanum í gær. Páll Pétursson fór nibur á við í vin- sældakönnun sem gerb var nýlega á rábherrum Framsóknarflokksins. Menn telja ab sá galvaski rábherra hafi goldib fyrir lög um stéttarfélög síbastlibib vor meb nokkrum prósentum af vinsæld- um. En í þessu sambandi er eitt athygl- isvert. Páll Pétursson flaug upp í áliti hjá Alþýðuflokksfólki, af öllu fólki! í pottinum spurbi einhver hvort krötum væri umhugab um ab láta berja á verkafólkinu ... • Einn í pottinum sagbist sjá samhengi í því ab fjármálarábuneyti, fjárhags- og vibskiptanefnd og Alþingi sáu ekkert athugavert vib þab ab ríkissjóbur end- urgreibi 100% VASK til þeirra sem eru ab gera vib hús sín þetta sumarib, í stab 65%. Þarna varb eitt klúbrib í kerf- inu, en enginn tók eftir neinu. Þessi pottverji sagbi ab einn þeirra sem stab- ib hefbu í miklum húsavibgerbum í sumar væri einmitt formabur fjárhags- og vibskiptanefndar, Vilhjálmur Egils- son. Hann spurbi hvort þarna væri eitthvert samband á milli. Svarib er: Hvernig dettur fólki svona nokkub í hug? • Ekki er búist vib því svona fyrirfram ab Davíb Oddsson muni fá ákúrur frá full- trúum á landsfundi Sjálfstæbisflokksins í haust vegna niburstöbu forsetakosn- inganna. En eins og kunnugt er þá er lítil ánægja innan flokksins meb þab hvemig forsætisrábherra lék hvern af- leikinn á fætur öbrum í forsetamálinu, enda telja kunnugir ab hann eigi tölu- verban þátt í sigri Ólafs Ragnars. Þeg- ar þetta mál kom til umræbu í pottin- um á dögunum fullyrti einn sjálfstæðis- mabur ab vissulega mundu einhverjar muldra óánægju sína ofan í hálsmálin sín, en þab mundi fara svo lágt ab jafn- vel þeir næmustu mebal fjölmibla- manna mundi aldrei heyra þab. Enda upplýsti sá sami ab Sovét- ísland væri fyrir löngu orbinn stabreynd hér á landi og væri til húsa í Valhöll...

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.