Tíminn - 11.07.1996, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 11. júlí 1996
7
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
UTLOND
Evrópusambandib:
Sameinast um
ab þagga nibur
kúaribuna
Ráöamenn og íbúar í Sarajevó farnir oð búa sig undir oð ferbamenn komi aftur til borgarinnar:
Gera út á hryllinginn
Svo virðist sem Bretar beri
ekki einir ábyrgð á því hvern-
ig fór í kúariðumálinu. Fram-
kvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins í Briissel hefur ámm
saman reynt að þagga niöur
þær hættur sem stafa af kúar-
iöu, að því er fram kemur í
nýju hefti þýska tímaritsins
Der Spiegel. Strax árið 1990
krafðist dýrasjúkdómanefnd
sambandsins, sem mál af
þessu tagi heyra undir, þess af
Bretum að niðurstöður úr
rannsóknum á kúariðu yrðu
„ekki framar gerðar opinber-
ar".
Og í fundargerð nefndarinnar
frá 9. og 10 október 1990, sem
flokkuð var sem trúnaðarskjal,
gerði hún grein fyrir áætlunum
sínum til þess að koma í veg fyr-
ir „óhagstæð viðbrögð markað-
arins". Þar kemur fram að
nefndarmenn voru sammála
um að halda málinu í skefjum
með því að „halda eftir upplýs-
ingum" og „ræða ekki meira um
kúariðu". Best væri að svara
gagnrýnum spurningum með
því að segja fjölmiðlana hafa
„tilhneigingu til að gera of mik-
ið úr málunum".
Framkvæmdastjórn ESB stað-
festi það í síðustu viku að um-
rædd fundargerð hafi verið gerð
á sínum tíma og innihald henn-
ar sé ófalsað. Hins vegar hafi
ekki verið farið eftir því sem þar
var mælt með. -gb/Der Spiegel
Fáir hafa sennilega reiknað
með því að hin stríðshrjába
borg Sarajevó yrbi eftirsóttur
áfangastabur ferbamanna á
nýjan leik, a.m.k. ekki alveg í
brábina. En hagsýnir menn
þar í borg eru þegar farnir ab
undirbúa jarbveginn fyrir
ferbamannastrauminn sem
þeir telja væntanlegan innan
tíðar, enda er verið ab opna
flugvöllinn að nýju nú í þess-
ari viku. Og leggja þá abal-
áhersluna á ab höfða til þeirra
sem vilja spóka sig á slóöum
stríðshörmunganna sem
gengu yfir þessa borg meðan
umsátrib um hana stób yfir.
Vart er þetta þó beinlínis að-
laðandi ferðamannastaður. Þús-
undir jarðsprengna eru enn á
gömlu víglínunum. Og þegar
farið er á milli hverfa í borginni
þarf að fara í gegnum eftirlit þar
sem hópar vopnaðra ribbalda
taka á móti fólki af takmörkuð-
um áhuga. Auk þess er ennþá
útgöngubann yfir nóttina. Þetta
breytir því þó ekki að ráðamenn
í borginni vonast til þess að
borgin komist á ný í tísku hjá
vissum hópum ferðamanna.
Þannig ætla þeir að bjóða
fólki upp á að þefa örlítið af ótt-
anum sem fylgdi því að ganga
um „leyniskyttusundið", þar
sem fólk gekk raunar ekki held-
ur hljóp eins og fætur toguðu og
átti bókstaflega fótum sínum
fjör að launa. Eða að kynnast ör-
Simpansi íhöndum vísindamanna sem eru oð gera á honum tilraunir
meö HlV-veiruna.
Bandarískar rannsóknarstofnanir í vandrœöum meö
tilraunadýr:
Elliheimili fyrir
simpansa?
Fyrir áratug eða svo settu banda-
rísk heilbrigðisyfirvöld af stab all-
vibamikla ræktunaráætlun á sim-
pönsum sem nota átti einkum
sem tilraunadýr vib alnæmis-
rannsóknir. Fljótlega kom þó í
ljós ab þessi dýrategund kom ab
takmörkuðu gagni við þær rann-
sóknir. Nú er hins vegar svo kom-
ib ab rannsóknarstofnanir í
Bandaríkjunum eru með u.þ.b.
1500 simpansa í sinni vörslu og
hafa ekki græna glóru hvab þær
eiga að gera vib þá, en simpansar
geta orbib allt ab 55 ára gamlir.
Nú hefur þó a.m.k. verið ákveðib
að rannsóknarráö Bandaríkjanna
(National Research Council) geri ít-
arlega rannsókn á þessu vandamáli,
með tillögum um lausnir. Sérfræð-
ingar telja að ekki komi til greina að
flytja dýrin t.d. til Afríku og sleppa
þeim þar lausum. Simpansarnir em
sumir hverjir smitaðir af HIV veir-
unni eða öðmm veirum, svo sem
hepatítis-veimnni, og myndu hvort
eð er vart lifa lengi úti í náttúmnni
á meðal kynbræðra sinna.
Dýraverndarsamtök í Bandaríkj-
unum hafa þó komiö með tillögu
um að stofnuð verði sérstök vernd-
arsvæði fyrir simpansana sem yrðu
fjármögnuð að hluta til með opin-
bem fé og að hluta til meb frjálsum
fjárframlögum.
-gb/Der Spiegel
Frá Sarajevó þar sem leyniskytturnar
ferbamenn um þessar slóöir.
lítiö kjörum stríðsfréttamanna
með því ab búa á hótelherbergj-
unum sem þeir héldu til á forð-
um.
„Umheimurinn veit ekki mik-
ið um þetta stríð þrátt fyrir um-
fjöllun sjónvarpsins," sagði Sef-
ket Pobric, framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofu ríkisins þar í
landi. „Það er töluvert af ungu
fólki sem hefur áhuga á að vita
hvað gerðist hérna."
Pobric hefur skipulagt reglu-
legar ferðir um borgina þar sem
meðal annars er ekið í gegnum
„leyniskyttusundið", auk þess
sem komiö er á markaðstorgib
þar sem fjöldamoröin illræmdu
áttu sér stab, og sömuleiðis
sátu fyrir fólki og uröu fjölda manns aö
landsbókasafnið sem nú er
brunarústir einar.
„Reyndar var það ekki mein-
ingin að búa til einhverja hryll-
ingsferð," segir Pobric, „en þetta
er það sem fólk vildi sjá." Öll
ferðin tekur tæpa fjóra tíma og
kostar rúmar 400 krónur. Hing-
að til hafa það einkum verið
stjórnarerindrekar og starfsfólk
Sameinubu þjóðanna í borginni
sem hefur nýtt sér þetta tilboð.
Starfsmenn breska sendiráðs-
ins í borginni segja ab hringt sé
á hverjum degi í sendiráðið að
utan til að spyrjast fyrir um
ferbamöguleika í borginni. Þeir
mæla hins vegar ekki með því
ab fólk ferðist þangað, og nefna
fjörtjóni. Nú á aö fara aö leiöa
þá til jarðsprengjur, lélega vegi
og önnur „öryggisvandamál".
En það breytir þvi ekki að
Sarajevóbúar eru farnir að und-
irbúa sig undir ferðamanna-
strauminn. í Bascarsíja, sem er
gamla tyrkneska hverfið í borg-
inni, eru handlagnir listamenn
þegar farnir að bjóba vörur til
kaups sem gætu höfðað til
ferðamanna. Þeir hafa safnað
saman sprengjubrotum og brot-
um úr skotflaugum sem rigndi
yfir borgina í stríöinu og gert úr
þeim vasa og kertastjaka sem
vonast er til að renni út eins og
heitar lummur.
-gb/The Sunday Times.
HROSSARÆKTENDUR OG
ANNAÐ ÁHUGAFÓLK!
Fylgist með framgangi hrossarœktarinnar og gerist áskrifendur að
tímaritinu Hrossarœktin og aðforritinu Einka- Feng.
Áskrift að Hrossaræktinni kostar kr. 3.000 m/vsk. (3 hefti á ári).
Lausasöluverð hvers heftis er kr. 1.500 m/vsk.
Einka-Fengur kostar kr. 19.500 m/vsk.
✓
Arleg gagnauppfærsla á Einka-Feng kostar kr. 5.000 m/vsk.
Bændasamtök íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg,
pósthólf 7080,127 Reykjavík. Sími 563 0300, fax 562 3058.