Tíminn - 18.07.1996, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18. júlí 1996
lS$99$$tlW
3
SASS kaupir nýtt húsnœbi:
Miðstýrt bákn eða hag-
kvæmni samnýtingarinnar?
Anna Kristjánsdóttir ráöin
sem afleysingavélstjóri á
Hólmatind SU frá Eskifiröi.
Hefur sömu kjör og aörir vél-
stjórar á fiskiskipum:
Skipstjórinn
hélt að Jsetta
væri grm
Samtök sunnlenskra sveitarfé-
laga, SASS, hafa ákvebiö aö
kaupa nýtt og stærra húsnæði
að Austurvegi 56, Selfossi.
SASS hyggst nýta húsnæðið
undir starfsemi sína og þann
rekstur sem sveitarféiögin
hafa falið þeim, þ.e Sorpstöb
Suðurlands, Heilbrigðiseftirlit
Suburlands, Atvinnuþróunar-
sjób Suðurlands og Skólaskrif-
stofu Suburlands sem mun
taka við af Fræbsluskrifstofu
Suðurlands þegar flutningur
grunnskóla frá ríki til sveitar-
félaga veröur ab veruleika.
„Það var ekki síst fyrirliggj-
andi skortur á húsnæði undir
Skólaskrifstofuna sem býr að
baki þessari ákvörðun, þá þótti
vænlegt að sameina starfsemina
undir eitt þak og samnýta hús-
næði, tæki og starfsfólk," segir
Guðmundur Ingi Gunnlaugs-
son, formaður SASS.
Það voru 26 sveitarfélög sem
greiddu þessari ákvörðun at-
kvæði sitt, eitt sat hjá en Ölfus-
hreppur og Hveragerði greiddu
gegn ákvörðuninni. Á bak við
þessi tvö mótakvæði eru, að
sögn Knúts Bruun, forseta bæj-
arstjórnar Hveragerðisbæjar,
rúmlega 20% allra íbúa sveitar-
félagnna í SASS. Aðspurður um
ástæður andstöðu Hveragerðis-
bæjar sagöi Knútur Skólaskrif-
stofuna vera í frummótun,
menn vissu ekkert hvað úr
henni yrði þess vegna væri óráð
að ráðast út í kaup núna. Betra
væri að bíða og sjá hvernig starf-
semi hennar þróaðist.
„Við teljum að þessi lands-
hlutasamtök séu að breiða allt
of mikið úr sér og séu að veröa
allt of mikið bákn. Eðlilegra er
að hafa eins mikið af hlutverk-
um sveitarstjórna heima í
hverju sveitarfélagi fyrir sig en
síður að búa til millistig með
þessum hætti. Með þessu er ver-
ið að framselja sjálfkrafa allt of
mikið af okkar fjármunum inn í
svona stofnun eins og þessa." Á
fundi SASS létu forsvarsmenn
Hveragerðisbæjar bóka það sér-
staklega að þeir teldu Hvera-
gerði ekki verða fjárhagslega
skuldbundna af væntanlegum
kaupum. Fyrirhugað söluverð er
að sögn Knúts 8 milljónir og
áætlað er að 21 milljón fari í
innréttingar en gamla húsnæði
SASS verður tekið upp í á 7
milljónir. Þá eru bæjarstjórnar-
menn Hverageröisbæjar að
skoða þaö í hvaða samtökum
Hveragerði eigi að vera og hvort
þau ættu e.t.v. að draga sig út úr
einhverjum af þessum samtök-
um. -gos
„Hann hélt ab ég væri ab grínast.
í fyrsta lagi trúbi hann ekki því ab
þetta væri kvenmabur og alls ekki
ab þab væri sú sem hefbi verib
karlmabur," segir Emil Thoraren-
sen útgerbarstjóri Hrabfrystihúss
Eskifjarbar hf. um vibbrögb skip-
stjórans á Hólmatindi SU þegar
honum var tjáb ab búib væri ab
rába Önnu Kristjánsdóttur um
borb sem afleysingarvélstjóra.
„Það komu óvenju margir niður á
bryggju þegar togarinn var ab fara
og fólk tók gjaman í hendinni á
henni og bauð hana velkomna,"
segir Emil um viðbrögð bæjarbúa.
En Anna er fyrrum karlmaðurinn
Kristján Gunnar Kristjánsson sem
lét breyta sér í konu í Svíþjóð hér
um árið.
Útgerðarstjórinn segir að Anna sé
ráðin uppá sömu kjör og aðrir vél-
stjórar og gjaldi þess ekki í launum
að hafa breytt sér úr karli í konu,
enda sé hún ráðin sem fullgildur
vélstjóri. Hann segir að það hafi far-
ið vel á meö strákunum um borð og
Önnu þegar togarinn hélt á grá-
lúðumiðin úti fyrir Austfjörðum í
fyrrakvöld. Hann segir að Anna hafi
káetu út af fyrir sig vegna þess að í
áhöfn eru aðeins níu manns í stað
15 eins og venjulega. Að öðmm
kosti hefði hún orðið að deila káetu
með öðmm stýrimanni.
Emil segist ekki hafa orðið varir
við neina fordóma í garð Önnu frá
bæjarbúum nema síður sé, enda
kunna Eskfirðingar að meta verk-
kunnáttu og þá reynslu sem Anna
hefur yfir að ráða sem vélstjóri.
Hún hefur áralanga reynslu í því
starfi, bæði hér heima og erlendis
og er með ótakmörkuð réttindi sem
vélstjóri. Ef eitthvað er þá býst Emil
við því að enginn hörgull verði á at-
vinnu fyrir Önnu á Eskifirði þegar
og ef hún fer frá borði. Þannig að
það er alls ekki útilokað að Anna
muni ílengjast á Eskifiröi.
-grh
Hátíöarnefndin, frá vinstri júlíus Hafstein, nýráöinn framkvœmdastjóri, séra Örn Bárbur jónsson, frœbslustjóri
kirkjunnar, Davíb Oddsson, forsœtisrábherra, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Ólafur Skúlason, biskup Is-
lands og Haraldur Henrýsson, forseti Hcestaréttar. Á myndina vantar Óiaf G. Einarsson, forseta Alþingis.
1000 ára afmœli kristnitökunnar 30. júní til 2. júlí áriö 2000:
Júlíus Hafstein stýrir umferðinni
Á fundi hátíðarnefndar vegna
1000 ára kristnitökuafmælis-
Hjálmar afhendir
trúnaöarbréf
Hjálmar W. Hannesson sendiherra í
Kína afhenti nýlega Kim Young
Sam forseta Suður-Kóreu trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands í
landinu. Hann hefur aðsetur í Beij-
ing. ■
ins árið 2000, sem haldinn var
á Bessastöðum 11. júlí, var
ákveðið að ráða Júlíus Hafstein
fyrrverandi borgarfulltrúa sem
framkvæmdastjóra nefndar-
innar. Hann mun undirbúa
hátíðarhöldin á Þingvöllum
dagana 30. júní til 2. júlí alda-
mótaárið.
Lífsspekingurinn Dal
opnar málverkasýningu
Synda frá Akranesi
til Reykjavíkur
Hópur krakka úr Sundfélagi
Akraness ætlar ab synda frá
Reykjavík til Akraness, svokallab
Faxaflóasund, á laugardaginn kl.
9. Sundleibin er 21 kílómetri, og
öslar Akraborg þessa leib þrisvar á
dag á sléttum klukkutíma. Hætt
er vib ab ferbin sækist seinna hjá
unga sundfólkinu.
Ellefu krakkar úr sundfélaginu
skiptast á um ab synda, þau eru allt
nibur í 14 ára gömul.
Ingunn Ríkharðsdóttir og Hjör-
leifur Helgason hjá Sundfélaginu
segja að alls öryggis verði gætt. Lóð-
sinn á Akranesi býður aðstoð sem
og Björgunarsveitin Hjálpin. Lækn-
ir verður um borð í bátnum og tveir
menn í kafarabúningum viðbúnir.
Þetta er þriðja Faxaflóasundið.
Þess má geta til gamans að Eyjólfur
sundkappi Jónsson synti þessa leið
á sjötta áratugnum og varð frægur
fyrir. -JBP
Gunnar Dal, sá landsþekkti lífs-
spekingur, er búinn ab opna
málverkasýningu í Eden í
Hveragerbi. Hjá honum kvebur
vib nokkub annan tón en á öbr-
um myndlistarsýningum.
„Hann er að freista þess að
opna nýjan stíl í málaralist.
Hann merkir myndirnar sínar
Dal og er því annar maður á eft-
ir Dali. Hann kallar þetta borg-
arstíl, þetta er alveg nýr stíll í
málaralist, ekki alveg hrein
abstraktlist en hérumbil alveg,
og mikill gmnnur í náttúruað-
ferðum," sagði Indriði G. Þor-
steinsson rithöfundur og áður
fyrr ritstjóri Tímans í Hvera-
gerði um sýninguna, eftir að
hafa skoðað hana. ■
Gunnar Dal, — snýr sér nú ab
málverkinu.
Borgarráb Reykjavíkur:
Veitinga-
leyfi fyrir
skuldlausa
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt ab beina þeim til-
mælum til lögreglustjórans í
Reykjavík að framvegis skuli
fylgja umsóknum um vínveit-
ingaleyfi, upplýsingar um skil
umsækjanda, eigenda eba
framkvæmdastjóra á opinber-
um gjöldum m.a. vib Gjald-
heimtu og lífeyrissjób.
Ennfremur samþykkti Borgar-
ráð að með umsókn þyrfti að
fylgja upplýsingar um fyrirhug-
aðan opnunartíma veitinga-
staðarins og að við byggingu
nýrra veitingastaöa yrði undan-
tekningalaust fylgt byggingar-
reglugerð nr. 3. Hún kveður
m.a. á um að nágrönnum sem
eiga hagsmuna að gæta, skuli
gefinn kostur á að tjá sig um fyr-
irhugaða framkvæmd, og að
umsókn verði ekki tekin til
greina fyrr en mat byggingar-
nefndar liggur fyrir. -sh
Húsnœbisstofnun
ríkisins:
Tal um hreinsanir
og brotlega starfs-
menn út í hött
„Vib komum ofan af fjöllum,
vib hvab er átt í Heita pottin-
um í Tímanum," sagbi Gylfi
Öm Gubmundsson, formabur
Starfsmannafélags Húsnæbis-
stofnunar ríkisins í gær. Hann
mótmælti abdróttunum sem
fram komu í stuttum pistli í
blabinu.
„Hér er nýlokið stjórnsýslu-
legri endurskoðun á allri starf-
seminni á vegum Ríkisendur-
skoðunar. Þar hefur ekkert kom-
ið fram sakhæft," sagði Gylfi
Örn.
Gylfi sagði að starfsfólkið
vildi ekki vera bendlað við leið-
indamál frá því fyrir 2-3 árum.
Þau mál væru afgreidd og hinir
seku horfnir á braut frá stofnun-
inni.
Tíminn biðst afsökunar á
þessum ummælum sem birtust í
Heita pottinum í gær, sem eiga
enga stoð í veruleikanum.