Tíminn - 18.07.1996, Blaðsíða 10

Tíminn - 18.07.1996, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 18. júlí 1996 Afmælisár á Sauðárkróki í ár og á næsta ári veröa merk tímamót í sögu Sauöárkróks. Nú í ár eru liöin 125 ár frá því aö byggö reis á Króknum og á næsta ári eru liðin 140 ár frá því aö Sauðárkrókur varð verslunarstaður, 90 ár frá því að Sauðárkrókur varö sérstakt sveitarfélag og 50 ár frá því aö Sauðárkrókur varö kaupstað- ur. Af því tilefni hefur bæjar- stjórn samþykkt aö tímabilið frá 20. júlí 1996 til 20. júlí 1997 veröi afmælisár á Sauð- árkróki. Á komandi afmælisári er ætl- unin að taka til hendinni og gera góöan bæ betri. Afmælisár- iö verði því í senn hátíðarár og átaksár. Hátíðarár þar sem Sauð- krækingar fagna þessum tíma- mótum með því að gera sér glaðan dag og átaksár sem við notum til þess að auka styrk bæjarins í því ört vaxandi sam- keppnisþjóðfélagi sem við bú- um við. Litið verði yfir farinn veg og lærdómur dreginn af for- tíöinni og hann nýttur til að búa okkur undir framtíðina. Laugardagurinn 20. júlí er upphafsdagur afmælisársins og því hefur afmælisnefnd Sauðár- króks í samvinnu við ýmsa aðila í bænum sett saman afmælis- dagskrá. Dagskráin er fjölbreytt, og er von okkar að allir finni eitthvað við sitt hæfi, jafnt bæj- arbúar sem aðrir er vilja gleðjast með okkur. Upphafshelgi Afmælisárs Sauðár- króks 20.-21. júlí 1996 Dagskrá Laugardagurinn 20. júlí: 08.00 Fánar dregnir aö húni um allan bæ. Frítt í Sundlaug Sauöárkróks. 14.00 Blásarakvartett leikur á Faxa- torgi. Sauöárkrókur eins og hann leit út áriö 1903. Breytingarnar eru miklar frá þeim tíma og risinn öflugur og nútímalegur kaupstaöur. Héraðsmót í frjálsum íþróttum. Golfmót. 14.30 Afmælishátíðin sett á Faxtorgi. Gengiö að Kirkjutorgi. 15.00 Afmælisfáni dreginn að húni við Kirkjutorg. 15.15 Karlakórinn Heimir syngur á Kirkjutorgi. 16.00 Opnuð myndlistarsýning í Safnahúsinu. Essó dagur við Ábæ. Útimarkaður. Leiktæki fyrir yngri kynslóðina. Bátar á Áshildarholtsvatni. Gönguferbir um Krókinn með leiö- sögn. 20.00 Útiskemmtun á Faxatorgi. Hljómleikar. Skemmtikraftar. Söngur. 22.00 Opiö hús í Bifröst í umsjá Leik- félags Saubárkróks. Útidansleikur við höfnina, hljóm- sveitin Herramenn. Dansleikir á skemmtistöbum bæjar- ins. Sunnudagurinn 21. júlí 08.00 Fánar dregnir ab húni. Frítt í sundlaug Skr. 10.00 Gönguferb á Tindastól, farið frá heilsuræktinni Hreyfingu. 11.00 Hátíbarmessa. 12.30 Hópreib hestamanna um bæ- inn. Áð á Flæðunum og gestum gefst tæki- færi á að fara á hestbak. 14.00 Karneval á Aðalgötunni. Músík um. alla götuna. Leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. Héraðsmót í frjálsum íþróttum. 15.30 Leikir á Flæðunum. 16.30 Risa afmælisterta á Faxatorgi. 20.30 Fundur í Ræðuklúbbi Sauðár- króks á Kaffi Krók. Allar nánari upplýsingar veitir Páll Brynjarsson starfsmaður afmælis- nefndar. Skrifstofa nefndarinnar er í Stjórnsýsluhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, sími 453 5082. Fjölbreytt hátíöarhöld á Þórshöfn á Langanesi um helgina: í tilefni 150 ára verslunarafmælis Þessa dagana er unnið hörbum höndum á Þórshöfn og í nærsveit- um vib ab undirbúa afmælishald í tilefni þess ab í ár eru 150 ár frá því ab Þórshöfn varb löggiltur verslunarstabur. Þar voru mjkil umsvif í verslun og áttu Langnes- ingar vibskipti vib sjómenn af ýmsu þjóberni á erlendum dugg- um, sem sigldu fyrir Langanesib. íbúar Þórshafnar og nágrennis minnast þessarar merku sögu í há- tíðarhöldunum, sem margir góðir gestir munu sækja. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, mun opna hátíðina, en fulltrúar erlendra sendiráða og þingmenn verða meðal viðstaddra, auk heimamanna og brottfluttra Langnesinga. í hátíöarhöldunum koma einnig fram listamenn, sem ættabir eru frá Þórshöfn og náð hafa langt á sínu svibi, auk fjölda heimamanna. Opnaðar verða myndlistarsýnig- ar á verkum brottfluttra Langnes- ina, listamennina Svein Björnsson, Rut Rebekku Sigurjónsdóttur og Örn Karlsson, auk Freyju Önundar- dóttur. Sýndar verba gamlar ljós- myndir, gamalt og nýtt handverk og minjasýning verbur opnuð í samvinnu við Byggbasafnið á Kópa- skeri, þar sem gamlir verslunar- hættir verba kynntir. Boðið verður upp á tívolí, bryggjuveiði, sjóferbir, skoðunarferðir, auk þess sem trúss- lest kemur úr sveitinni og börn á stabnum taka þátt í karnivalgöngu meb eldgleypum og trúbum. Hátíðin verður formlega sett kl. 13.00 laugardaginn 20. júlí á úti- sviði vib höfnina, en þar verða m.a. flutt ávörp auk þéss sem kór heima- manna syngur, jasssveitin Búsbræö- ur spilar, Súrheyssystur taka lagið og rifjaðar verða upp gamlar stökur frá.svæðinu. Eftir útidagskrána verður boðið upp á herlega matarveislu vib höfn- ina, þar sem fyrirtæki bjóða gestum að bragða á ýmsum nýjungum í matvælaframleiðslu. Kl. 18.00 hefst hátíöardagskrá í Félagsheimilinu Þórsveri. Þar koma m.a. fram leikararnir Arnar Jónsson og Helga Jónsdóttir, tónlistarmenn- irnir Áskell Másson, tónskáld (sem leikur á handtrommur), Anna Guð- ný Guömundsdóttir, píanóleikari, Einar Kristján Einarsson gítarleik- ari, Sigurður Ingvi Snorrason klarin- ettuleikari og Þuríður Vilhjálms- dóttir söngkona, en allt á þetta fólk ættir að rekja til Þórshafnar. Auk þess syngur Samkór Þórshafnar í há- tíðardagskránni. Þá koma félagar í Leikfélagi Þórs- hafnar fram og flytja leikritið „Ambrið" eftir Aðalbjörn Arngríms- son, en hann var afkastamikið leik- skáld á Þórshöfn fyrr á öldinni. Þetta leikrit hefur þó aldrei verið leikið fyrr svo ab vitað sé. Stjórn- andi hátíðardagskrár er Þórunn Sig- uröardóttir leikstjóri. Þá verður dansleikur vib höfnina þar sem stórsveitin Tinna leikur, flugeldasýning og hátíðinni lýkur síðan á sunnudag með flautublástri skipa og báta. Gamla prestsetrið á Sauðanesi verður opið á sunnudaginn 21. júlí. Aðalsteinn Maríusson hefur að undanförnu unnið að endurbygg- ingu hússins sem er í umsjá Þjób- minjasafnsins og mun hann sýna það gestum. Allar sýningarnar verða opnar á sunnudaginn og há- tíðardagskráin endurtekin. Gerðir verða ýmsir minjagripir í tilefni hátíðarhaldanna og verða þeir seldir við höfnina. Þá er verið að rita sögu Þórshafn- ar og annast Friðrik Olgeirsson sagnfræðingur þab verk. Gert er ráð fyrir miklum fjölda gesta og eru menn beðnir að huga að gistingu í tíma. Tjaldsætði verð- ur opnað á staðnum og abrir gisti- möguleikar em á bændagistingu og á Hótel Jórvík. Framkvæmdastjóri afmælishátíð- arinnar er Már Guðlaugsson auglýs- ingateiknari, en formaður afmælis- nefndar er Freyja Önundardóttir myndlistarmabur. ■ Þórshöfn á Langanesi, 150 ára gamall verslunarstaöur og hinn blómlegasti bcer. Tímamynd Kristján s. Þórarinsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.