Tíminn - 19.07.1996, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 19. júlí 1996
Hátíb á 100 ára verslunarafmœli Stöbvarfjarbar um helgina:
Hátíbin heitir Stnð
í Stöb og höfðar til
flámælisins!
Stööfiröingar og nágrannar
fagna aldarafmæli verslunar á
staönum meö miklum látum
um helgina. Þeir halda þriggja
daga hátíö sem þeir kalla „Stoö í
Stöö" og hefst í dag.
Auk fjölbreyttra skemmtiatriða
bjóða Stöðfirðingar væntanlega
upp á Mallorcavebrið sem þar hef-
ur yljað fólkinu í þessari viku, þeg-
ar hitamælar fóru hátt í þrjátíu
gráðurnar.
Björgvin Valur Guömundsson,
oddviti Stöbvarhrepps og talsmab-
ur afmælisnefndar, sagbi í gær að
ætlunin væri ab bjóba gestum
bæjarins, sem áreiðanlega yrðu
margir, upp á fjölbreytta dagskrá.
Þar verða myndlistar- og ljós-
myndasýningar, dansleikir, tón-
leikar, útimarkabur, gönguferöir,
gróðursetning, varðeldar og flug-
eldasýning, svo eitthvað sé nú
nefnt.
Björgvin Valur segir að nafniö
Stoð í Stöð eigi sér skýringu.
Nefnilega þá að vísað sé til flámæl-
is íbúa á austurströnd landsins!
En lítum aðeins á dagskrá hátíb-
arinnar:
Föstudagur 19. júlí
Kl. 14 Opnun sýninga í Gallerí Snærós
o.v.
Kl. 15 Skreyting fyrir börn mið-
svæðis.
Kl. 16-19 Útimarkaður miðsvæðis.
Kl. 16.30 Gönguferð frá Sundlaug að
Seljatjörn.
Kl. 18 Gróðursetning á Balanum.
Kl. 20 Tónleikar samkórs í kirkjunni.
Kl. 21.30 Unglingadansleikur í skól-
anum/samkomuhúsinu.
Kl. 22.30 Djasstónleikar í Boðanum.
Kl. 00 Almennur dansleikur í sam-
komuhúsinu.
Laugardagur 20. júlí
Kl. 10.30 Minningarhlaup við Fjarðar-
braut.
Kl. 11.30 Veitingar í grunnskólanum.
Kl. 13 Hátíðardagskrá við samkomu-
húsið.
Kl. 16-19 Útimarkaður miðsvæðis.
Kl. 17 Grillveisla á Balanum.
Ki. 18.30 Varðeldur á Balanum.
Kl. 20.30 Hagyrðingamót í kirkjunni.
(Kl. 17 Félag Ijóðaunnenda á Austur-
landi í kirkjunni).
Kl. 22 Unglingadansleikur í skólan-
um/samkomuhúsinu.
Kl. 23.30 Flugeldasýning á höfninni.
Kl. 0.30 Almennur dansleikur í sam-
komuhúsinu.
Sunnudagur 21. júlí
Kl. 11 Hátíðarmessa í kirkjunni.
Kl. 13-16 Útimarkaður miösvæðis.
Kl. 15 Knattspyrna á knattspyrnuvell-
inum (minningarmót).
Kl. 21 Harmonikuball í samkomuhús-
inu.
Kl. 23 Slit hátíðarinnar við samkomu-
húsið.
Kl. 23.30 Lokadansleikur í samkomu-
húsinu.
Sólvallagata 68A
(Ráöagerði)
Árið 1884, þann 4. mars, er fyrsta brunavirð-
ing gerð á húsinu Ráðagerði, sem Árni Jóns-
son byggði á lóðarskika sem hann fékk úr
Selslóð. Húsinu er lýst á eftirfarandi hátt: Það
er byggt úr steini á þrjá vegu, en suðurgafl
þess er úr bindingi. Það er með járnþaki á
viði. Stærð hússins er 10 1/2 x 7 3/4 álnir og
hæð 5 álnir. í húsinu eru tvö herbergi auk
eldhúss. Húsinu er ekki lýst nánar í þessari
heimsókn virbingarmanna, sem voru þeir
Helgi Ilelgason snikkari og Björn Guö-
mundsson.
Ekki er vitað með vissu hvenær Árni
byggði húsið, en líklegt má telja ab það hafi
verið 1882.
í fyrsta sóknarmannatali, sem er frá árinu
1883, eru taldir til heimilis í Ráðagerði: Árni
Jónsson tómthúsmaður, 27 ára, Margrét
Guðmundsdóttir kona hans, 28 ára, Gub-
björg Jónsdóttir vinnukona, 45 ára, sonur
hennar Þorleifur Sumarliði Þorleifsson 9 ára,
María Jónsdóttir 25 ára, og Ingibjörg Eiríks-
dóttir lausakona, 27 ára.
Árib 1885 verba nokkur íbúaskipti í hús-
inu. Áfram búa þar hjónin Árni Jónsson og
Margrét Guðmundsdóttir, þeim hafði fæðst
sonurinn Magnús sem var á fyrsta ári. Þá eru
þar einnig Ingimundur Þórbarson, 32 ára
snikkari, Helga Haraldsdóttir, 35 ára kona
hans, Guömundur Magnússon, 27 ára
vinnumaður, og Anna Vigfúsdóttir, 36 ára
vinnukona.
Árið 1886 verður Einar Björnsson eigandi
að Rábagerði. í sóknarmannatali frá desem-
ber 1889 búa í Ráðageröi: Einar Björnsson
tómthúsmaður, 36 ára, Guðrún Steindórs-
dóttir kona hans, 26 ára, Kristján Ragnar
Einarsson, 1 árs, Steindór Helgi Einarsson, á
fyrsta ári, Magdalena Sigríður Árnadóttir
vinnukona, 15 ára, Guðmundur Sigurðsson
tómthúsmaður, 31 árs, Sigríður Bergsteins-
dóttir kona hans, 31 árs, og barn þeirra Guð-
ríður, á fyrsta ári.
í brunavirðingu, sem var gerb árib 1894,
segir að Einar Björnsson, Ráðagerði, Selslóð,
hafi byggt geymsluhús áfast við suðurhlið
hússins. Það er byggt af bindingi með járn-
þaki á langböndum, að stærð 5x3 álnir og
hæð 3 4/2 alin.
Á þessum tíma stækkabi Einar einnig
íbúðarhúsið, en ekki er vitað með vissu hvað
mikið. Verður því stuðst við brunavirðingu,
sem gerð var 1920 eftir að Steindór Einars-
son hafði stækkað það. Einar Björnsson var
fæddur á Öxnalæk í Ölfusi 20. febrúar 1845.
Hann var sonur Björns Oddssonar og Ing-
veldar Einarsdóttur konu hans, sem þar
bjuggu. Kona Einars var Guðrún Steindórs-
dóttir frá Bjargi í Reykjavík, fædd 16. maí
1863. Guðrún var dóttir Steindórs Matthías-
sonar og konu hans Helgu Vigfúsdóttur.
Börn Einars og Guðrúnar voru Kristján
Ragnar, Steindór Helgi og María Ingibjörg.
Einar Björnsson lést 9. júlí 1909. Gubrún
Steindórsdóttir lést 15. júlí 1940.
j brunavirðingu frá 24. apríl 1920 er
Steindór Helgi Einarsson skráður eigandi að
Ráðagerði. Þar segir ab hann hafi aukið og
endurbætt hús sitt í Ráðagerbi við Sellands-
stíg, en svo hét gatan í þá daga sem iá frá Sól-
völlum og niður að sjó, en var sameinuð Sól-
vallagötu um 1940.
íbúðarhúsið er byggt af bindingi, klætt
utan meb 1" plægðum borðum, klætt meb
HÚSIN í BÆNUM
FREYJA JÓNSDÓTTIR
pappa og járni á tvo
vegu, en steinveggir
eru á tveimur úthlið-
um. Önnur hlið
hússins er upp á tvær
hæbir, á hinni hlið-
inni er ris. Nibri í
húsinu eru tvö íbúb-
arherbergi, eldhús og
gangur, allt þiljaö og
meb striga og pappír
á loftum og veggjum,
allt málað. A lofti
íbúðarhússins eru
þrjú íbúbarherbergi
þiljuð og með pappa
á loftum og tvö
geymsluherbergi þilj-
ub, allt málað. Kjall-
ari er undir hálfu húsinu, 2 1/2 alin á hæb.
Húsið er 10 1/2 alin á lengd og 11 álnir á
breidd, hæð 5 l/2 alin. Þrír ofnar eru í hús-
inu og ein eldavél. Línoleumdúkur er á gólf-
um, vatns-, gas- og skólpleiðslur eru í hús-
inu. Inngönguskúr er byggbur eins og húsið,
4x4 álnir. Norban við húsið er geymsluhús,
byggt af bindingi, klætt utan með borðum
og járni þar yfir á þrjá vegu, en rimlar á einn
veg. Með járnþaki á lektum. Niðri eru fimm
geymsluklefar og hjallur, uppi eru tvö
geymsluherbergi. Stærð 10 x 8 1/2.
Þarna er bifreiðaskúr byggður af bindingi,
klæddur utan plægðum borbum og önnur
hliðin ab innan einnig klædd borðum. Þak
er meb pappa á súb. Stærð 18 1/2 x 7 3/4 al-
in. Hann hýsti leigubifreiðar Steindórs Ein-
arssonar.
Búið var ab byggja bifreiðaskúrinn árið
1926. Skúr þessi er byggður úr steinsteypu á
þrjá vegu, en norburhliðin úr bindingi,
klæddum utan borbum. Þakiö er úr borðsúð,
pappa og bárujárni. Stærð skúrsins 15,0 m x
6,5 m, hæb 3,0 m.
í skúrnum er steinsteypugólf. Þar er
geymsla fyrir sex bifreiðar. Bifreiðaviðgerðar-
skúr er byggður vib vesturgafl bifreiða-
geymsluskúrsins, úr steinsteypu með járn-
þaki á borðasúð, með pappa í milli. Dyr eru á
milli skúranna með ójárnvarinni tréhurð.
Steinsteypugólf er í skúrnum. Stærð skúrsins
8,0 m x 11,2 m, hæð 3,5 m.
Þá er einnig lýst húsi því sem Steindór
Einarsson byggbi handa móbur sinni og syst-
ur. Þab hús var steinsteypt á þrjá vegu, en
fjórði veggurinn var að eldra húsinu. Þak er
úr borðum, pappa og járni. Innan á útveggj-
um er borðagrind meb pappa og panelþilj-
um innan á. Allir útveggir eru múrhúðaðir
að utan. Skilveggir eru úr bindingi, klæddir
tvöföldum borðum. Milligólf er í neðri bita-
lögum, með pappa og sagspónasteypu á
milli gólfanna. j húsinu eru tvö íbúðarher-
bergi, eldhús, fataskápur og gangur. Allir
veggir og loft eru strigalagðir og ýmist vegg-
fóðrað eða málað.
Á eldra íbúðarhúsinu er ekki nein breyt-
ing frá brunavirðingu, sem gerb var 1920 og
er lýst hér ab framan.
Steindór Einarsson var einn af framsækn-
ustu mönnum þjóðarinnar. Hann var fædd-
ur í Ráðagerði 25. júlí 1888 og áður en hann
hóf rekstur leigubifreiðar stundabi hann þá
atvinnu ab flytja fólk og varning á milli
skipa og lands í Reykjavík. En eftir því sem
hafnargerö fleygbi fram, bryggjur voru
lengdar og skip gátu lagst að, sá Steindór að
þessi vinna stóð völtum fótum. Steindór var
harbduglegur og stjórnsamur. Hann leitabi
nýrra tækifæra, keypti fimm manna Fordbif-
reib árið 1915 og réb til sín bílstjóra. Sjálfur
fékk Steindór ökuskírteini ári síðar. Bifreið-
ina hafði hann heirna í Ráðagerði og auglýsti
hana til mannflutninga. Þessi atvinnuvegur
stækkaði óbum og haustið 1918 hóf Bifreiða-
stöð Steindórs göngu sína og hafði á að skipa
átta bifreiðum. Afgreiðsla var í kompu í and-
dyri Hótel íslands. En bifreiðaverkstæði og
geymsla var áfram í Ráðagerði við Sellands-
stíg.
Kona Steindórs var Ásrún Sigurðardóttir.
Þau eignuðust fimm börn: Sigurð Einar,
Önnu, Guðrúnu, Fjólu ög Kristján Ragnar,
sem öll eru fædd í Ráöagerði.
Árið 1930 flutti Steindór meb fjölskyldu
sína frá Ráðagerði að Vesturhlíb við Öldu-
götu. Eftir það notabi hann húsið fyrir
vinnumenn sína og fjölskyldur þeirra. Þar
byrjuðu margir sinn fyrsta búskap.
Bifreibastöb Steindórs var um ára-
bil í Hafnarstræti. Þaðan voru gerðar
út stórar bifreiðar, rútur til mann-
flutninga, sem voru í förum á milli
Reykjavíkur og Akureyrar svo og
annarra landshluta, þegar búið var
að leggja vegi sem færir voru stórum
bílum. Auk þess var leigubílaakstur
Steindórsbíla urn Reykjavík og ná-
grenni í miklum blóma. Margir
menn voru í vinnu hjá Steindóri Ein-
arssyni, bæði bifreiðastjórar og við-
gerðamenn.
Síðar byggði Steindór Einarsson
tvö fjölbýlishús við Sólvallagötu, á
landi frá Ráðagerbi. Sum af börnum
Steindórs Einarssonar og Ásrúnar
Sigurðardóttur bjuggu þar sín fyrstu
búskaparár.
Þab var búsæld í Rábagerði. Stór og ræktar-
legur matjurtagarður er enn í fersku minni
þeirra sem þar áttu heima. í hjallinum við
geymsluhúsið var þvotturinn þurrkaður, salt-
kjöt og aðrar vistir til heimilisins voru geymd-
ar í hluta hússins, en dekk og annað til nota
fyrir bifreiðar var geymt uppi á loftinu yfir
geymslunni. Fyrir allmörgum árum var
geymsluhús þetta rifib, en meðfylgjandi
mynd sýnir hvar þab stób. Einnig er búib að
rífa bifreiðageymsluna, sem Steindór Einars-
son byggbi yfir fyrsta bílinn sinn.
Húsið er í eigu afkomenda Steindórs Ein-
arssonar og Ásrúnar Sigurðardóttur.
Heimildir frá Árbæjarsafni og Landsbóka-
safni.