Tíminn - 12.12.1951, Page 8
8.
TÍMINN, miðvikudaginn 12. desember 1951.
282. blað,
Bókaskrá frá Bókaúfgáfu FáSma H. Jónssonar, Akureyri;
Frá fo
ÍSLENZK FRÆÐI
Séra Sigurður Einarsson í Holtí:
íslenzkir bœndahöfðingjar.
Eins og nafnið ber með' sér, er hér lýst nokkrum öndvegis-
mönnum í íslenzkri bændastétt, lífs og liðnum. Bókin hefst
með þeim Yztafellsfeðgum, Sigurði ráðherra Jónssyni og
Jóni syni hans. Er lýst ævi og starfi um 30 merkismanna og
kvenna, sem áttu ríkan þátt í sköpun menningar á tveim
síðustu mannsöldrum. Eins og vænta mátti, sindrar af
andagipt og mælsku séra Sigurðar, er hann ritar um jafn
hugðnæmt efni. Ejöldi mynda er í bókinni.
Hendrik Ottósson:
Vegamót og vopnagnýr.
Bók þessi er framhald bökarinnar Frá Hlið'arhúsum til
Bjarmalands, sem var metsölubók fyrir þrem árum. Höf-
undur heidur áfram aö skrásetja atriði úr deilu þeirri, sem
reis innan Alþýðuflokksins að lokinni fyrri heimsstyrjöld
og kernur þar margt fram, sem almenningi er ókunnugt
um, en höfundur tók mikinn þátt í þeirri deilu. Auk þess
eru nokkur ævintýri höfundar, utan lands og innan, og
síðast kafli um hernámið. Höfundur heldur rabbstíl þeim,
sem auðkennir fyrri bækur hans.
hafa skáldskapur
og fræðimennska
verið megin íþrótt
ir íslendinga. Voru
þær stundaðar í
bundnu og ó-
bundnu máli. Við
grútarkolur voru
sum fegurztu lista
verkin rituð. Enn
þann dag í dag lýs
ir af bókagerð og
bókfýsi íslendfnga.
„Bókaflóðið“ sýnir
bezt, aö þjóðin
heldur trúnaði við
íþróttir forfeðr-
anna og kýs jafn-
vel heldur „bér-
fætt en bókarlaus
vera.“
Bókaútgáfa Pálma
H. Jónssonar Ak-
ureyri vill með
þessari skrá auð-
velda bókfúsu fólki
kaup bóka til
eignar eða gjafa.
Lestö skrána vel.
FERÐASOG
Þorsteinn Jósepsson:
Um farna stigu.
Þorstéinn Jósepsson, sveitapilturinn, sem fór til útlandsins
til þess, að kanna ókunna stigu, er löngu orðinn landskunn-
ur maður fyrir ferðaþætti sina og ljósmyndalist. Þessi síð-
asta bók hans lýsir ferð'alögum í þrem heimsálfum, meðal
annars um rústir hinnar fornu Karþagoborgar og um
„Barbaríið“ heimkynni Hundtyrkjans, sem hér rændi. Mál
Þorsteins er létt og tilgerðarlaust, en skreytt léttu gamni.
Samul E. Kane:
Þrjátíu ár hjá hausaveiðurum.
Samul E. Kane var baridarískur embættismaður, sem dvaldi
30 ár hjá villimönnum á Filippseyjurn, meðal annarra hin-
um illræmdu hausaveiðurum, Hann lýsir á skemmtilegan
hátt og af samúð' þessum börnum náttúrunnar, kostum
þeirra og sérkennilegum siðurn. Bókin lýsir fólki á frum-
stæðu stigi, sem hefir sínar drengskaparregiur, trúarbrögð
og þjóðtrú. Fjöldi mynda eru í bókinni.
Þórður Tómasson frá Vallnatúni:
Eyfellskar sagnir III.
Þetta er síðasta bindi hins stórmerka safns Þórð-
ar, en ekki hið sízta. Hefir hann skráð ýmis
konar þjóðlegan fróðleik, sem annars hefði glat-
azt. Kaflinn um sjósókn og sjávarafla er með
þvi merkasta, sem ritað hefir verið um þau efni.
Eins er stórmerkur kaflinn um Holtspresta. Mál
Þórðar er með afbrigðum hreinnt og fagurt.
SKÁLDSÖGUR I.
Armann Kr. Einarsson:
Júlínœtur.
Ármann gat sér góðrar frægðar fyrir bók sína
Ung er jörðin, og ekki mun lesendum þykja þessi
bók hans síðri. Hin sérkennilega saga, sem nú
birtizt, á rót sína að rekja til margvíslegra
vándamála sem striðsárin skópu, einkum í sam-
búð íslenzkra kvenna og erlends herliðs. Grunn-
tónn hennar er trúin á landið fólkið, og um leið
fögur og heillandi ástarsaga.
Nordahl Grieg:
Skipið siglir sinn sjó.
Þetta er ein af öxrdvegisbókum norska stór-
skáldsins og frelsishetjunnar Nordahl Griegs,
sem fórst á styrjaldarárunum í flugferð til
Berlínar. Bókixr lýsir af óvenjulegri snilld og
samúð sjómannalífi. Ásgeir Blöndal Magnússon
íslenzkaði.
A. J. Cronin:
Undir eilífðarstjörnu m.
Saga, sem vakti óskipta athygli um heim allan
þegar hún kom út í Bretlandi. Hún lýsir lífi
námumannanna og baráttu þeirra við aftur-
haldssama námaeigendur. — Bókin er í senn
menntandi og göfgandi.
INNAN SKAMMS
KEMUR ÚT ÆTT-
ARTAL ÁSMUNÐ-
AR HELGASONAR.
VERÐUR ÞAÐ
AUGLÝST NÁNAR
ÞEGAR ÚT ER
KOMIÐ.
HAGNÝTAR BÓKMENNTIR:
Sigfríður Níeljóhniusdóttir:
Húsmœðrabókin.
(Hússtörf, smurt fcrauð og kökur).
Bók þessi er ekki eingöngu venjuleg matreiðslu-
bók, heldur einnig leiðbeiningar um það, hvernig
húsmæður geta létt sér heimilisstörfin og fegrað
daglegt heimilislíf. Margar litmyndir og'teikn-
ingar prýða bókina og
Leonard Outhwaite:
skýra textann.
SKRÁ UM
UNGLINGA- OG
BARNABÆKUR
BIRTIST í BLÖÐ-
UNUM NÆSTU
DAGA.
Landafundir og landakönnun I.
í bók þessari er skýrt frá sögu landafunda allt
frá ferðum Egifta fyrir meira en 450D árum til
vorra daga. Hún er hvorttveggja í senn, skemmti
lestur og handbók í landkönnunarsögu. Fjöldi
landabréfa er í bókinni. Þýðandi er Ólafur Þ.
Kristjánsson. ».
Osa Johnson:
Fjögur ár í Paradís.
Þessi yndislega bók lýsir dvöl þeirra Johnson-
hjóna, Osu og Martins, í Afríku. Sarnúð þeirra
með öllu lifandi og lýsingar á því, eru með því
bezta, sem út hefir komið. Margar dýra- og
mannamyndir eru í bökinrá.
Kári Tryggvason:
Hörpur þá sungu.
Ljóð eftir mann, sem kutínur er fyrir barna-
bækur sínar. í bókinni eru 35 ljóð og vísur gerð
af djúpri ást á íslenzri náttúru og aríleifð. Út-
gáfan er fagurlega gerð og sæmir Ijóðrænum
anda bókarinnar. Kynnið yöur ljóð þessa unga
manns.
*.
SKALDSÖGUR II.
Sögusafn Austra II.
Endui’prentun sögusafns, sem mikilla vinsælda
naut á íslandi fyrir alimörgum árum, en hefir
verið ófáanlegt lengi.
George Sheldon:
Hefnd Jarlsfrúarinnar.
Hrífandi ástarsaga, sem kom út fyrir nokkrum
árum og seldist þá upp á einum degi.