Mosfellsblaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 16
Ríkissjónvarpið sýndi þáttinn Titring
þriðjudaginn 17. nóv. s.l. M.a. var í þættin-
um haft viðtal við forsvarsmenn Virkisins,
sem nefnt er meðferðarstaður þ'rir fíkni-
efnaneytendur og jafnframt viðtöl við
ungt fólk sem ánetjast hefur illilega eitur-
lyfjum. - í þættinum var sýnd mynd af
Reykjahvoli í Mosfellsbæ og fullyrt að
staðurinn yrði keyptur og rekstur með-
ferðarheimilis fyrir eiturfíkla yrði hafinn
þar um næstu áramót, fyrir 14-16 ung-
menni.
Á Reykjahvoli hefur um
árabil verið rekin gistiþjón-
usta af miklum myndarbrag
eigenda staðarins og í íullri
sátt við nágrannana. - Við
þessa frétt í sjónvarpinu kom
upp uggur meðal fólks, en
mjög fullorðin kona býr í
næsta húsi og heimili með
litlum börnum í þarnæsta
húsi. Enginn dregur í efa
nauðsyn þess að afvegaleidd-
Reykjahvoll sést hérfyrir miðju myndarinnar.
Meðferðarheimili fyrir \ ímii-
elhasjúklinga meðal bama «g
gamalmenna?
BILAVERKSTÆÐI
Guðvarðar og Kjartans
Önnumst allar almennar bifreiðaviðgerðir,
jeppabreytingar, rennismíði,
sprautun o.fl.
Fluguinýri 16 c, Mosfellsbæ
Súni 566 6257 - Fars. 853 6057
Fax 566 7157
ir unglingar þurfi hjálp og aðstoð, en miklu máli
skiptir hvar slík aðstoð og meðferð fer fram og
hún sé í sátt við umhverfið. Næstu nágrannar
Reykjahvols, 36 talsins sendu Bæjarstjórn mót-
mæli vegna þessara fullyrðinga í sjónvarpsþætt-
inum og var málinu vísað til bæjarstjóra, sem
aftur hefur falið félagsmálstjóra Mosfellsbæjar
að kvnna sér málið og gefa bæjarstjóra upplýs-
ingar um stöðu þess. Síðan verði málið aftur
tekið fyrir í bæjarráði.
Iíjarni - sjúkraþjálfnn
Nýverið var opnuð ný sjúkra-
þjálfunarstöð í Kjarna inn af
Heilsugæslustöð Mosfellsbæjar.
Stofan er vel búin ýmsum tækj-
um til æfmga og meðhöndlunar
á stoðkerfiseinkennum.
Eigendur stofunnar eru þeir
Magnús Örn Friðjónsson, B.Sc í
sjúkraþjálfun frá Háskóla ís-
lands, „Musculoskeletal Disord-
ers“ sem sérgrein fra Skotlandi
og Guðmundur Rafn Svansson,
B.Sc frá Háskóla íslands og
„ManualTlierapy“ sem sérgrein frá Ástralíu.
Á stofunni starfar einnig Guðmundur Þór
Brynjarsson B. Sc í sjúkraþjálfun frá Háskóla ís-
lands.
Á stoiunni eru veittar meðferðir við hver-
skyns kvillum í stoðkerfi s.s. bak- og hálsverkj-
um, vöðvabólgum, afleiðingum íþrótta- og bíl-
slysa ásamt fræðslu um rétta líkamsbeitingu og
almenna uppbyggingu líkamans.
Tímapantanir í sírna 586 8186.
Gljúfrasteinn
Halldór Kiljan Laxnes sendi Helgu systur
sinni bréf fni San Francisco, California 722
Montgomerystreet, þann 27. apríl 1928. Þar
segir hann m.a: „Kæra Helga ntín. Skilaðu
bestu þökkum til Siggu fyrir ágætt bréf, sem
ég fékk frá henni í dag, skrifað 27. mars.Vænt
þótti mér um að heyra frá ykkur. Ég sé, að þið
ætlið að selja jörðina og hef ég náttúrlega
ekkert við því að segja, en þó hefði ég viljað
að þið hélduð eítir dálitlum skika í kring um
gljúfrin og réttindum til að nota vatnsorku."
Þarna ræðir Halldór um jörðina Laxnes,
sem var í eigu föður hans. Hann fékk skikann
kring um gljúfrin 3 hektara, var hann keypt-
ur af Ragnheiði Hafstein, konu Jónasar
Sveinssonar læknis og þau Auður byggðu þar
húsið Gljúfrastein árið 1945. Steinninn
Gljúfrasteinn, sem myndin er ;if hér, er talinn
kominn þarna af mannavöldum og margir
telja hann tengdan Agli Skallagrímssyni og
jafnvel legstað hans.Steinninn er talinn koma
frá gljúfrinu, en engar rannsóknir hafa átt sér
stað um tilurð steinsins á þessum stað, en
hann er fleiri tonn að þyngd.
CAjúfrasteinninn stendur skammt mistan við íbúðarhúsið
að Gljúfrasteini í afarfogru umliveift og var ávallt ímiklu
uppáhaldi lijá nóbelsskáldinu og Auði Sveinsdóttur. konu
lians.