Réttur - 01.04.1980, Page 12
ember barmaði svo ríkisstjórnin flokkinn,
sem síðan varð að starfa í banni laganna
í tæpan aldarfjórðung, uns liann sigraði.
Er flokkurinn var bannaður hafði hann
60.000 meðlimi. Tito hafði gengið í Za-
grebdeild Sosíaldemókrataflokksins í
október 1920 og hún varð rétt á eftir
deild úr Kommúnistaflokknum. Þannig
varð Tito flokksbundinn kommúnistí.
Starf í banni laga og í fangelsi
Leynistarf Titos leiddi brátt til þeirra
afleiðinga.sem tíðar voru hjá kommúnist-
um þeirra tíma: 4. ágúst 1928 var hann
tekinn fastur, dæmdur í 5 ára fangelsi,
hafði sjálfur varið sig vel fyrir réttinum
að kommúnista hætti. í fangelsinu var
hann kvalinn og honum misþyrmt svo
að hann hugði sér ekki líf. Honum tókst
að smygla út hréfi með lýsingunni á skelf-
ingunum og hjálparbeiðni. Þetta hréf
komst leiðar sinnar og er birt í Internat-
ionale Presse k orrespondenz“, sem Al-
þjóðasamband kommúnista gaf út í Ber-
lín 24. ágúst 1928, hls. 1696. (Leyniþráð-
urinn hefur verið í lagi, að svo fljótt
skyldi ganga). Fyrirsögnin er „Neyðaróp
úr helvíti júgóslavneskra fangelsa“ (á
þýsku). Undirskriftin er Josip Broz. Síð-
ustu orð hréfsins eru:
„Ég mun heldur deyja en staðfesta þá
lygi, sem lijgxeglan heimtar ég staðfesti
um álognar sakir á félaga mína ....
Verið þið sælir, félagar!
Ég mun brátt ekki geta staðið í fæt-
urna, svo er af mér dregið . . .“
Josip Broz.“
(Ég hef þetta bréf prentað í fórum mín-
um og birti það hér í heild. E.O.).
Tito var í Lepoglava-fangelsinu, nærri
Zagreb, sem hann lengi bjó í, frá janúar
1929 til júní 1931. Þar kynntist hann
Móza Pijade, einum hesta menntamanni
og marxista flokksins, sem kom þangað
ári á eftir honum og var að taka út 20
ára fangelsisdóm. Með þeim tókst ævi-
löng vinátta.
I júní 1931 var Tito fluttur í Maribor-
fangelsið, sem var ennþá miklu verra en
hitt. Þar kynntist Tito öðrum ágætum
kommúnista, Rodoljub Colakovic-, sem
einnig varð ævilangt félagi hans. Stund-
um gátu kommúnistarnir komið saman
í það, sem þeir í gamni kölluðu „hur-
geisasamkvæmi“, - þá var einni sígarettu
skipt milli fjögurra til að reykja — og
„Internationalinn" og fleiri byltingar-
söngvar sungnir. Og leslningir voru
haldnir á laun, bækur eftir Marx, Engels,
Rosu Luxemburg o.fl., sem smyglað var
inn, lesnar og ræddar.
Fangelsin voru stundum sem háskólar
fyrir kommúnista í löndum, þar sem
flokkurinn var bannaður.
í leynistarfsemi — frjáls
Þegar Tito var látinn laus úr fangelsi
12. mars 1934, hafði hann þegar gengið
í gegnum allmikið a.f þeim harða skóla,
sem kommúnistar þessara tíma og þess-
ara landa urðu að þola. En ekki var það
auðveldara, er við tók.
Hann hóf nú leynistarfsemina í flokkn-
um, sem vart hefur talið meir en 1000
félaga í allri Júgóslavíu á þessum tíma:
slíkur fjökli hafði verið drepinn, fang-
elsaður eða orðið að flýja land. Hann tek-
ur nú að skipuleggja hverja leynilegu
ráðstefnuna á fætur annari, á einni þeirra
kynntist hann Kardelj3, sem varð einn af
76