Réttur - 01.04.1980, Side 36
Reykháfurinn hangir í böndum
V.S.N. og ég ritari. Hringir Erlingur til
mín til Sigluíjarðar, þar sem ég hafði þá
aðsetur sem framkvæmdastjóri Síldar-
einkasölunnar og biður mig að koma
ásamt góðu liði inneftir til aðstoðar. Síld-
areinkaslan átti þá góðan, hraðskreiðan
bát og lét ég hann koma til Siglufjarðar
til þess að sækja okkur. En þar höfðum
við ýmsir kommúnistanna setið á ráð-
stefnu 6. júlí um tilhögun stéttabarátt-
unnar á íslandi — og reyndi nú á að fram-
kvæma góðar fyrirætlanir í reynd.
Þann 7. júlí um morguninn snemma
er haldið af stað frá Siglufirði með vel
mannað lið, — í báti Einkasölunnar, er
„gekk vel“ og komst til Akureyrar á 4
tímum í indælu veðri. Meðal þeirra
manna er þar voru má geta þessara: Jón
Rafnsson, Eyjólfur Árnason, Sverrir
Kristjdnsson, Hermann Einarsson, Aðal-
björn Pétursson, Eggert Þorbjarnarson,
Björgvin Þorsteinsson, Ásgeir Bl. Magn-
ússon og svo við Brynjólfur Bjarnason
báðir og sjálfur lögregluþjónninn á Siglu-
firði: Þóroddur Guðmundsson. Höfðu
allir þessir verið á nefndri ráðstefnu —
og auk J^ess einn norskur félagi, Haavard
Langseth, sem komið hafði til landsins
á vegum AlJrjóðasambands konnnúnista
til að ræða við okkur og fékk nú að kynn-
ast í reynd baráttu íslensku kommúnist-
anna.1 — Líklega voru fleiri félagar frá
Siglufirði með — og {Dætti mér vænt um,
ef þeir, sem myndu betur létu mig vita
nöfn Jreirra.
Á bryggju einni á Akureyri tóku Jjeir
Erlingur og Steingrímur og allstór hópur
verkamanna á móti okkur og kl. 2 Jrann
7. júlí var nú haldið fylktu liði út í
Iírossanes. Meðal Akureyringanna má
nefna Jón Guðmann, Björn Grímsson,
Sigþór Jóhannesson og síðar komu fleiri
100