Réttur - 01.04.1980, Side 45
„Þa'ð er máske iitill möskvi, sem áformaS er aS bregSa um Reýkjanes, en netiS er stórt, og við höfum
sannarlega ekki mikla yfirsýn yfir það, hvar þaS kann aS verða dregiS í land um það er lýkur.“ Á þess-
um fjöldafundi gegn Keflavikursamningnum í Miðbæjarskólaportinu 22. sept. 1946 mælti sr. Sigurbjörn
Einarsson hin spámannlegu orS. f 34 ár síðan hefur þjóðin brotist um í þessu neti.
Samtök hernámsandstæðinga
1960—1969
Samtök þessi, sem stofnuð voru á Þing-
vallafundi 10. september 1960, eru án efa
hin víðtækustu, sem enn hafa orðið til
í baráttunni gegn hersetunni. Á þeim
fundi voru 206 fulltrúar héraðsnefnda
utan af landi og 70 úr Reykjavík.
Samkvæmt ákvörðun Þingvallafundar
skyldu landsfundir Samtakanna vera á
a. m. k. 3ja ára fresti, en árin milli þeirra
átti 76 manna landsnefnd að koma sam-
an. Miðnefnd var skipuð 34 fulltrúum úr
Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Hún
kom í fyrstu saman mánaðarlega, en
kaus sér 7 manna framkvæmdanefiid,
sem hittist að jafnaði vikulega og oftar,
ef þörf krafði.
Fyrstu mánuðina eftir Þingvallafund
var haldið áfram við að mynda héraðs-
nefndir, og í rnars 1961 vorn þær orðnar
til í flestum byggðarlögum landsins með
um 1500 nefndarmönnum alls. Nöfn
þeirra flestra er að finna í bæklingnum
Tiðindi Þi?igvallafu7idar, sem gefinn var
út snemma árs 1961. Ef hugað er að af-
stöðu þessara nefndarmanna til stjórn-
109