Réttur - 01.04.1980, Blaðsíða 46
málaflokka, má sjá, að Framsóknarmenn
voru drýgstur hluti þeirra í flestum sveit-
um. Ef t. d. framboðslistar Framsóknar-
flokksins frá Aljjingiskosningunum 1959
eru bornir saman við héraðsnefndirnar,
verður ljóst, að víða var nær allur neðri
hluti framboðslistanna í héraðsnefndum,
en hinsvegar fáir úr efri hlutanum.
Þótt ekki sé lengra um liðið, munu
margir hafa heldur óljósar hugmyndir
um starf þessara samtaka og sú skoðun
vera nokkuð ríkjandi, að með jDeim hafi
ekki verið neitt lífsmark að ráði nema
2—3 ár. Þetta er langt frá hinu rétta, enda
þótt starfsemin væri vissulega mest fyrstu
tvö árin.
Landsfundir og göngur
Fyrst er þess að geta, að Samtökin héldu
þrjá fjölmenna landsfundi á tveggja ára
fresti: í Reykjavík í september 1962, að
Skjólbrekku við Mývatn 1964 og Bifröst í
Borgarfirði 1966.
í öðru lagi var farin Keflavíkurganga
vorið 1961, tveggja daga Hvalfjarðar-
ganga um fónsmessu 1962 og síðan Kefla-
víkurgöngur vorin 1964, 1965 og 1968.
Það er hinsvegar eftirtektarvert, að eftir
1962 eru þessar göngur ekki farnar þau
vorin, sem Alþingis- eða sveitastjórna-
kosningar áttu sér stað. Gangan 1962 var
raunar heldur ekki farin fyrr en eftir
sveitastjórnakosningarnar jrað ár, og var
talsvert um það deilt, hvort efna ætti til
hennar fyrir eða eftir kosningar.
Reykjavíkurganga var og farin viku
fyrir Aljiingiskosningar í júní 1967. Að
henni stóð einkum fólk innan samtak-
anna, sem undi því illa, að lrermálið væri
gert að feimnismáli fyrir hverjar kosn-
ingar.
110
Menningarvökur
í þriðja lagi ber að nefna menningar-
vikur þær, sem Samtökin gengust fyrir
3.—11. mars 1962, 1.—7. maí 1965 og lista-
vöku, sem stóð frá 12. febrúar til 5. mars
1967. Þær voru nýlunda á þeirri tíð.
Helstu atriðin á fyrstu menningarvik-
unni, sem haldin var í Listamannaskál-
anum sæla, voru:
1) Myndlistarsýning. Þar sýndu verk
sín Ásmundur Sveinsson, Barbara Árna-
son, Benedikt Gunnarsson, Bragi Ásgeirs-
son, Einar Baldvinsson, Eiríkur Smith,
Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur
Benediktsson, Guðmundur Elíasson,
Gunnlaugur Scheving, Hafsteinn Aust-
rnann, Hrólfur Sigurðsson, Hörður Ág-
ústsson, Jóhann Briem, Jóhannes Geir,
fóhannes fóhanneson, Jón Benediktsson,
Jón Engilberts, Karl Kvaran, Kjartan
Guðjónsson, Magnús Á. Árnason, Rík-
arður Jónsson, Sigurður Sigurðsson, Sig-
urjón Olafsson, Steinþór Sigurðsson,
Sverrir Haraldsson, Svavar Guðnason og
Þorvaldur Skúlason.
2) Skáldavökur tvær, eldri ogyngri. Þar
lögðu til efni eða lásu upp Ari Jósefsson,
Ásta Sigurðardóttir, Baldur Óskarsson,
Dagur Sigurðarson, Geir Kristjánsson,
Guðmundur Böðvarsson, Hannes Sigfús-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Jóhannes
úr Kötlum, Jón Óskar, Jón Reynir, Jón
úr Vör og Þórbergur Þórðarson.
3) Tónlistarflutningur, jrar sem fram
komu Fjölnir Stefánsson, Fritz Weiss-
happel, Hafliði Hallgrímsson, dr. Hall-
grímur Helgason, Helga Hauksdóttir,
fakob Hallgrímsson, Jórunn Viðar, Krist-
inn Gestsson, Kristinn Hallsson, Sigurð-
ur Órn Steingrímsson og Sturla Tryggva-
son.