Réttur - 01.04.1980, Blaðsíða 48
Þessar nafnarunur þykja kannski ekki
merkilegar, en þær hafa þó visst heim-
ildargildi, þar sem upplýsingar um þessa
viðburði liggja ekki á lausu útum allt.
Og gildi þessarar menningarviku má m.a.
marka af því, að Morgunblaðið, Vísir og
Alþýðublaðið reyndu að þegja hana í
hel. Morgunblaðið neitaði m. a.s. að birta
borgaða auglýsingu um liana, en sakaði
listamenn, sem fram komu á henni, um
að þiggja Rússagulk
Frá annarri menningarvikunni 1,—7.
maí 1965 er það einna minnisstæðast, að
j)á var Sóleyjarkvœði Jóhannesar úr Kötl-
um frumflutt með þjóðlagatónlist að
frumkvæði Péturs Pálssonar. Þá voru og
frumsýnd leikritin Jóðlíf eftir Odd
Björnsson og burlesca da camera eftir
Tlior Vilhjálmsson: Ætlar blessuð mann-
eskjan að gefa upp andann? Að þessum
leiksýningum stóðu Baldvin Halldórsson,
Bríet Héðinsdóttir, Bryuja Benedikts-
dóttir, Erlingur Gíslason, Jóhanna Norð-
I jörð, Leifur Ingvarsson, Pétur Einarsson
og Þorsteinn Ö. Stephensen.
Á þessari viku létu skáld einnig til sín
taka, en það voru að þessu sinni Guð-
bergur Bergsson, Guðmundur Böðvars-
son, Halldóra B. Björnsson, Ingimar Er-
lendur Sigurðsson, Jóhannes úr Kötlum,
Jón Sigurðsson (nú Tímaritstjóri), Jón
úr Vör, Þórbergur Þórðarson, Þorsteinn
frá Hamri og Þorsteinn Valdimarsson,
sem þá mun í fyrsta sinn hafa kynnt limr-
ur sínar opinberlega.
Það telst til nýlundu á þessari viku, að
sýndir voru dansar við tónlist eftir Bela
Bartok og stýrði Þórhildur Þorleifsdóttir
þeim. Einnig flutti Sverrir Hólmarsson
erindi með dæmum um gömul dans-
kvæði. Flestum áðurnefndum atriðum á
þesari viku fylgdi meiri eða minni tón-
112
listarflutningur, og hafði Atli Heimir
Sveinsson mestan veg og vanda af Jæirri
hlið málanna.
Myndlistin varð ekki afskipt á þessari
viku frenmr en hinni fyrstu, því að nú
sýndu 35 listamenn verk sín á 2. hæð
í Lindarbæ. Voru þar flestir hinir sömu
og á fyrstu vikunni, en auk þeirra bættust
við Alfreð Flóki, Ásgerður Ester Búadótt-
ir, Haukur Dór Sturluson, Hjörleifur
Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Jónas
Svafár, Jón Gunnar Árnason, Sigurjón
Jóhannsson, Snorri Sveinn Friðriksson og
Steinunn Marteinsdóttir.
Og enn sprakk Mogginn.
Á listavökunni 1967 má telja til tíð-
inda, að sýndir voru Jiættir úr leikritinu
Ótti og eymd Þriðja Rikisins eftir Bert-
olt Brecht í þýðingu Þorsteins Þorsteins-
sonar og undir leikstjórn Erlings E. Hall-
dórssonar. Mun það í fyrsta skipti, sem
leikverk eftir þennan höfund fékk verð-
uga meðferð á íslandi. Þá er og einkar
minnisstæð ljóðadagskrá með baksviðs-
tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson og Leif
Þórarinsson. En hér hefur aðeins verið
minnst á brot Jiess, sem fram fór á vökum
þessum.
Undirskriftarsöfnunin
Aðalverkefni Samtakanna fyrsta árið
var skv. ákvörðun Þingvallafundar undir-
skriftasöfnun gegn hersetunni og fyrir
hlutleysi íslands. Markmiðið var að gefa
hverjum atkvæðisbærum íslendingi kost
á að krefjast þess með undirskrift sinni,
að herinn hyrfi á brott og herstöðvar allar
yrðu lagðar niður. Undirskriftalistarnir
báru eftirfarandi yfirskrift:
Við undirritaðir íslendingar krefjumst
þess,