Réttur - 01.04.1980, Síða 63
T
NEISTAR
Úr þróun Bandaríkjanna til
„Mammonsríkis Ameríku"
,Ég sé í framtíðinni kreppu
nálgast, sem ég óttast og gerir mig
órólegan um öryggi lands míns.
Volclug auðfélög hafa risið upp í
kjölfar styrjaldarinnar; tímabil
spiliingarinnar á æðstu stöðum
landsins mun al! því leiða og pen-
ingavaldið í landinu mun reyna
að lengja herravald sitt með jrví
að auka sér í vil hleypidóma fólks-
ins, þangað lil allur auður hefur
safnast á fáar hendur og lýðveldið
er eyðilagt. Mig uggir nú rneir um
öryggi lands míns en nokkru sinni
fyrr, jafnvel meir en jregar styrj-
öldin var verst."
Abraham Lincoln, forseti. 1865.
„Og þá sé eg opnast það eymdanna
djúp,
þar erfiðið liggur á knjám
en iðjulaust fjársafn á féieysi elst
sem fúinn í lifandi trjám,
en hugstola mannfjöldans vitund
og vild
er vilt um og stjórnað af fám.“
Stephan O. Stephansson
lir „Kveld". 1899.
„hví meira scm ég las af Vest-
urheimsblöðunum, jrví betur skild-
ist már það, hve afarþungt
áhyggjuefni ástandið í Bandaríkj-
iiniim hlýtur að vera hinum bestu
og vitrustu mönnum þair . .
„Það er auðvitað auðvaldið, sem
voðinn stendur af.
Það hefur átt mjög mikinn jrált
í að gera Bandaríkin að jivi’, sem
þau hafa orðið á svo skömmum
tfma . . .“
„En nú er jrað orðið að heljar-
óvætt, sem þjóðin ræður ekkert við.
líkt og ormur Þóru borgarhjart-
ar“.......Þjóðfélagið hel'ur borið
gull undir auðvaldið með ýmsum
hlunnindum og fjárveizlum. Og
auðvaldið hefttr magnast og gullið
vaxið. Og auðvaldið étur meira
en heilan uxa í mál. Það étur
meira en efni þjóðarinnar. Það
étur oft og einatt löghlýðni henn-
ar og drengskap, þar sem það nær
lil. Það er aðalspillingarafl heims-
álfunnar."
Einar Hjörleifsson Kvaran
i „Vesturför" 1909.
*
Von Bandaríkjanna
Eugene Debs var einhver besti
verklýðsforingi í Bandaríkjunum,
stjórnaði mörgum harðvítugustu
verkföllum aldarinnar, var 1918
dæmdnr í 10 ára fangelsi fyrir
andstöðu gcgn strfðinu og samúð
með rússnesku byltingunni, —
sem Stephan G. var og næstum
fangelsaður fyrir. Hann hóf að
afplána dóminn 1919. Var forseta-
efni verkamanna 1920, lékk yfir
miljón atkvæði, Jrótt í fangelsi
væri og jressi besti ræðuskörungur
Bandaríkjanna fengi hvergi að
tala. Þriggja ára fangelsisvist eyði-
lagði heilsu hans. Honum var jrví
sleppt 1921 og fimm árum síðar
dó hann án jress að hal'a fengið
heilsuna aftur.
Stephan G. orti um hann 1918
hið stórfenglega kvæði: Eugene
Debs". Lýkur jiví svona:
„Ef að virðist tvísýnt tiða
tafl: hvort lömbin sigri refinn,
öll er myrkvast efa og kviða
Ameríka — Debs skal kveða
inn í tímann vilja og von —
enn er sú ei yfirgefin,
er á skálmöld hróka og peða,
á svo hugum-háan son.“
*
ASvörun J.W. Fulbright til
Bandaríkjanna
J. William Fulbright er einhver
vitrasti og besti stjórnskörungur
Bandarikjanna. Hann var lengst
af þann ianga tíma, er hann átti
sæti í öldungadeild þingsins, for-
maður hinnar valdamiklu utan-
ríksmálanefndar. En hann var
óhræddur við að segja stjórnend-
endum til syndanna. Hér skulu
birtar nokkrar tilvitnanir úr bók
hans, THE CRIPPLED G1ANT“
(Risinn, er varð kripplingur), (hér
stuðst við útgáfu „Vintage
Books 1972), en áður hefur
„Réttur“ birt tilvitnanir úr annarri
bók hans, „The Arrogance of
Power“) (Hroki valdsins), er einn-
ig flutt mörg varnaðarorð:
*
„Kjarnorkuvopn, eldflaugar og
ógrynni annarra vopna hefur veitt
einni einustu persónu, forsela
Bandaríkjanna, næstum Jrvi algert
vald yfir lífi milljóna manna um
heim allan. Það er of lítið sagt, ef
maður kemst svo að orði að þetta
sé of mikið vald til að veita nokkr-
um einstakling. í árdögum lýð-
veldisins var dreifing valds álitin
nauðsynleg til þess að vernda frelsi
vort; nú er hún orðin brýn til
Jress að vernda líf vor lika." (Bls.
217).
127