Réttur - 01.07.1984, Blaðsíða 1
67. árgangur
1984 — 3. hefti
Vegna prentaraverkfallsins hefur þetta hefti tafist mjög, mest af því skrifað
í sumar, — og eru lesendur Réttar beðnir velvirðingar. ( 4. hefti mun fjallað
um verkföllin.
Félagar mínir í Gautaborg sjá um allt efnið í þessu hefti og það í svo ríkum
mæli að nokkur afgangur mun verða og framhald á einstaka grein í 4. hefti.
Er ég þeim þakklátur fyrir og vona lesendum líki vel sú tilbreyting, sem með
þessu verður í Rétti.
Stéttabaráttan mun nú harðna því meir á landi voru sem launafólk og al-
þýða öll finnur æ sárar fyrir launaráni því, fátækt og örbirgð, sem leppstjórn
erlends auðvalds er að leiða yfir meirihluta íslendinga. Verður áþján þeirri
ekki hnekkt fyrr en alþýðan, meirihluti kjósendanna, sameinast um að fella
íhald og Framsókn frá meirihluta á Alþingi og fá sjálf úrslitaáhrif á stjórn
landsins. Verður slíkt því brýnna sem valdamenn þessara flokka eru nú að
henda fossafli íslands í auknum mæli í helgreipar erlendra auðhringa, ræna
afkomendur vora afli þessu en íþyngja almenningi með okurverði, svo auð-
drottnarnir megi sópa til sín gróða.