Réttur - 01.07.1984, Blaðsíða 38
sem sýnir greinilega hvernig ómennin
sölluðu niður mennina. En þrátt fyrir að
myndin væri sýnd mörgum sinnum við
réttarhöldin, voru þeir sýknaðir í vor — í
annað skipti. — í kviðdómnum sátu ein-
göngu hvítir menn. Morðingjarnir lofuðu
guð fyrir dómsúrskurðinn...
Ekkja eins fórnarlambsins sagði um
dómsúrskurðinn, að hann gæfi kynþátta-
kúgurum og nasistum leyfi til að vaða
uppi og drepa eins og þeim sýnist.
★ ★ ★
Mótmælin
„Hey, hey Uncle Sam,
we remember Vietnam!“
Þann 7. júní í ár lokuðu hernaðarand-
stæðingar fyrir aðgang að alríkisbygging-
unni The Jacob Javits Federal Building á
Manhattan. í dreifiriti frá aðgerðunum
voru Bandaríkin ásökuð um að ætla að
steypa ríkisstjórn Nicaragúa, fjármagna
morð á óbreyttum borgurum í E1 Salva-
dor, hafa forustu um kjarnorkuvígbúnað-
inn og mergsjúga bandaríska alþýðu.
Lögreglan lét strax til skarar skríða, en
um leið og einn hópurinn var handtekinn
bættist nýr í skarðið. Alls voru um 300
manns handteknir.
Tveim dögum síðar tóku tíuþúsund
manns þátt í kröfugöngu á miðri Man-
hattan og kröfðust félagslegra umbóta í
stað vígbúnaðar. Á Dag Hammarskjölds
Plaza, skammt frá byggingu Sameinuðu
þjóðanna, voru lesnar upp ákærur á
hendur Reagan forseta, Caspar Wein-
berger varnarmálaráðherra, Jeanne Kirk-
patrick sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum og Henry Kissing-
er utanríkismálaráðgjafa.
Þann 4. júní efndu 400 friðarsinnar til
inótmæla á Rock Island í Illinois við eina
helstu vopnaverksmiðju Bandaríkjanna.
Mótmælendur reistu götuvígi úr hjól-
börðum. Yfirvöld létu umgirða eyjuna,
sem verksmiðjan stendur á, og kölluðu á
sérþjálfaðar sveitir, sem komu flugleiðis
alla leið frá Fort Benning í Kaliforníu.
Þetta er talið hafa kostað 548.000 dollara.
Sama dag lokuðu 150 hernaðarand-
stæðingar fyrir aðgang að Griffiss flug-
stöðinni í New York ríki til að mótmæla
því, að þar væru staðsettar B52 flugvélar
búnar stýriflaugum. 79 manns voru hand-
teknir.
í San Fransisco voru 18 manns hand-
teknir inni í alríkisbyggingunni fyrir að