Réttur


Réttur - 01.07.1984, Síða 46

Réttur - 01.07.1984, Síða 46
í veði ef hugmyndir Walkers og Banda- ríkjanna yrðu að veruleika. Þegar Walker kom aftur til Bandaríkj- anna var hann hylltur sem hetja. „Ævin- týri“ hans í Nicaragúa er dæmi um hvern- ig Bandaríkin reyndu enn á þessum tím- um að beita hefðbundnum aðferðum við að leggja undir sig hentug svæði. Vanda- málið hvað skipaskurðinn varðaði var enn óleyst. Kúba fyrsta fórnarlambið Við lok 19. aldar var útþenslu Banda- ríkjanna vestur á bóginn mikið til aflokið. Þegar árið 1870 unnu fleiri Bandaríkja- menn við iðnað en við landbúnað. Um þetta leyti fóru Bandaríkin fram úr Evrópu í stál-, kola- og járnframleiðslu. Risastór fyrirtæki og peningasamsteypur urðu til og döfnuðu vel innan helstu iðnaðar- greinanna. Þörf þeirra fyrir að flytja út fjármagn og fyrir hráefni og nýja markaði óx hömlulaust. Bandaríkin eignuðust sitt fyrsta her- skip 1890 og tóku þar með fyrstu skrefin til að verða stórveldi á hafinu. Bandaríski þingmaðurinn Beveridge lýsir vel áætlun- um bandarískra auðkýfinga þegar hann skrifaði árið 1898: „Vér skulu smíða flota sem sam- svarar mikilleik vorum. Stórar ný- lendur, sem stjórna sér sjálfar en undir vorum fána, og sem eiga versl- unarviðskipti við oss, munu rísa við verslunarleiðir vorar... Bandarísk lög, bandarísk menning og banda- ríski fáninn munu ná fótfestu á ströndum, sem notið hafa náðar þess- ara boðbera guðs, í bjartri og fagurri framtíð.“ Fyrsta skrefið varð Kúba, sem var tek- in af Spánverjum 1898. Samtímis lögðu Bandaríkin undir sig Filippseyjar hinum megin Kyrrahafsins. Kúba varð formlega sjálfstæð árið 1901 en yfirráð Bandaríkj- anna voru staðfest í stjórnarskrá Kúbu með hinu svokallaða Platt Amendment, sem leyfði Bandaríkjunum að grípa inn í málefni Kúbu ef efnahagslegum og póli- tískum hagsmunum þeirra væri ógnað. í þessu tilefni settu Bandaríkin upp her- stöð á eyjunni, Guantanamostöðina, og hafa þau hana enn þann dag í dag í krafti þessa óréttláta samnings. Theodore Roosevelt, sem skömmu seinna varð forseti Bandaríkjanna, var ein af „hetjunum" í stríði Bandaríkjanna gegn Spáni þegar Kúba var lögð undir bandarískt auðmagn. Útþensla og yfirgangur Pó að útþenslan og yfirgangurinn væru hjúpuð siðferðis- og menningarfrösum, þá voru það hagsmunir bandarískra fjármálamanna sem lágu að baki. Pjóðum, sem reyndu að fara eigin leiðir var æ ofan í æ svarað með byssukjöftum til að tryggja áhrif Bandaríkjanna og að- gang bandarískra fyrirtækja að hráefnum og mörkuðum. Þegar Dóminíkanska lýðveldið gat ekki staðið í skilum við bandarískar lána- stofnanir og banka árið 1904 lögðu Bandaríkin einfaldlega undir sig tolla- og skattamál landsins með vopnavaldi, neyddu það til að taka upp bandaríska dollarann sem innlendan gjaldmiðil til að auðvelda bandarísku auðmagni að hag- nýta sér sykurreyrsframleiðslu landins. Pegar frjálslynd stjórn í Nicaragúa und- ir forystu José Santos Zelayasar neitaði að láta að vilja Bandaríkjanna og samdi meðal annars við Evrópulönd um lán í staðinn fyrir að semja við Bandaríkin, studdi bandaríska utanríkisráðuneytið 158

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.