Réttur - 01.07.1984, Side 60
Gautaborgarpistill
Dag nokkurn í aprflmánuði 1970 steig hópur galvaskra námsmanna í Gauta-
borg upp í Fólksvagenrúgbrauð og lagði af stað í þrautskipulagðan leiðangur,
sem átti eftir að setja allt á annan endann á íslandi. Förinni var heitið til
Stokkhólms. Yar farið með mikilli leynd að næturþeli og komið við í Uppsölum,
þar sem hópnum bættist liðsauki í skjóli myrkurs. Þegar til Stokkhólms kom, var
íslenska sendiráðið tekið úr höndum borgarastéttarinnar án þess að til átaka
kæmi. Rauður fáni var dreginn að hún og ávarp sent út um heimsbyggðina, þar
sem sagði m.a.:
„Við erum sanntærð um, að eina lausn-
in á efnahagslegu og félagslegu ástandi á
íslandi er sósíalísk bylting. Aðgerð okkar
er þáttur í að knýja hana fram og gefa ís-
lenskri alþýðu fordæmi í baráttunni.
Nokkur höfuðatriði baráttunnar eru
þessi:
— Að ísland gangi úr NATO umsvifa-
laust og bandarísku hersetuliði verði vís-
að úr landi án frekari vafninga.
— Að ásælni erlendra auðhringa verði
Kröfuganga Fingon 7. maí 1981
stöðvuð þegar í stað, starfsemi þeirra
bönnuð og eignir þeirra þjóðnýttar.
— Að verkalýðurinn taki við stjórn
allra framleiðslutækja og bindi þannig
endi á langa og ömurlega sögu íslenskrar
eignastéttar.“
Ollu þessar aðgerðir miklum usla með-
al ábyrgra aðila á íslandi. Þær mæltust
heldur ekki allt of vel fyrir meðal sumra
námsmanna í Stokkhólmi. Kom einn
þeirra, Hrafn Gunnlaugsson, á vettvang
og lét það boð út ganga að þetta væri hið
mesta óráð. Virðist íslensk alþýða hafa
látið sér segjast við það.
Sendiráðstakan stóð í tvo tíma. Virðist
námsmönnum ekki hafa litist ráðlegt að
reyna að koma á sósíalisma í einu sendi-
ráði og var það látið af hendi átakalaust,
þegar sænska lögreglan leitaði inngöngu.
Sendiráðstakan varð forleikur áratug-
arlangrar atburðarásar, sem hófst með
stofnun Kommúnistahreyfingarinnar,
KHML, ferskum andblæ í Iognmollu ís-
lenskrar vinstrihreyfingar, þróaðist gegn-
um fjörugt smáhópakarp yfir í kínverska
afturhaldspólitík og endaði með kyrr-
látum dauðdaga, þegar lífsskilyrði Kína-
flokka urðu knöpp upp úr innrás Kína í
172