Fréttablaðið - 04.03.2009, Page 3

Fréttablaðið - 04.03.2009, Page 3
skattur.is Fljótlegt, öruggt og einfalt að telja fram Veflyklar Veflyklar hafa verið sendir til nýrra framteljenda og þeirra sem ekki eiga varanlega veflykla frá fyrri árum. Ekki eru þó sendir veflyklar til þeirra sem nýttu sér þjónustu endurskoðenda eða annarra fagmanna til framtalsskila í fyrra. Glatist veflykill má sækja um nýjan á skattur.is og fá hann sendan í vefbanka eða í pósti. Talið fram á skattur.is Veflykill veitir aðgang að þjónustusíðu á skattur.is þar sem hægt er að fylla út skattframtalið á einfaldan hátt. Framtal á pappír Pappírsframtöl eru aðeins send þeim sem töldu fram á pappír í fyrra. Hægt er að panta áritað pappírsframtal og sundur- liðunarblað á skattur.is eða í síma 511-2250 og fá það sent í pósti. Jafnframt er hægt að prenta út auð framtalsform á skattur.is. Áritaðar bankainnstæður Bankainnstæður koma nú áritaðar á framtalið. Aðrar upplýs- ingar frá bönkum og sparisjóðum má á auðveldan hátt flytja af skattayfirlitum í vefbanka á sundurliðunarblað framtals. Þaðan er einfalt að færa þær á skattframtal. Aðgengilegar leiðbeiningar Leiðbeiningar er að finna á skattur.is á aðgengilegu formi. Einnig er auðvelt að kalla fram skýringar við einstaka kafla eða reiti í vefframtali. Prentaðar leiðbeiningar ásamt sérstökum leiðbeiningum vegna efnahagsástandsins má fá hjá skattstjórum. Símaþjónusta 511-2250 Í mars verður veitt aðstoð frá kl. 8 til 16 alla virka daga í síma 511-2250. Dagana 23., 30. og 31. mars og 1. apríl verður þjónustan í boði til kl. 19. Skilafrestur Almennur skilafrestur fyrir launamenn og einstaklinga með eigin atvinnurekstur er til 23. mars. Hægt er að sækja um viðbótarfrest á skattur.is, lengst til 1. apríl.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.