Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 34
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Á bókamarkaðnum í Perlunni liggur á borðum með ritum um dulspeki, handanheima og búnaðarhætti liðinna tíða hin merka bók Valdablokkir riðlast eftir Óla Björn Kárason, fyrr- um ritstjóra Viðskiptablaðsins, nú einn af ritstjórum netmið- ilsins AMX. Bókin kom út á lokaári síðustu aldar og er nú orðin ansi merk sagnfræði- heimild. Mæla má með bókinni nú en þetta er önnur krepp- an sem hún gengur í gegnum. Verðmiðinn er í takt við tíðina, 290 kall. Reyndar á það sama við um Valdablokkirnar og Milljarðamæringana en löngu er orðið tímabært að gefa út framhald þessar- ar áhugaverðu bókar sem endar á lofræðu um sprotafyrirtækin Oz og Decode. Nýjar valdablokkir Gengi krónunnar hefur veikst síðan á föstudag þegar norski sérfræðingurinn Svein Harald Öygard tók við eldheitum stóli seðlabankastjóra af þeim Davíð Oddssyni og Eiríki Guðnasyni. Krónan hafði verið að styrkjast nokkuð dagana á undan, reyndar ekki verið sterkari síðan fyrir bankahrunið í okt- óber. Seðlabanki Íslands hefur verið næsta ein- ráður á gjaldeyris- markaði síðan höftin voru sett á í desember og haldið genginu uppi. Mönnum var á orði að einbeiting miðlara hafi öll farið í bankastjóraskipt- in og hafi þeir því gleymt krón- unni í bili. Hún taki ekki sveig upp á við fyrr en menn snúi sér að tölvunum aftur. Gleymda krónan „Stundum verða menn þreyttir á öllu þessu sprotakjaftæði,“ sagði Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- og sprotamálaráðherra, á árs- fundi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands í gær. Össur hefur verið ötull forsvarsmaður íslenskrar frumkvöðlastarfsemi eftir efna- hagshrunið í haust og gripið til margra ráða til að gera litlum og framsæknum hugsuðum kleift að gera raunhæfustu drauma sína að veruleika. Össur sló á létta strengi þrátt fyrir allt í gær og sagði andstöðuna gegn sprota- starfinu ekki bíta á sig. Þvert á móti eflist hann í trúnni á að frum kvöðla verkin styrki land ið enda stoðirnar dreifð ari nú en þegar flest byggðist á fjármálageir- a num. Sprotakjaftæði 79 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Íslandspósts á síðasta ári. Heildartekjur félagsins námu 6,6 milljörðum króna og höfðu aukist um 7 prósent frá fyrra ári. 5 milljarða króna eignir eru komnar í nýjan verðbréfasjóð sem Eignastýring Íslandsbanka stofnaði um áramót undir heitinu Ríkissafn – ríkisskuldabréf og innlán. 50 milljónir Bandaríkjadala er upphæðin sem Reykjavik Geothermal vonast til að safna frá fjárfestum vegna virkjana-verkefna í þremur löndum. Guðmundur Þóroddsson, fyrrum forstjóri REI og Orkuveitunnar, stofnaði félagið í ágúst í fyrra. Með leyfi AVALON PROMOTIONS & LIBERTY BELL GRUMPY OLD WOMEN LIVE Miðasala í síma 4 600 200 I www.leikfelag.is „Vel valið stykki og kemur á hárréttum tíma – og frábærlega útfært“ BÞ „Margt var ári fyndið, sumt rosalega fyndið“ PBB „Fúlar á móti hittir svo sannarlega í mark. Ég held ég hafi aldrei á ævinni hlegið eins mikið á einni leiksýningu“ MB ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI! Allt sem þið vitið ekki um konurnar í lífi ykkar PÁSKASÝNINGAR KOMNAR Í SÖLU Tryggðu þér miða í tíma Tenórinneftir Guðmund Ólafsson Sýnt 14. ma rs Sýnt um páskana A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.