Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 4
4 4. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR í 4. sæti Hauk Þór www.haukurthor.is Prófkjör sjálfstæðismanna í SV-kjördæmi Ráðdeild og lausnir FASTEIGNIR „Ég get ekki neitað því að við erum að halda verðinu í hærri kantinum, því það er ekki meiningin að þessar eign- ir fari á einhverja brunaútsölu. Ef við fáum ekki viðunandi verð fyrir húsin þá seljum við þau ekki,“ segir Pétur Ásgeirs- son, skrifstofustjóri rekstrar- og þjón- ustuskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Engin kauptilboð hafa borist í sendiráðs- bústaði Íslands í New York, Washington, London og Ósló sem settir voru á sölu í janúar. Um er að ræða eignir sem hafa verið lengi í eigu íslenska ríkisins. Húsin eru öll íburðarmikil og í eftirsóttum hverfum viðkomandi borga. Samkvæmt uppsettu verði ættu að fást tæpir þrír milljarðar íslenskra króna fyrir fasteignirnar. Pétur segir ætlunina að nýta um tvo milljarða af því fé í kaup á hagkvæmara húsnæði í stað þess sem selt verður. Ef allt gangi upp gæti ríkissjóð- ur því hagnast um 500 til 1.000 milljónir króna á sölunum. Pétur segir ekkert óeðlilegt þótt sölur af þessu tagi geti tekið um fjóra til átta mánuði. „Fasteignasalarnir hafa sagt okkur að líklega fari eitthvað að gerast í þessu með vorinu. En það er alltaf erfitt að segja með svona mál. Það gæti eitt- hvað gerst á morgun, en kannski gerist ekki neitt,“ segir Pétur. kjartan@frettabladid.is Enginn vill sendiráðsbústaði Fjórir sendiráðsbústaðir voru settir á sölu í janúar. Engin tilboð hafa borist. Skrifstofustjóri í utanríkisráðu- neytinu segir húsin ekki seld nema á viðunandi verði. Ríkissjóður gæti hagnast um milljarð á húsunum. NEW YORK Verðmatið á bústað sendiherra Íslands hjá Samein- uðu þjóðunum í New York er 5,6 milljónir dollara, eða um 600 milljónir króna. Húsið er á horni Park Avenue og 55. strætis. WASHINGTON Sendiráðsbústaðurinn á Kalomar Road, skammt frá miðborg Washington, er metinn á 5,65 milljónir dollara, um 600 milljónir króna. Húsið hefur verið í eigu íslenska ríkisins í hálfa öld. LONDON Fimm hæða íbúðarhús við Park Street í Mayfair-hverfinu. Húsið er byggt árið 1921 og er 2.300 fermetrar að stærð. WASHINGTON Tíu svefnherbergi, fimm baðherbergi og sundlaug eru meðal þess sem sendiráðsbústað- urinn í Washington býður upp á. GULIR VEGGIR OG SÓFAR Sendiráðsbústaðurinn í London er metinn á 10 milljónir punda, eða tæpa 1,7 milljarða króna. DÓMSMÁL Andrés Pétur Rúnars- son, fyrrverandi fasteignasali, hefur verið ákærður fyrir að hafa ekið ölvaður og réttinda- laus. Hann er einnig sakaður um að hafa reynt að múta lögreglu- þjónunum sem stöðvuðu för hans í ágúst 2007. Andrés hefur einnig verið ákærður fyrir að hafa vanrækt greiðslu virðisaukaskatts og tekjuskatt að upphæð tæplega 10 milljónir króna í rekstri þriggja hlutafélaga. Hluti af þeirri upp- hæð er vegna láns úr einu félag- anna til hans persónulega. Ákærurnar voru þingfestar í héraðsdómi í gær. - bj Ákærður fyrir margvísleg brot: Reyndi að múta lögregluþjónum DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært Gytis Keplas fyrir líkams- árás og rán. Keplas er sakaður um að hafa við annan mann ráðist á sjötugan mann á Laugaveginum í október á síðasta ári. Árásarmennirnir slógu mann- inn í andlitið svo hann féll í jörð- ina. Þeir stálu af honum veski með 100 þúsund krónum og farsíma. Lögregla lýsti eftir Keplas og vitorðsmanni hans í fjölmiðlum í október í fyrra, skömmu eftir árásina. Lögreglu tókst að hafa uppi á Keplas, en talið er að vit- orðsmaðurinn hafi komist úr landi. - bj Ákærður fyrir líkamsárás: Rændi og barði sjötugan mann STJÓRNMÁL „Með því að bjóða fram lista án þess að stjórn- málaflokkur standi þar á bak við viljum við brjóta upp gamla skipulagið. Það þarf sterk Pollý- önnugleraugu til að sjá íslenska flokka sem lýðræðislega flokka,“ sagði Bjarni Harðarson þegar L- listinn, bandalag frjálsra fram- bjóðenda, tilkynnti um framboð til Alþingis í gær. Séra Þórhallur Heimisson, sem einnig stendur að listanum, sagði að L-listinn byggði á ákveðnum grunngildum. Meðal annars að vilja endurreisn lýðræðisins og atvinnulífsins. Innganga í ESB sé engin lausn gegn atvinnuleysi og vonleysi. - kg L-listinn tilkynnir um framboð: Lausnin felst í lýðræðinu BANDALAG L-listinn vill vinna gegn ríkjandi flokksræði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL „Með því að breyta lögunum um hnefaleika vorum við að bjóða hættunni heim, og við gerðum það með galopin augun. Öll rökin sem ég og fleiri notuðum til að reyna að koma í veg fyrir að boxbanninu yrði aflétt hafa verið að tínast til smám saman,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir umhverf- isráðherra. Þrettán ára meðlim- ur í Hnefaleikafélagi Reykjaness er einn þriggja pilta sem gengu í skrokk á samnemanda sínum í grunnskólanum í Sandgerði í síð- ustu viku. Pilturinn sem ráðist var á fékk meðal annars heilahristing og missti tímabundið heyrn á öðru eyra. Árásin var kærð. Ólympískir hnefaleikar voru leyfðir að nýju á Íslandi árið 2002. Kolbrún segir að hún og fleiri hafi lagt mikið á sig til að þau lög yrðu ekki að veruleika. „Með því að heimila hnefaleika aukum við hættuna á að tilvikum, eins og í Sandgerði, fjölgi,“ segir Kolbrún. Pilturinn sem framdi árásina hefur verið kosinn íþróttamað- ur Sandgerðis fyrir góðan árang- ur í hnefaleikum. Guðjón Vilhelm Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hnefaleikafélags Reykjaness, segir að félagið muni vinna í máli drengsins ásamt foreldrum hans, samkvæmt innanhússreglum félagsins sem verði ekki gerðar opinberar. Hann segir ekki standa til að vísa piltinum úr félaginu. „Við myndum aldrei gera það. Það er ekki rétta leiðin til að bregðast við,“ segir Guðjón. - kg Ráðherra segir árásina í Sandgerði dæmi um rök gegn hnefaleikum: Segir afnám boxbanns mistök KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR GUÐJÓN VILHELM SIGURÐSSON VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 16° 6° 6° 7° 5° 6° 11° 6° 6° 6° 18° 6° 3° 20° 1° 6° 14° 2° Á MORGUN 5-13 m/s hvassast á Vestfjörðum. FÖSTUDAGUR Norðaustan 8-15 á Vest- fjörðum annars hægur. -1 0 0 -2 -2 HELGARHORFUR Á laugardag eru ágætar veðurhorfur um mest allt land. Hægur vindur en hætt við stöku éljum, einkum vestan og norðvestan til. Á sunnudag snýst hann í stífa norðanátt með snjókomu norðan- og austanlands en úrkomulausu veðri syðra. Þar sem snjóa- lög er töluverð má búast við töluverð- um skafrenningi á sunnudag. 1 -1 -1 -2 -2 0 0 4 -1 3 -3 8 15 13 8 10 13 20 10 13 15 13 -3 1 1 -2 -4 Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur GENGIÐ 03.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 177,9609 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,44 114,98 160,85 161,63 144,41 145,21 19,378 19,492 16,031 16,125 12,516 12,59 1,1711 1,1779 167,54 168,54 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.