Fréttablaðið - 04.03.2009, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
STÆRÐFRÆÐILEIKAR fyrir 4. til 7. bekk og
8. til 10. bekk standa nú yfir á netinu. Fimm vikur í
röð birtast á vefnum leikar.net tvö ný verkefni sem
nemendur hafa viku til að leysa og skila.
Sæmundur Þór Sigurðsson, farar-
stjóri hjá ÍT ferðum, vann mikið
þrekvirki á dögunum en þá gekk
hann einn á Aconcagua í Argent-
ínu sem er hæsta fjall í heimi utan
Himalaya.
Sæmundur hóf ferðalagið í
desember á síðasta ári og kleif
tvö fjöll í Perú og eitt í Bólivíu til
að koma sér í gírinn. „Ég ætlaði
svo í skipulagða ferð á vegum ÍT
ferða upp á Aconcagua en sökum
kreppunnar var aurinn minn nán-
ast uppurinn. Ég þorði því ekki
annað en að aflýsa ferðinni en
ákvað svo að leggja bara í hann
upp á eigin spýtur án leiðsögu- og
burðarmanna.“
Ferðalagið á toppinn tók tíu daga
en að jafnaði eru göngugarpar um
15-20 daga að fara sömu leið. „Ég
held að hæðaraðlögunin sem ég
varð mér úti um í fjallgöngunum í
Perú og Bólivíu hafi skipt sköpum.
Þá bý ég auðvitað að því að vera
Íslendingur og vanur alls kyns
veðrum og vindum.“
Ferðalagið gekk að mestu vel.
„Þetta er ekki svo erfið ganga en
hæðin og veðrið geta gert fólki
erfitt fyrir.“ Síðasti spölurinn
tók mikið á og var Sæmundur að
því kominn að snúa við á síðustu
metrunum. „Ég var kominn með
hámarkspúls og átti erfitt með
andardrátt. Veðrið var vont og
ég fór rétt skólengdina í hverju
skrefi. Klukkan var orðin margt
og ég var búinn að taka ákvörð-
un um að snúa við fyrir ákveðinn
tíma til að lenda ekki í myrkri,“
lýsir Sæmundur og viðurkennir
að um tíma hafi hann verið farinn
að sætta sig við að fara ekki alla
leið. Á þeim tímapunkti hitti hann
björgunarsveitarmenn, sem hann
hafði kynnst á leiðinni, sem voru
á niðurleið. Sæmundi til mikillar
ánægju sögðu þeir að yfirmaður
björgunarsveitarinnar biði eftir
honum á toppnum. Hann var um
eina klukkustund að ganga síð-
ustu 20 til 30 metra hækkunina en
komst að lokum á toppinn. „Þó að
skyggnið hafi ekki verið nema um
50 metrar var tilfinningin engri
lík.“
Sæmundur segir fjallamennsk-
una dellu og stefnir hann ótrauð-
ur á aðra ferð á næsta ári. „Það
er mikill áhugi fyrir Aconcagua á
Íslandi og ætlum við hjá ÍT ferð-
um með hóp af fólki.“ Sæmundur
stefnir þó ekki hærra og segir það
ekki á dagskrá að ganga á Ever-
est. „Mér finnast Himalayafjöllin
spennandi en dánartíðnin á Ever-
est er einfaldlega of há.“
Áhugasamir geta fengið að vita
meira um ferðina laugardaginn 28.
mars klukkan ellefu en þá verður
Sæmundur með myndasýningu úr
ferðinni í húsakynnum ÍT-ferða að
Engjavegi 6.
vera@frettabladid.is
Gekk einn á Aconcagua
Kreppan varð til þess að Sæmundur Þór Sigurðsson aflýsti skipulagðri ferð á Aconcagua í Argentínu og
lagði á fjallið einn síns liðs. Ferðin gekk þó vonum framar þrátt fyrir tvísýnan lokasprett.
Sæmundur í um 6.000 metra hæð daginn áður en hann komst á toppinn sem er í 6.962 metra hæð. MYND/ÚR EINKASAFNI
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
HITI Í
BÚSTAÐINN
Mikil traffík
Stór salur
VIÐ LEYSUM MÁLIÐ
Viltu losna við
notaða bílinn fljótt?
BÍLAOUTLET NOTAÐIR BÍLARUMBOÐSSALA
Bílaoutlet - Korputorgi
Opið: mán-fös kl. 11-19, lau kl. 12-16
Við höfum enga heimasíðu
og svörum ekki í síma
Þú bara mætir á staðinn