Fréttablaðið - 04.03.2009, Side 14
14 4. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
JOHN CANDY LÉST ÞENNAN DAG
ÁRIÐ 1994.
„Ég held að ég hafi gerst
leikari til að flýja sjálfan
mig.“
John Candy var kanadísk-
ur leikari. Hann lék aðallega
í gamanmyndum en tók einn-
ig að sér nokkur dramatísk
hlutverk. Candy lést úr hjarta-
áfalli 43 ára að aldri.
Þennan dag árið 1968 var
fyrsta íslenska sjónvarpsleik-
ritið, Romm handa Rósalind,
sent út á RÚV. Leikritið, sem
er eftir Jökul Jakobsson, ger-
ist á verkstæði skósmiðs. Þar
staupar gamall skósmiður sig
á rommi og gefur Rósalind,
fatlaðri stúlku sem býr í ná-
grenninu, með sér á meðan
þau ræða um líf sitt.
Leikstjóri leikritsins var
Gísli Halldórsson og upp-
töku stjórnaði Andrés Indriða-
son. Leikarar voru Þorsteinn
Ö. Stephensen, sem lék skó-
smiðinn, Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, sem lék Rósalind,
og Nína Sveinsdóttir, sem lék
konu skósmiðsins.
ÞETTA GERÐIST: 4. MARS ÁRIÐ 1968
Fyrsta sjónvarpsleikritið
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Ólafsdóttir
Stangarholti 5, Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 25. febrúar, verður jarðsungin
frá Háteigskirkju föstudaginn 6. mars kl. 13.00.
Örn Guðjónsson Sigurósk Garðarsdóttir
Vilhelm Valgeir Guðbjartsson Guðrún Ragnarsdóttir
Ólöf María Guðbjartsdóttir Jónas Pétur Sigurðsson
Svanur Guðbjartsson Ólöf Magnúsdóttir
Þröstur Guðbjartsson Patiwat Deepaen
Guðrún Guðbjartsdóttir Benedikt Bjarni Albertsson
Unnur Guðbjartsdóttir Garðar Benediktsson
Kristín Þóra Guðbjartsdóttir Sigurður Stefán Jónsson
Birna Guðbjartsdóttir Sölvi Rúnar Sólbergsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Kristján Björnsson
efnaverkfræðingur,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn
6. mars kl. 13.00.
Lovísa H. Björnsson
Árni Gunnarsson Daniela Ilea Gunnarsson
Rannveig Gunnarsdóttir Tryggvi Pálsson
Sigurjón Gunnarsson Sigríður Olgeirsdóttir
Gunnar Örn Gunnarsson Olga Bergljót Þorleifsdóttir
Halldór Gunnarsson Anna Persson
Þórarinn Gunnarsson Berglind Garðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
Anna Kragh Olsen
Christensen
áður til heimilis að Álftamýri 54,
er látin. Útförin fer fram frá heimabæ hennar,
Horbo, föstudaginn 6. mars.
Sveinn Christensen Unnur Birgisdóttir
Björn Christensen Sigfríður Friðþjófsdóttir
og börn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
Arnór Karlsson
fyrrum bóndi á Bóli,
síðar Arnarholti í Biskupstungum,
Bjarkarbraut 10 í Bláskógabyggð,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi mið-
vikudaginn 25. febrúar sl., verður jarðsunginn
frá Skálholtsdómkirkju laugardaginn 7. mars
og hefst athöfnin kl. 14.00. Jarðsett verður í
Torfastaðakirkjugarði.
Systkini hins látna og aðrir venslamenn.
Elskulegi faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Björnsson
arkitekt,
Langagerði 17, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju 6. mars kl. 13.00.
Birna Jenna Jónsdóttir
Björk Jónsdóttir
Jenna Lilja Jónsdóttir
tengdasynir og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Laufey Torfadóttir
til heimilis að Hjaltabakka 16, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík,
föstudaginn 6. mars kl. 14.
Guðrún G. Bergmann
Guðni Guðjónsson Hrafnhildur Steingrímsdóttir
Hermann Guðjónsson Guðný Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Halldór B. Stefánsson
Lautasmára 3, Kópavogi,
sem lést miðvikudaginn 25. febrúar, verður jarðsung-
inn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 5. mars kl. 13.
Hallgerður Pálsdóttir
Ólafur Halldórsson Auður Sigurðardóttir
Páll Halldórsson Sólveig Ásgrímsdóttir
Ásta Halldórsdóttir Einar Erlendsson
Elín Ýrr Halldórsdóttir Kristján M. Baldursson
Ólöf Eir Halldórsdóttir Jenni Guðjón Clausen
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Stefán Jón Steinþórsson
andaðist á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, fimmtudag-
inn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 10. mars kl. 15.00.
Steinþór Stefánsson Hildur Pétursdóttir
Andrea Steinþórsdóttir Hrannar Jónasson
Friðberg Stefánsson Áslaug Birna Ólafsdóttir
Þórdís Friðbergsdóttir Heimir Björnsson
Stefanía Heimisdóttir Atli Friðbergsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir, barnabarn og tengdasonur,
Árni Jakob Hjörleifsson
Smáratúni 33, 230 Keflavík,
lést hinn 28. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Geirþrúður Ó. Geirsdóttir
Kristófer Örn Árnason
Sigríður Árnadóttir
Arna Björk Hjörleifsdóttir Högni Sturluson
Ingvi Þór Hjörleifsson Aðalheiður Ó. Gunnarsdóttir
Halldór H. Hjörleifsson
Þuríður Halldórsdóttir
Geir Þorsteinsson Linda Kristmannsdóttir
Ósk Sigmundsdóttir
og aðrir ástvinir.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Guðrún Birna Gísladóttir, forstjóri
Grundar – dvalar og hjúkrunarheimil-
is, hlaut þakkarviðurkenningu Félags
kvenna í atvinnurekstri í byrjun árs.
Hún er vel að heiðrinum komin enda
hefur hún alið manninn á Grund frá
blautu barnsbeini og hlúð af alúð að
þeim sem byggðu landið.
Guðrún fæddist á Grund árið 1944
og er meira og minna alin upp innan
veggja heimilisins. Afi hennar, séra
Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason, var
einn af stofnendum Grundar og faðir
hennar, Gísli Sigurbjörnsson, gegndi
starfi forstjóra í 60 ár. Guðrún hefur
lengst af búið og starfað á Grund ef frá
eru talin nokkur ár í Neskaupstað og
Njarðvík þar sem fyrri maðurinn henn-
ar var prestur. „Ég gifti mig meira að
segja á Grund,“ segir Guðrún en afi
hennar gaf hana og séra Pál Þórðarson
saman en hann lést árið 1978. Guðrún
tók við starfi forstjóra árið 1994 þegar
faðir hennar féll frá.
Hún lætur vel af því að hafa alist upp
á Grund og vill hvergi annars staðar
vera. „Ég lærði að prjóna og drekka
kaffi af gamla fólkinu ung að árum
og var í miklum samskiptum við mér
eldra fólk. Það varð eflaust til þess að
mér líður mun betur með eldra fólki en
yngra.“ Aðspurð segist Guðrún hafa
litla þörf fyrir það að taka sér frí frá
Grund. „Maðurinn minn Júlíus Rafns-
son, sem er framkvæmdastjóri Grund-
ar, segir að ég sé orðin svo samofin
starfseminni að varla sé hægt að greina
á milli mín og heimilisins. Það er ef-
laust eitthvað til í því en mér finnst ég
bera ábyrgð á starfinu og heimilisfólki
og fer helst ekki út fyrir 101.“ Guðrún
segir starfsemina ganga vel og að hún
hafi verið heppin með starfsfólk sem
sumt hefur unnið á Grund í áratugi. „Ég
hef mjög gaman af því þegar starfsfólk
frá fyrri tíð kemur aftur á Grund sem
heimilisfólk og vona að það segi eitt-
hvað um heimilið. Sjálf á ég svo auðvit-
að frátekið pláss,“ segir hún kímin.
Grund má líkja við lítið samfélag en
þar er að finna alla almenna læknis-
þjónustu, hársnyrtistofu, kaffihús, leik-
fimisal, sundlaug, bókasafn, danssali
og fleira. Heimilisfólk hefur því ým-
islegt fyrir stafni og reynir Guðrún
að þekkja það með nafni. „Við erum
svo stöðugt að endurbæta húsnæðið
þannig að rýmra verði um heimilisfólk-
ið okkar og nú er svo komið að öll her-
bergin okkar eru til dæmis með net-
tengingu.“
Guðrún segist hafa orðið nokkuð
hissa þegar henni var tilkynnt að hún
myndi hljóta þakkarviðurkenninguna.
„Ég lít ekki beint á mig sem konu á
framabraut. Ég er bara hérna og geri
mitt besta en mér þótti gaman að þær
skyldu stinga upp á mér og lít á þetta
sem viðurkenningu til heimilisins og
þeirra kvenna sem hér starfa. Þá ber
þetta kannski vott um að gömul gildi
séu komin aftur í tísku.“ Guðrún segist
bera nokkurn ugg í brjósti sökum efna-
hagsástandsins. „Við reynum að fara
vel með þá fjármuni sem við höfum úr
að spila en það höfum við svo sem allt-
af gert og erum eflaust nokkuð gamal-
dags.“ vera@frettabldid.is
GUÐRÚN BIRNA GÍSLADÓTTIR: HLAUT ÞAKKARVIÐURKENNINGU FKA
GÖMUL GILDI AFTUR Í TÍSKU
FER HELST EKKI ÚT FYRIR 101 Guðrún (fyrir miðju), sem er fædd og uppalin á Grund, vill hvergi
annars staðar vera. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI