Fréttablaðið - 04.03.2009, Side 37
MIÐVIKUDAGUR 4. mars 2009 17
Um síðustu helgi fór fram í annað
sinn kvikmynda- og menningar-
hátíðin Northern Wave í Grundar-
firði. Um 200 manns sóttu hátíðina
heim, bæði erlendir gestir sem og
heimafólk og var öll gistiaðstaða í
Grundarfirði fullbókuð um helg-
ina en bærinn býr bæði að hóteli og
farfuglaheimili. Hátíðin var opnuð
með kokkteil í boði Grundarfjarð-
arbæjar. Sýningar hófust svo með
erlendum stuttmyndum. Gjörn-
ingahópurinn The Weird girls tók
upp myndband og heimildarmynd
meðan á hátíðinni stóð og frum-
sýndu brot úr henni á laugardegin-
um en þá voru sýndar teiknimyndir
og tónlistarmyndbönd.
Á hátíðinni voru ekki aðeins sýnd-
ar stuttmyndir heldur voru einn-
ig haldnir fernir tónleikar, með
hljómsveitunum Dlx Atx, Sykur,
Anonymous og ameríska harmon-
ikkuleikaranum Matt Rock en á
laugardagskvöld sáu Dj Kiki-OW
og DJ MOKKI úr Weird girls um
tónlistina. Á laugardeginum hélt
franski leikstjórinn og gestadómari
hátíðarinnar í ár, Bertrand Mandico,
fyrirlestur fyrir fullu húsi og sýndi
brot úr myndum sínum. Á sunnudeg-
inum voru svo sýndir tveir klukku-
tímar af íslenskum stuttmyndum.
Hátíðin var haldin í samkomu-
húsi Grundarfjarðar en hápunkt-
ur hátíðarinnar var á sunnudaginn
þegar verðlaunin voru kynnt. Fyrstu
verðlaun að upphæð 100.000 krónur
voru veitt stuttmyndinni Smáfugl-
um eftir Rúnar Rúnarsson. Önnur
verðlaun að upphæð 70.000 krón-
ur fékk pólska klippimyndin The
Wedding eða Giftingin eftir Maciek
Salomon sem var viðstaddur hátíð-
ina ásamt vini sínum Maciek Szupi-
ca sem vann verðlaun á hátíðinni
í fyrra fyrir besta tónlistarmynd-
bandið. Sérstaka viðurkenningu
fékk svo myndin Harmsaga eftir
Valdimar Jóhannsson. Fyrstu verð-
laun í flokki tónlistarmyndbanda
fékk myndbandið Hair eftir Milos
Tomic frá Tékklandi. Verðlaun-
in voru styrkt af tveimur stærstu
fyrirtækjum Grundarfjarðar, Guð-
mundi Runólfssyni hf. og Soffaníasi
Cecilssyni hf. Hátíðin hefur nú feng-
ið styrk frá Menningarsjóði Vestur-
lands fyrir næsta ár svo allt bendir
nú til þess að Northern Wave festi
sig í sessi árlega á þessum fyrstu
vetrarmánuðum í Grundarfirði.
- pbb
Smáfuglar vinna í Grundarfirði
KVIKMYNDIR Stuttmynd Rúnars heldur
áfram að sópa að sér verðlaunum.
Annað kvöld heldur áfram ein-
leikssyrpa í Borgarleikhúsinu
sem hófst fyrir fáum vikum með
frumsýningu á Sannleika Pét-
urs Jóhanns. Nú kemur Margrét
Helga Jóhannsdóttir fram í ein-
leik, en nú eru liðnir tveir ára-
tugir síðan hún sló í gegn á Litla
sviði Borgarleikhússins í Sigrúnu
Ástrósu. Einleikurinn sem Mar-
grét flytur heitir Óskar og bleik-
klædda konan eftir Éric-Emm-
anuel Schmitt sem er vel kunnur
íslenskum leikhúsgestum af fyrri
verkum hans sem hér hafa verið
flutt: Abel Snorko (Þjóðleikhús-
ið 1998), Gestinum (LR/Þýbilja
2002) og Hjónabandsglæpum
(Þjóðleikhúsið 2007).
Verkið fjallar um Óskar, tíu ára
dreng sem þjáist af hvítblæði og
bíður hins óhjákvæmilega á spít-
ala. Eldri kona sem er sjálfboða-
liði á sjúkrahúsinu, virðist vera
sú eina sem hefur þroska og þor
til að ræða hið óumflýjanlega við
Óskar og ráðleggur honum að
skrifa bréf til Guðs. Leikstjóri er
Jón Páll Eyjólfsson. Leikmynd
og búninga annast Snorri Freyr
Hilmarsson.
Frumsýning er annað kvöld kl.
20. - pbb
Margrét
Helga í einleik
Á laugardag kl. 13 verða barna-
og fjölskyldutónleikar í Salnum
í Kópavogi þar sem flutt verð-
ur verkið Karnival dýranna eftir
Camille Saint-Saëns. Verkið er
víðkunnugt, eins konar tónlist-
ardýragarður þar sem leikari og
hljóðfæraleikarar sameinast og
skapa heim sem auðvelt er fyrir
unga sem aldna að lifa sig inn í.
Flytjendur á tónleikunum eru
kennarar í Tónlistarskóla Kópa-
vogs ásamt leikurunum Guð-
rúnu Ásmundsdóttur og Sigur-
þóri Heimissyni. Þetta er ellefu
manna hljómsveit og í henni eru á
ferðinni hænur og hanar, asnar og
skjaldbökur, fíll og kengúrur og
er þá ekki allt talið. Hljómsveitin
flytur fleiri verk, til dæmis Flug
býflugunnar eftir N. Rimskí-Kor-
sakov. Sérstakur kynnir á tónleik-
unum er Maxímús Músíkús.
Frá klukkan 12.30 verða fjöl-
listamenn frá Götuleikhúsinu og
einnig tveir andlitsmálarar sem
bjóða upp á ókeypis andlitsmálun.
Börn eru beðin að koma klædd í
grímubúninga á tónleikana ef þau
geta.
Karnival
dýranna
TÓNLIST Guðrún Ásmundsdóttir er sögu-
maður á barnatónleikum á laugardag.
LEIKLIST Margrét Helga Jóhannsdóttir
frumsýnir einleik annað kvöld.
Aðeins
Bayonne skinka
kr./kg.
merkt verð 1.198 kr./kg.
1.078