Fréttablaðið - 04.03.2009, Side 38
18 4. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Robert De Niro, Justin Timber-
lake og Van Morrison voru gestir
í fyrsta kvöldþætti Jimmys Fall-
on á sjónvarpstöðinni NBC í stað
Conans O´Brien sem tekur af Jay
Leno í sumar.
Fallon, sem hefur leikið í þátt-
unum Saturday Night Live og
í nokkrum bíómyndum, þótti
standa sig vel. Þátturinn var
aldrei langdreginn og Fallon
lék á als oddi. Gerði hann meðal
annars grín að De Niro, sem er
þekktur fyrir stuttaraleg svör í
viðtölum. Húsbandið The Roots
stóð sig einnig með prýði og hélt
uppi góðri stemningu.
Góðir gestir
hjá FallonGusGus heldur sína fyrstu tón-leika á árinu á Nasa 20. mars.
Hljómsveitin spilaði síðast hér á
landi á Iceland Airwaves-hátíð-
inni við fínar undirtektir. Eftir
það spilaði GusGus erlendis,
meðal annars í Moskvu, Tókýó og
Berlín. Síðastnefndu tónleikarnir
voru lofaðir í hástert af þýskum
fjölmiðlum og sjónvarpsstöðinni
MTV sem voru á tónleikunum
ásamt útsendurum virtra plötu-
útgefenda sem hafa verið áhuga-
samir um hljómsveitina.
Á tónleikunum á Nasa mun
GusGus vafalítið gefa áheyrend-
um forsmekkinn af væntanlegri
plötu sinni, 24/7 sem kemur út í
júní. Forsala miða á tónleikana
fer fram á Midi.is og í Skífunni.
GusGus með
tónleika
GUSGUS Hljómsveitin GusGus heldur
sína fyrstu tónleika á árinu á Nasa 20.
mars.
JIMMY FALLON Fyrsti þáttur Jimmys Fall-
on í stað Conans O´Brien þótti heppnast
mjög vel. NORDICPHOTOS/GETTY
> SAKNAR PABBA SÍNS
Rokkarinn Pete Doherty vill ólmur
sættast við föður sinn sem neitar
að tala við hann fyrr en Pete hætt-
ir eiturlyfjaneyslu sinni. „Ég er næstum
alveg hættur en þetta er erfitt. Hann lítur
svo á að ef ég er í einhverri neyslu þá er
ég ekki sonur hans. Ég elska mann-
inn og vildi óska að við gætum
farið á fótboltaleiki eins og við
gerðum.“
„Ekkiþjóðin heitir bandið. Skrifað
svona. Ekkiþjóðin,“ segir Grímur
Atlason sveitarstjóri.
Hann ásamt félögum sínum, Lýði
Árnasyni lækni og Hrólfi Vagns-
syni, sem sér um að réttir tónstig-
ar séu farnir, voru við upptökur á
nýrri plötu sem gefa á út fljótlega
í orðsins fyllstu merkingu. „Með
áherslu á að gefa. Platan verður
sem sagt gefins. Við tókum upp
sextán lög um helgina. Í lækna-
bústaðnum í Bolungarvík. Hver
borgar brúsann? Nú, Lýður. Og
kannski ég,“ segir Grímur. Hann
gefur lítt fyrir spurninguna um
hvort tilgangur útgáfunnar sé ekki
bara athyglissýki
á háu stigi. „Til-
gangurinn er að
skemmta fólki
og hafa gaman
af lífinu. Band-
ið mun spila í
bland við Grjót-
hrun í Hóls-
hreppi á
Aldrei fór ég suður. Sem er að
venju um páskana. Það liggur fyrir
umsókn þar um sem vel var tekið
í.“ Grímur segir að Mugison, sem
er æðstráðandi á tónlistarhátíð-
inni, sé vel við Lýð lækni. Og svo
sé reyndar um flesta Vestfirðinga
ef undan eru skildir fáeinir kvóta-
greifar. Og sveitarstjóri Dala-
byggðar hefur þetta til marks um
það. „Ég var einu sinni í bíl með
honum í Hnífsdal þar sem hann
braut um það bil allar umferðar-
reglur. Löggan stopp-
aði okkur og ég sagði
við löggu mann:
Lýður er góður
maður. Og okkur
var sleppt!“
Textarnir sem
Ekkiþjóðin syng-
ur einkennist
af bullandi
þjóðfélags-
ádeilu. En
tónlistar-
stefnan
er polki
og reggí
í bland.
- jbg
Sveitarstjóri og lækn-
ir eru Ekkiþjóðin
„Ég hef eiginlega alltaf verið syngj-
andi,“ segir Karen Pálsdóttir fimmtán
ára, en hún sendi nýverið frá sér lagið
Því ástin. Lagið er gamalt sænskt Euro-
vision-lag eftir Bobby Ljunggren,
en íslenskan texta gerði Ingi-
björg Gunnarsdóttir. Karen vakti
fyrst athygli á Músíktilraunum
í fyrra, en þar lenti hún í öðru
sæti ásamt Óskari Axel Ósk-
arssyni rappara og í kjöl-
farið hlaut lagið Unglingar
talsverða útvarpsspilun.
„Ég held að mig hafi
virkilega farið að langa að
verða söngkona í kringum ell-
efu ára aldurinn, annars ætlaði ég
alltaf að verða dýralæknir,“ segir
Karen sem hefur verið í söngtím-
um hjá Regínu Ósk Óskarsdótt-
ur síðastliðna þrjá vetur í Söngskóla
Maríu Bjarkar. „Regína er alveg frá-
bær og hefur kennt mér heilmikið. Hún
hjálpaði mér með lagið Því ástin, benti
mér á hvað væri sniðugt að gera og
fékk Örlyg Smára til að taka það upp og
útsetja,“ bætir hún við.
Aðspurð segist hún stefna á frek-
ara söngnám og segir popptónlistina
heilla hvað mest. „Ég er að hugsa um að
fara í FÍH og Menntaskólann í Hamra-
hlíð þegar ég klára Öldutúnsskóla.
Ég stefni á að gera allt sem ég get til
að halda áfram í tónlistinni, því það
er það skemmtilegasta sem ég geri,“
segir Karen. Því ástin fæst nú ókeyp-
is til niðurhals í takmarkaðan tíma á
tonlist.is og frekari upplýsingar um
Karen má finna á www.myspace.com/
karenpmusic. - ag
Hefur alltaf verið syngjandi
ÞVÍ ÁSTIN Karen Pálsdóttir lenti í öðru sæti í
Músíktilraunum í fyrra, en hún hefur nú sett
gamalt sænskt Eurovision-lag í nýjan búning.
Hér er hún með Örlygi Smára og Regínu Ósk
sem hafa aðstoðað hana.
GRÍMUR ATLASON
Ekkiþjóðin ætlar
að gefa út nýjan
disk í orðsins
fyllstu merkingu.
LÝÐUR ÁRNASON Tónlist hljóm-
sveitarinnar einkennist af bull-
andi þjóðfélagsádeilu í textum
en tónlistin er reggí og polki.
Anita okkar Briem vakti athygli ljós-
myndara þegar hún mætti á frumsýningu
stórmyndarinnar Watchmen á mánudags-
kvöldið.
Spennumyndin Watchmen var frumsýnd með
viðhöfn í Hollywood á mánudagskvöldið. Allar
stjörnur myndarinnar og ýmis þekkt nöfn úr
Hollywood voru mætt. Þar á meðal var íslenska
leikkonan Anita Briem sem getið hefur sér gott
orð þar í borg að undanförnu. Ljósmyndarar
fylgdust með hverju fótmáli Anitu og tóku eftir
glæsilegu veski sem hún bar.
Anita á rauða
dreglinum
GLÆSILEG Bleikur
kjóll Anitu vakti
athygli og ljósmynd-
arar tóku eftir vesk-
inu sem hún bar.
FALLEGT BROS Anita Briem
tók sig vel út á rauða dregl-
inum í Hollywood.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
STJÖRNUR Vanessa Hudgens
og Zac Efron úr High School
Musical voru meðal gesta.
Hjá FORTIS starfar samhentur hópur lögfræðinga með víðtæka reynslu af lögmannsstörfum.
Við leitumst við að veita persónulega og alhliða þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar
og sérhæfum okkur í skaðabótamálum vegna umferðar- og vinnuslysa, skilnaðar- og
sambúðarslitamálum svo fátt eitt sé nefnt.
Höfum áratuga reynslu af uppgjöri slysabóta.
Átt þú rétt á
bótum eftir slys?
Gylfi Thorlacius hrl.
Svala Thorlacius hrl.
S. Sif Thorlacius hdl.
Kristján B. Thorlacius hdl.
Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl.
www.fortis.is
K
R
A
FTA
V
ER
K
Laugavegi 7 • 101 Reykjavík • Sími: 520 5800 • fortis@fortis.is
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum þér að kostnaðarlausu!