Fréttablaðið - 04.03.2009, Qupperneq 42
22 4. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
SENDU SMS ESL MDVÁ NÚMERIÐ1900 OGÞÚ GÆTIR UNNIÐ!VINNINGAR ERU MEET DAVE Á DVD,TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR,PEPSI OG MARGT FLEIRA.
9. HVERVINNUR!
LENDIRÍ ELKO5. MARS!
EDDIE MURPHY ER INN Í EDDIE MURPHY
Í FRÁBÆRRI GAMANMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA!
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
EL
KO
Li
nd
um
–
Sk
óg
ar
lin
d 2
. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.
> Katrín mætt í 5. sinn á Algarve-bikarinn
Íslenska kvennalandsliðið hefur leik á Algarve-
bikarnum í dag þegar liðið mætir Noregi
klukkan 15.00 að íslenskum tíma. Íslenska
liðið fær nú að taka þátt í aðalkeppninni í
fyrsta sinn en íslensku stelpurnar hafa
síðustu tvö ár verið með í neðri hluta
Algarve-bikarsins. Nú keppa þær við
bestu kvennalandslið heims. Katrín
Jónsdóttir, fyrirliði liðsins, hefur spilað
alla 16 leiki íslenska landsliðsins í Alg-
arve-bikarnum frá upphafi. Hún var með
í fyrstu tvö skiptin, 1996 og 1997, og
hefur síðan verið fyrirliði liðsins undan-
farin tvö ár þar sem stelpurnar okkar hafa
unnið sex af átta leikjum sínum.
KÖRFUBOLTI Karlalið Keflavík-
ur tapaði fjórða heimaleik sínum
í röð á mánudagskvöldið þegar
liðið fékk nágranna sína í Njarð-
vík í heimsókn í Toyota-höllina.
Keflavík hefur ekki tapað fleiri
heimaleikjum í röð í úrvalsdeild
karla síðan liðið tapaði fimm
leikjum í röð 1983-84 eða fyrir 25
árum.
Það má segja Keflavíkurlið-
inu til varnar að í síðustu fjórum
heimaleikjum sínum hefur Kefla-
vík spilað á móti KR (1. sæti),
Grindavík (2. sæti), Snæfell (3.
sæti) og Njarðvík (5. sæti).
Þetta er aðeins í þriðja skiptið
í sögu úrvalsdeildar sem Kefla-
vík tapar þremur heimaleikjum
í röð. Keflavík er einnig búið að
tapa jafnmörgum heimaleikjum í
deildinni í vetur eins og liðið var
búið að gera síðustu fimm tímabil
á undan. - óój
Heimavöllur Keflvíkinga:
Versta gengi í
aldarfjórðung
EKKERT GENGUR HEIMA Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Enska úrvalsdeildin
Liverpool-Sunderland 2-0
1-0 David N’Gog (52.), 2-0 Yossi Benayoun (65.)
Portsmouth-Chelsea 0-1
0-1 Didier Drogba (79.).
West Brom-Arsenal 1-3
0-1 Nicklas Bendtner (4.), 1-1 Chris Brunt (7.), 1-2
Kolo Touré (38.), 1-3 Nicklas Bendtner (44.)
Staða efstu liða:
Enska B-deildin
Blackpool-Burnley 0-1
Jóhannes Karl Guðjónsson sat allan tímann á
bekknum hjá Burnley.
QPR-Norwich 0-1
Heiðar Helguson lék fyrstu 74. mín. hjá QPR
Sheff Wed-Reading 1-2
Brynjar Björn Gunnarsson var skipt útaf á loka
mínútunni hjá Reading.
Enska C-deildin
Crewe-Carlisle 1-2
Gylfi Sigurðsson lék allan leikinn með Crewe.
Þetta var fyrsta tap lærisveina Guðjóns Þórðar
sonar í fimm leikjum.
Iceland Express kvenna
KR-Grindavík 64-57 (27-35)
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 20 (11 frák., 5
stoðs.), Margrét Kara Sturludóttir 16 (8 frák., 5
stolnir), Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15
Guðrún Ósk Ámundadóttir 11, Helga Einarsdóttir
2 (6 varin), Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 12
fráköst (8 í sókn).
Stig Grindavíkur: Lilja Ósk Sigmarsdóttir 11, Ólöf
Helga Pálsdóttir 11, Petrúnella Skúladóttir 11 (8
frák., 7 stolnir), Ingibjörg Jakobsdóttir 8
Íris Sverrisdóttir 7 (8 stoðs.), Berglind Anna
Magnúsdóttir 6, Jovana Lilja Stefánsdóttir 3.
KR er 1-0 yfir í einvíginu en það þarf að vinna tvo
leiki til að komast í undanúrslitin.
ÚRSLITIN Í GÆR
Höskuldur Eiríksson er genginn til liðs við æskufélagið sitt, KR. Þaðan
fór hann árið 2003 til Víkings en er nú kominn „heim“ eins og hann
segir sjálfur.
„Það var annaðhvort að hætta í fótbolta eða fara í KR,“ sagði
Höskuldur. „Ég er uppalinn KR-ingur og sá ekki fyrir mér að spila með
öðru liði í úrvalsdeildinni en með KR.“
Hann fór fyrst til Víkings og þaðan til FH þar sem hann lék
síðasta sumar. Þaðan fékk hann sig lausan undan samningi
sínum nú fyrir skömmu.
„Þegar ég fór frá Víkingi var fyrsta
hugsunin að fara í KR. En það strand-
aði á því að það þurfti að losa mig
undan samningi við Víking og þar
strandaði málið hjá KR. Fljótlega eftir
það kom FH til sögunnar og fannst mér það
spennandi tækifæri.“
Höskuldur varð Íslandsmeistari með FH í sumar
en spilaði þó ekki nema sjö leiki þar sem hann var oft
meiddur. „Ég spilaði eins mikið hjá FH og ég mögulega
gat og alltaf þegar ég var heill. Ég gat því ekkert kvartað undan fáum
tækifærum.“ Höskuldur varð að fara í aðgerð vegna meiðsla sinna nú
í vetur og segir hann að það hafi verið upphafið að endinum hjá FH.
„Það eru allir klúbbar að draga saman seglin og þeir fóru fram á að
við myndum ganga frá þessu máli á þennan hátt. Þeir sáu fram á að
ég yrði aftur í meiðslavandræðum í sumar.
En ég stend í þakkarskuld við FH og fyrir allt það sem þeir gerðu
fyrir mig. Ég vildi ekki vera baggi á þeim og við gengum frá þessu
máli í góðu.“ Höskuldur er nýbyrjaður að
hreyfa sig á nýjan leik eftir aðgerðina. „Ég
skokkaði í fyrsta skipti í vikunni og sú áætlun
sem ég er með nú gerir ráð fyrir því að ég
verði kominn á fullt í byrjun apríl. Ef ekkert annað
kemur upp á fram að móti kem ég vonandi sterkari til leiks en
í fyrra.“ Hann segir það alltaf hafa verið ætlunin að koma aftur
einn daginn í KR. „Mér finnst eins og ég sé kominn heim. Það
var draumurinn að fara aftur í KR áður en ég myndi hætta
þessu. Mér finnst ég eiga óklárað erindi þar og vil sýna að
ég get plummað mig með KR.“
HÖSKULDUR EIRÍKSSON: SKRIFAÐI UNDIR ÞRIGGJA ÁRA SAMNING VIÐ KR
Var alltaf draumurinn að koma aftur í KR
KÖRFUBOLTI KR-konur eru komnar í
1-0 í einvígi sínu á móti Grindavík
í 1. umferð úrslitakeppni Iceland
Express-deildar kvenna eftir sjö
stiga sigur, 64-57, í sveiflukennd-
um og stórskemmtilegum leik í
DHL-Höllinni í gær.
Grindavík kom baráttuglatt og
fullt af sjálfstrausti til leiks með
Petrúnellu Skúladóttur í farar-
broddi og var átta stigum yfir í
hálfleik, 27-35.
KR-liðið er þekkt fyrir frábær
áhlaup í þriðja leikhluta en Grinda-
vík stóð það af sér þrátt fyrir að
hafa ekki skorað fyrstu fjóra og
hálfu mínútu hálfleiksins.
Útlitið var allt annað en bjart
fyrir KR-liðið þegar tæpar 9 mín-
útur voru eftir af leiknum og
Grindavík var þrettán stigum
yfir, 39-49. Þá læstu KR-konur
aftur vörninni, skoruðu 11 stig
í röð og komust loks yfir í 57-56
með þriggja stiga körfu frá Hildi
Sigurðardóttur. KR endaði leikinn
síðan á því að stela tveimur boltum
á úrslitastundu og vann að lokum
með sjö stigum eftir að hafa skor-
að síðustu 7 stigin.
Hildur Sigurðardóttir (20 stig,
11 fráköst, 5 stoðsendingar) átti
frábæran leik hjá KR og dreif sitt
lið áfram í gegnum allt mótlætið.
Sigrún Ámundadóttir (15 stig, 9
fráköst) og Margrét Kara Sturlu-
dóttir (16 stig, 8 fráköst, 5 stolnir)
voru einnig öflugar. Þá voru Helga
Einarsdóttir og Guðrún Gróa Þor-
steinsdóttir frábærar í vörninni
með 8 varin skot og 6 stolna bolta
saman.
Hjá Grindavík var Petrúnella
frábær í fyrri hálfleik en stigalaus
í þeim seinni. Lilja Ósk Sigmars-
dóttir og Ólöf Helga Pálsdóttir
voru báðar í góðum gír í sókninni
en enginn tók af skarið þegar sókn-
in stirðnaði upp í lokin. - óój
Úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í körfu:
KR-liðið vann upp 13
stiga forskot í lokin
KOMU TIL BAKA Helga Einarsdóttir og
félagar í KR unnu síðustu 8 mínúturnar
með 20 stigum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Það tók bæði Liverpool
og Chelsea langan tíma að brjóta
á bak aftur varnir Sunderland
og Ports mouth í leikjum liðanna
í ensku úrvalsdeildinni í gær en
á endanum tókst báðum liðum að
skora og eru þau því enn þá með
jafnmörg stig í öðru sæti deildar-
innar. Arsenal minnkaði forskot
Aston Villa í baráttunni um 4.
sætið með 3-1 sigri á West Brom-
wich.
Didier Drogba og Nicolas Anelka
hafa verið duglegir að skora sigur-
mörk síðan að Gus Hiddink tók við
stjórastöðunni hjá Chelsea. Stór-
sókn Chelsea í fyrri hálfleik bar
ekki árangur og það var ekki fyrri
en á 79. mínútu leiksins að Drog-
ba náði að skora. Jose Bosingwa
sendi þá boltann fyrir á Drogba
sem afgreiddi boltann meistara-
lega í netið. Hiddink hefur stjórn-
að Chelsea í fjórum leikjum og
þrír þeirra hafa unnið 1-0 og sá
fjórði vannst 2-1 með marki frá
Frank Lampard í uppbótartíma.
Hermann Hreiðarsson lék allan
tímann í vörn Portsmouth og rétt
eftir leik var það tilkynnt að Paul
Hart myndi halda áfram sem stjóri
liðsins út tímabilið. Portsmouth er
nú tveimur stigum frá fallsæti og
það stefnir því í harða fallbaráttu
hjá Hemma og félögum.
Liverpool hefði vel getað bætt
við fleiri mörkum gegn Sunder-
land og reynt að vinna upp forskot-
ið sem Chelsea hefur í marktölu.
Liverpool lét sér tvö mörk nægja
í 2-0 sigri. Chelsea hefur því sjö
marka forskot á Liverpool.
David Ngog braut ísinn hjá
Liverpool með sínu fyrsta marki
í úrvalsdeildinni eftir að fyrirlið-
inn Steven Gerrard skallaði fyr-
irgjöf Albert Riera til hans. Ngog
átti einnig þátt í öðru markinu en
Martin Fulop, markvörður Sund-
erland, missti þá klaufalega fyrir-
gjöf hans frá sér og Yossi Benayo-
un skoraði í tómt markið.
Forskot Manchester United á
Chelsea og Liverpool minnkaði í
fjögur stig í gær en ensku meistar-
arnir geta aftur aukið það í sjö stig
með sigri á Newcastle í kvöld.
Nicklas Bendtner fann loksins
skotskóna í 3-1 útisigri Arsenal
West Brom. Daninn skoraði fyrst
mark leiksins eftir aðeins fjórar
mínútur og kom Arsenal í 3-1 fyrir
lok fyrri hálfleiks. West Bromwich
jafnaði skömmu eftir að Bendtner
skoraði fyrsta markið en Rússinn
Andrej Arsjavin lagði upp mark
fyrir Kolo Touré sem kom Arsen-
al aftur yfir. Eftir þennan sigur
munar aðeins þremur stigum á
Arsenal og Aston Villa en Villa-
liðið á leik inni.
ooj@frettabladid.is
Mörkin létu bíða eftir sér í gær
Chelsea og Liverpool eru áfram jöfn í öðru sætinu eftir sigra í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liverpool vann
Sunderland 2-0 og Didier Drogba tryggði Chelsea þriðja 1-0 sigurinn í fjórum leikjum undir stjórn Hiddink.
MIKILVÆGT MARK Didier Drogba fagnaði vel sigurmarki sínu í gær. NORDICPHOTOS/GETTY