Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Qupperneq 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. maí 2006
S
igurður Bjarnason fæddist á
sumardaginn fyrsta; 22. apríl
1841, í Tungu á Vatnsnesi, sonur
hjónanna Bjarna Sigurðssonar
og Náttfríðar Markúsdóttur.
Hún var dóttir Markúsar Arn-
grímssonar, lögsagnara á Reykjum og Torfa-
stöðum í Miðfirði, en hann sonur Sigurðar
Ólafssonar og Þorbjargar Höskuldsdóttur í
Katadal á Vatnsnesi. Bæði Bjarni og Sig-
urður faðir hans voru skáldmæltir vel og hef-
ur Sigurður Bjarnason
þannig verið rakið skáld
að upplagi. Nokkuð hef-
ur varðveitzt af skáld-
skap föður hans og afa.
Snæbjörn Jónsson útgefandi Hjálmarskviðu
Sigurðar Bjarnasonar og Ljóðasafns hans
getur þess í aðfararorðum, að í hans eyru
hafi Sigurði Ólafssyni verið eignuð vísan:
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali - alt hvað er,
aldrei skal jeg gleyma þér,
sem oftast er eignuð Vatnsenda-Rósu.
Vísa þessi á að hafa verið í ljóðabréfi, sem
Sigurður sendi konu sinni í fangelsi í Dan-
mörku. Til þess að hún var þangað flutt er
þess að geta, að næstelzta barn þeirra Sig-
urðar var Friðrik, sem varð banamaður Nat-
ans Ketilssonar og missti lífið þar fyrir. Sig-
urður hlaut hýðingardóm fyrir vöntun á aga
gagnvart Friðriki, en Þorbjörg var dæmd til
betrunarhússvinnu í Danmörku. Hefur m.a.
varðveitzt ljóðabréf, sem Sigurður sendi konu
sinni í fangelsið og hefst ein vísan þar í svo:
Af engri þurrðu ann ég þér.
Vorið eftir að Þorbjörg kom heim aftur,
fluttu þau hjón frá Katadal að Tungu og
Bjarni sonur þeirra með þeim. Hann hóf svo
búskap þar með Náttfríði konu sinni 1839 en
átta árum síðar fluttust þau að Katadal og
Bjarni 1864 að Náttfríði látinni að Hlíð á
Vatnsnesi. Tíu árum síðar fluttist hann vest-
ur um haf með þremur börnum sínum og
Kristínu Jóhannesdóttur, sem hafði verið
ráðskona hans í Hlíð.
Auk kveðskaparins var hestamennskan tal-
in Bjarna til tekna og segir Theodór Arn-
björnsson frá Ósi í Sagnaþáttum úr Húna-
þingi, að haft hafi verið á orði á Vatnsnesi ef
sást til ríðandi manns að vetrarlagi, „að þar
væri annað hvort presturinn eða fjandinn
hann Bjarni í Tungu.“
Sigurður Bjarnason ólst upp við kröpp
kjör, en lét erfiðleikana og fátæktina ekki
smækka sig, heldur bar andlegt og líkamlegt
atgervi hann áfram. Theodór Arnbjörnsson
segir að hann hafi verið glaðvær og hvers
manns hugljúfi og svo skáldmæltur að mál
hans féll í stuðla, þegar hann vildi.
Mikið og fimlegt
vald yfir málinu
Snæbjörn Jónsson segir Sigurð hafa verið vel
bráðþroska og hafi hann ort ljóð þegar á
barnsaldri. Vísar Snæbjörn til þess að í syrp-
um Sigurðar í Landsbókasafni sé „hreint
ekki lítið geymt af því sem hann orti innan
sextán ára aldurs. Enginn mundi að vísu
kalla þau kvæði mikinn skáldskap, en sízt
standa þau þó að baki alþýðukveðskap eins
og hann gerist upp og ofan. Þó vekur það
einkum athygli, hve óþvingað hann kveður og
eðlilega og hve rétt hann fer með kenningar
og heiti, sem þó ber mikið á. Það má segja,
að þetta mikla og fimlega vald yfir málinu
einkenni kveðskap Sigurðar Bjarnasonar frá
því fyrsta til hins síðasta.“
Sveitavinnan lá Sigurði næst og snemma
fór hann til sjós, reri á vetrarvertíðum við
Faxaflóa, en vor og haust fyrir norðan. Hann
eignaðist bátinn Þorra og hélt honum úti frá
Bergsstöðum á Vatnsnesi.
Theodór Arnbjörnsson vitnar til tveggja
lýsinga á Sigurði Bjarnasyni og segir önnur
svo: „Sigurði er þannig lýst eftir beztu heim-
ildum: Hann var hár og fremur grannur,
réttvaxinn, limaður vel og sómdi sér hið
bezta; ennið hátt og hvelft, augun grá, en þó
með brúnum depli; nefið fínt með litlum lið
og hafið nokkuð upp að framan, jarpur á hár,
en skeggið ljósara; glaður og prúður í fram-
göngu, svo að frá bar þeirrar aldar hætti, og
hverjum manni ástsælli. Þá er hann þrosk-
aðist, varð hann gildur maður, hvar sem
hann gekk að, góður sjómaður, skjótur til úr-
ræða og öruggur í mannraunum.“
Húsráðendur á Bergsstöðum voru Eiríkur
Arason og Guðríður Guðmundsdóttir. Elzt
sjö barna þeirra var Helga, greind stúlka og
skáldmælt. Þau Sigurður voru 14 og 12 ára
við fyrstu kynni og fljótt fóru vísur þeim í
milli.
Helga kvað:
Siggi kveður löngum ljóð
lyndi meður kátu;
hölda gleður, hrindir móð,
hirðir téður plátu.
Og Sigurður:
Syngja ljóðin liðugt kann
lyngorms tróðan bungu,
þvinga móðinn iðug ann,
yngisfljóð í Tungu.
Theodór Arnbjörnsson segir, að Helga hafi
verið há og grönn, dökk á hár og dökkeyg,
augun hvöss og þó hlý. Hörundsbjört var hún
og fríð, rómurinn heldur dimmur, en þó sér-
staklega þýður; framúrskarandi barngóð.
Ætíð lagði hún gott til mála, því að jafnan
fann hún málsbót.“
Skáldgáfan gaf þeim Helgu og Sigurði góð-
ar stundir og svo fór, að þau felldu hugi sam-
an og bundust hjúskaparheitum.
Snæbjörn Jónsson segir Helgu hafa verið
samboðna Sigurði í einu og öllu. Ljóð hans
beri ást hans til hennar órækt vitni og ekki
mun ástin hafa verið minni á hennar hlið.
Svipvindur fleygði
skipinu á hliðina
Að kvöldi 27. júní 1865 lögðu menn frá
Bergsstöðum, Stöpum og Illugastöðum upp í
kaupstaðarferð til Borðeyrar. Snæbjörn
Jónsson rekur þessa sjóferð og einnig birtist
frásögn í Norðanfara og er stuðzt við þær
hér. Farkosturinn var sexmannafar, áttróið,
háfermt af ull. Um borð voru 13 manns og
Sigurður Bjarnason formaður. Róið var inn
með nesinu og sjóveikri stúlku skotið í land
við Hamarinn, en síðan haldið áfram og siglt
hægan landsynning vestur með Hegg-
staðanestánni, mjög nærri landi.
Þegar komið var vestur fyrir og undir nes-
ið hugðust menn fella seglið, en í sömu svip-
an laust svipvindi ofan úr Hvítabjarnargjá í
seglið og fleygði skipinu á hliðina svo það
fylltist af sjó.
Sumt af fólkinu flaut fyrir borð með ull-
arpokunum og var Sigurður þar á meðal.
Theodór lýsir lokum hans svo: „Flaut hann
þegar frá skipinu á ullarpoka og var skamma
stund ofansjávar. Hann kallaði til þeirra, sem
enn voru í skipinu, er maraði í kafi: „Reynið
að losa skautið og skera á höfuðbendurnar,“
sem og var gert. Bað hann fólkið að vera ró-
legt og fela sig drotni. Að svo mæltu sökk
Rímnaskáldið góða
Kornungur kvað hann sig inn í hjörtu þjóð-
arinnar og kornungur kvaddi hann þennan
heim. En Sigurður Bjarnason lifir áfram í
kveðskap sínum, þótt tíminn hafi verið hon-
um mótdrægur og farið mýkri höndum um
annars konar kveðskap.
Eftir Freystein
Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Ljósmynd/Handritadeild Landsbókasafns
Hjálmarskviða Upphaf Hjálmarskviðu í eiginhandarhandriti Sigurðar Bjarnasonar.
Æskuljóð Eiginhandarhandrit Sigurðar Bjarnasonar af fyrsta flokki af æskukveðskap hans.
!
"#$$
#$$
%