Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Síða 11
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. maí 2006 | 11 Ný skáldsaga eftir bandaríska rithöf-undinn Philip Roth, Everyman, erkomin út og hefur hlotið frábæradóma. Nóbelshöfundurinn Nadine Gordimer segir í ritdómi í New York Times Book Review að Roth takist með stórkostlegum hætti að afsanna þau orð Georgs Lukácsar að það sé rithöfundi ómögulegt að um- faðma allt lífið í verkum sín- um. Og Benjamin Marko- vits, gagnrýnandi Times Literary Supplement, segir að eini galli Every- mans sé kannski sá að þegar upp sé staðið í lok sögu sé kannski enginn boðskapur í henni eða með öðrum orðum, Roth sé kominn að endimörk- um gamanmála sinna, það sé ekki hægt að vera fyndinn um hvað sem er og þar á meðal ekki dauðann sem er aðalumfjöllunarefni nýju bók- arinnar. Everyman er reyndar enn ein skáldsagan sem komið hefur út á síðustu árum og fjallar um ásta- líf eldri karla. Gabriel García Márquez skrifaði um sama efni í Minningum um döpru hórurnar mínar, sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu Kolbrúnar Sveinsdóttur, og Carlos Fuentes gerði efninu skil í Inez og Suður-Afríkumaðurinn J.M. Coetzee í Vansæmd, sem Rúnar Helgi Vign- isson hefur þýtt, og í nýjustu bók sinni Slow Man. Efnið hefur reyndar verið Roth hugleikið síðustu ár, bæði Human Stain (2000) og Hin feiga skepna (2001; á íslensku 2003) fjölluðu um eldri menn á valdi kynferðislegs losta. Auðvitað er það ekki alveg nýtt að rithöfundar skrifi um þetta til- tekna efni en það er samt sem áður rannsókn- arefni hvers vegna svo margar bækur eftir nokkra af fremstu skáldsagnahöfundum samtím- ans fjalla um það einmitt nú. Eins og hinir höfundarnir þrír fjallar Roth um samspil hinna kynferðislegu langana og dauðans eða hugsunarinnar um dauðann. Everyman hefst raunar við jarðarför aðalpersónunnar, manns sem notið hefur velgengni í auglýsingabrans- anum en gefið ferilinn upp á bátinn til þess að svala metnaði sínum á sviði málaralistar og list- kennslu. Við jarðarförina kynnumst við helstu persónum sögunnar – eiginkonunum, börnunum, bróðurnum, hjákonunum og hjúkrunarkonunum – en í framhaldinu segir Roth sögu mannsins eða reyndar sjúkrasögu hans, allt frá því hann er skorinn við kviðsliti sem drengur til þess að vera skorinn við hjartakvilla sem að endingu dregur hann til dauða. En undir niðri hvílir spurningin sem hefur ásótt Roth allan hans rithöfundarferil: Hvernig getum við lifað réttlátlega þegar kyn- hvötin tekur öll völd af okkur? Og hvernig getum við lifað án hennar? Roth hefur engin svör við þessum spurningum í Everyman, frekar en fyrri bókum sínum, segir Benjamin Markovits í dómi sínum, en hann virð- ist þó hallast að því að skírlífi sé besti kosturinn ef menn hafi sjálfsagann sem til þurfi. Kynlíf og dauði ’Everyman er reyndar enn ein skáldsagan sem komið hefurút á síðustu árum og fjallar um ástalíf eldri karla.‘ Erindi Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is F rá endurskoðun til upplausnar: Tvær prófritgerðir, einn formáli, þrjú viðtöl, sjö fræðigreinar, fimm ljósmyndir, einn eftirmáli og nokkrar minningargreinar af vett- vangi hugvísinda. Bók með svona langt nafn hlýtur að eiga mikið erindi. Og það stendur heima ef marka má formála hennar sem ritaður er af einum ritstjóra verksins, Sigurði Gylfa Magnússyni. Þar eru notuð orð eins og þessi: „Bók- in öll er hugsuð sem andóf í fræðilegum skilningi.“ Og: „Bókin sem hér fer á eftir lýsir yfir stríði á hendur þeim sem mótað hafa þessa hugmyndafræði,“ en þar er átt við hug- myndafræði meintra afturhaldsafla í íslenskum hugvísindum, einkum sagnfræði. Og það sem for- málinn boðar í staðinn fyrir þetta afturhald er „ný […] sýn á viðfangsefni fræðanna“ og það eru ekki síst hinir tveir ritstjórar bókarinnar sem standa fyrir þessari nýju sýn, Hilma Gunnarsdóttir og Jón Þór Pétursson, en þau eiga tvær af lengstu greinum bókarinnar sem eru BA-ritgerðir þeirra, skrifaðar undir handleiðslu Sigurðar Gylfa við Há- skóla Íslands um aðferðir og hugmyndalíf ís- lenskra sagnfræðinga síðustu áratugi. Í fyrsta hluta verksins er fjallað um íslensku söguendurskoðunina svokölluðu sem átti upphaf sitt um 1980 í nýjum fræðilegum viðhorfum sem tengdust einkum félagssögunni en leið undir lok um það bil tíu árum síðar. Í öðrum hluta verksins er síðan fjallað um upplausn viðtekinna gilda í fræðum og vísindum sem höfundar segja að hafi fylgt í kjölfarið og tengjast meðal annars póst- strúktúralískum og póstmódernískum viðhorfum. Í lokahluta verksins, eins konar eftirmála, er sjón- um síðan beint að óvenjulegum tilraunum Tryggva V. Líndals, mannfræðings og skálds, til þess að viðra skoðanir sínar og skáldskap á op- inberum vettvangi en hann notaði til þess minn- ingargreinar Morgunblaðsins. Auk þremenninganna skrifa í bókina Guðrún Lára Pétursdóttir, Jósef Gunnar Sigþórsson, Sig- rún Sigurðardóttir, Davíð Ólafsson og Valdimar Tr. Hafstein. Að auki birtast viðtöl við þá Gísla Gunnarsson, Gunnar Karlsson og Loft Guttorms- son og nokkrar minningargreinar eftir áðurnefnd- an Tryggva V. Líndal. Frá endurskoðun til upplausnar Ritgerð Hilmu er tilraun til þess að skilgreina ís- lensku söguendurskoðunina. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að á níunda áratugnum hafi „íslensk sagnfræði eignast hóp fræðimanna sem stóð fyrir öflugri aðferðafræðilegri endurskoðun innan fags- ins“. Hún segir að öruggt megi telja að „sá hópur sagnfræðinga sem steig fram á níunda áratugnum hafi stuðlað að efnislegri endurskoðun og uppgjöri á hinni þjóðernislegu orðræðu“ en hún einkenndi skrif íslenskra sagnfræðinga langt fram eftir síð- ustu öld. Meginspurning ritgerðarinnar er þó „hvort hreyfingin hafi einnig breytt, og jafnvel bylt, aðferðafræðilegri nálgun íslenskrar sagn- fræði“. Með þetta í huga skoðar hún verk fjögurra íslenskra sagnfræðinga í erlendu ljósi, Gísla Gunn- arssonar, Guðmundar Hálfdanarsonar, Gunnars Karlssonar og Lofts Guttormssonar. Hún kemst að þeirri niðurstöðu að hræringarnar á níunda áratugnum hafi breytt íslenskri sagnfræði til frambúðar og fjórmenningarnir hafi allir lagt sitt til þeirrar þróunar. Breytingarnar fólust einkum í auknum félagssögulegum áherslum, nýir hópar samfélagsins voru skrifaðir inn í sögubækurnar, svo sem börn og vinnuhjú, og sömuleiðis voru nýir efnisþættir teknir til umfjöllunar eins og kynlíf, læsi, tilfinningalíf og kynjasögusjónarmið. Og Hilma segir: „Með sínum vísindalegu aðferðum sýndu sagnfræðingar endurskoðunarinnar fram á að þjóðin stóð ekki ein og heil á öldum áður“ eins og eldri sagnfræðingar höfðu haldið fram í anda sjálfstæðisbaráttunnar. Ritgerð Jóns Þórs fjallar um sjónvarpsþætti Baldurs Hermannssonar frá 1993, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins, sem vöktu gríðarlegar umræður en í þeim greinir Jón Þór hugmyndir manna um sögu og sagnfræði á þessum tíma. Baldur nýtti sér verk fræðimanna sem tilheyrðu íslensku söguend- urskoðuninni til þess að ráðast að söguskoðun sjálfstæðisbaráttunnar með því að fjalla um undir- málsfólk í gamla íslenska bændasamfélaginu. Í stuttu máli kemst Jón Þór að þeirri niðurstöðu að viðbrögðin við þáttunum sýni að hugmyndafræði endurskoðunarinnar hafi lognast út af í byrjun tí- unda áratugarins enda hafi fræðimenn talið að endurskoðuninni væri lokið, söguskoðun sjálf- stæðisbaráttunnar hefði verið ýtt til hliðar og nýr sannleikur um sögu þjóðarinnar tekið við, ef svo má segja, og þar með væri íslenska söguend- urskoðunin ekki lengur virkt hugmynda- og að- ferðafræðilegt afl innan íslenskrar sagnfræði. Er- lendis voru sjónarmiðin sem endurskoðunin byggðist á enn í fullu gildi en hér hefðu menn kall- að á ný viðhorf. Og kenning bókarinnar er sú að þar með hafi íslensk sagnfræði lent í eins konar öng- stræti. Í öðrum hluta bókarinnar er fjallað um upplausnina sem höfundar telja að hafi einkennt hugmyndalíf íslenskra sagnfræð- inga síðastliðinn áratug eða svo. Sigurður Gylfi skrifar yfirlitsgrein um þróun ís- lenskrar sagnfræði 1980–2005 og segir þar meðal annars að fræðimenn hafi einbeitt sér að ritun yfirlitsrita um íslenska sögu meira en góðu hófu gegnir en í þeim sé áherslan iðulega á stofnanir og stórmenni fremur en þá hópa sem söguendurskoðunin lagði áherslu á að færa inn í söguritin. Það má því skilja á Sigurði Gylfa að íslensk sagnfræði hafi tekið skref aftur á bak. Von- in virðist að mati Sigurðar Gylfa falin í svo- kallaðri fjórðu bylgju íslenskra sagnfræð- inga, sem þau Hilma og Jón Þór eru meðal annarra hluti af, en þeir sagnfræðingar muni taka aðra afstöðu til „íslensku sögu- stofnunarinnar“ en eldri sagnfræðingar. Þessa ungu kynslóð sagnfræðinga telur Sigurður Gylfi að muni leiða til „upplausn- ar hinna hefðbundnu viðmiða sem markað hafa fræðigreinum braut á tuttugustu öld“. Upplausn og ekki upplausn Kenningin um upplausnina, sem oft er kennd við póstmódernisma og póststrúkt- úralisma, er áhugaverð þótt orðið upplausn sé kannski farið að þynnast út. Það er hugsanlega einnig vafasamt að tala um að það sé nú kreppa í hugvísindum eða sagn- fræði, sem Hilma nefnir sérstaklega. Við lifum þvert á móti á mestu blómatímum hugvísinda frá upphafi þeirra á 18. og 19. öld og þó að póst- strúktúralisminn hafi rifið niður fyrri kenn- ingakerfi hefur hann gert það á mjög skipulegan hátt og þannig skapað grundvöll fyrir nýja hugsun sem nú er farin að skila sér inn í meginstraumsrit á öllum sviðum hugvísinda og jafnvel almenna um- ræðu, samanber til dæmis Draumaland Andra Snæs þar sem nokkrir helstu forvígismanna póst- strúktúralismans á borð við Jacques Derrida, Mic- hel Foucault og Jean Baudrillard svífa yfir vötnum án þess að vera nefndir. Það er hins vegar hægt að tala um menningarlega upplausn sem er hið póst- móderníska ástand en þessu tvennu er iðulega ruglað saman. Póststrúktúralisminn skapaði kannski ákveðna upplausn í fræðaheiminum á sjö- unda áratugnum en síðan hefur hann orðið afl sem sett hefur hlutina í nýtt samhengi og á aðeins 40 árum hefur hann haft gríðarlega mikil áhrif á vest- rænt hugmyndalíf og er að mörgu leyti orðinn við- tekinn. Það er að mestu liðinn tími að póststrúkt- úralisminn sé í stórkostlegri vörn, þótt hægt sé að finna einstaka fræðimenn sem ekki hafa kynnt sér fræðin nægilega vel. En hvort sem talað er um upplausn og kreppu eða ekki er það ljóst að tæki- færi eru falin í póststrúktúralískum aðferðum fyr- ir íslenska sagnfræði og þær aðferðir spruttu vissulega upp úr andófi og nánast stríðsyfirlýs- ingum á sínum tíma eins og þær virðast ætla að gera hérlendis nú. Bókin sem Miðstöð einsögurannsókna gefur út í samvinnu við Reykjavíkurakademíuna er meðal annars hugsuð sem innlegg í þriðja söguþingið sem haldið verður um næstu helgi. Á þinginu verð- ur sérstök málstofa sem tileinkuð er efni þessarar bókar. Það fer fram föstudaginn 19. maí kl. 13 í Háskóla Íslands. Andóf í fræðilegum skilningi Frá endurskoðun til upplausnar nefnist nýtt rit um íslenska sagnfræði í aldarfjórðung. Þar er því haldið fram að íslensk sagnfræði standi nú frammi fyrir aðferða- og hugmyndafræðilegri upplausn sem ný tækifæri séu falin í. Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Ulrike Meinhof var greindurblaðamaður sem varð einn hættulegasti hryðjuverkamaður Þýskalands en hún var einn stofnenda Baad- er-Meinhof sem síðar varð að Rauðu herdeild- unum. Nú í vik- unni voru 30 ár liðin frá því Mein- hof svipti sig lífi í fangaklefa eftir að flugráns- tilraun sem ætlað var að frelsa hana og tvo félaga hennar úr fangelsi fór út um þúfu. Nú á vordögum kom líka út ævisaga Meinhof rituð af Bettina Röhl, annarri tvíburadætra Meinhof, þar sem hún leitast við að útskýra umbreytingu þessa virta blaðamanns yfir í hryðjuverkamann. Bókin nefnist So macht Komm- unismus Spass! Ulrike Meinhof, Klaus Reiner Röhl und die Akte Konkret og ýjar Röhl þar að því að ástæða umbreyting- arinnar hafi verið sú að Meinhof hafi verið að flýja sjálfan sig á tímabili þar sem hún var milli þess að vera þunglynd og full sjálfs- leiða. Gagnrýnandi Berlingske Tid- ende varpar fram þeirri spurningu hvort útskýringar dótturinnar séu ef til vill lítið annað en vasasálfræði, en segir samt sem áður ekki margar aðrar skýringar að finna á ótrúlegri ævi Meinhof.    Skáldsögur Andreï Makine eruuppfullar af ungum, rótlausum söguhetjum, ósáttum Sovétmönnum sem eiga í baráttu við að sættast við fortíð og framtíð. Saga þeirra er þó langt í frá jafn einstök og Makine sjálfs, sem svaf í grafhvelfingu Par- ísarkirkjugarðs á nóttunni og skrif- aði fyrstu skáldsögu sína á bekkjum garðsins á daginn. Nýjasta bók hans The Woman Who Waited er ást- arsagan sem aldrei varð og þar sem ást og sársauki eru illa aðskilin. Vera er búin að bíða eftir elskhuga sínum í 30 ár. Hún var 16 ára þegar hann yfirgaf þorpið þeirra á leið til vígstöðvanna í apríl 1945 og í huga sögumannsins, 26 ára stórborg- arstráks í ástarsorg sem með tím- anum kynnist Veru náið, er erfitt að ímynda sér slík örlög. Makine forð- ast hins vegar að falla í gryfju of mikillar tilfinningasemi í þessari áhrifamiklu bók um það sem aldrei var.    Bækurnar í hinni stórskemmti-legu og skörpu bók Stuart Kelly, The Book of Lost Books, eru bókmenntaverk sem af einhverjum ástæðum hafa ekki lifað með kyn- slóðunum sem á eftir hafa komið. Verk sem hafa tapast, sætt rit- skoðun, ekki verið kláruð eða aldrei jafnvel byrjað á eru viðfangsefni Kelly ásamt sögu þeirra og höfund- anna. Hann kastar þar einnig fram, að sögn gagnrýnanda New York Times, stórskemmtilegum en mis- jafnlega umdeilanlegum kenningum um verkin og höfundana, þannig segir hann t.d. tap Ernests Hem- ingways á ferðatösku fullri af náms- verkum hans hafi gert höfundinn að þeim rithöfundi sem hann varð og átt sinn þátt í að þróa hans sérstæða stíl.    Systir Pelagía er gjörólík heims-borgaranum Erast Fandorin, en er engu að síð- ur spæjari og að- alsöguhetja nýj- ustu bókar rússneska rithöf- undarins Borís Akúníns sem kemur út á ensku. Bókin nefnist Pelagia and the White Bulldog og er sögusviðið sveitabær í strálbýlum hluta Rússlands á 19. öld. Og þó glæpamálið sé öllu umfangsminna en stórmálin sem Fandorin fæst við hefur Akúnín engu að síður skilað frá sér bók sem er stórskemmtileg, vel rituð og frumleg að því er segir í ritdómi breska blaðsins Guardian. Borís Akúnín Ulrike Meinhof Erlendar bækur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.