Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Page 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. maí 2006
Hollywood stólar nú á að Sup-erman bjargi fjárhagnum og
sumarvertíðinni. Í fyrrasumar þén-
aði Hollywood
254 milljarða
króna og var það
versta sum-
arvertíðin síðast-
liðinn áratug.
Í ár reiknar
Félag kvik-
myndahúsaeig-
enda í Bandaríkj-
unum með því að
Superman Re-
turns laði áhorfendaskarana í kvik-
myndahúsin á nýjan leik.
Superman snýr aftur verður
frumsýnd í Bandaríkjunum í næsta
mánuði og er lítið þekktur leikari,
Brandon Routh, í aðalhlutverki og
hin ástralska þokkagyðja Kate Bos-
worth sem fer með hlutverk Lois
Lane.
Aðrir sum-
arsmellir eru ný
mynd í mynda-
röðinni X-Men og stórslysamyndin
Poseidon Adventure og Mission:
Impossible III sem hefur nú þegar
valdið bandarískum kvikmynda-
húsaeigendum vonbrigðum með
slæmum aðsóknartölum fyrstu vik-
una eftir frumsýningu.
Í umræðunni um sumarmyndir máþó ekki gleyma stórmyndinni Da
Vinci lyklinum, sem tekin verður til
almennra sýninga um allan heim 19.
maí.
Í aðalhlutverki
myndarinnar er
Tom Hanks en
hann hefur gagn-
rýnt trúar-
leiðtoga sem hafa
beðið fólk um að
sniðganga mynd-
ina. Segir hann
að þeir taki hana
of alvarlega. Seg-
ir Hanks í viðtali við Lundúnablaðið
Evening Standard að hann hafi allt-
af vitað að það væru einhverjir sem
ekki vildu að myndin yrði sýnd.
Hanks leikur hlutverk Roberts
Langdon í myndinni sem byggir á
bók Dan Brown. Da Vinci lykillinn
var mest selda bók í heimi árið 2003.
Myndin verður frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í Frakk-
landi í næstu viku og flykkjast
Hollywood-stjörnur á hátíðina.
Myndin hefur áhrif víða enstjórnendur tveggja kvik-
myndahúsa í Færeyjum hafa ákveð-
ið að taka Da Vinci lykilinn ekki til
sýninga. Ástæðan er sögð sú, að
söguþráður myndarinnar feli í sér
guðlast og ætla Færeyingarnir því
ekki að fara eftir óskum Hanks.
Færeyska blaðið Sosialurin hefur
eftir Jákup Eli Jacobsen, forstjóra
Havnar Bio, að þar á bæ hafi menn
valið að sýna ekki myndina vegna
þess að hún sé guðlast. „Þegar við
spurðum Nordisk Film, sem dreifir
myndinni, hvort innihald hennar
væri það sama og bókarinnar, og
fengum jákvætt svar, ákváðum við
að við ætluðum ekki að sýna neitt
guðlast í Færeyjum,“ hefur blaðið
eftir Jakobsen.
Hann viðurkennir jafnframt að
hann hafi ekki lesið bókina. „En mér
er sagt að í myndinni segi að Jesús
hafi átt börn með konu. Það er næg
ástæða til að sýna ekki myndina,“
segir Jakobsen og bætir við að hann
óttist að missa rekstrarleyfið ef
hann sýni guðlast í kvikmyndahús-
inu.
Í öðrum helstu hlutverkum í
myndinni eru Audrey Tautou, Ian
McKellen, Paul Bettany, Alfred
Molina og Jean Reno.
Erlendar
kvikmyndir
Tom Hanks
Audrey Tautou
Brandon Routh
Kvikmyndahátíðin í Cannes hefst meðpomp og prakt næstkomandi fimmtu-dag. Á ellefu dögum verður sýndurmikill fjöldi mynda hvaðanæva úr
heiminum: Hollywood-myndir, listamyndir, heim-
ildamyndir, stuttmyndir og sígild verk úr kvik-
myndasögunni. Það er ólíku saman að jafna kvik-
myndum hátíðarinnar og flatneskjunni sem
einokar kvikmyndatjöld
landsins, en á þeim er ekki
að finna eina einustu – eina
einustu – kvikmynd sem er
framleidd utan Hollywood.
Það er því ekki að ástæðulausu að íslenskir kvik-
myndaunnendur horfa nú öfundaraugum til
Cannes líkt og oft áður í maímánuði.
Yfirbragð hátíðarinnar hefur breyst í áranna
rás og margt með öðrum hætti nú en þegar hún
var fyrst haldin árið 1946 (eða nánar tiltekið 1939
er hátíðin svo að segja þjófstartaði við upphaf
seinni heimsstyrjaldar). Nú úir þar og grúir af
fólki á öllum sviðum kvikmyndabransans. Smá-
stirni fækka fötum á ströndinni, Hollywood-
stjörnur spóka sig í sólinni og harðsvíraðir
kaupahéðnar bjóða í næsta stórsmellinn. Kjarni
hátíðarinnar, sjálf keppnin um Gullpálmann, hef-
ur þó haldist í meginatriðum óbreytt þessa ára-
tugi. Sérvalin nefnd velur bestu myndina úr hópi
nýjustu mynda margra af virtustu leikstjórum
samtímans.
Árið 1946 voru í aðalkeppninni myndir eins og
Brief Encounter (David Lean), Gilda (Charles
Vidor), Fríða og dýrið (Jean Cocteau), Maria
Candelaria (Emilio Fernandes), Notorious (Al-
fred Hitchcock) og Róm, opin borg (Roberto
Rossellini). Ekki hafði dómnefndin hjarta í sér til
að útnefna einn sigurvegara þetta fyrsta ár
keppninnar og deildu ellefu myndir með sér
verðlaununum. Þótt það sé nú eindæmi í sögu
Cannes hafa dómnefndir haldið í þetta fordæmi
og stundum veitt tveimur myndum Pálmann þótt
oftast nær hafi einungis ein mynd staðið uppi
sem sigurvegari. Á meðal handhafa Gullpálmans
er að finna margar af áhrifaríkustu myndum
kvikmyndasögunnar: The Third Man (1949, Car-
ol Reed), Trönurnar fljúga (1957, Mikhail
Kalatozov), La Dolce vita (1960, Federico Fell-
ini), Hlébarðinn (1963, Luchino Visconti), Blowup
(1966, Michelangelo Antonioni), MASH (1970,
Robert Altman), Taxi Driver (1976, Martin
Scorsese), Paris, Texas (1984, Wim Wenders),
Wild at Heart (1990, David Lynch) og Dancer in
the Dark (2000, Lars von Trier).
Það er því ekki lítill heiður sem fylgir því að
hljóta Gullpálmann – hálfgerður lykill að kvik-
myndasögunni – en í ár hafa myndir tuttugu leik-
stjóra verið valdar til þátttöku. Þeirra á meðal
eru Pedro Almodóvar, Sophie Coppola, Alej-
andro Gonzáles Inárritu, Aki Kaurismaki, Rich-
ard Linklater og Ken Loach. Formaður dóm-
nefndar er sjálfur Wong Kar-Wai en þrjár
mynda hans, þær Happy Together, In the Mood
for Love og 2046, hafa keppt um Gullpálmann og
hlaut hann verðlaun fyrir bestu leikstjórn árið
1997 fyrir fyrrnefnda Happy Together. Það þarf
kannski ekki að vekja neina sérstaka furðu þekki
lesendur lítt til þessa virta og vinsæla leikstjóra
þar sem myndir hans hafa ekki verið sýndar í
kvikmyndahúsum hérlendis – ekki mátt koma
þeim við á milli Scary Movie 3 og Scary Movie 4.
Óhugnanlegt!
Á Cannes er þó ekki aðeins að finna margt af
því besta í kvikmyndagerð samtímans heldur
gerir hátíðin einnig vel við kvikmyndasöguna. Sí-
gild verk sem búið er að gera við, hreinsa og
pússa á alla kanta, og setja á nýjar filmur fylla
sérstakan sýningarflokk á hátíðinni. Í ár má
finna á sýningarskránni stórvirki eins og Jörð
skelfur (Luchino Visconti), Róm, opin borg (Ro-
berto Rossellini), ofurvestrann The Searchers
(John Ford), auk fjögurra mynda Carol Reed.
Líkurnar á því að íslenskir kvikmyndaunnendur
fái að berja þessar sígildu myndir augum? Horfið
áfram öfundaraugum til Cannes.
Horft öfundaraugum til Cannes
’Það þarf kannski ekki að vekja neina sérstaka furðu þekkilesendur lítt til þessa virta og vinsæla leikstjóra þar sem
myndir hans hafa ekki verið sýndar í kvikmyndahúsum hér-
lendis – ekki mátt koma þeim við á milli Scary Movie 3 og
Scary Movie 4. Óhugnanlegt!‘SjónarhornEftir Björn Norðfjörð
bn@hi.is
S
tórleikarinn Reilly vottar Íslend-
ingum virðingu sína með því að vera
viðstaddur forsýningu á nýjustu
mynd sinni á morgun, 14. maí. Um
er að ræða A Prairie Home Comp-
anion, eftir meistara Robert Altman
en hún fjallar, eins og nafnið bendir til, um einn
þekktasta útvarpsþátt sögunnar og hinn merka
stjórnanda hans, Garrison Keillor. Opinber frum-
sýning myndarinnar verður ekki
fyrr en í næsta mánuði, en hún
verður síðar í sumar ein aðal-
skrautfjöðrin á IFF (Iceland Film
Festival) kvikmyndahátíðinni.
Forsýningin er í tengslum við Listahátíð í
Reykjavík og á sér talsverðan aðdraganda því
lengi hefur staðið til að bjóða hinum sögufræga
útvarpsmanni til landsins. Þegar hann sá sér fært
að þiggja boðið, tókust samningar á milli Listahá-
tíðar og IFF, um þessa einu sýningu mynd-
arinnar. Kellor verður síðan, í samvinnu við
Listahátíð, með upptöku á A Prairie Home Comp-
anion, á þriðjudagskvöldið nk. Þátturinn verður
tekinn upp í Þjóðleikhúsinu að viðstöddum forseta
Íslands og frú, Reilly og fleira góðu fólki og eru
aðgöngumiðar að öllum líkindum uppseldir þegar
þessar línur birtast.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að margir
hafa skotist upp á stjörnuhimin kvikmyndanna á
útlitinu einu saman og sumir hverjir spjarað sig
furðu vel. Þá hafa ótrúlega margir fengið allan
pakkann í vöggugjöf, fríðleika og fallega líkams-
byggingu, samfara góðum gáfum og ótvíræðum
leikhæfileikum. Síðan koma leikararnir af guðs
náð, sem hafa ekki staðlað stjörnuútlit til að lafa á
heldur eru ómissandi í heimi sem jafnan skortir
trausta og fjölhæfa leikara.
Innan um sætabrauðsdrengina er Reilly nokk-
uð stórkarlalegur, þrekinn, hrokkinhærður lurk-
ur, tæpir 190 cm á hæð. Andlitið mundi seint telj-
ast smáfrítt en það geislar af honum snerpan,
sjarminn og eitthvað notalegt í viðmótinu sem fær
áhorfandann til að muna manninn – þó að hann
fari ekki alltaf með aðalhlutverkið. Að ættum og
uppruna er hann ekki síður óvenjulegur; móðirin
frá Litháen, faðirinn írskur.
John Christopher Reilly er „fótógenískur“,
myndavélin gælir við hann og öfugt, annar stór
kostur við leikarann er hversu létt honum reynist
að bregða sér í allra kvikinda líki, er að auki fram-
bærilegur söngvari og dansari. Þá er sérhannað
útlit ekki að flækjast fyrir honum, frekar en
mörgum af bestu skapgerðarleikurum samtím-
ans, hæfileikamenn á borð við William H. Macy,
Philip Seymour Hoffman,Tom Hanks og Dustin
Hoffman. Þeir ganga allir lausir, fullkomlega sátt-
ir við að hírast ekki í ákveðnum bás. Þessir lista-
menn hafa jafnan nóg fyrir stafni og eiga langt
ævistarf – ef þeir á annað borð fá tækifæri. Með
tímanum hefur Reilly alla burði til að eiga í vænd-
um feril hliðstæðan karaktersmiðanna Michaels
Caine og Genes Hackman.
Gesturinn okkar er liðlega fertugur, fæddur í
Chicago 1965, sá fimmti í röðinni af sex systk-
inum. Borgin er fræg fyrir skapandi og líflegt
leikhúslíf og Reilly var aðeins átta ára þegar hann
tróð upp á leiksviði í fyrsta skipti. Hann stundaði
nám við DePaul háskólann, þar sem hann lauk
BA-gráðu í listfræði, síðan lá leiðin í leiklist-
arskólann Goodman School of Drama, þaðan sem
Reilly útskrifaðist 1987. Hann komst á samning
við Organic-leikhúsið í Chicago og síðar við hinn
heimsfræga Steppenwolf-leikhóp, undir stjórn
Garys Sinise.
1989 komst Reilly í návígi við hvíta tjaldið, í
stríðsmyndinni Casualties of War, undir stjórn
Brian De Palma. Þann áfanga getur leikarinn
þakkað framtaksseminni, en hann sendi De
Palma myndbandsupptöku af sjálfum sér og leik-
stjórinn var það ánægður með innihaldið að Reilly
fékk stærra hlutverk en ætlað var í fyrstu.
Í kjölfarið fylgdu ófá smáhlutverk í myndum
eins og We’re No Angels, (’89); hann lék lög-
regluþjón í mynd Woodys Allen, Shadow and Fog
(’91) og kom við sögu Days of Thunder (’90). Fyrst
minnist maður þessa svipsterka leikara í What’s
Eating Gilbert Grape, og eins af þorpurunum í
River Wild (’94).
Nú var Reilly búinn að stimpla sig inn sem virt-
ur skapgerðarleikari. Georgia (’95), fór að vísu
fram hjá flestum, en þar fór okkar maður á kost-
um sem eiturlyfjafíkill. Mótleikari hans var Jenni-
fer Jason Leigh, síðar sama ár léku þau saman á
ný í Dolores Claiborne, kvikmyndagerð sögu eftir
Stephens Kings.
Reilly stóð sig jafnan vel en hlutverkin voru oft-
ar en ekki lítil að vöxtum. Þá kom til sögunnar
óreyndur leikstjóri og handritshöfundur, Paul
Thomas Anderson að nafni. Hann átti eftir að
breyta ferli smástirnisins til frambúðar. Reilly
stóð sig það vel í Hard Eight (’96), fyrstu mynd
leikstjórans, að Anderson setti hann umsvifalaust
í veigamikið hlutverk klámstjörnunnar Reeds
Rothchilds, í næstu mynd, sem var tímamótaverk-
ið Boogie Nights (’97).
Líkt og flestir kvikmyndaáhugamenn muna, sló
myndin óvænt í gegn og Reilly var fremstur með-
al jafningja, þar sem m.a. komu við sögu Mark
Wahlberg, William H. Macy, Philip Seymour
Hoffman, Heather Graham, auk gamalgróinna
leikara eins og Julianne Moore og Burt Reynolds.
Þau Reilly, Hoffman og Moore komu einnig við
sögu Magnolia (’99), næstu myndar Andersons.
(Munið þið eftir froskaregninu?) því næst tók
Reilly að sér litlaust hlutverk í Perfect Storm,
vondri hamfaramynd en feikivinsælli.
Næsti áfangi Reillys var mun glæsilegri, hann
lék Lee í True West eftir Sam Shepard, og mót-
leikari hans í Broadwayuppfærslunni var enginn
annar en Hoffman, og fengu báðir Tony-
verðlaunatilnefningu fyrir frammistöðuna árið
2000. Sjálfsagt hafa þeir ekki staðið sig síður en
þeir Valdimar Örn Flygering og Magnús Ragn-
arsson, sem gerðu Sannan vestra að minnisstæðri
sýningu í Tjarnarbíói á sínum tíma.
Áfram hélt Reilly að krækja í bitastæð auka-
hlutverk, m.a. á móti í Kevin Costner í hafnabolta-
myndinni For Love of the Game (’99) og hann átti
kryddaða innkomu sem hasshausinn og húsamál-
arinn, eiginmaður Jennifer Anniston í þeirri fínu
mynd, The Good Girl (’02).
Þá er röðin komin að The Hours (’02) þar sem
Reilly slær ekki feilpúst á móti Julianne Moore,
og enn síður sem hinn ólánsami eiginmaður Ren-
ée Zellweger í kvikmyndagerð söngleiksins Chic-
ago, sem færði honum fyrstu Óskarsverðlauna-
tilnefninguna.
Síðan hefur vegur Reilly vaxið ár frá ári, með
hjálp mynda á borð við The Gangs of New York
og The Aviator, báðar undir handleiðslu Martins
Scorseses. Og eins og fyrr sagði gefst á morgun
tækifæri til að sjá frammistöðu þessa snjalla leik-
ara í höndum meistara Altmans.
Það fréttist síðast af Reilly, að hann mun taka
að sér aðalhlutverkið í gamanmyndinni Quebec,
þar sem meðleikarar hans eru m.a. Seann William
Scott og Lili Taylor (Á köldum klaka).
Raunverulegur Reilly
Það er engin dægurstjörnuglans yfir John C.
Reilly, hann er ekta.
Eftir Sæbjörn
Valdimarsson
saebjorn@
heimsnet.is
John C. Reilly „Innan um sætabrauðsdrengina er
Reilly nokkuð stórkarlalegur, þrekinn, krullhærður
lurkur, tæpir 190 cm á hæð.“