Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.2006, Side 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 13. maí 2006 | 13
Bandaríska rokksveitin Toolskákaði Pearl Jam í baráttunni
um fyrsta sætið á bandaríska sölu-
listanum í síðustu viku. Sveitin seldi
564 þúsund eintök af plötunni 10.000
Days en platan er sú fyrsta sem
sveitin sendir frá sér í fjögur ár. Er
þetta önnur plata Tool sem nær
þessum árangri.
Seattle-sveitin Pearl
Jam lenti í öðru sæti á
sölulistanum með 279
þúsund eintök seld af samnefndri
plötu. Pearl Jam hefur ekki náð
fyrsta sætinu síðan árið 1996 með
plötunni No Code en annars hafa
plötur sveitarinnar ávallt hafnað í
öðru sæti.
Breski tónlistarmaðurinn DavidBowie tilkynnti það á heima-
síðu sinni að hann muni stjórna
nýrri listasýn-
ingu sem verður
opnuð á næsta ári
í New Yorkborg.
Á sýningunni,
sem ber titilinn
High Line Festi-
val og stendur yf-
ir í tíu daga,
verða bæði
myndlistar- og
tónlistarverk til
sýnis en Bowie segir á heimasíðu
sinni að hann muni leitast eftir að
velja unga og upprennandi lista-
menn til jafns við stór og við-
urkennd listamannsnöfn. Þá hefur
hann staðfest að hann muni sjálfur
koma fram á tónleikum á hátíðinni
en það verða þá fyrstu tónleikar Bo-
wie í borginni, í heil fjögur ár.
Fyrrum söngvari Led Zeppelin,Robert Plant mun fara fyrir
hópi tónlistarmanna á góðgerð-
artónleikum sem haldnir verða í
Beacon Theatre í New York í lok
júní. Á meðal þeirra sem koma fram
eru aðalsprauta hljómsveitarinnar
New York Dolls, David Johansen,
hljómsveitin Yo La Tengo og Alec
Ounsvworth úr hljómsveitinni Clap
Your Hands Say Yeah. Tónleikarnir
eru þeir fyrstu í röð góðgerð-
artónleika til styrktar tónlistar-
manninum Arthur Lee úr hljóm-
sveitinni Love, sem var vinsæl á
sjöunda áratugnum en Lee berst
þessa dagana við hvítblæði. Ágóðinn
af tónleikunum mun fara í lækn-
iskostnað sem Lee þarf að greiða en
hann hleypur víst á hundruðum þús-
unda Bandaríkjadala og Lee
ótryggður með öllu.
Framúrstefnu-rokksveitin MarsVolta hefur verið ráðin til að
hita upp fyrir Red Hot Chili Pepp-
ers á tónleikaferðalagi sveitarinnar
sem hefst hinn 11. ágúst í Portland í
Bandaríkjunum. Þetta mun ekki
vera í fyrsta skipti sem sveitirnar
leiða saman hesta sína því að sveit-
irnar léku saman á Evrópuferðalagi
Red Hot Chili Peppers árið 2003. Þá
spilaði bassaleikari Chili Peppers,
Flea inn á plötu Mars Volta, De-
loused in the Comatorium sem kom
út árið 2003 og inn á síðustu plötu
Volta, Frances the Mute sem kom út
í fyrra. Þá er það einnig að frétta af
Chili Peppers að sveitin mun leika í
hálfleik kappaksturskeppninnar
NASCAR í maí. Þetta mun vera í
fyrsta skipti sem Chili Peppers leik-
ur á íþróttaviðburði.
Erlend
tónlist
David Bowie
Tool
Mars Volta
Árið 1977 var viðburðaríkt hjá TomWaits. Hann var handtekinn í LosAngeles ásamt félaga sínumChuck E. Weiss fyrir óspektir á
kaffihúsi en síðar sýknaður af öllum
ákærum. Hann hóf samband sitt við Rickie
Lee Jones söngkonu og gaf út fimmtu plöt-
una sína, Foreign
Affairs. Hann hafði
komið fram í sjónvarpi
í fyrsta skipti stuttu
eftir að Small Change
kom út og núna komst hann í tímaritið Time.
Áhangendahópurinn fór stigvaxandi og það
var farið að tala um Waits sem költ-
fyrirbæri en hann var með báða fætur á
jörðinni: „Ég er engin stórstjarna. Ég er
ekki einu sinni stjarna. Ég er bara orðróm-
ur.“
Foregin Affair markar engin straumhvörf
í ferli Waits, nema hvað textagerð hans er
betri og fágaðri en á fyrri verkum, ekki síst í
frásagnarljóðum eins og Potter’s Field og
Burma Shave. Hann heldur líka áfram að
þróa leiki sína með hljóðrænar eigindir
málsins í laginu Barber Shop. En síðan er að
finna melódíur eins og þær verða bestar hjá
Waits á plötunni svo sem Muriel og Foreign
Affair. Á plötunni er líka þekktur dúett hans
með Bette Midler, I Never Talk to Strangers.
Gagnrýnendur höfðu aldrei haft neitt rosalega
mikla þolinmæði gagnvart Waits og nú fóru þeir
að tala um að hann væri farinn að endurtaka sig.
Og þessar raddir urðu háværari eftir að næsta
plata kom út 1978, Blue Valentine. Á þessum plöt-
um fannst gagnrýnendum Waits ekki vera að
gera neitt nýtt en sjálfsagt á það við um fleiri
aðdáendur hans en mig að þykja þessar plötur –
þó sérstaklega sú síðarnefnda – vera eins konar
hápunktur Asylum-ára Waits; textarnir eru ekki
bara betri heldur eru öll tök mun traustari en áð-
ur og röddin er expresjónískari, minnir nú í raun
og veru á Armstrong sem margir
höfðu líkt honum við um nokkurn
tíma.
Waits misstígur sig hvergi á Blue
Valentine. Byrjar með rómantísku
ballöðunni Somewhere sem er með
hálfpólitískum undirtóni og kom út á
smáskífu ásamt rökkurslagaranum
Red Shoes by the Drugstore sem er
annað lagið á plötunni. Við tekur frá-
bær blúsari þar sem Waits syngur í
orðastað hóru sem sendir jólakort úr
fangelsi til vinar síns Charleys. Rom-
eo is Bleeding segir frá Rómeó í nú-
tímanum sem deyr með byssukúlu í
brjóstinu að horfa á Cagney-mynd í
bíó. $29.00 er annar frábær blúsari í
anda bófamynda áttunda áratug-
arins. Wrong Side of the Road er
annar rökkurkrimmi. Kirkjugarðar
hafa alltaf verið Waits hugleiknir og í
Whistlin’ Past the Graveyard er hann
tákn um undirmálslífið sem hann
sjálfur lifði á þessum árum. Kentucky
Avenue er fallegt saknaðarljóð eftir
glötuðum tíma, upprifjun á lífinu í
götunni þar sem Waits bjó í æsku. A
Sweet Little Bullet From a Pretty
Blue Gun er einfaldlega æðislegt og
að endingu titillagið, tja, er hægt að gera eitthvað
betur?
Eftir þessar tvær plötur má þó segja að Waits
fari að hugsa sér til hreyfings. Og framundan
voru satt að segja nokkur mjög afdrifarík ár í lífi
hans.
Er hægt að gera betur?
Poppklassík
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
B
andaríska rokksveitin Flaming
Lips sendi í apríl frá sér plötuna
At War with the Mystics. Strangt
til tekið er platan sú þrettánda
sem þessi Oklahómasveit sendir
frá sér en fyrsta plata hennar,
samnefnd, kom út fyrir tuttugu og einu ári. Sveit-
in hefur frá fyrstu tíð verið þekkt fyrir að vera
öðruvísi, jafnvel skrítin en allt frá því að hún reis
á fæturna um miðjan tíunda
áratuginn og allt þar til að hún
varð að einni virtustu rokk-
hljómsveit þessarar aldar hef-
ur hún ávallt verið mikils metin af tónlistarspek-
ingum. Margar skrítnar sögur fara af sveitinni og
enn fleiri af aðdáendum hennar sem á stundum
hafa tekið upp sértrúarlega hegðun í lotningu
sinni en ferðalag sveitarinnar frá jaðrinum og inn
að miðju (og öfugt) skipar sveitinni í röð merki-
legustu hljómsveita Bandaríkjanna.
Klámmynd, eiturlyf eða draumur
Flaming Lips var stofnuð árið 1983 af gítarleik-
aranum Wayne Coyne. Hann réð Mark bróður
sinn til að syngja og vin sinn Michael Ivins til að
spila á bassa. Þeir nefndu sveitina því merkingar-
lausa nafni, Flaming Lips en síðan hefur uppruni
nafnsins verið útskýrður á ótal vegu; til dæmis að
það sé tilvitnun í fræga klámmynd, eiturlyf eða
draum sem Wayne dreymdi þar sem María guðs-
móðir, alelda, kyssir hann í aftursæti ökutækis).
Eftir þónokkur áheyrnarpróf réðu þeir Richard
English á trommurnar og árið 1985 kom frum-
burður sveitarinnar út á grænni vínilplötu. Mark
sagði skilið við sveitina fljótlega eftir að platan
kom út og Wayne tók við sem söngvari og að-
allagasmiður. Sem þríeyki sendi sveitin frá sér
plötuna Hear It Is árið 1986 og ári síðar plötuna
Oh My Gawd!!! … The Flaming Lips.
She Don’t Use Jelly
Eftir erfiða fæðingu fjórðu plötunnar sem fékk
nafnið Telepathic Surgery sagði trommuleikarinn
English, skilið við Flaming Lips. Natan Roberts
fyllti í skarð hans og hljóðmaður sveitarinnar,
Jonathan Donahue, gerðist fullgildur meðlimur
stuttu fyrir útgáfu In a Priest Driven Ambulance.
Það var í kjölfar hennar sem plöturisinn Warner
Bros. ákvað að gera samning við sveitina og árið
1992 sendu Wayne, Ivins, Roberts og Donahue
frá sér plötuna Hit to Death in the Future Head.
Platan vakti ekki mikla athygli og í takt við sögu
sveitarinnar helltust þeir Donahue og Roberts úr
lestinni. Gítarleikarinn Ronald Jones og trommu-
leikarinn Steven Drozd, komu í þeirra stað og í
kjölfar sjöttu plötunnar Transmissions from the
Satellite Heart var Flaming Lips boðið að spila á
farand-tónleikahátíðinni Lollapalooza. Platan
gerði enga sérstaka hluti en tæpu ári síðar skaust
lagið „She Don’t Use Jelly“ inn á topp 40 á
bandaríska listanum. Gæsin var gripin og Flam-
ing Lips kom fram á hvaða vettvangi sem sem
sveitinni bauðst, meðal annars í sjónvarps-
þáttaröðinni Beverly Hills 90210 þar sem Steve
Sanders lætur þessi ódauðlegu orð falla: „Veistu,
ég hef aldrei verið aðdáandi jaðartónlistar, en
þessir strákar rokka!“
Bílavandræði
Næsta plata Clouds Taste Metallic, færði sveitina
aftur yst út á jaðarinn og í augum hins stóra og
almenna plötumarkaðar var sveitin tröllum gef-
inn.
Árið 1996 verður ekki kallað annað en hörm-
ungarár fyrir sveitina. Jones hvarf eftir að hann
ákvað að leggjast í andlega sjálfsleit og annar
handleggur Drozd var næstum því aflimaður eftir
mjög slæmt köngurlóarbit. Á svipuðum tíma var
Ivins hætt kominn þegar að hjólbarði sem losnaði
af við árekstur, endaði á hans eigin bíl. Það er
þess vegna e.t.v. kaldhæðnislegt að Coyne átti í
sínum eigin bílavandræðum á svipuðum tíma.
Hljómlistartilraun hans sem gekk út á að láta
hljómflutningstæki 40 bíla (í hring) leika 40 mis-
munandi verk sem mynduðu eitt, endaði með því
að geðheilsa hans var dregin í efa af bæði blaða-
mönnum og aðdáendum sveitarinnar.
Aftur á toppinn
Svipuð hugmynd var framkvæmd á næstu plötu
Flaming Lips, Zaireeka, en platan var í raun fjór-
ir diskar sem mynduðu eitt verk, væru þeir allir
leiknir á nákvæmlega sama tíma. Coyne bjóst við
því að platan myndi annaðhvort gera Flaming
Lips að súpergrúppu eða þá að sveitin myndi
hætta. Hvorugt gerðist. Næsta plata Soft Bullet-
in, náði töluverðri hylli og tónlistarumræðan um
Flaming Lips fór að þyngjast. Þrátt fyrir það liðu
þrjú ár þar til að 11. plata sveitarinnar Yoshimi
Battles the Pink Robots kom út. Yoshimi varð
ótrúlega vinsæl um heim allan og fleytti sveitinni
aftur á svipaðar slóðir og þegar „She Don’t Use
Jelly“ varð vinsælt. Tónlistarmaðurinn Beck fékk
sveitina til að hita upp fyrir sig á Sea Change-
tónleikaferðalagi sínu og réð hana svo sem sína
eigin sveit á túrnum. Coyne og félagar spiluðu
stíft á árunum 2002 og 2003 en árið 2004 fór sveit-
in aftur inn í hljóðver og hóf upptökur. Afrakstur
þeirrar vinnu kom nú út á dögunum og kallast At
War With The Mystics.
Takmarkalaus tónlist
Ný plata Flaming Lips hefur orðið til þess að
menn eru byrjaðir að velta fyrir sér mörkum
plötumarkaðarins og hvort hann hafi í raun mun
meiri teygju en áður var talið. Hér er saga sveit-
arinnar rakin.
Eftir Höskuld
Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Mark Coyne og félagar, fjarri alfaraleið.