Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.2006, Page 4
4 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
T
éður Haukur þurfti að ná í
blaðamann á fæti, þar sem
hann sat í bíl sínum, villtur.
Honum mistókst að rata á
stefnumótastaðinn þrátt fyrir
fínar og nokkuð ítarlegar leið-
beiningar frá Ragnheiði. Þegar fólk segir
manni að það sé „auðvelt að finna þetta“
reynist hið gagnstæða iðulega vera raunin.
Þannig er mál með vexti að systkinin eru
að leggja lokahönd á plötuna nýju í Stúdíó
Flís, nýtilkomnu hljóðveri hljómsveitarinnar
Flís og Finns Hákonarsonar. Hljóðverið er
í leiðinni til Mosfellsbæjar, rétt við Hafra-
vatnsafleggjarann. Það var þrautin þyngri
að ramba á rétta húsið og eftir að hafa
rúntað um stund fram og til baka á sama
spottanum var talið ráðlegast að senda
mann eftir blaðamanninum sem myndi svo
lóðsa hann á réttan stað.
Er inn er komið geng ég svo til í flasið á
Ragnheiði, Finni og Helga Svavari, áslátt-
armeistara Flís. Fólk fellst í faðma en við
svo búið skundar Ragnheiður með mér í
eldhúsið svo við getum nú náð í hið ómiss-
andi kaffi. Helgi og Finnur fara hins vegar
að bisa við að koma upp hátalarastæðu á
meðan. Við tyllum okkur á gluggakistu við
opinn glugga í upptökusalnum og hefjum
spjallið.
Á leið til New York
„Ég flyt út til New York eftir fimm daga,“
segir Ragnheiður brosandi. Maður skynjar
að hún er á tánum vegna þessa en um leið
finnur maður fyrir heilnæmri eftirvæntingu.
„Það er því allt á fullu akkúrat núna og
hausinn út um allt. Þú afsakar það,“ segir
hún og hlær.
Ragnheiður Gröndal er semsagt að fara
út til New York í meira nám og hefur skráð
sig í New School of Jazz and Contemporary
Music sem er á besta stað í Greenwich Vil-
lage. Mun hún dvelja þar í eitt ár til að
byrja með. Ragnheiður fór í inntökupróf við
skólann í mars síðastliðnum og flaug inn.
„Það hefur alltaf verið inni í myndinni að
ég myndi fara eitthvað út, í eitthvað nám,“
segir Ragnheiður. Hún talar hratt en skýrt,
er ekkert að tvínóna við þetta, ekki frekar
en við tónlistina.
„Svo kláraði ég F.Í.H., söngnámið, vorið
2005 en hafði einnig tekið einhverja píanó-
tíma líka. Svo sá ég blaðaviðtal við ein-
hverja djasssöngkonu í New York og bingó,
fannst það vera málið. Fór bara á Google
og sló inn „New York jazz school“ eða eitt-
hvað þess háttar og fór að leita. Fann þenn-
an skóla svo. Mér leist satt að segja ekki á
þessa rosaskóla eins og t.a.m. Juilliard,
gæti trúað að þeir væru of íhaldssamir fyrir
mig, án þess þó að ég viti neitt um það. Ég
er ekkert að dæma þeirra kennslufræði. En
ég fór að spyrjast fyrir um skólann minn og
hann er í miklum metum og virtur, hefur
hefðina í hávegum en leyfir fólki samt að
þróa sig eftir eigin höfði. Ég er alltaf að
leita að músík, einhverju spennandi og ætla
ekki að binda mig neitt sérstaklega við
djass. Það verður pottþétt hægt að finna
eitthvað skemmtilegt þarna.“
Ragnheiður segir inntökuprófið nokkuð
sérstakt.
„Ég hafði aldrei komið til New York áður
og þetta er í fyrsta skipti sem ég mun búa
eitthvað að ráði erlendis. Mér fannst inn-
tökuprófið fremur létt en maður býr að
mikilli reynslu eftir að hafa starfað hér á
landi. Ég mætti bara í rosa fínum kjól, söng
fyrir liðið … og bara ekkert mál. Þau urðu
Tónlistin ein
Ragnheiður Gröndal er nú að leggja loka-
hönd á nýja plötu þar sem hún syngur íslensk
þjóðlög. Plötuna vinnur hún með bróður sín-
um, Hauki, og verður þetta fjórða sólóplatan
sem kemur frá þessari mikilvirku og fjölhæfu
söngkonu en þó hún sé ekki nema tuttugu og
eins árs á hún þegar að baki langan og giftu-
ríkan feril.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Ragnheiður Gröndal „Ég ákvað einfaldlega að ég myndi lifa á því að vera tónlistarmaður. En stóra „breikið“ ef svo má kalla varð þegar lagið
„Ást“ varð vinsælt haustið 2003. En ég hafði líka sungið í forkeppni Evróvisjon sama ár og einhverjir tóku vísast eftir mér þar.“
Ragnheiður Gröndal
er tiltölulega víruð
Morgunblaðið/Eyþór