Morgunblaðið - 19.02.2006, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 C 5
Löglærður
fulltrúi
Lögmannastofa í Reykjavík óskar eftir að ráða
löglærðan fulltrúa.
Vinsamlegast sendið umsóknir ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf á netfangið
gudmundur@advocates.is.
Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum
Ljósmóðir
Vegna leyfis ljósmóður við Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja er laus til umsóknar afleysinga-
staða frá febrúar 2006 eða eftir nánara sam-
komulagi til 1. september 2007. Starfshlutfall
er 100%. Um er að ræða dagvinnu auk gæslu-
vakta.
Ljósmóðir sinnir mæðravernd, fæðingarhjálp
og ungbarnavernd. Ljósmóðir ber faglega
ábyrgð á þjónustu skjólstæðinga HSV og
ábyrgð í samræmi við starfslýsingu og mark-
mið hjúkrunar- og ljósmæðraþjónustu á Heil-
brigðisstofnun Vestmannaeyja.
Hæfniskröfur: Próf frá viðurkenndum skóla
ljósmóðurmenntunar og íslenskt starfsleyfi.
Viðkomandi þarf að búa yfir góðri færni í
mannlegum samskiptum, hafa reynslu af al-
mennum störfum ljósmæðra og vera sjálfstæð-
ur í vinnubrögðum.
Umsóknir með upplýsingum, m.a. um mennt-
un og fyrri störf, skulu berast til Eydísar Óskar
Sigurðadóttur hjúkrunarforstjóra sem jafnframt
veitir frekari upplýsingar um starfið. Drífa
Björnsdóttir ljósmóðir veitir einnig upplýsingar
um starfið.
Umsóknarfrestur er til 3. mars 2006.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Ljósmæð-
rafélags Íslands og fjármálaráðherra. Einnig
stofnanasamningi HSV.
Öllum umsóknum verður að sjálfsögðu svarað
Við tökum vel á móti ykkur.
Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum,
Sólhlíð 10,
900 Vestmannaeyjum.
Upplýsinga- og
kynningarfulltrúi
Laust er starf upplýsinga- og kynningarfulltrúa
hjá Fjarðabyggð. Starfsmaður sér jafnframt
um kynningarmál sveitarfélaganna; Austur-
byggðar, Fáskrúðsfjarðarhrepps og Mjóafjarð-
arhrepps en þau sameinast Fjarðabyggð í júní
á þessu ári.
Helstu kröfur til umsækjanda eru:
Menntun á sviði upplýsinga- og fjölmiðla-
fræða.
Víðtæk þekking og reynsla í upplýsinga-
og kynningarmálum.
Þekking á málefnum sveitarfélaga er æskileg.
Helstu viðfangsefni eru umsjón með heima-
síðu sveitarfélagsins, kynningarmálum og
miðlun upplýsinga, móttöku gesta og fram-
setningu upplýsingaefnis.
Leitað er að metnaðarfullum og ábyrgum ein-
staklingi sem annast dagleg upplýsinga- og
kynningarmál sveitarfélaganna.
Í Fjarðabyggð er atvinnulíf og almennt þjón-
ustustig gott. Framundan eru tímar athafna
og umsvifa í stórfelldri uppbygging sveitarfé-
lagsins þar sem áhersla verður lögð á lífsgæði
og fjölskylduvænt samfélag.
Upplýsingar veitir forstöðumaður fjármála-
og stjórnsýslusviðs, Gunnar Jónsson,
gunnar@fjardabyggd.is, sími 470 9062.
Umsóknir sendist til forstöðumanns sviðsins,
Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð fyrir 8. mars
2006 en þá rennur umsóknarfrestur út.
Sjá nánar um Fjarðabyggð og starfið á
www.fjardabyggd.is
800 7000 - siminn.is
Öflugt
markaðsséní
Síminn leitar að öflugum aðila til að sinna starfi markaðssérfræðings innan
markaðsdeildar Símans.
Gildi Símans eru fimm: traust, heilindi,
lipurð, einfaldleiki og eldmóður. Starfs-
menn Símans hafa þessi gildi að leiðarljósi
í öllum störfum sínum.
Umsóknarfrestur er til 24. febrúar
Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir,
fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar.
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum
heimasíðu Símans, www.siminn.is
óskast
· Markaðsfræðimenntun eða sambærilegt nám skilyrði
· Góð skipulagshæfni er nauðsynleg og viðkomandi
þarf að geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði
og eiga auðvelt með að vinna með fólki
· Reynsla er æskileg en ekki skilyrði
Upplýsingar í síma 550 6470 frá kl. 14.00-16.00 alla virka
daga. Í umsókn skal koma fram lýsing á náms- og starfsferli
sem og nöfn og símanúmer meðmælenda.
Hæfniskröfur:
AVON snyrtivörur
Getum bætt við sölumönnum á mörgum stöð-
um á landinu. Há sölulaun. – Nýr sölubæk-
lingur. Námskeið og kennsla í boði. Hafðu
samband og fáðu nánari upplýsingar í síma
577 2150 milli 10 og 17 Avon umboðið Dalveg-
ur 16 b Kópavogur - avon@avon.is -
www.avon.is
- Einn vinnustaður
Landslagsarkitekt
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má
einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar
og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Umhverfissvið Reykjavíkur óskar eftir að
ráða landslagsarkitekt til afleysinga í eitt ár.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Starf landslagsarkitekts á Umhverfissviði felst
m.a. í hönnun útivistarsvæða og samskiptum
vegna framkvæmda, gerð umsagna og
ráðlegginga varðandi útivistarsvæði. Starfið
heyrir undir Skrifstofu náttúru og útivistar.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af hönnun útivistarsvæða, þ.m.t. leik- og
dvalarsvæði.
• Kunnátta í notkun teikniforrita.
• Reynsla úr garðyrkju, garðyrkjuskólamenntun er
æskileg.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagning í starfi.
• Samstarfshæfni, eiga auðvelt með að tjá sig í
töluðu og rituðu máli.
• Hæfileiki til að vinna að fjölbreyttum verkefnum í
krefjandi starfsumhverfi.
Launakjör fara að kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Þórólfur Jónsson
garðyrkjustjóri í síma 411 8500.
Umsóknir skulu berast til Umhverfissviðs Reykja-
víkurborgar, Skúlagötu 19, 101 Reykjavík, eigi síðar
en hinn 20. febrúar 2006.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar er eitt af sjö
fagsviðum Reykjavíkurborgar og samanstendur
af skrifstofum Neyslu og úrgangs, Náttúru og
útivistar, Staðardagskrár 21, Heilbrigðiseftirlits og
vöktunar, sem fyrir utan Hundaeftirlit skiptist í
þrjár deildir: Hollustuhætti, Mengunarvarnir og
Matvælaeftirlit.