Morgunblaðið - 19.02.2006, Page 16
16 C SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðamaður óskast
Læknablaðið auglýsir eftir blaðamanni til starfa
sem fyrst. Um er að ræða 50-75% starfshlutfall
eftir samkomulagi. Starfið felst í ritun greina,
viðtala o.þ.h. um málefni sem tengjast heil-
brigðisþjónustu. Æskilegt er að viðkomandi
hafi þekkingu á umbroti og prentvinnslu. Góð
íslenskukunnátta er skilyrði. Umsækjendur
með háskólapróf njóta forgangs. Launakjör
eru samningsatriði, en um starfskjör fer að
öðru leyti eftir samningi Blaðamannafélags
Íslands. Umsóknarfrestur til 27. febrúar 2006.
Umsóknir berist Læknablaðinu, Hlíðasmára
8, 201 Kópavogi, merkt „blaðamennska“. Nán-
ari upplýsingar gefur Védís Skarphéðinsdóttir,
ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins, vedis@lis.is.
Tæknistörf hjá
Samey ehf.
Við hjá Samey leitum að starfskröftum í eftirtal-
in störf.
Sjálfvirknilausnir.
Tækni- eða verkfræðingur á rafmagns- eða
tölvusviði. Starfið felst í tæknivinnu og forritun
á sjálfvirknilausnum með iðnaðarþjörkum og
einnig lausnum með hefðbundnum aðferðum.
Leitum að aðila með fjölþætta starfsreynslu.
Verkstæði.
Rafvirki með reynslu af töflusmíðum. Starfið felst
í töflusmíði og raflögnum á vélbúnaði. Einnig
tilfallandi sölu-, viðgerðar- og þjónustustörf.
Nánari upplýsingar
veitir Þorkell Jónsson í síma 510 5200.
Umsóknir óskast sendar á thorkell@samey.is
Samey ehf.,
Lyngási 13, 210 Garðabæ.
Lögfræðingur
Héraðsdómur Reykjavíkur óskar eftir að ráða
lögfræðing til starfa tímabundið, frá 22. mars
til 31. ágúst 2006, í starf samkvæmt 17. gr. laga
nr. 15/1998 um dómstóla (aðstoðarmaður
dómara). Laun eru greidd samkvæmt kjara-
samningi Stéttarfélags lögfræðinga í ríkisþjón-
ustu. Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, skulu sendar Ingiríði
Lúðvíksdóttur skrifstofustjóra í Héraðsdómi
Reykjavíkur eigi síðar en 10. mars nk. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma 560 4920 milli
kl. 10.00 og 11.00.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Reykjavík, 15. febrúar 2006.
Helgi I. Jónsson,
dómstjóri,
Dómhúsinu við Lækjartorg
101 Reykjavík
heradsdomur.reykjavikur@tmd.is
Sími: 560 4900 - Fax: 562 2166.
Trésmíðaflokkar
óskast í ýmis verk
á höfuðborgarsvæðinu
Verkfræðistofan Höfn ehf. óskar f.h. umbjóð-
enda sinna eftir trésmíðaflokkum í ýmis verk-
efni á höfuðborgarsvæðinu, m.a. byggingu
hótels í Ingólfsstræti 1 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur Ólafur í síma
840 0950 eða oli@hsg.is.
Verkfræðistofan Höfn er ung verkfræðistofa
á sviði byggingahönnunar með sérhæfingu
í verkefnaþróun (e. property development).
Verkfræðistofan Höfn ehf.,
Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykjavík,
sími 588 1580, fax 544 4225 — jon@vsh.is
Afgreiðslustarf laust
Óskum eftir reyndum og öflugum starfskrafti
í Kringluna sem þyrfti að geta hafið störf sem
fyrst. Um fullt stöðugildi er að ræða.
Áhugasamir geta nálgast umsóknareyðublöð
sem liggja frammi í verslun okkar í Kringlunni
fyrir 24. febrúar nk.
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um
Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveit-
arfélagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma 585 5500,
eða skoðaðu heimasíðuna, www.hafnarfjordur.is.
Skólastjóri við Hvaleyrarskóla
Laus staða skólastjóra við Hvaleyrarskóla
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn
til að leiða áfram gott faglegt samstarf í skólanum og
hafa að leiðarljósi að gott skólastarf má ávallt bæta.
Hvaleyrarskóli er heildstæður grunnskóli og eru nemend-
ur tæplega 600. Skólinn hefur í áraraðir haft á að skipa
góðu fagfólki og þar ríkir jákvæðni og góður starfsandi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennarapróf og kennslureynsla
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, uppeldis- eða
kennslufræði æskileg.
• Frumkvæði og samstarfsvilji.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sé reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
• Hafi áhuga og/eða reynslu til að leiða þróunarstarf í
átt að einstaklingsmiðuðu námi.
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf
umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau
verkefni sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á
færni hans til að sinna skólastjórastarfi. Þá er æskilegt að
með umsókn fylgi greinargerð um hugmyndir umsækj-
anda um starfið og þær áherslur sem hann vill leggja í
starfi
Hvaleyrarskóla til framtíðar.
Allar upplýsingar um stöðuna veitir Magnús Baldurs-
son, fræðslustjóri í síma 585 5800,
magnusb@hafnarfjordur.is
Umsókn ber að skila á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar,
Strandgötu 31, 220 Hafnarfjörður.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2006.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Framkvæmda- og
auglýsingastjóri
Útgáfufélag Austurlands, sem gefur út Austur-
gluggann, óskar eftir að ráða framkvæmda-
og auglýsingastjóra.
Hæfniskröfur: Reynsla af sölu-, stjórnunar- og
almennum skrifstofustörfum, tölvukunnátta
nauðsynleg og góð íslenskukunnátta. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf 1. apríl 2006.
Umsóknarfrestur er til 5. mars nk.
Austurglugginn er austfirskt fréttablað sem
annast fréttaflutning af öllu Austurlandi.
Blaðið kom fyrst út 31. janúar 2002. Skrifstofa
blaðsins er í Neskaupstað.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Útgáfufélags
Austurlands, Hafnarbraut 4, 740 Fjarðabyggð
eða á erla@austurglugginn.is. Nánari upplýs-
ingar veitir Erla Traustadóttir í s. 477 1571.
Dalabyggð
Hjúkrunarforstjóri
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarforstjóra
við dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í
Búðardal, Dalabyggð.
Á heimilinu eru 17 vistmenn. Hjúkrunarforstjóri
veitir heimilinu forstöðu.
Dalabyggð er lítið sveitarfélag með blómlegt
menningarlíf. Í sveitarfélaginu er tónlistarskóli,
leikskóli, heilsugæslustöð, banki, verslun
o.s.frv. allt í Búðardal. Næg atvinna er í boði.
Sveitarfélagið mun aðstoða við útvegun á hús-
næði.
Frekari upplýsingar um starfið veitir sveitar-
stjóri Dalabyggðar í síma 434 1132.
Umsóknum skal skila til sveitarstjóra Dala-
byggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, fyrir
1. mars 2006.
Bílasala
Bílasala á frábærum stað óskar eftir röskum
reyklausum kven- eða karlkyns starfsmanni
sem fyrst.
Allar helstu uppl. um viðkomandi ásamt kenni-
tölu sendist á auglýsingadeild Mbl. eða á
box@mbl.is merktar: „Heiðarlegur—18212“.
Hönnuður
leitar að spennandi starfi
Textílhönnuður með fjölbreytta reynslu leitar
að krefjandi starfi. Hefur unnið við fata- og
mynsturhönnun, gerð sölu- og kynningarefnis,
stjórn verkefna, eigin rekstur, leirmunagerð,
kennslu og ýmiss konar námskeiðshald.
Reynsla af að starfa sjálfstætt að verkefnum,
vinna með mörgu fólki og láta hluti ganga upp
undir álagi.
Menntun:
B.Ed frá KHÍ og B.F.A. frá Bandaríkjunum.
Áhugasamir sendi til augldeildar Mbl. eða í
box@mbl.is merkt: „H - 18199“.