Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 64. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ekkó söng til sigurs Hörkufjör var á Söngvakeppni Samfés | Menning Fasteignir | Eins og blóm í eggi við Ægisíðuna  Lýsing sett upp í Kópa- vogsgjá Íþróttir | Guðmundur Íslandsmeistari 13. árið í röð  Hand- boltalandsliðið mætir Dönum  Höttur fallinn úr úrvalsdeildinni Opinn hádegisverðarfundur þriðjudaginn 7. mars á Grand Hótel þar sem kynntar verða athyglisverðar niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina á Íslandi og í Evrópu árið 2005. Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning á www.stjornvisi.is. GRAND HÓTEL 07.03.2006 Hvar eru viðskiptavinirnir ánægðastir? Fasteignablaðið og Íþróttir ÁRNI Magnússon hefur ákveðið að láta af embætti félagsmálaráðherra og segja af sér þingmennsku. Þingflokkur framsóknarmanna samþykkti síðdegis í gær að tillögu Halldórs Ásgrímssonar, forsætis- ráðherra og formanns Framsókn- arflokksins, að Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra t;ki við félags- málaráðuneytinu í stað Árna og að Siv Friðleifsdóttir k;mi á ný inn í ríkisstjórnina og yrði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Árni hefur jafnframt ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum og hefja störf hjá Íslandsbanka á al- þjóða- og fjárfestingarsviði. „Ég hef á undanförnum vikum farið í gegnum ákveðið endurmat á mínu lífi og hef tekið þá ákvörðun að starfa ekki áfram á opinberum vett- vangi,“ sagði Árni í gær. Hann sagði að um persónulega ákvörðun sína væri að ræða, „og þarna er ég fyrst og fremst að hugsa um hag minn og minnar fjölskyldu“, sagði hann. „Við munum sakna Árna mikið úr þessu. Hann hefur reynst okkur afar góður liðsmaður, staðið sig með prýði í sínu ráðuneyti og starf- að mjög vel fyrir Framsóknarflokk- inn. Ég óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi,“ sagði Halldór Ásgrímsson við fréttamenn að loknum þingflokksfundinum. Hann sagði að eindrægni hefði verið í þingflokknum um tillögu hans um ráðherrabreytingarnar. Ráðherraskiptin munu fara fram á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á morgun en gert er ráð fyrir að Árni afsali sér þingmennsku í dag, skv. upplýsingum Magnúsar Stefáns- sonar, varaformanns þingflokks Framsóknarflokksins. Tekur Guð- jón Ólafur Jónsson, fyrsti varaþing- maður Árna, sæti hans á Alþingi. Varamaður kemur inn fyrir nýja þingmanninn Að sögn Magnúsar er Guðjón við nám erlendis og muni því Sæunn Stefánsdóttir, aðstoðarmaður heil- brigðisráðherra, sem er annar varaþingmaður framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, væntanlega koma inn á þing fyrir Guðjón Ólaf á vorþinginu. Breytingarnar bar að með mjög skömmum fyrirvara að sögn Magn- úsar og hefur því ekki verið gengið frá hver eða hverjir muni taka sæti Sivjar í nefndum þingsins en hún hefur m.a. átt sæti í utanríkismála- nefnd og er varaformaður hennar, hún situr einnig í efnahags- og við- skiptanefnd, félagsmálanefnd og heilbrigðis- og trygginganefnd. Árni Magnússon hættir afskiptum af stjórnmálum Morgunblaðið/Sverrir Árni Magnússon gengur út úr Alþingishúsinu að afloknum þingflokksfundi í gær þar sem tilkynnt var að hann hefði ákveðið að segja af sér. Halldór Ásgrímsson, Siv Friðleifsdóttir og Jón Kristjánsson. Siv Friðleifsdóttir kemur inn í ríkis- stjórnina á ný Eftir Brján Jónasson og Ómar Friðriksson  Afsögn | 4, 6 og miðopna UM þessar mundir er verið að byrja á mikilli manneldis- og megrunar- tilraun í Evrópusambandsríkjunum en hún felst í því, að 350 fjölskyldur verða settar á kúr, sem danskir manneldisfræðingar hafa sett sam- an. Stefnt verður að því í fyrsta lagi, að fólkið léttist, og í öðru lagi, að það þyngist ekki aftur. Áhyggjur af óhollu mataræði og offitu vaxa stöðugt og því er nú spáð, að eftir nokkur ár, 2010, muni helmingur barna í Norður- og Suð- ur-Ameríku verða of feitur. Spáin fyrir Evrópu er litlu betri en áætlað er, að nú megi rekja 7% heildar- útgjalda ESB-ríkjanna í heilbrigð- ismálum til þeirra kvilla, sem fylgja því að vera of feitur. Í Bretlandi eru útgjöldin af þessum sökum 58 millj- arðar ísl. kr. árlega. Um raunverulegan faraldur að ræða Í nýrri skýrslu kemur fram, að um raunverulegan faraldur sé að ræða, sem leggist ekki síður á þró- unarríki en þróuð iðnríki. Er varað við því, að verði ekkert að gert muni fylgikvillar offitunnar sliga heilbrigðiskerfið. Þátttakendur í Evróputilraun- inni verða 1.000 og þar af 75 fjöl- skyldur í Danmörku að því er fram kemur á fréttavef Berlingske Tid- ende. Stendur hún í 14 mánuði og verður fólk að sjálfsögðu að lofa því upp á æru og trú að fylgja kúrnum í einu og öllu. Evrópa fer í megrun Vín, Teheran. AP, AFP. | Íransstjórn hótaði í gær að hefja auðgun úrans í stórum stíl ef IAEA, Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, ákveður formlega að vísa deilunni um kjarn- orkuáætlun Írana til ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þá lét hún einnig liggja að því, að „olíuvopninu“ yrði beitt ef þörf krefði. Ali Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkumálum, sagði í Teheran, að færi deilan fyrir öryggisráðið myndu Íranar svara því með því að stórauka auðgun úr- ans. Bætti hann við, að Íransstjórn hygðist ekki segja sig frá samningnum um bann við útbreiðslu kjarnavopna og ekki stæði til að beita „olíuvopninu“, það er að draga úr olíu- sölu, en það myndi verða til að stórhækka olíuverðið. Það yrði þó tekið til nýrrar athug- unar ef deilan harðnaði. Á fundi IAEA í dag verður rætt um skýrslu Mohameds ElBaradeis, formanns stofnunarinnar, en í henni segir, að Íranar séu farnir að auðga úran og hyggist taka í notkun alls um 3.000 skilvindur í því skyni. Stjórn IAEA vísaði raunar deilunni við Írana til öryggisráðsins fyrir mánuði en þá var þeim gefinn mánuður til að ná samningum. Sá tími er nú liðinn og leggur Bandaríkja- stjórn mikla áherslu á, að Íransstjórn verði beitt refsiaðgerðum hætti hún ekki auðgun úrans og heimili eftirlit með kjarnorkuver- um. Íranar hafa í hótunum Ætla að auka auðgun úrans fari kjarnorku- deilan fyrir öryggisráðið Ali Larijani, samningamaður Írana. ÞORGEIR Tryggvason leiklistargagnrýn- andi fer afar lofsamlegum orðum um leik- sýninguna Pétur Gaut, sem frumsýnd var í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn, í umfjöllun sinni í blaðinu í dag. Segir hann skýra og sterka grunnhugsun einkenna sýninguna, sem sé ennfremur „al- gerlega morandi af einstökum snjöllum hugmyndum og lausnum“. Þá telur Þorgeir leikarana alla standa sig með mikilli prýði, en Björn Hlynur Haralds- son fer með titilhlutverkið. „Pétur Gautur Baltasars og Þjóðleikhússins er besta sýn- ing á klassísku verki sem ég hef séð,“ segir Þorgeir í lok umfjöllunar sinnar. | 16 Pottþéttur Pétur Gautur ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.