Morgunblaðið - 06.03.2006, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SIV Í RÍKISSTJÓRN Á NÝ
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra hefur ákveðið að segja af sér
ráðherraembætti og segja jafnframt
af sér þingmennsku. Þingflokkur
framsóknarmanna samþykkti í gær
að Siv Friðleifsdóttir komi inn í rík-
isstjórn á nýjan leik, og taki við heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu. Jón Kristjánsson muni færast til
og taka við félagsmálaráðuneytinu.
Árni hefur ákveðið að hætta af-
skiptum af stjórnmálum og hefja
störf hjá Íslandsbanka.
Undirbúningur í Helguvík
Vinna við að undirbúa mögulega
byggingu álvers Norðuráls í Helgu-
vík er í fullum gangi og gengur vel.
Talið er að jarðhitalindir á Reykja-
nessvæðinu séu meira en nægar til
að sjá 250 þúsund tonna álveri fyrir
orku, en einnig hafa farið fram við-
ræður við önnur orkusölufyrirtæki
en Hitaveitu Suðurnesja. Uppbygg-
ing í Helguvík gæti hafist á árunum
2008–9, en forsenda þess er að gang-
setja megi fyrsta áfanga árið 2010.
BYKO vill uppboð á lóð
BYKO vill að lóð í landi Úlfars-
fells, sem fyrirtækið hefur sótt um
ítrekað frá árinu 1998 en nú er rætt
um að úthluta undir bygging-
arvöruverslun Bauhaus, verði boðin
út svo fyrirtæki geti keppt á jafn-
réttisgrundvelli um lóðina. Í lög-
fræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir
BYKO kemur fram að Reykjavík-
urborg gæti brotið gegn jafnræð-
isreglu stjórnsýslulaga ef Bauhaus
verður úthlutað lóð sem BYKO fékk
ekki. BYKO hefur sótt um lóð í norð-
ur hluta Reykjavíkur í 10 ár án ár-
angurs.
Íranir hóta
Íransstjórn hafði í gær í hótunum
og sagði, að ef deilunni um kjarn-
orkuáætlun hennar yrði vísað til ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
myndi hún hefjast handa við mikla
úranauðgun. Lét helsti samn-
ingamaður hennar, Ali Larijani, líka
í veðri vaka, að „olíuvopninu“ yrði
beitt ef deilan harðnaði. Stjórn
IAEA, Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar, kemur saman til fundar í
Vín í dag og þá verða þessi mál
rædd. Í Íran kom fólk víða saman í
gær til að lýsa yfir stuðningi við
kjarnorkuáætlanir stjórnvalda og
var sagt, að það væri guðlegur rétt-
ur Írana að vinna að þeim málum án
afskipta annarra.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 36/39
Viðskipti 11 Myndasögur 36
Vesturland 12 Víkverji 36
Erlent 13 Velvakandi 37
Menning 16, 39-45 Staður&stund 38/39
Daglegt líf 14/15 Leikhús 40
Umræðan 18/27 Bíó 42/45
Bréf 26/27 Ljósvakar 46/47
Forystugrein 24 Veður 47
Minningar 28/34 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Laugavegi 174 sími 590 5000 Kletthálsi 11 sími 590 5760
Númer eitt í notuðum bílum
Opið mánudaga til föstudaga 10–18 • Laugardaga 12–16
Mercedes C línan 4 Matic
árg. 06/04 ek. 6.000
verð 3.800.000 kr. verð áður 3.960.000 kr.
PILTURINN sem lést þegar
bifreið hafnaði á húsvegg á Ak-
ureyri á laugardagmorgun hét
Sesar Þór Viðarsson. Sesar Þór
var fæddur 16. júní 1986. Hann
var búsettur á bænum Brak-
anda í Hörgárbyggð.
Lést í bílslysi
á Akureyri
GÖGN sem virðast vera tölvubréf
frá Jónínu Benediktsdóttur, m.a. til
Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra
Morgunblaðsins, hafa verið birt á
bandarískri bloggsíðu. Lögmaður
Jónínu segir að lögð verði fram
kæra vegna málsins í dag.
„Það liggur fyrir að einhverjir
óvandaðir einstaklingar hafa komist
yfir þetta og sett á ákveðna síðu á
netinu,“ segir Hróbjartur Jónatans-
son, lögmaður Jónínu. Hann segir
að þegar liggi fyrir kæra Jónínu
sem lögð var inn í kjölfar birtinga
Fréttablaðsins á efni tölvubréfa
sem Jónína segir að hafi verið stolið
frá sér, og hann reikni með að við-
bótarkæra verði lögð fram um birt-
inguna á netinu.
Hróbjartur tekur fram að ekki sé
víst að um sé að ræða ósvikinn
tölvupóst, lítið mál sé að falsa slík
gögn og breyta, og hvorki hann né
umbjóðandi hans hafi farið yfir það
sem nú hefur verið birt á netinu til
að kanna hvort það sé ósvikinn
tölvupóstur.
Hann segir ljóst að þessi tölvu-
bréf, að svo miklu leyti sem þau
kunni að vera rétt, komi væntan-
lega frá sama aðila og kom þeim
upphaflega í umferð. Því geti þetta
auðveldað lögreglu rannsókn máls-
ins. Einu gildi þótt vefsíðan sé
bandarísk, ef gögnin hafa verið sett
á netið af einstaklingi hér á landi
gildi íslensk lög um slíkt.
Meint tölvu-
bréf Jónínu
birt á netinu
„ÞAÐ liggur fyrir í sambandi við öll
álver að þau þurfa að endurnýja sig.
Það hefur komið fram í viðræðum
sem ég hef átt, að ef ekki verða breyt-
ingar í framtíðinni, þá fari það þannig
að þessum minni álverum verði hrein-
lega lokað. Þetta eru bara staðreynd-
ir,“ segir Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra er hann var spurður
hvort forsvarsmenn Alcan-álfyrir-
tækisins hafi greint honum frá því að
þeir kunni hugsanlega að loka ál-
verinu í Straumvík, verði ekki af
stækkun þess.
„Alcan hefur áhuga á að endurnýja
álverið, þótt það sé í mjög góðu
ástandi, og stækka það, þannig að það
þjóni þeim kröfum sem gerðar eru til
slíkra rekstrareininga. Það liggur fyr-
ir að stærri rekstrareiningar eru hag-
kvæmar,“ segir forsætisráðherra.
Spurður hvort forsvarsmenn Alcan
hafi beinlínis haldið þessu fram sagði
Halldór að þetta hefði komið fram án
þess að einhver ár hefðu verið nefnd í
því sambandi.
– Þú hefur ekki litið á þetta sem
þrýsting eða hótun?
„Nei alls ekki. Alls ekkert slíkt.
Þetta eru bara staðreyndir og það er
mikilvægt þegar menn ræða öll mál
eins og þetta að menn hafi þær stað-
reyndir á borðinu.“
– Nú liggur fyrir áhugi Alcoa á und-
irbúningi að hugsanlegri byggingu ál-
vers fyrir norðan, Alcan vill stækka
og endurnýjun í Straumsvík og Norð-
urál er á fullri ferð við undirbúning ál-
vers í Helguvík. Því er haldið fram að
ekki sé rúm fyrir þetta allt.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að það
er ekkert rúm fyrir þetta allt saman í
einu. Ef það verður af þessu öllu, sem
við vitum ekki – við vitum t.d. ekki
hvort Alcan fer út í þessa stækkun –
þá verður að vera hægt að raða því
upp á skynsamlegum tíma. Það eru
því ákveðnar hindranir og það er ekk-
ert hægt að fullyrða fyrirfram um
þetta. Ef ekki verður af stækkuninni í
Straumsvík, þá liggur það fyrir og þá
taka menn nýjar ákvarðanir út frá
því. Alcoa hefur heldur ekki ákveðið
[byggingu álvers] fyrir norðan og
endanleg ákvörðun hefur heldur ekki
verið tekin um álver í Helguvík. Þetta
er allt á umræðustigi og þannig verð-
ur að vinna málið,“ segir hann.
„Okkur sýnist að besti kosturinn til
að tryggja samkeppnishæfni verk-
smiðjunnar sé að stækka hana og
þess vegna miðast öll okkar heima-
vinna við það,“ segir Hrannar Péturs-
son, upplýsingafulltrúi Alcan á Ís-
landi. „Það er ótímabært að geta sér
til um hvað verður ef ekki verður af
stækkuninni. Við teljum okkur ekki
standa frammi fyrir neinum afarkost-
um varðandi það.“
Minni álverum lokað í framtíð-
inni verði þau ekki endurnýjuð
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mývatnssveit | Gylfi Yngvason á Skútustöðum var að vaka undir norður af
Hrútey í blíðviðrinu. Hann er hér að renna neti sínu í vökina en þær stöll-
urnar Elísabet Gylfadóttir og Halldóra Egilsdóttir njóta stundarinnar og
sjá um að draga netið yfir í vökina til sín. Veiðitíminn hófst 1. mars.
Morgunblaðið/BFH
Veitt undir ísnum
SIF, minni björgunarþyrla Land-
helgisgæslunnar, sem bilaði á dög-
unum, verður líklega tekin í notkun
að nýju í dag,
að sögn Georgs
Kr. Lárussonar,
forstjóra Land-
helgisgæsl-
unnar. Panta
þurfti varahluti
í Sif vegna bil-
unarinnar og
segir Georg þá
væntanlega í
dag. Vonir
standi til þess
að viðgerð á
vélinni verði lokið seinnipart dags-
ins.
Líf, stærri björgunarþyrla Gæsl-
unnar, hefur undanfarið verið í
3.000 tíma skoðun sem er mjög
viðamikil og tekur nokkrar vikur.
Gert er ráð fyrir að hún komist í
gagnið að nýju um miðjan mars.
Georg segir slæmt að báðar þyrl-
ur Gæslunnar séu óvirkar, en lítið
sé við því að gera. Hann leggur
áherslu á að Landhelgisgæslan eigi
í mjög nánu og góðu samstarfi við
Varnarliðið. Það komi til aðstoðar
þegar Landhelgisgæslan þurfi á að
halda og hið sama geri Gæslan fyrir
Varnarliðið. Þessa dagana standi
Varnarliðið vaktina og það hafi
gengið vel.
SIF aftur
í notkun
í dag
Björgunaræfing
á Viðeyjarsundi.
VÉLSLEÐAMAÐUR slasaðist eftir
að hann fór fram af kletti á Lang-
jökli á laugardag, en óhappið átti
sér stað á austanverðum Geitlands-
jökli. Tilkynning um slysið barst
klukkan 12.18 samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Selfossi.
Björgunarsveitarmenn sem voru
við æfingar á svæðinu komu skjótt á
vettvang og hlúðu að manninum.
Hann var að sögn lögreglu með
meðvitund þegar hjálp barst og
kvartaði undan áverka á baki og í
brjóstholi.
Þyrla varnarliðsins kölluð út
Kallað var eftir þyrlu varnarliðs-
ins sem flutti manninn á Landspít-
ala – háskólasjúkrahús í Fossvogi í
Reykjavík. Þar fengust þær upplýs-
ingar í gærkvöldi að maðurinn væri
í öndunarvél á gjörgæsludeild eftir
slysið.
Í öndunarvél á
gjörgæslu eftir
vélsleðaslys