Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 10

Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 10
10 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR AÐ MATI forsvarsmanna Norðuráls ehf. er raunhæft að ætla að uppbygging álvers í Helguvík gæti hafist á árunum 2008 til 2009 en það er forsenda þess að gangsetja megi fyrsta áfanga árið 2010. Gert er ráð fyrir stigskiptri upp- byggingu í Helguvík þann- ig að álverið fari í fullan rekstur fram til ársins 2015 en þá muni árleg framleiðsla geta náð 250.000 tonnum. Allur undirbúningur verkefnisins gengur vel og forathuganir hafa verið já- kvæðar, að sögn Ragnars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnunar- sviðs Norðuráls. Ekki verða þó teknar end- anlegar ákvarðanir um uppbygginguna og einstakar tímasetningar fyrr en mati á um- hverfisáhrifum álvers og virkjana er lokið. Umhverfismat gæti legið fyrir um næstu áramót „Undirbúningur er í fullum gangi. Við höf- um verið að vinna að undirbúningi að mati á umhverfisáhrifum. Búið er að auglýsa mat- sætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum og við erum að ganga frá henni endanlega þessa dagana. Næsta skref er þá að fara í sjálft matið. Ef byrjað verður á því fljótlega má gera ráð fyrir að það geti legið fyrir öðru hvorum megin við næstu áramót,“ segir Ragnar. „Við erum einnig að skoða mögulega fram- leiðslutækni fyrir álverið og nánari útfærslu með tilliti til staðsetningar mannvirkja á svæðinu,“ segir hann. Eins og fram hefur komið telur Hitaveita Suðurnesja verkefnið í Helguvík vera álitlegt tækifæri til frekari fjárfestinga í nærliggjandi orkulindum. Er nú unnið að undirbúningi næstu skrefa í hagnýtingu jarðhitans á Reykjanesi. Fyrirtækið er að reisa nýtt raf- orkuver á Reykjanesi og þar er frekari orku- öflun framundan. Talið er að virkjanafram- kvæmdir við Trölladyngju gætu hafist um leið og búið er að rannsaka svæðið, meta afkasta- getu þess og afla tilskilinna leyfa. Þá hefur Hitaveitan sótt um rannsóknaleyfi á Krýsu- víkursvæðinu, þar sem talið er líklegt að unnt sé að virkja á tveimur til þremur svæðum, í Seltúni, Austurengjum og Sandfelli, fáist leyfi til rannsókna og nýtingar þar. Talið er að jarðhitalindir á Reykjanessvæð- inu séu meira en nægar til að sjá 250.000 tonna álveri fyrir orku. Viðræður hafa einnig farið fram við önnur orkusölufyrirtæki, skv. upplýsingum Norðuráls. Sú tilhögun sem Norðurál hefur viðhaft við framkvæmdir að skipta stækkun fyrirtæk- isins í áfanga og brjóta niður í viðráðanlegar einingar, er sögð auðvelda innlendum verk- fræðifyrirtækjum að hanna og stjórna fram- kvæmdum, hún auðveldi einnig innlendum að- ilum verktöku og notkun innlends vinnuafls við þau verk er vinna þarf. Þá hafa innlendir bankar sýnt áhuga á að annast fjármögnun verkefnisins í Helguvík. Fulltrúar Norðuráls, Reykjanesbæjar og Hitaveitu Suðurnesja undirrituðu í maí í fyrra samkomulag um að kanna möguleika á rekstri álvers í Helguvík í landi Reykjanesbæjar. Í framhaldi af undirritun samkomulagsins var strax hafist handa við frekari könnun á orku- öflun, umhverfisskilyrðum og aðstöðu fyrir ál- ver þar. Í nóvember sl. undirrituðu fulltrúar Reykjanesbæjar, Norðuráls og Fjárfestinga- stofunnar, sem er í eigu iðnaðar- og við- skiptaráðuneytisins og Útflutningsráðs, sam- eiginlega aðgerðaáætlun um frekara mat á hugsanlegri byggingu nýs álvers í nágrenni Helguvíkur. Aðgerðaáætlunin tekur m.a. til þróunar iðnaðarsvæðisins, öflunar og flutn- ings orku, uppfyllingar umhverfisskilyrða og þess að fullnægja öðrum lögbundnum og stjórnunarlegum kröfum. Gert er ráð fyrir að vinnu samkvæmt þessari aðgerðaáætlun verði lokið ekki síðar en í júlí á þessu ári. Meðal næstu skrefa í undirbúningi verkefn- isins eru svo undirritun lóðarsamnings og hafnarsamnings sem vænta má fyrir vorið, skv. upplýsingum Norðuráls. Þá eru viðræður Norðuráls og Hitaveitu Suðurnesja sagðar miða vel áfram. „Finnum fyrir mjög góðum stuðningi móðurfélagsins“ Fram hefur komið hjá forsætisráðherra fyrir skömmu að ekki séu nægilegir mögu- leikar á orkuöflun á næstu árum fyrir öll þau stóriðjuverkefni sem til skoðunar eru, þ.e. stækkun álversins í Straumsvík, álver í Helguvík og hugsanlegt álver Alcoa á Tjör- nesi. Spurður um þetta bendir Ragnar á að ekki liggi fyrir ákvörðun um neitt þessara verkefna á þessu stigi, þannig að ekki sé tímabært að tjá sig um þetta fyrr en meiri upplýsingar liggi fyrir. Century Aluminium eigandi Norðuráls hef- ur fullan áhuga á að unnið verði áfram að undirbúningi að byggingu álvers í Helguvík. „Við finnum fyrir mjög góðum stuðningi móð- urfélagsins, Century Aluminium Company,“ segir Ragnar. „Þeir hafa líka stutt mjög myndarlega við bakið á okkur við uppbygg- inguna á Grundartanga og komið þar inn með verulega aukið eigið fé og gert aðrar ráðstaf- anir sem hafa auðveldað okkur mjög þá upp- byggingu,“ segir hann. Straumi var hleypt á fyrstu kerin í nýjum áfanga álversins á Grundartanga um miðjan febrúar en sú stækkun sem unnið er að eykur framleiðslugetu álversins um 130 þúsund tonn á ári. Stækkuninni lýkur á síðari hluta þessa árs. Er síðan gert ráð fyrir að álverið verði mögulega stækkað enn frekar um 40 þúsund tonn og að þeim framkvæmdum verði lokið 2008. Framleiðslugeta Norðuráls á Grund- artanga verði þá komin í 260 þúsund tonn. Búið er að ganga frá samningum þar að lút- andi, en þeir eru háðir tilteknum skilyrðum, að sögn Ragnars. Hann segir að gangi þetta eftir gætu árin 2008–2009 verið ákjósanlegur tími til að hefja uppbygginguna í Helguvík en orkuöflunin sé hins vegar ráðandi þáttur varðandi tímasetningar þessara verkefna. Uppbygging gæti hafist eftir tvö ár Tölvugerð mynd sem sýnir mögulega staðsetningu álvers Norðuráls í Helguvík. Ragnar Guðmundsson Unnið er af fullum krafti að undirbúningi fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is PRÓFESSOR Ragnheiður Braga- dóttir útskýrði á fjölmennu málþingi á föstudag hvers vegna hún teldi ekki rétt að afnema fyrningarfrest vegna kynferðisbrota gegn börnum og held- ur ekki að innleiða hina svokölluðu sænsku leið í löggjöf um vændi. Málþingið var haldið til kynningar á efni nýs frumvarps um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegn- ingarlaga en á eftir erindi Ragnheið- ar spunnust fjörlegar umræður um efnistök í frumvarpinu. Almenn ánægja ríkti meðal áheyr- enda með fjölda þátta í frumvarpinu en skiptar skoðanir voru um einstök atriði. „Það ber vott um framsýni dóms- málaráðherra að fá hlutlausan fræði- mann til þess verks að endurskoða kynferðisbrotakaflann, og það án til- mæla um efni hans,“ sagði Ragnheið- ur. Hún leitaði víða fanga í undirbún- ingi og skoðaði m.a. löggjöf erlendis, dóma í kynferðisbrotamálum og reynslu þeirra sem starfað hafa með þolendum brotanna. Þrír brotaflokk- ar voru endurskoðaðir og hefur Morgunblaðið þegar gert þeim breyt- ingum nokkur skil í grein frá 15. febr- úar sl. Um er að ræða nauðganir og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, s.s. kynferðislega áreitni, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Markmiðin eru að sögn Ragnheiðar þau að nýju ákvæðin þjóni sem best hagsmunum þolenda brotanna, að breytingar falli vel að reglukerfi hegningarlaganna og að ákvæðin verði nútímalegri. Í frumvarpinu er hugtakið nauðg- un rýmkað til muna og til móts við al- mennan málskilning og réttarvitund, að sögn Ragn- heiðar. Í núgild- andi lögum telst samræði aðeins nauðgun ef um of- beldi eða hótun um ofbeldi er að ræða. Ragnheiður leggur til að verknaðaraðferð skipti í raun ekki máli og að þannig teljist það líka til nauðgunar að nýta sér bágborið andlegt ástand, svefn- drunga eða aðrar þær aðstæður sem gera að verkum að þolandi getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Hún sagð- ist hafa skoðað vel hvort taka ætti upp sama viðmið um nauðgun og í engilsaxneskum rétti, það að sam- þykki þurfi til kynmaka svo það telj- ist ekki nauðgun, en valið að fara ekki þá leið. Atli Gíslason, hæstarétt- arlögmaður og varaþingmaður, kvaddi sér hljóðs í umræðum og sagðist telja að það skref ætti að stíga til fulls, og Sif Konráðsdóttir hæsta- réttarlögmaður spurði um sama at- riði. Ragnheiður benti þá á að skv. frumvarpinu væri skortur á sam- þykki í raun undirliggjandi og að far- sælla væri að skilgreina nauðgun á ít- arlegri hátt. Þá benti Atli á að varðandi sönnun í kynferðisbrota- málum sem oft er erfið, ætti að horfa meira til sálrænna afleiðinga á þol- endur. Þá staðfesti Ragnheiður í fyr- irspurnatíma að kynferðisofbeldi inn- an hjónabands eða staðfestrar sam- búðar sé vissulega refsivert. Í erindinu ræddi hún um þá tillögu í frumvarpinu að lögfest verði ákvæði um refsingu fyrir að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum við annan mann í opinberum auglýs- ingum. „Auglýsingar eru til þess gerðar að auka eftirspurn,“ sagði Ragnheiður og benti á að slíkt bann gæti unnið gegn kynlífsvæðingu sam- félagsins sem aftur ýtti undir afbrot á kynferðissviðinu. Nær bannið til hvers konar auglýsinga, þar á meðal á netinu en upp hefur komið að kyn- mök séu boðin til kaups á heimasíð- um. Fyrning kynferðisbrota gegn börnum ekki afnumin Nýmæli eru einnig í lögunum varð- andi kynferðislega áreitni, en hún er nokkuð ítarlega skilgreind. Sagði Ragnheiður að refsivernd gegn þeim brotum sé nú óljós og skilgreiningin sem lögð sé til grundvallar mun þrengri en gert sé ráð fyrir í frum- varpinu. Þar telst ekki bara snerting heldur táknræn hegðun eða orðbragð sem er meiðandi, ítrekað eða til að valda ótta hjá þolanda, til kynferð- islegrar áreitni. Rökstuðningur Ragnheiðar fyrir því hvers vegna eigi ekki að afnema fyrningu sakar í kynferðisbrotum gegn börnum, var ítarlegur enda um umdeilt mál að ræða og Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður hefur ítrekað lagt fram frumvarp um málið. Eftir á sagðist m.a. Kolbrún Halldórsdóttir þingkona telja Ragnheiði hafa fært afar sannfærandi rök fyrir máli sínu. Frumvarpið gerir raunar ráð fyrir að fyrningarfrestur vegna kynferð- isbrota gegn börnum hefjist nú ekki fyrr en barnið nær 18 ára aldri í stað 14 áður. Þá verður refsihámark fyrir kynferðisáreitni gegn börnum hækk- að um 2 ár sem þýðir að brotin fyrn- ast á tíu árum eða þegar þolandi verð- ur 28 ára. Eðlilegt sé að sá sem orðið hefur fyrir kynferðisbroti í æsku þurfi að taka afstöðu til þess á fullorð- insárum hvort hann ætli að kæra slíkt brot eða ekki og þurfi að sæta til- teknum frestum í því sambandi. Með- al annarra raka fyrir að afnema ekki fyrninguna, minnti Ragnheiður á að nánast engar líkur séu á að dragi úr brotum og sakfellingardómum muni ekki fjölga. Þá sagði hún almenn rök fyrir fyrningu eiga við um þessi brot eins og önnur og að upp kæmi ein- kennilegt misræmi milli brotateg- unda ef brotin fyrntust aldrei. Ástundun vændis til framfærslu verður ekki refsiverð ef frumvarpið nær fram að ganga. Sú breyting sam- ræmist þeirri leið sem önnur Norð- urlönd hafa valið. Í Svíþjóð er þó gengið lengra, þannig að ekki ein- ungis þeir sem nýta sér aðra til gróða á vændi heldur einnig þeir sem kaupa vændi, bera refsiábyrgð. Ekki sænska leiðin Ragnheiður sagði vissulega rök fyrir því að refsa fyrir kaup á vændi, en taldi gallana fleiri. Hún benti á að ekki sé komin næg reynsla af sænsku löggjöfinni, heildarrannsóknir á áhrifum hennar hafi ekki farið fram og ekki sé ljóst hvort hún hafi almenn varnaðaráhrif. Vændi færist frekar í undirheimana sem geri erfitt fyrir að hafa eftirlit með því og veita þeim sem stunda vændi félagslega aðstoð. Þá geti staða vændismiðlara styrkst. Einnig hafi verið bent á að þótt man- sal dragist saman í einu landi geti það þýtt samsvarandi aukningu í öðru landi. Nokkrir fundarmanna gerðu at- hugasemd við þessi rök og sögðu t.a.m. að vændi tilheyrði nú þegar undirheimunum. Þá sé nauðsynlegt til að sporna gegn mansali að kaup á vændi séu gerð refsiverð sem víðast og að Íslendingar ættu að fylgja þar frumkvæði Svía. Líklega áttu lokaorð Ragnheiðar í erindi sínu ekki síst við um þessa gagnrýni. „Mitt mat er að með frum- varpinu sé að öllu leyti komið til móts við eðlilegar, réttlátar og sanngjarnar kröfur til úrbóta og því einu sleppt sem veldur meiri skaða en bót.“ Frumvarpið má nálgast á heima- síðu dómsmálaráðuneytisins, en það verður lagt fyrir Alþingi 8. mars nk. Ragnheiður Bragadóttir Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is TENGLAR .............................................. www.domsmalaraduneyti.is Ragnheiður Bragadóttir kynnti frumvarp til breytinga á kynferðisbrotakafla hegningarlaganna Hvorki afnám fyrningar- frests né „sænska leiðin“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.