Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ICELAND-verslunarkeðjan í Bret-
landi sem rekur um 170 verslanir,
hefur tryggt sér 160 milljóna punda
lánsfjármögnun, jafngildi 18,5 millj-
örðum íslenskra króna, til þess að
endurgreiða íslenskum fjárfestum
og til þess að standa straum af frek-
ari uppbyggingu og umbreytingu
verslana Iceland. Landsbanki Ís-
lands sá um fjármögnunina.
Gífurlegur umsnúningur hefur
orðið á rekstri Iceland-keðjunnar,
sem íslenskur fjárfestahópur með
Baug í broddi fylkingar eignaðist
með yfirtöku á Big Food Group fyrir
um ári síðan en hann fékk stofnanda
keðjunnar, Malcolm Walker, til þess
að taka við stjórn hennar og snúa við
rekstrinum sem hafði gengið illa um
langa hríð. Í febrúar 2005 höfðu sölu-
tekjur dregist saman um 10% frá
sama tíma árið áður en nú hefur sal-
an aukist verulega og var 20% meiri
nú í febrúar en fyrir ári.
Allt stefndi í þrot
Að sögn Malcolm Walkers er nú
reiknað með viðunandi hagnaði af
rekstrinum á fjárhagsári félagsins
sem lýkur í lok mars en í fyrri áætl-
unum hafði verið gert ráð fyrir um-
talsverðu tapi. Þá hefur sjóðstreymi
gerbreyst og allt stefndi í að félagið
yrði orðið alveg skuldlaust á fáeinum
mánuðum.
Walker sagði við Morgunblaðið að
hann væri þess fullviss að Iceland-
keðjan hefði lagt upp laupana ef
Baugur hefði ekki komið að keðj-
unni. Nú hafi það sýnt sig hversu
mikilvægt hafi verið að einfalda
reksturinn og einbeita sér aftur að
því sem Iceland geri best: að bjóða
upp á fyrsta flokks frysta matvöru á
mjög hagstæðu verði.
„Ég stjórnaði Iceland-keðjunni
sem einkafyrirtæki í 14 ár og í önnur
16 ár þegar keðjan var skráð félag.
Eftir fjögurra ára hlé er ég kominn
aftur til Iceland og þetta hefur aldrei
verið jafnskemmtilegt.
Baugsmenn vinna á allt annan
hátt en dæmigerður breskur fjár-
festir og ég kann að meta þá nálgun.
Við sendum þeim tölulegar upplýs-
ingar daglega en þeir láta okkur um
reksturinn. Þeir vilja ekki fá enda-
lausar skýrslur og flóknar viðskipta-
áætlanir, bara grunnupplýsingar og
eru fljótir að taka ákvarðanir. Ís-
lensku bankarnir virðast líka vera
öðruvísi en þeir bresku, í þeim hittir
helst ekki lengur nokkurn mann sem
getur tekið ákvörðun. Ég held að það
sé útlit fyrir að bæði íslensku fjár-
festarnir og bankamennirnir muni
taka yfir fleiri fyrirtæki hér í
Bretlandi, þeir eru ungir og búa yfir
ótrúlegum krafti,“ segir Malcolm
Walker.
Alger umskipti hjá
Iceland-keðjunni
Bjartsýni Malcolm Walker var brosmildur – og kannski ekki án ástæðu –
þegar hann hitti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í síðustu viku.
Íslenskir fjárfestar fá fjárfestingu sína endurgreidda með vöxtum
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
BRESK samkeppnisyfirvöld hafa
ákveðið að í máli verslanakeðjunnar
Somerfield og kaupum hennar á 115
verslunum Morrisons keðjunnar
verði málsaðilum gefinn frestur til
morgundagsins, 7. mars, til að koma
að athugasemdum.
Í september á síðasta ári lýstu
samkeppnisyfirvöld í Bretlandi því
yfir að kaup Somerfield á verslunun-
um 115 gæti leitt til minni sam-
keppni á 12 svæðum í landinu. Var
Somerfield því gert að selja verslanir
á svæðunum tólf til kaupenda sem
samkeppniseftirlitið samþykkti.
Gæti Somerfield annaðhvort selt
verslunina sem keypt var, eða þá
verslun sem keðjan átti fyrir á svæð-
inu.
Somerfield kærði úrskurð sam-
keppnisnefndarinnar til áfrýjunar-
nefndar, en 13. febrúar hafnaði
áfrýjunarnefndin kröfum Somerfield
um að ákvörðunin yrði endurskoðuð.
Í tilkynningu frá samkeppnisyfir-
völdum segir að í ljósi þess að máls-
aðilar hafi nú hag af því að málið
verði til lykta leitt sem fyrst verði
það tekið til flýtimeðferðar.
Somerfield
í flýtimeð-
ferð hjá
samkeppnis-
yfirvöldum