Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 13 ERLENT hitakútar úr ryðfríu stáli 30 ára reynsla á þúsundum heimila ● 30/50/100/120/200 eða 300 lítra ● Blöndunar- og öryggisloki fylgir ● Hagstætt verð Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900 www.ef.is Frábær ending! SAMTÖK fyrrverandi bandarískra hermanna í Afganistan og Írak sem eru óánægðir með tök Georges W. Bush forseta á Íraksstríðinu hafa sett á fót starfshóp sem kallaður hefur verið Bræðra- lagið 2006. Honum er ætlað að fá fyrrverandi her- menn sem eru andvígir stríðinu kjörna á þing. Samtökin vonast til að geta safnað allt að tíu milljónum dollara í sjóð á árinu til að styðja fram- boð til fulltrúa- og öldungadeildarinnar með það á stefnuskránni að breyta stefnunni í Írak, að því er Los Angeles Times hafði nýlega eftir Jon Soltz, framkvæmdastjóra hópsins. „Þetta er fólkið sem við viljum senda til Wash- ington til að veita þingheimi betri skilning á stríð- inu,“ sagði Soltz, sem var kapteinn í landhernum í Írak, við LAT. „Til að breyta stefnunni í þessu stríði þurfum við að hafa kunnáttumenn í Wash- ington.“ Nær Demókrataflokknum Forustumenn Bræðralagsins 2006 segjast munu styðja frambjóðendur úr báðum flokkum, en þó eru stefnuskrá þess og markmið nær stefnu Demó- krataflokksins. Árið 2004 skipulagði Soltz framlag fyrrverandi hermanna í Pennsylvaníu fyrir kosn- ingaframboð Johns F. Kerrys, og fyrrverandi yf- irmaður herja Atlantshafsbandalagsins, Wesley Clark, sem tók þátt í forvali demókrata fyrir for- setakosningarnar 2004, er formaður ráðgjafa- nefndar Bræðralagsins. Charles W. Larson, sem situr í öldungadeild rík- isþingsins í Iowa fyrir Repúblíkanaflokkinn, segir við LAT að gagnrýni samtakanna á stríðið í Írak endurspegli alls ekki almenna afstöðu fyrrverandi hermanna. Hann fullyrðir að margir þeirra hafi séð með eigin augum „þann árangur sem við höfum náð í Afganistan og Írak og þeir hafa trú á herför- inni og vilja að henni verði lokið“. Síðastliðið sumar stofnaði hann samtök fjölskyldna sem styðja bandaríska hermenn í Írak og markmið baráttu þeirra þar. Stefnuskrá Bræðralagsins – sem Soltz segir að frambjóðendur verði að lýsa stuðningi við til að samtökin styrki þá – gerir að verkum að ólíklegt má telja að Bræðralagið muni styrkja frambjóð- endur úr röðum repúblíkana. Starfshópurinn hefur ekki gefið út neinar yfirlýsingar um hvenær hann vilji að bandaríski herinn verði kallaður heim, en í stefnuskránni segir að Bush verði að leggja fram „sigurstranglega hernaðaráætlun“ er leitt geti til þess að fljótlega verði hægt að senda marga heim. Það eru margir fyrrverandi hermenn sem ætla að bjóða sig fram í þingkosningunum sem fram fara síðar á árinu, og segir fréttaskýrandi The New York Times að þeir hafi reyndar ekki verið svona margir í hálfa öld. Alls um eitt hundrað manns sem voru í bandaríska hernum í Írak, Afganistan, Víet- nam, Persaflóastríðinu og á Balkanskaga. Enginn þeirra er sitjandi þingmaður. Ekki aðeins andstaða við Íraksstríð Flestir eru þeir demókratar, en Repúblíkana- flokkurinn á líka fulltrúa í þessum hópi. Margir eru í framboði að frumkvæði flokkanna, en aðrir tóku upp hjá sjálfum sér að bjóða sig fram, ekki síst að áeggjan vinstrisinnaðra bloggara sem telja að fyrir tilstuðlan þessara frambjóðenda geti Demókrata- flokkurinn á ný fengið meirihluta á þingi. Sumum frambjóðendanna er efst í huga andstaða við Íraks- stríðið, en aðrir leggja áherslu á heilsugæslumál, atvinnusköpun eða orkumál. „Það er orðin grundvallarbreyting á viðmiðun- um í pólitíkinni nú á dögum,“ hefur NYT eftir Eric Massa, fyrrverandi liðsforingja í sjóhernum, sem er í framboði í New York-ríki. „Ég held að repúblíkanarnir séu ekki búnir að átta sig á því.“ Hlutfall fyrrverandi hermanna á Bandaríkja- þingi er nú minna en nokkru sinni frá síðari heims- styrjöld. Aðeins 26 af hundraði þingmanna sem nú sitja geta stært sig af því að hafa gegnt herþjón- ustu, en 1977–78 var þetta hlutfall 77 af hundraði. Gerbreytt viðhorf til hermanna En samtímis því að hlutfall þeirra Bandaríkja- manna sem verið hafa í hernum fer minnkandi bera sífellt fleiri virðingu fyrir hernum. Á árunum eftir Víetnamstríðið var herinn í minni metum hjá bandarísku þjóðinni en nokkru sinni, en nú er hann meðal þeirra stofnana sem njóta hvað mestrar virðingar og trausts, að því er fram kemur í skoð- anakönnunum. NYT hefur eftir Burdett A. Loomis, stjórnmála- fræðingi við Háskólann í Kansas, að núna sé við- horf bandarísks almennings til hermanna sem snúi heim frá vígvellinum allt annað en viðhorfið var til þeirra sem komu heim frá átakasvæðum á sjöunda og áttunda áratugnum. Þá hafi látið nærri að litið væri á fyrrverandi hermenn sem stríðsglæpa- menn. En í dag, segir Loomis, taka „jafnvel hörðustu gagnrýnendur stríðsins skýrt fram að þeir séu ekki að gagnrýna hermennina“. Þessi viðhorfsbreyting gerir að verkum að það er sterkur leikur fyrir flokkana að leita að frambjóðendum úr röðum fyrr- verandi hermanna. Bræðralagið berst gegn stefnu Bush í Írak Samtök fyrrverandi hermanna vinna að því að fá sína menn kjörna á þing AP Gífurlegur fjöldi bandarískra hermanna hefur þjónað í Írak á þeim þremur árum sem liðin eru síðan gerð var innrás í landið. Og nú hyggjast sumir þeirra bjóða sig fram í þingkosningunum vestra í haust. Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is MIKIL snjókoma var í Sviss um helgina, einhver sú mesta, sem mælst hefur. Hefur það valdið miklum erf- iðleikum í samgöngum og stóraukið hættuna á snjó- flóðum. Eru margir vinsælir skíðastaðir einangraðir vegna fannfergisins og kemst fólk hvorki til þeirra né frá. Hér er fólk í St. Gallen í Sviss við mokstur en það er ekki aðeins allt á kafi þar, heldur víða á meginland- inu, til dæmis í Frakklandi og í Þýskalandi. Þar hefur fólk verið hvatt til að hreyfa ekki heimilisbílinn að óþörfu en mikið er um árekstra og slys á vegum úti. AP Evrópa á kafi í snjó BÚIST er við, að húseigendur sums staðar á Englandi verði brátt skyldaðir til að samþykkja vatnsmæla í húsum sínum, en mikill og vaxandi vatnsskortur er í sunnanverðu landinu og í Wales. Á tímabilinu október 2004 til janúar 2006 hefur ekki rignt minna á Suðaustur-Englandi frá árinu 1921 og verði ekki breyting á verður að grípa til neyðarráðstafana vegna vatns- skortsins. Að því er segir í breskum fjölmiðlum hefur verið lagt til, að garðslöngur verði bannaðar, og nú hefur eitt vatnsfyrirtækjanna fengið dómsúrskurð fyrir því, að skylda megi húseigendur til að vera með vatnsmæla. Þá hefur breska umhverfisráðuneytið gefið fólki góð ráð til að spara vatn, meðal annars að vera ekki lengur en fimm mínútur í sturtu og skipta út plöntum í garð- inum, vera helst með þær, sem þrífast best í þurru loftslagi. Hætt að rigna á Englandi? Bagdad. AFP. | Talsmenn Breta og Bandaríkjamanna neituðu í gær þeim fréttum tveggja breskra dag- blaða, að stefnt væri að brottflutn- ingi alls bresks og bandarísks her- liðs frá Írak vorið 2007. Blöðin tvö, The Sunday Tele- graph og Sunday Mirror, kváðust hafa það eftir ónefndum heimilda- mönnum innan breska hersins, að fyrirhugað væri að fækka í herliðinu næsta árið, takmarka veru þess við herstöðvarnar og flytja það síðan allt í burt á sama tíma. Sagt var, að breska og banda- ríska ríkisstjórnin hefðu komist að þeirri niðurstöðu, að vera erlends hers stuðlaði ekki lengur að friði í Írak, heldur væri almennt farið að líta á hann sem hernámslið hvað sem liði óskum Íraksstjórnar um að hann yrði áfram. „Þessar fréttir um allsherjar- brottflutning eru bull og vitleysa,“ sagði Barry Johnson, talsmaður Bandaríkjahers í Bagdad, í gær og ítrekaði, að Bandaríkjaher yrði fluttur frá Írak þegar íraski herinn væri fær um að halda uppi lögum og reglu. 157.000 menn í erlenda herliðinu Talsmaður breska varnarmála- ráðuneytisins hafnaði einnig frétt- unum og vísaði til yfirlýsingar John Reids varnarmálaráðherra 7. febr- úar. Þá sagði Reid, að „sá tími nálg- aðist“, að hægt væri að fara að huga að brottflutningi en nefndi engin tímamörk í því sambandi. Sagði hann, að Bretar myndu ekki hlaupa frá skyldum sínum í Írak. Í erlenda herliðinu í Írak eru nú 157.000 menn, þar af 136.000 Bandaríkjamenn, rúmlega 8.000 Bretar og 13.000 frá öðrum löndum. Hafa Bandaríkjamenn áður gefið í skyn, að fækkað verði í liðinu á þessu ári og stefnt að því, að það verði um 100.000 menn um næstu áramót. Neita fréttum um brott- flutning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.