Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 14
Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Toxic shock syndrome (TSS)er mjög sjaldgæf en lífs-hættuleg sýking sem bakt-ería veldur og er oft tengd við notkun á túrtöppum og í sumum tilfellum við notkun á hettunni og getnaðarvarnarsvampinum. Bakt- erían sem veldur sýkingunni er yf- irleitt til staðar í líkamanum á svæð- um eins og nefi, húð og í leggöngum og veldur yfirleitt ekki neinum al- varlegum sýkingum. Hins vegar eykst hættan á að fá sýkingu ef túr- tappar eru notaðir. Það eru aðallega túrtappar sem eru hannaðir með há- marksvökvadrægni sem eru hættu- legastir og ef túrtappi er hafður of lengi í leggöngunum. Einkenni TSS koma oftast skyndilega fram og líkjast í upphafi flensueinkennum, þau koma fram í: Háum hita, ógleði og niðurgangi, útbrotum líkum sólbruna, sér- staklega í lófum og á iljum, vöðva- verkjum, rauðum augum, munni og/ eða hálsi, flogi, höfuðverk, hnakka- stirðleika, svima, yfirliði og lágum blóðþrýstingi. Kona sem er með túrtappa og fær slík einkenni ætti að fjarlægja hann strax og leita til læknis. Meðferð gegn veikinni fer fram á sjúkrahúsi með sýklalyfi. Með góðri meðferð batnar sjúklingnum yfirleitt á tveim- ur til þremur vikum. Ástandið getur hins vegar verið banvænt á innan við klukkutíma. Tilfellum TSS hefur fækkað mikið á undanförnum árum. Í Bretlandi voru aðeins fimm tilfelli skráð árið 1997 miðað við 814 tilfelli árið 1980. Það var um 1980 sem bylgja af TSS kom fram, aðallega hjá ungum kon- um sem höfðu verið að nota mjög rakadræga tappa. Þeir voru teknir af markaðnum og þá fækkaði til- fellum TSS mjög mikið en enn kem- ur eitt og eitt tilfelli fram. Ekki er alveg vitað afhverju túr- tappar valda TSS en sumir segja það vera vegna þess að ef tappinn er skilinn eftir í leggöngunum í langan tíma verði hann góð fjölgunarstöð fyrir bakteríur. Aðrir segja trefjar í tappanum rispa yfirborð leggang- anna og geri það þá mögulegt fyrir bakteríurnar að komast í blóðið. Til að koma í veg fyrir að fá TSS er æskilegt að fylgja eftirfarandi ráðum:  Notaðu alltaf túrtappa með lægstu mögulegri rakadrægni sem hentar blæðingum þínum.  Skiptu um tappa reglulega. Ekki minna en á þriggja klukkustunda fresti eða eins oft og sagt er á pakkanum.  Notaðu dömubindi einstöku sinnum á blæðingatímanum.  Þvoðu hendurnar fyrir og eftir að tappinn er settur inn en bakteríurnar geta borist inn í leggöngin með höndunum.  Aldrei setja inn meira en einn tappa í einu.  Á nóttunni skaltu setja nýjan tappa inn áður en þú ferð að sofa og fjarlægðu hann strax þegar þú vaknar. Annars er ekki mælt með því að sofa með sama tappann alla nóttina.  Fjarlægðu tappann þegar blæðingum er lokið.  Milli blæðinga er gott að geyma túrtappana frá hita og raka. Geymdu þá frekar inni í svefnherbergi en inni á bað- herbergi.  Foreldrar og eldri systkyni eiga að láta dætur og yngri systur vita af þessari hættu þegar þær byrja á blæðingum. Muna að skipta oft um túrtappa Morgunblaðið/ÞÖK TSS er sýking sem svokallaðir Stafilokokkar valda. Frekari upplýsingar um TSS má finna á: www.toxicshock.com og www.kidshealth.org  HEILSA | Er í einstaka tilfellum lífshættuleg sýking Nær allir foreldrar bera ein-hvern kvíða í brjósti yfirþví að eitthvað komi fyrir barnið þeirra og oft er kvíðinn mestur fyrstu vikurnar og mán- uðina. Sumir vakna á næturnar til að gæta að barninu og róa sjálfan sig. Eitt af því sem veldur áhyggj- um er skyndidauði ungbarna, öðru nafni vöggudauði. Hann er skil- greindur þannig að ungbarn, oftast á aldrinum 2ja–4ra mánaða, deyr í svefni, án undanfarandi veikinda, og vönduð krufning með viðeigandi rannsóknum leiðir ekki í ljós dán- arorsök. Sem betur fer hefur tíðni vöggudauða hér á landi verið með því lægsta sem þekkist í nálægum löndum. Nýjar rannsóknir benda til þess að notkun snuðs á svefntíma dragi úr líkum á vöggudauða. Því er mælt með henni í nýjum leið- beiningum sem landlæknir hefur sent frá sér um aðgerðir til varnar skyndidauða ungbarna. Síðast voru slíkar leiðbeiningar gefnar út árið 1994, en í ljósi nýrrar þekkingar hafa þær nú verið endurskoðaðar og sendar öllu heilbrigðisstarfsfólki sem annast ungbarnavernd. Börnin sofi á bakinu Meginbreytingin frá leiðbeining- unum 1994 er sú að í ljósi ofan- nefndra rannsókna er nú mælt með notkun snuðs á svefntíma ung- barna, þó ekki fyrr en brjóstagjöf er komin vel á veg, enda er brjósta- gjöfin einnig talin vera mikilvæg vörn gegn vöggudauða. Aðrar breytingar eru að aukin áhersla er nú lögð á að ungbörn sofi á bakinu. Ef það reynist af ein- hverjum ástæðum erfitt er mælt með að því að gæta þess að börnin geti ekki oltið á grúfu. Engan kodda Að öðru leyti er foreldrum ráð- lagt að ekki sé reykt á heimilum ungbarna eða þar sem þau dvelja, að ungbörn sofi jafnan í eigin rúmi og séu höfð á brjósti ef þess er nokkur kostur. Þá skal forðast að nota kodda undir höfuð ungbarna og að ofdúða þau. Landlæknisembættið vill koma eftirfarandi ábendingum til for- eldra:  Leggið heilbrigð ungbörn til svefns þannig að þau liggi á baki. Ef hliðarlega er valin verður að gæta þess að þau geti ekki oltið yfir á grúfu þar sem þeirri legu hefur fylgt aukin áhætta á vöggudauða. Þegar um er að ræða fyr- irbura eða ungbörn sem hafa verið veik eða hafa með- fæddan galla af einhverju tagi skal fylgja sérstökum fyr- irmælum læknis.  Forðist tóbaksreykingar, sér- staklega á meðgöngutíma, á heimilum ungbarna og öðrum stöðum þar sem þau dveljast.  Látið ungbörn sofa í eigin rúmi í herbergi foreldra fyrstu mánuðina. Sérstaklega er varhugavert að börn deili rúmi með þeim sem:  Reykja.  Hafa notað áfengi eða önnur vímuefni.  Nota lyf sem hafa þau áhrif að svefn er dýpri.  Eru mjög þreyttir.  Hafið barnið á brjósti sé þess kostur.  Notið ekki kodda undir höfuð ungbarna þegar þau eru lögð til svefns og forðist mjúkar dýnur og mjúk leikföng í rúm- um þeirra. Gætið þess að gæludýr á heimilinu komist ekki í rúm barnanna.  Forðist ofdúðun ungbarna. Fylgist með því að þeim sé ekki of heitt, t.d. hvort þau svitna, og minnkið klæðnað og annan umbúnað ef svo er.  Mælt er með snuðnotkun á svefntíma þegar brjóstagjöf er komin vel á veg þar sem rannsóknir benda til að það dragi úr líkum á vöggudauða.  Látið fylgjast vel með heil- brigði ungbarna. Notfærið ykkur þá ungbarnavernd sem í boði er. Það skal ítrekað að skyndidauði ungbarna er sjaldgæfur hér á landi og því ekki ástæða fyrir foreldra til að hafa miklar áhyggjur en vert er að hafa þessar ábendingar að leið- arljósi meðan börnin eru ung.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið Skyndidauði ungbarna – forvarnir gera gagn Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur. mars Daglegtlíf Morgunblaðið/Ásdís Nú er mælt með notkun snuðs á svefntíma ungbarna. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.