Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 15
DAGLEGT LÍF Í MARS
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
lækkar kólesteról
Rannsóknir sýna að dagleg
neysla Benecols stuðlar að
lækkun kólesteróls um allt
að 15%.
Inniheldur
plöntustanólester sem
1. Meiri virkni.
2. Mun meiri andoxunarefni.
3. Minni líkur á aukaverkunum.
4. Meiri stöðugleiki og mun lengra geymsluþol eða 10 ár samanborið við
3ja ára geymsluþol hvíts ginsengs.
RAUTT EÐAL GINSENG
Skerpir athygli - eykur þol
Virkar m.a. gegn:
Einbeitingarskorti, streitu,
þreytu og afkastarýrnun
Einnig gott fyrir aldraða!
www.ginseng.is
:: SPA ZONE ::
Árangursrík Cellulite
meðhöndlun
Air Pressure - Aroma olíur
● Sléttir og grennir
● Formar fótleggi
● Losar bjúg og þreytu
● Eykur starfsemi
sogæðakerfis
● Betri líðan
Sjáanlegur árangur strax
20% afsláttur af 10 tíma kortum.
Nú er rétti tíminn fyrir vorið.
Snyrtisetrið 1. hæð Domus Medica
Sími 533 3100
„ASPARTAME er sætuefni sem er
notað í sykurskert matvæli, önnur
nöfn yfir það er Nutrasweet og E951.
Það samanstendur af tveimur amínó-
sýrum, þ.e. fenýlalanín og aspartik-
sýru, ásamt methylhóp. Þessi sam-
setning gefur frá sér afurð sem er 200
sinnum sætari en sykur og þar af leið-
andi þarf mjög lítið af því í matvæli til
að ná tilætluðum árangri og fyrir vik-
ið verður matvælið hitaeiningaminna
en sambærilegt matvæli sem inni-
heldur sykur,“ segir Ingólfur Giss-
urarson, fagstjóri á matvælasviði hjá
Umhverfisstofnun. Hann segir öll
aukaefni í matvælum vera undir
reglubundnu eftirliti Heilbrigðiseft-
irlits sveitarfélaganna. „Aspartame
er mjög umdeilt efni og það liggja yfir
hundrað rannsóknir að baki síðasta
áliti Vísindanefndar Evrópusam-
bandsins á því, en Umhverfisstofnun
fylgir reglugerðum Evrópusam-
bandsins um aukaefni. Þegar auka-
efni er skoðað er byrjað á að meta
daglegt neyslugildi þess. Næst er far-
ið gaumgæfilega í hvort þörf sé á efn-
inu og hvort það þjóni hagsmunum
neytenda og að lokum er það sett inn
í aukaefnalista m.t.t. inntöku auka-
efnisins. Ef það er til annað öruggara
efni þá er það notað. Menn eru alltaf
að tryggja að aukaefnin, sem eru not-
uð hverju sinni, séu örugg og þjóni
hagsmunum neytenda. Aspartame,
líkt og önnur sætuefni með háan
sætuefnastyrk, var m.a. hugsað sem
leið fyrir sykursjúkt fólk að njóta
sætra matvæla án þess að það hafi
áhrif á hækkun blóðsykurs.“
Daglegt neyslugildi er 40 mg/kg
Vísindanefnd Evrópusambandsins
um matvæli rannsakaði aspartame
árið 2001 og var niðurstaða nefnd-
arinnar að daglegt neyslugildi af asp-
artame mætti vera 40 mg/kg/dag. „Ef
það koma aðrar upplýsingar sem gefa
til kynna að daglegt neyslugildi lækki
eða hækki þá er efnið aftur tekið til
skoðunar hjá Evrópusambandinu.
Sambandið er einmitt núna að skoða
nýja skýrslu, sem kom frá Ítalíu í
sumar, með tilliti til annarra upplýs-
inga. Þær bentu til að neysla á vörum,
sem innihalda aspartame, hefði auk-
ist og að daglegt neyslugildi gæti ver-
ið lægra en það er í dag.“
Árið 2002 var gerð könnun á
drykkju Íslendinga á sykurlausu gosi
og kom í ljós að inntaka þeirra á asp-
artame er ekki mikil en Ingólfur segir
vörur sem innihalda aspartame hafa
bæst við á markaðnum síðan þá og
neyslan líklega aukist. Hann segir
neyslutölurnar samt vera það lágar
að Íslendingar séu ekki að fara yfir
sett mörk í inntöku á efninu. „Við
reynum að líta hlutlaust á málið og
passa að varan sé ekki hættuleg neyt-
endum, við skoðum hana út frá nýj-
ustu gögnum hverju sinni og meira
getum við ekki gert.“
Vill sjá meðvitaða neytendur
Aspartame finnst í yfir 6.000 vöru-
tegundum og er annað mest notaða
sætuefni í heimi, segir á heimasíðunni
www.aspartame.worldwidewarn-
ing.net. Það finnst meðal annars í
flestum sykurskertum drykkjum og
matvörum, eftirréttum, jógúrti,
vítamíni, morgunkorni, sælgæti og
tyggjói.
„Þegar ég sá heimildarmyndina
Sweet Misery – A poisoned world
staðfesti það áður fenginn grun minn
um skaðsemi aspartame og ég fór að
leita frekari upplýsinga um efnið,“
segir Andrea Ólafsdóttir, nemi í upp-
eldis- og menntunarfræði og áhuga-
manneskja um heilsu og áunna sjúk-
dóma vegna aukaefna í matvælum. „Í
myndinni eru læknar og vísindamenn
að vekja athygli á því hversu illa var
staðið að því ferli að samþykkja asp-
artame á sínum tíma. Þeir segja að
allar rannsóknir sem sýndu fram á
neikvæða þætti þess hafi verið þagg-
aðar niður. Auðvitað á að taka öllu
svona með fyrirvara, en þetta ætti þó
að vera ástæða fyrir hinn almenna
neytanda að leita sér frekari upplýs-
inga, en ekki neyta efnisins grunlaus
án þess að kynna sér málið,“ segir
Andrea. Eituráhrifin af aspartame
koma m.a. fram í skapsveiflum, jafn-
vægistruflunum, svima, sjón- og
svefntruflunum, og útbrotum. Andr-
ea segir svona eituráhrif vera nóg
fyrir sig sjálfa til að varast vörur sem
innihalda þetta efni. „Líkaminn losar
sig ekki við efnið, það safnast upp og
getur valdið skaða löngu seinna. Í
myndinni kom m.a. fram að hægt var
að rekja krabbamein til mikillar notk-
unar á vörum sem innihalda asp-
artame.“
Eigum að spyrja spurninga
„Vísindamenn hafa ennþá efa-
semdir um efnið. Á heimasíðunni
www.medscape.com kemur fram að
árið 2005 gerði Ítali rannsókn á 1.800
rottum. Hann gaf helmingi þeirra
mismunandi stóra skammta af asp-
artame og hinn helmingurinn fékk
ekki neitt. 62% af þeim rottum sem
fengu aspartame greindust með
krabbamein en engin rotta í hinum
hópnum. Að mínu mati er ástæða fyr-
ir neytendur að spyrja sig spurninga
þegar svo virðist sem 90–100%
óháðra rannsóknaraðila finni eitthvað
að efninu, á meðan þeir sem studdir
eru af stórfyrirtækjum, sem hafa við-
skiptahagsmuna að gæta, segja það
skaðlaust, eins og kemur fram á
www.holisticmed.com/aspartame.“
Andrea segir fólk auðvitað geta
skaðað heilsu sína á ýmsan hátt en að
það sé í lagi að vekja athygli fólks á
öllu því sem er talið skaðlegt og þeir
sem vilja geta þá passað sig á því.
„Þannig er neytandinn meðvitaðri
um val sitt, rétt eins og þegar fólk vel-
ur að reykja þó það viti að það geti
valdið krabbameini og dauða.“
HEILSA | Gervisætuefnið aspartame finnst í yfir 6.000 vörutegundum
Aukaefni eiga að vera örugg
Morgunblaðið/ÞÖK
Sætuefnið aspartame er notað í fjölda sykurlausra matvara.
Myndina Sweet Misery – A pois-
oned world má sjá á: www.-
gagnauga.is.
Fleiri vefsíður um aspartame.
www.sweetpoison.com
www.laleva.cc/food/aspart-
ame_studies.html
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Gervisætuefnið aspart-
ame finnst í fjölda syk-
urskertra matvæla. Skipt-
ar skoðanir hafa verið um
hollustu þess og segja
sumir það hættulegt. En
hvað er aspartame?