Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 16

Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 16
16 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING EcoGreen Multi FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Vítamín, steinefni og jurtir APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Orkubomba og hreinsun TIL skýringar skal þess getið að „aaaahhh“ … er alþjóðlegt fræðihugtak og notað um tilfinn- inguna sem fer um áhorfendur, sérstaklega gagnrýnendur, þegar þeim er komið ánægju- lega á óvart. Síðustu afrek Baltasars í túlkun klassískra verka í Þjóðleikhúsinu gáfu mér satt að segja ekki tilefni til bjartsýni varðandi uppfærslu hans á Pétri Gaut. Það sama má segja um þá sérkennilegu fullyrðingu hans í viðtali í tíma- riti Þjóðleikhússins, Fjórða veggnum, að sýn- ingin væri „spuni út frá verki Ibsens“. Eins hringdu aðrar yfirlýsingar hans í viðtalinu að- vörunarbjöllum, þar sem hann reynir í löngu máli að fría sig allri gagnrýni sem lýtur að því að sýningin taki ekki nægilegt mið af verki höfundarins. Það var því áhyggjufullur aðdáandi verksins sem settist niður í nýja kassanum Þjóðleik- hússins á laugardagskvöldið og beið óþreyju- fullur meðan mannvirkið var vígt. Yrði þetta enn ein sýningin þar sem leikstjóri og verk fara á mis? Þar sem leikstjórinn hefur enga trú á efnivið sínum, en langar að segja eitthvað sem ekki er að finna í verkinu og útkoman er flatneskja þar sem hvorki höfundur né leik- stjóri nær nokkru sambandi við áhorfendur? Ónei. Hér gengur allt upp. Leikritið er eitthvert það magnaðasta sem skrifað hefur verið, alveg áreiðanlega meist- araverk Ibsens. Hef aldrei skilið hvernig hann nennti að skrifa stofudrömun sín eftir þetta margslungna og risavaxna leikljóð um flóttann frá og leitina að sjálfum sér. Þýðing Karls Ágústs er frábær. Lipurlega kveðin, snjöll og hnyttin og – frumskilyrði ljóð- leikjaþýðinga – nægilega auðskilin til að hugs- unina í henni megi grípa í fyrstu atrennu. Það hjálpar að hugsunin í verkinu er ekki snúin, bara djúp. Grunnhugsun og handritsvinna leikstjórans og samstarfsfólks hans er glæsilegt verk. Leikrit eins og Pétur Gautur kallar á styttingu og umstöflun og þolir hana vel. Útkoman hér er afskaplega skýrt ferðalag í gegnum ævi lygalaupsins og smámennisins, sem hefst á dauðastund hans og sýnir í vel völdum svip- myndum hvers vegna örlög hans eru að „leys- ast upp í læðing í deiglu hnappasteyparans“. Eilíft líf er ekki til, því miður, og verkefnið er að sætta sig við deigluna. Að verða sjálfum sér líkur er að deyða sjálfan sig. Pétur Gautur er fyrsta búddíska leikritið á Vesturlöndum. Innblásin samþjöppunarhugmynd hjá Balt- asar að slá saman brúðinni á Heggstað og Sól- veigu, og síðar Afstyrminu og Beygnum. Gerir ekkert nema styrkja sýninguna. Leikmynd Gretars Reynissonar er eitur- snjöll og styður fullkomlega við grunnhugsun leikstjórans. Hvíta flísaumhverfið með plast- tjöldunum sem opna og loka rýmum til hliðar og aftan til tekur áreynslulaust á sig mynd lík- húss, fiskvinnslu, elliheimilis, gufubaðs og geð- sjúkrahúss. Og hljóðið sem heyrist í hvert skipti sem líkbörunum er rennt eftir gólfinu er eins og fjarlægar þrumur. Magnað. Tónlistarnotkun hófstillt og hugmyndarík, lýsing Páls Ragnarssonar áhrifamikil, bún- ingar Helgu I. Stefánsdóttur látlausir, stíl- hreinir og réttir. Það sem einkennir sýninguna alla er að hún nær að vera bæði alveg raunsæ en gefa um leið undir fótinn þeim táknrænu vísunum sem búa í verkinu. Það er ótrúlega sjaldgæft að sjá sýn- ingu á klassísku verki með heimspekilegu inni- haldi tekna þannig tökum. Enginn hátíðleiki, engin mötun á innihaldinu. Bara saga af fólki sem lendir í lífinu eins og það gerist verst. Ef hópurinn nálgast verkið með opin augu og finnur samhljóm milli þess og hugmynda sinna mun boðskapurinn sjá um sig sjálfur. Til viðbótar við skýra og sterka grunn- hugsun er sýningin síðan algerlega morandi af einstökum snjöllum hugmyndum og lausnum sem freistandi er að telja upp og lýsa til að færa rök fyrir máli sínu. Það ætla ég samt ekki að gera og spilla fyrir upplifun leikhúsgesta. Verð þó að segja að nuddolían í vopnasölu- atriðinu kom út á mér gæsahúð, innkoma Sól- veigar eftir dofraævintýri Péturs er einhver fallegasta skyndimynd sem ég hef séð í leik- húsi og mikið var gaman að sjá fisk á íslensku leiksviði, þótt það hefði verið ómaksins vert að kenna sumum leikurunum handtökin við flök- un. Og víkur þá sögunni að leikurunum. Sá óhá- tíðlegi blær sem einkennir sýninguna gefur þeim færi á fínlegri og blæbrigðaríkri nálgun sem þau nýta sér af stakri snilld. Allir blómstra. Engum skilar þessi afslöppun betri forgjöf en Birni Hlyni, sem verður ákaflega trúverðugur ráðvilltur strákur með of liðugan talanda og óþarflega þróaða hæfileika til að stytta sér leið í lífinu. Ég er ekki viss um að Björn hefði notið sín í hástemmdari sýningu, og sennilega á hann eftir að ná betri tökum á ljóðmálinu sem stundum tók af honum völdin eins og illa tamið hreindýr. En í samhengi sýn- ingarinnar skilar túlkun Björns sannfærandi Pétri sem stendur okkur nærri. Ingvar E. Sigurðsson er magnaður í sínum tveimur hlutverkum, hnappasteyparinn kaldur og fagmannlegur, afkvæmi Gauts og dofra- dóttur enn eitt dæmi um magnaða líkamstján- ingu Ingvars. Dofradóttirin afar eðlileg hjá Guðrúnu S. Gísladóttur og faðir hennar mergj- aður eins og við mátti búast af Ólafi Darra. Þrumuraust hans ekki verið nýtt á jafn áhrifa- ríkan hátt síðan í Rómeó og Júlíu. Ólafur Egill Egilsson brillerar sem sá magri og enginn stendur honum á sporði í meðferð bundins máls. Edda Arnljótsdóttir skilar sínum litlu pörtum óaðfinnanlega. Brynhildur Guðjónsdóttir er auðvitað ynd- isleg Sólveig, fínleg og draumkennd en líka raunveruleg. Senan þeirra Björns þegar þau hafa ruglað reytum er ákaflega falleg, en líka algerlega raunsæ. IKEA-draumur. Ólafía Hrönn Jónsdóttir hefur ekki hreyft jafn rækilega við mér síðan í Ljósi heimsins. Hin meðvirka móðir Péturs verður algerlega heilsteypt persóna í þessum þremur senum sem hún sést í og lokasenan hennar er svo fal- leg, skopleg og sönn að kökkur myndast í hörðustu karlmannshálsum. En að öllum einstaklingsafrekum slepptum er samvinna leikhópsins mikilvægasta einingin í því að gera sýninguna svona áhrifaríka. Um leið og einhver sleppir keflinu er sá næsti bú- inn að grípa það. Hærra, hraðar, alla leið í mark. Pétur Gautur Baltasars og Þjóðleikhússins er besta sýning á klassísku verki sem ég hef séð. Aaahhh … „Pétur Gautur Baltasars og Þjóðleikhússins er besta sýning á klassísku verki sem ég hef séð,“ segir Þorgeir Tryggvason um Pétur Gaut í Kassanum, nýju sviði Þjóðleikhússins. LEIKLIST Þjóðleikhúsið Höfundur: Henrik Ibsen. Þýðandi: Karl Ágúst Úlfs- son. Leikmynd: Gretar Reynisson. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Páll Ragnarsson. Hljóðmynd: Sigurður Bjóla og Ester Ásgeirsdóttir. Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Baltasar Kormákur. Leikendur: Björn Hlynur Haraldsson, Brynhildur Guð- jónsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur Egill Egilsson og Ólafur Darri Ólafsson. Frumsýnt í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins, 4. mars. Pétur Gautur Þorgeir Tryggvason HIÐ nýja svið Þjóðleikhússins, Kassinn, var tek- ið formlega í notkun á laugardagskvöldið. Kom það í hlut Guðrúnar Árnadóttur, sem sótt hefur hverja einustu frumsýningu á stóra sviði Þjóð- leikhússins frá því að það var vígt árið 1950, að klippa á borðann og vígja þar með húsið. Kassinn er svokallað „black box-theater“ eins og það er kallað á fagmáli, þar sem hægt er að raða upp sviði og áhorfendum að vild hverju sinni. Vígslusýning Kassans var Pétur Gautur Hen- riks Ibsens í uppfærslu Baltasars Kormáks. Morgunblaðið/Sverrir Guðrún Árnadóttir klippir á borðann í Kassan- um, með aðstoð Björgólfs Guðmundssonar. Morgunblaðið/Sverrir Hægt er að raða áhorfendum upp á ýmsa vegu í Kassanum, en uppröðunin á vígslusýningunni er nokkuð hefðbundin. Kassinn tekinn í notkun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.