Morgunblaðið - 06.03.2006, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
EcoGreen Multi
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Vítamín, steinefni
og jurtir
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Orkubomba og hreinsun
TIL skýringar skal þess getið að „aaaahhh“ …
er alþjóðlegt fræðihugtak og notað um tilfinn-
inguna sem fer um áhorfendur, sérstaklega
gagnrýnendur, þegar þeim er komið ánægju-
lega á óvart.
Síðustu afrek Baltasars í túlkun klassískra
verka í Þjóðleikhúsinu gáfu mér satt að segja
ekki tilefni til bjartsýni varðandi uppfærslu
hans á Pétri Gaut. Það sama má segja um þá
sérkennilegu fullyrðingu hans í viðtali í tíma-
riti Þjóðleikhússins, Fjórða veggnum, að sýn-
ingin væri „spuni út frá verki Ibsens“. Eins
hringdu aðrar yfirlýsingar hans í viðtalinu að-
vörunarbjöllum, þar sem hann reynir í löngu
máli að fría sig allri gagnrýni sem lýtur að því
að sýningin taki ekki nægilegt mið af verki
höfundarins.
Það var því áhyggjufullur aðdáandi verksins
sem settist niður í nýja kassanum Þjóðleik-
hússins á laugardagskvöldið og beið óþreyju-
fullur meðan mannvirkið var vígt. Yrði þetta
enn ein sýningin þar sem leikstjóri og verk
fara á mis? Þar sem leikstjórinn hefur enga
trú á efnivið sínum, en langar að segja eitthvað
sem ekki er að finna í verkinu og útkoman er
flatneskja þar sem hvorki höfundur né leik-
stjóri nær nokkru sambandi við áhorfendur?
Ónei. Hér gengur allt upp.
Leikritið er eitthvert það magnaðasta sem
skrifað hefur verið, alveg áreiðanlega meist-
araverk Ibsens. Hef aldrei skilið hvernig hann
nennti að skrifa stofudrömun sín eftir þetta
margslungna og risavaxna leikljóð um flóttann
frá og leitina að sjálfum sér.
Þýðing Karls Ágústs er frábær. Lipurlega
kveðin, snjöll og hnyttin og – frumskilyrði ljóð-
leikjaþýðinga – nægilega auðskilin til að hugs-
unina í henni megi grípa í fyrstu atrennu. Það
hjálpar að hugsunin í verkinu er ekki snúin,
bara djúp.
Grunnhugsun og handritsvinna leikstjórans
og samstarfsfólks hans er glæsilegt verk.
Leikrit eins og Pétur Gautur kallar á styttingu
og umstöflun og þolir hana vel. Útkoman hér
er afskaplega skýrt ferðalag í gegnum ævi
lygalaupsins og smámennisins, sem hefst á
dauðastund hans og sýnir í vel völdum svip-
myndum hvers vegna örlög hans eru að „leys-
ast upp í læðing í deiglu hnappasteyparans“.
Eilíft líf er ekki til, því miður, og verkefnið er
að sætta sig við deigluna. Að verða sjálfum sér
líkur er að deyða sjálfan sig. Pétur Gautur er
fyrsta búddíska leikritið á Vesturlöndum.
Innblásin samþjöppunarhugmynd hjá Balt-
asar að slá saman brúðinni á Heggstað og Sól-
veigu, og síðar Afstyrminu og Beygnum. Gerir
ekkert nema styrkja sýninguna.
Leikmynd Gretars Reynissonar er eitur-
snjöll og styður fullkomlega við grunnhugsun
leikstjórans. Hvíta flísaumhverfið með plast-
tjöldunum sem opna og loka rýmum til hliðar
og aftan til tekur áreynslulaust á sig mynd lík-
húss, fiskvinnslu, elliheimilis, gufubaðs og geð-
sjúkrahúss. Og hljóðið sem heyrist í hvert
skipti sem líkbörunum er rennt eftir gólfinu er
eins og fjarlægar þrumur. Magnað.
Tónlistarnotkun hófstillt og hugmyndarík,
lýsing Páls Ragnarssonar áhrifamikil, bún-
ingar Helgu I. Stefánsdóttur látlausir, stíl-
hreinir og réttir.
Það sem einkennir sýninguna alla er að hún
nær að vera bæði alveg raunsæ en gefa um leið
undir fótinn þeim táknrænu vísunum sem búa í
verkinu. Það er ótrúlega sjaldgæft að sjá sýn-
ingu á klassísku verki með heimspekilegu inni-
haldi tekna þannig tökum. Enginn hátíðleiki,
engin mötun á innihaldinu. Bara saga af fólki
sem lendir í lífinu eins og það gerist verst. Ef
hópurinn nálgast verkið með opin augu og
finnur samhljóm milli þess og hugmynda sinna
mun boðskapurinn sjá um sig sjálfur.
Til viðbótar við skýra og sterka grunn-
hugsun er sýningin síðan algerlega morandi af
einstökum snjöllum hugmyndum og lausnum
sem freistandi er að telja upp og lýsa til að
færa rök fyrir máli sínu. Það ætla ég samt ekki
að gera og spilla fyrir upplifun leikhúsgesta.
Verð þó að segja að nuddolían í vopnasölu-
atriðinu kom út á mér gæsahúð, innkoma Sól-
veigar eftir dofraævintýri Péturs er einhver
fallegasta skyndimynd sem ég hef séð í leik-
húsi og mikið var gaman að sjá fisk á íslensku
leiksviði, þótt það hefði verið ómaksins vert að
kenna sumum leikurunum handtökin við flök-
un.
Og víkur þá sögunni að leikurunum. Sá óhá-
tíðlegi blær sem einkennir sýninguna gefur
þeim færi á fínlegri og blæbrigðaríkri nálgun
sem þau nýta sér af stakri snilld. Allir
blómstra. Engum skilar þessi afslöppun betri
forgjöf en Birni Hlyni, sem verður ákaflega
trúverðugur ráðvilltur strákur með of liðugan
talanda og óþarflega þróaða hæfileika til að
stytta sér leið í lífinu. Ég er ekki viss um að
Björn hefði notið sín í hástemmdari sýningu,
og sennilega á hann eftir að ná betri tökum á
ljóðmálinu sem stundum tók af honum völdin
eins og illa tamið hreindýr. En í samhengi sýn-
ingarinnar skilar túlkun Björns sannfærandi
Pétri sem stendur okkur nærri.
Ingvar E. Sigurðsson er magnaður í sínum
tveimur hlutverkum, hnappasteyparinn kaldur
og fagmannlegur, afkvæmi Gauts og dofra-
dóttur enn eitt dæmi um magnaða líkamstján-
ingu Ingvars. Dofradóttirin afar eðlileg hjá
Guðrúnu S. Gísladóttur og faðir hennar mergj-
aður eins og við mátti búast af Ólafi Darra.
Þrumuraust hans ekki verið nýtt á jafn áhrifa-
ríkan hátt síðan í Rómeó og Júlíu. Ólafur Egill
Egilsson brillerar sem sá magri og enginn
stendur honum á sporði í meðferð bundins
máls. Edda Arnljótsdóttir skilar sínum litlu
pörtum óaðfinnanlega.
Brynhildur Guðjónsdóttir er auðvitað ynd-
isleg Sólveig, fínleg og draumkennd en líka
raunveruleg. Senan þeirra Björns þegar þau
hafa ruglað reytum er ákaflega falleg, en líka
algerlega raunsæ. IKEA-draumur.
Ólafía Hrönn Jónsdóttir hefur ekki hreyft
jafn rækilega við mér síðan í Ljósi heimsins.
Hin meðvirka móðir Péturs verður algerlega
heilsteypt persóna í þessum þremur senum
sem hún sést í og lokasenan hennar er svo fal-
leg, skopleg og sönn að kökkur myndast í
hörðustu karlmannshálsum.
En að öllum einstaklingsafrekum slepptum
er samvinna leikhópsins mikilvægasta einingin
í því að gera sýninguna svona áhrifaríka. Um
leið og einhver sleppir keflinu er sá næsti bú-
inn að grípa það. Hærra, hraðar, alla leið í
mark.
Pétur Gautur Baltasars og Þjóðleikhússins
er besta sýning á klassísku verki sem ég hef
séð.
Aaahhh …
„Pétur Gautur Baltasars og Þjóðleikhússins er besta sýning á klassísku verki sem ég hef séð,“
segir Þorgeir Tryggvason um Pétur Gaut í Kassanum, nýju sviði Þjóðleikhússins.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Henrik Ibsen. Þýðandi: Karl Ágúst Úlfs-
son. Leikmynd: Gretar Reynisson. Búningar: Helga I.
Stefánsdóttir. Lýsing: Páll Ragnarsson. Hljóðmynd:
Sigurður Bjóla og Ester Ásgeirsdóttir. Leikstjóri og
höfundur leikgerðar: Baltasar Kormákur.
Leikendur: Björn Hlynur Haraldsson, Brynhildur Guð-
jónsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir,
Ingvar E. Sigurðsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólafur
Egill Egilsson og Ólafur Darri Ólafsson.
Frumsýnt í Kassanum, litla sviði Þjóðleikhússins,
4. mars.
Pétur Gautur
Þorgeir Tryggvason
HIÐ nýja svið Þjóðleikhússins, Kassinn, var tek-
ið formlega í notkun á laugardagskvöldið. Kom
það í hlut Guðrúnar Árnadóttur, sem sótt hefur
hverja einustu frumsýningu á stóra sviði Þjóð-
leikhússins frá því að það var vígt árið 1950, að
klippa á borðann og vígja þar með húsið.
Kassinn er svokallað „black box-theater“ eins
og það er kallað á fagmáli, þar sem hægt er að
raða upp sviði og áhorfendum að vild hverju
sinni.
Vígslusýning Kassans var Pétur Gautur Hen-
riks Ibsens í uppfærslu Baltasars Kormáks.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðrún Árnadóttir klippir á borðann í Kassan-
um, með aðstoð Björgólfs Guðmundssonar.
Morgunblaðið/Sverrir
Hægt er að raða áhorfendum upp á ýmsa vegu í Kassanum, en uppröðunin á vígslusýningunni er
nokkuð hefðbundin.
Kassinn tekinn í notkun