Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 19

Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 19 UMRÆÐAN Yamaha píanó. Yamaha píanó og flyglar með og án SILENT búnaðar. Veldu gæði – veldu Yamaha! Samick píanó. Mest seldu píanó á Íslandi! Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 357.000 kr. Goodway píanó. Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 238.000 kr. 15 mán. Vaxtalausar greiðslur. Estonia flyglar. Handsmíðuð gæðahljóðfæri. Steinway & Sons Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Til sýnis í verslun okkar. H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350 SAMBAND sveitarfélaga á Austur- landi hefur fengið Rannsóknastofu Háskólans á Akureyri til að kanna beztu leiðir um veggöng milli fjarða. Þetta er lofsvert framtak, löngu tíma- bært og hefði þurft að ná til landsins alls. Leitað er beztu og ódýrustu kosta fyrir hver og ein göng, og líka reynt að meta verðmæti þeirra fyrir samfélagið og hvernig það breytist við til- komu annarra ganga. Lagt mat á hver göng um sig og fleiri saman, bæði með tilliti til arð- semi og annarra þátta, og leitað vísbendinga um það, í hvaða röð verði hagkvæmast eða af öðrum ástæðum heppilegast að vinna þau göng, sem koma til álita. Þetta er nýlunda, en mjög þarflegt, þótt flókið sé og hvergi nærri einhlítt til að ráða fram- kvæmdum. Enda reynist svo hér, að sumar niðurstöður tek ég blátt áfram ekki alvarlega. Hef ég rætt þær nokk- uð við höfunda og vil hér með þakka fyrir þær ágætu viðræður og vona að þar megi verða framhald á, helzt aug- liti til auglitis fremur en um síma, eins og nú varð fyrst að vera. En annarra ráða verður að leita til að koma því sem fyrst á framfæri sem mér þykir mestu varða eftir lestur þessarar skýrslu, og kemur þá Mbl. eitt til greina, enda góður kostur. Hlaðinn bjartsýni og tilhlökkun hóf ég lestur skýrslunnar. Bjóst við heillandi eldmóði ungra manna í um- fjöllun um þvílíkt efni á morgni hinna stóru tækifæra nýríkrar þjóðar sem getur allt. Vænti þess að sjá eins og í skuggsjá landið rísa í fegurð sinni og tign, og fólkið flykkjast þangað til að eiga þar heima, fjölga í öllum bæjum Mið-Austurlands um samtals 1000 á ári næstu 20 árin, og sjá jafnframt höf- uðborg alls landsins losna samstundis við öll sín vandamál fyrir skort á vegum, bílastæð- um og lóðum handa þessu fólki út um sund og upp um fjöll og firnindi með tilheyrandi eyðileggingu á allri náttúru. En ég fann ekki þennan eldmóð í skýrslunni, trú á framtíð Austurlands. Þvert á móti var sem ég skynjaði einhvern tóm- leika, áhugaleysi, og allar tölur um íbúafjölda og spár um fjölgun þóttu mér votta undarlega deyfð í þessari umfjöllun um tækifæri og takmarka- lausa möguleika bjart- sýnnar kynslóðar. Í raun- inni var ég ekki farinn að skoða þessar tölur, það var bara óljós tilfinning fremur en samanburður að allar spár um fjölgun væru undarlega varfærnar og svart- sýnar. Og loksins jafnframt nánari at- hugun varð mér ljóst, að einmitt hér var hundurinn grafinn. Þessi svartsýni setti mark sitt á alla skýrsluna, ásamt einkunnagjöfinni fyrir tengingu at- vinnu- og búsvæða og byggðaþróun sem stundum var gefin fyrir einstök göng, þveröfugt við það sem mér þótti rétt og svo augljóst að óþarft væri að reikna vísindalega! Þetta var óvæntara en ella fyrir það, að allar fregnir af framgangi og fram- kvæmdum heimamanna hafa birt manni áhuga og eldmóð, trú á framtíð- ina og eflingu byggðar. Skyndilega kom mér nýtt í hug: Höfundar skýrsl- unnar eru frá Akureyri. Gæti verið að þeim – og Akureyringum yfirleitt - stæði ógn af þeirri hugmynd, að „hinn stóri staður“ á Austfjörðum kynni að vaxa Akureyri yfir höfuð í framhaldi af þeim framkvæmdum sem nú eiga sér stað? Þessu líkt virðist standa furðulega nærri mörgum þeirra, sem berjast um yfirráð í höfuðborginni! Og hversu ríkt er ekki þetta í ruglu- kollum þeim mörgum sem hamast jafnvel með skemmdarverkum gegn virkjun við Kárahnjúka og reyna að sækja sér til þess styrk út um allan heim? Finnst íbúum í vestri vissara að draga burst úr nefi þeim sem byggja Austurland? Viðmælandi minn vill verja sig: „Ég er nú ekki einu sinni Akureyr- ingur! Hef aðeins átt hér heima í tvö ár,“ segir hann góðlátlega. En hann skilur mig, og þegar þar er komið ræðu minni, sem áður segir, að við gætum átt ríkan þátt í að bjarga höf- uðborginni frá offjölgunarvanda hennar og lóðaskorti, þá er hann mér hjartanlega sammála! Við erum líka sammála um það, að verkefni nr. 13 í skýrslunni, bls. 101, sé bezta dæmi hennar, göng frá Eski- firði um Fannardal í Norðfirði, Mjóa- fjörð og til Seyðisfjarðar. Þessi hug- mynd birtist fyrst opinberlega í grein minni í Mbl. 28. apríl 2000, fylgt eftir með greinum, 10. maí og 22. nóv. (mynd 9. des., göng líka frá Seyðisf. til Egilsstaða). En ekki erum við sam- mála um einkunnir fyrir þessi göng, og ég hafna því, að göng milli Norð- fjarðar og Seyðisfjarðar fái staðizt ein og sér. En það gera göng milli Norð- fjarðar og Eskifjarðar, sjálf að- algöngin milli fjarða, og tengja að fullu alla bæina nema Seyðisfjörð. Það þarf að verða án tafar. Á þessu ári. En hér verður að byrja á nýrri grein! Skýrsla um veggöng á Austurlandi Guðjón Jónsson skrifar um jarðgöng á Austfjörðum ’Þessi svart-sýni setti mark sitt á alla skýrsl- una …‘ Guðjón Jónsson Höfundur var kennari. Þetta er gamla tillagan mín (sjá Mbl. 9. des. 2000) og ber saman við nr. 13 í skýrslu RHA, að Fjarðarheiði slepptri. Raunhæfara sýnist mér nú að byrja á göngum aðeins milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og tengja síðan milli fjarða og Héraðs með göngum sem lítt eru skoðuð enn. SÍÐASTLIÐIÐ haust varð sú nýj- ung í borgarmálastarfi vinstri- grænna í Reykjavík að haldið var forval til að velja fólk í efstu sæti framboðslistans í höfuðborginni. Úr- slit forvalsins urðu þau að Svandís Svavarsdóttir var valin til að leiða listann og hlaut afgerandi kosningu, rúm 70% atkvæða í efsta sætið. Þetta er athyglisverð niðurstaða, ekki síst í ljósi þess að Svandís hefur ekki áður setið í borgarstjórn. Nú eru prófkjör að mörgu leyti íhaldssöm leið til þess að velja fólk til forystu og yfirleitt þeim í hag sem sitja í stólunum fyrir. Hvers vegna kusu þá vinstrigræn að hleypa fersk- um vindum inn í borgarmálin? Í mín- um huga er enginn vafi á því að þar skipti reynsla fólks af verkum Svan- dísar Svavarsdóttur máli, bæði innan flokks og utan. Þar má nefna störf hennar í þágu heyrnarlausra og frumkvæði að því að veita táknmáli viðurkenningu sem tungumál heyrn- arlausra. Ekki skiptir minna máli hvílíkum stakkaskiptum starf vinstrigrænna í borginni hefur tekið undanfarin ár. Vinstrigræn í Reykjavík hafa veitt borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans öfl- ugt aðhald á und- anförnu kjörtímabili og ekki leyft þeim að einangrast í fílabeins- turni. Meginástæða þess er líklega sú að við lítum á borgina sem samfélag en ekki þjónustufyrirtæki sem eigi að reka af sér- fræðingum. Það hefur vissulega kostað umtalsverð átök og tregðulögmálið verið sterkt því að margir borg- arfulltrúar hafa tilhneigingu til að líta á sig sem embættismenn, full- trúa kerfisins en ekki fólksins. Ekki er þó hægt að neita því að það starf hefur borið árangur. Það má sjá í ánægjulegri kúvendingu borg- arstjórnarmeirihlutans í ýmsum málum undanfarna mánuði. Reykjavíkurborg stefnir nú að gjald- frjálsum leikskóla, hef- ur mótað nýja stefnu í virkjana- og orku- málum og sjá má vísi að endurskoðun á launa- stefnu borgarinnar. Í þessum málum kristall- ast mikilvægi vinstri- grænna í stefnumótun borgarinnar og mik- ilvægi þess að staða flokksins í borginni efl- ist við næstu kosningar. Kraftur og stefnufesta Ég treysti engum betur til að koma málefnum vinstrimanna í höfn í borginni en Svandísi Svav- arsdóttur. Störf hennar hafa ein- kennst af hógværð og stefnufestu, hún fer fram með ákveðni en ekki látum. Það er mikilvægt að til for- ystu í borginni veljist stjórn- málamenn sem tala skýrt, en ekki í innihaldslitlum frösum. Kjósendur ættu að hafa þessa eiginleika Svan- dísar í huga og bera saman við loð- mæli ýmissa þeirra sem halda sér fram sem leiðtogaefnum þessa dag- ana. Hvers konar borg viljum við sjá og hvaða stjórnmálamenn eru líkleg- astir til að gera þá framtíðarsýn að veruleika? Eru það þeir sem hafa komið hlut- um í verk með stefnufestu eða hinir sem þegar eru orðnir samdauna kerfinu, þrátt fyrir ungan aldur í sumum tilvikum? Fyrir mitt leyti held ég að listi vinstrigrænna með Svandísi Svavarsdóttur sem oddvita muni alltaf verða besti kosturinn fyr- ir þá borgarbúa sem vilja halda áfram góðu starfi Reykjavíkurlist- ans, en eru orðnir þreyttir á því emb- ættismannaviðhorfi sem stundum virðist þjaka suma borgarfulltrúa. Svandísi til forystu Stefán Pálsson vill Svandísi Svavarsdóttur til forystu Stefán Pálsson ’Ég treysti engum beturtil að koma málefnum vinstrimanna í höfn í borginni en Svandísi Svavarsdóttur.‘ Höfundur er sagnfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.