Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 20

Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 20
PAPPÍRSUMBÚÐIR falla til í miklu magni á heimilum flestra. Þetta eru umbúðir utan af morgun- korni, ýmsum skyndiréttum, kexi, þvottaefni og óteljandi öðrum vörum. Slíkar umbúðir eru fljótar að fylla hjá okk- ur ruslaföturnar enda oft plássfrekar. Hingað til hefur ekki borgað sig fyrir Sorpu að safna slíkum umbúðum til endurvinnslu en með tilkomu úrvinnslu- gjalds sem lagt var á þessar umbúðir um síð- ustu áramót opnast ný- ir möguleikar. Í rusla- tunnum íbúa höfuð- borgarsvæðisins leynast yfir 3.000 tonn af pappírsumbúðum á ári hverju, sem nú er loksins hægt að end- urvinna. Það má draga töluvert úr því magni úrgangs sem endar á urðunarstaðnum í Álfs- nesi með því að flokka þessar umbúðir og skila til endurvinnslu. Hvernig á að flokka? Það má flokka allar pappírs- umbúðir í einn flokk og skila t.d. fern- um, morgunkornspökkum og öðrum slíkum umbúðum úr pappír eða kart- oni í einn og sama gáminn. Hráefnið þarf hins vegar að vera ómengað af öðrum efnum til þess að hægt sé að endurvinna það og þess vegna er mikilvægt að fjarlægja allar mat- arleifar og plastumbúðir sem kunna að vera inni í pappírsumbúðum. Fernur er æskilegt að skola til að forðast lyktarmengun og brjóta svo allar umbúðir saman svo þær taki minna pláss. Þeim er svo skilað í grenndargáma á höfuðborgarsvæð- inu sem eru merktir pappírsumbúðir. Umbúðunum er einnig hægt að skila á allar endurvinnslustöðvar Sorpu. Upplýsingar um staðsetningu grenndargáma og endurvinnslu- stöðva eru á heimasíðu Sorpu, www.sorpa.is. Hvernig er efnið endurunnið? Pappírsumbúðir eru baggaðar í móttökustöð Sorpu í Gufunesi og fluttar til Svíþjóðar til endurvinnslu. Fyrirtækið Fiskeby sérhæfir sig í framleiðslu kartons og nýtir til þess pappírsumbúðir og fernur. Á und- anförnum árum hefur fyrirtækið end- urunnið fernur frá Sorpu en nú bæt- ast aðrar pappírsumbúðir í hópinn. Fiskeby sendir kartonið til við- skiptavina víðsvegar um heiminn, þar á meðal á Íslandi, og eru t.d. búnar til nýjar pappírsumbúðir úr því. Hver hefur umsjón með grenndargámum á höfuðborgarsvæðinu? Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu ákvarða hvert fyrir sig, fjölda gáma og staðsetningu þeirra. Grenndargámar eru staðsettir á þeim svæðum þar sem reynslan hefur sýnt að þeir nýtast best en gámar hafa verið fjarlægðir af þeim stöðum þar sem nýting var léleg. Þannig eru hag- kvæmni og árangur látin haldast í hendur. Sorpa tók við umsjón með grennd- argámum á öllu höfuðborgasvæðinu 1. mars 2006 og tekur við því efni sem í þá safnast til endurvinnslu. Um losun og flutning efnisins í móttökustöð Sorpu sér Íslenska gámafélagið ehf. en fyr- irtækið bauð lægsta verðið í verkið í útboði á síðasta ári. Eru lúgurnar of litlar? Sumir hafa kvartað yfir því að lúgur á gám- um séu of litlar og betra væri að koma meiru í einu í gámana. Lúg- urnar eru hinsvegar af staðlaðri stærð og mega ekki vera stærri sökum slysahættu. Í ein- hverjum tilfellum hafa börn troðið sér inn í gáma sem voru með stærri lúgur og erlendis hafa hlotist af því alvar- leg slys. Með öryggi barnanna í huga ættu allir að geta sætt sig við stærðina á lúgum gám- anna. Þeir sem eru með meira magn geta þó ávallt nýtt sér endur- vinnslustöðvarnar en þar eru í flest- um tilfellum stærri lúgur á gámum fyrir dagblöð, tímarit og pappírs- umbúðir. Margt smátt gerir eitt stórt! Ef þú flokkar endurvinnanlegan úrgang, leggur þú þitt af mörkum til þess að draga úr áhrifum neyslu- samfélagsins á umhverfið. Þitt fram- lag skiptir máli. Gyða S. Björnsdóttir fjallar um nýjungar hjá Sorpu Gyða S. Björnsdóttir ’Nú má skilapappírsumbúð- um ásamt fern- um í grennd- argáma á höfuðborgar- svæðinu.‘ Höfundur er kynningar- og fræðslufulltrúi Sorpu. TENGLAR .............................................. www.sorpa.is. Nýjung á sviði endurvinnslu 20 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ENDURGREIÐSLUKERFI Tryggingastofnunar staðnað og ranglátt. Staðfest er að lyfjaverð á Íslandi hefur lækkað verulega að und- anförnu. Afleiðingin er sú að lyfja- reikningur landsmanna hefur þeg- ar lækkað um milljarða króna. Ástæðan er sú að innflytjendur lyfja og yfirvöld gerðu með sér samkomulag. Á undanförnum árum hefur lyfjaverð á Íslandi verið hærra en meðalverð í viðmið- unarlöndum á Norðurlöndum. Samkomulagið fól í sér að lækka lyfjaverð á Íslandi svo að það næði þessu meðalverði í viðmiðunarlönd- unum. Það er nú komið langleiðina með að takast. Komið hefur fram í fjölmiðlum að engu að síður hafa sjúklingar ekki fundið fyrir þessari verðlækk- un. Hvernig má það vera? Ástæðan er einföld: Endur- greiðslukerfi Tryggingastofnunar ríkisins er staðnað og ranglátt í þeirri mynd sem það er nú. Vel má vera að eitthvert réttlæti hafi verið byggt inn í kerfið þegar því var komið á, en með þeim tíðu og íþyngjandi breytingum sem gerðar hafa verið á því árum saman líkist kerfið helst stagbættri dulu og hef- ur orðið sjúklingum sífellt óhag- stæðara. Sjúklingar greiða ákveðið há- mark af tilteknu lyfi sem ræðst af aldri þeirra og hvort um öryrkja sé að ræða. Hámarkið tekur einnig nokkurt mið af eðli sjúkdómsins. Algengustu lyfin hafa lækkað mest en það eru í flestum tilvikum þau lyf sem taka til sín drýgstan skerf af lyfjakostnaði ríkisins. Engu að síður er það borin von með núver- andi endurgreiðslufyrirkomulagi að sjúklingar fái að njóta lækkaðs lyfjaverðs svo að nokkru nemi. Sláandi dæmi Hlutdeild ríkisins í greiðslu hef- ur markvisst og stöðugt verið flutt í vaxandi mæli yfir á sjúklinginn og þar hefur ekkert breyst með til- komu fyrrgreinds samnings Þegar sjúklingur fer inn í lyfjaverslun til að sækja lyfin sín, greiðir hann ákveðna hámarksupphæð sjálfur og það er föst krónutala. Algengast er að lyfjum, sem Tryggingastofnun tekur þátt í að greiða, sé skipt í tvo flokka: E-merkt lyf, sem alla jafna er ávísað við tilfallandi sjúkdómum, og B-merkt lyf við krónískum sjúkdóm- um. Ef við gefum okk- ur að eitthvert tiltekið lyf hafi fyrir lækkun kostað 10.000 krónur og að það hafi lækkað um meðaltal þeirrar lækkunar sem orðið hefur undanfarin 2 ár, eða um 18,3%, myndi það kosta 8.170 krón- ur eftir lækkunina. Ávinningur lækkunar- innar lendir allur hjá Tryggingastofnun ríkisins. Eins og endurgreiðslukerfið er uppbyggt, munu sjúklingar einskis njóta af lækkunum fyrr en verðið er komið í um 5.700 krónur fyrir E-merkt lyf og í um 4.300 krónur fyrir B-merkt lyf. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar þurfa að bíða enn lengur, því þeir fá einskis að njóta fyrr en E-merkta lyfið er komið niður í um 2.100 krónur og B-merkta lyfið í um 1.500 krónur. Fram að því lendir allur ábati lækkunarinnar hjá Tryggingastofnun og engin rök hníga að því að algert verðhrun á lyfjum sé á næsta leiti. Þó að þessi dæmi séu einfölduð, sýna þau vandann í hnotskurn. Brýnt að breyta! Þegnar landsins greiða ríkinu skatta. Yfirvöld verða að standa vörð um beina hagsmuni þegna sinna en ekki einungis um þá fjár- muni sem þessir sömu þegnar hafa greitt í sameiginlegan sjóð og yf- irvöld ráðstafa síðan til misjafnlega mikilvægra verkefna. Lengi hefur verið talað um að breyta tilhögun á endurgreiðslu lyfjakostnaðar. Verðlækkanir lyfja að undanförnu draga fram í dagsljósið hve fráleitt núverandi kerfi er. Lagfærum þetta ranglæti! Ólafur Ólafsson og Þórbergur Egilsson fjalla um lyfjaverð og endurgreiðslukerfi Trygg- ingastofnunar ’Yfirvöld verða aðstanda vörð um beina hagsmuni þegna sinna en ekki einungis um þá fjármuni sem þessir sömu þegnar hafa greitt í sameiginlegan sjóð og yfirvöld ráðstafa síðan til misjafnlega mikil- vægra verkefna.‘ Ólafur Ólafsson Höfundar eru lyfjafræðingar, starfandi í heildsölu og smásölu. Þórbergur Egilsson Óþolandi að notendur fái ekki að njóta lækkunar lyfjaverðs Marteinn Karlsson: „Vegna óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar- stjórnar Snæfellsbæjar af okk- ur smábátaeigendum, þar sem ekkert tillit er tekið til þess hvort við megum veiða 10 eða 500 tonn, ákvað ég að selja bát- inn og flytja í burtu.“ Sigríður Halldórsdóttir skrif- ar um bækur Lizu Marklund sem lýsa heimilisofbeldi. Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel að það liggi ekki nægilega ljóst fyrir hvernig eða hvort hinn evangelísk-lútherski vígsluskilningur fari í bága við það að gefa saman fólk af sama kyni …“ Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar HÉR ÁÐUR fyrr var litið til þess hversu vel var búið að fjölskyldufólki í Kópavogi. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hefur nú hald- ið um stjórnartaumana í bráðum 16 ár og tek- ist á þeim tíma að auka álögur á fjölskyldur í Kópavogi umfram flest sveitarfélögin í kring um okkur. Niðurstaða nýlegrar könnunar ASÍ afhjúpar það rækilega. Hvað varðar kostnað við leik- og grunnskóla er Kópavogur næstdýr- astur fyrir barnafólk að búa í og fylgir þar fast á eftir Garðabæ en hafa ber í huga að útsvarið í Garðabæ er lægra (12,46% á móti 13,03% í Kópa- vogi). Gott og vel, en skoðum raun- hæft dæmi, sjálfa mig með tvö börn, annað á leikskóla fætt árið 2000 og hitt í grunnskóla fætt árið 1996. Kópa- vogur Reykja- vík Dægradvöl/frístundaheimili 13.679 9.600 8 tíma leikskólavistun 29.188 23.130 8 tíma leikskóli f. 5 ára barn 29.188 16.650 Munur á mánuði m.v. barn fætt 2000 og dægradvöl meira en 3 klst á dag 16.617 kr. Kópavogur Kostnaður við 8 tíma vistun á leik- skóla er 29.188 kr. m.v. gjaldskrá Kópavogs 1. mars 2006. Fyrir dægradvöl 13.679 kr m/hressingu m.v. gjaldskrá sem hækkaði 1. jan- úar 2006 og miðast við meira en 3 tíma á dag. Samtals er þetta kostnaður upp á 42.867 kr á mánuði. Reykjavík Kostnaður við 8 tíma vistun á leik- skóla er 23.130 kr. Til viðbótar fengjum við gjaldfrjálsar 3 stundir á dag þar sem dóttir okkar er fædd árið 2000 svo við værum einungis að borga 16.650 kr fyrir mán- uðinn. Fyrir frístunda- heimili er kostnaður 9.600 kr m/hressingu en í Reykjavík er föst gjaldskrá óháð tíma- fjölda. Samtals er það kostnaður upp á 32.730 kr, en sé tekið tillit til þriggja gjald- frjálsra tíma sem við fengjum í Reykjavík væri þetta kostnaður upp á 26.250kr á mánuði. Þetta raunhæfa dæmi sýnir að það kostar fjölskylduna 16.617 kr. meira á mánuði að búa í Kópavogi sé miðað við höfuðborgina. Yfir árið er munurinn 176.669 sé miðað við 11 mánaða leikskóla og 9,5 mánaða dægradvöl. Fyrir láglaunafólk í Kópavogi eru þetta tvenn útborguð mánaðarlaun og sér hver maður að það felst lítill jöfnuður í þeirri gjald- töku. Núverandi meirhluti, sem gortar af sterkri fjárhagsstöðu bæj- arins, hefði fyrir löngu átt að sjá sóma sinn í að lækka álögur á fjöl- skyldufólk, því það virðist einmitt vera svigrúm til þess í Kópavogi. Í lífi flestra eru útgjöldin mest einmitt þegar börnin eru að vaxa úr grasi. Þá skiptir stuðningur ríkis og sveit- arfélaga mestu máli, til að jafna kjör almennings. Í málefnaskrá Sjálfstæðisflokks- ins fyrir síðustu kosningar mátti finna eftirfarandi yfirlýsingu: „Við setjum fjölskyldufólk í önd- vegi og munum hvergi hvika frá því markmiði að Kópavogur verði hinn óskoraði „bær barnanna“ um langa framtíð“. Samfylkingin í Kópavogi hefur undanfarin ár ítrekað lagt til gjalda- lækkanir vegna leikskóla og dægra- dvalar og oftast talað fyrir daufum eyrum meirihlutans. Þegar bæj- arfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu til systkinaafslátt vegna dægradval- ar á bæjarstjórnarfundi 16. desem- ber 2005, var þeim tillögum hafnað með öllum greiddum atkvæðum meirihlutaflokkanna. Þrátt fyrir það hafði oddviti framsóknarmanna, mánuði áður, á stefnuskrá sinni í prófkjöri flokksins: „að taka upp systkinaafslátt fyrir foreldra sem eiga börn bæði í leikskóla og dægra- dvöl“. Er þessum meirihluta treystandi til góðra verka á komandi vori? Kópavogur: Fjöl- skyldufólk í öndvegi Guðríður Arnardóttir fjallar um kostnað foreldra í Kópavogi og nágrannabyggð ’Í lífi flestra eru út-gjöldin mest einmitt þeg- ar börnin eru að vaxa úr grasi. Þá skiptir stuðn- ingur ríkis og sveitarfé- laga mestu máli, til að jafna kjör almennings.‘ Guðríður Arnardóttir Höfundur er oddviti lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.