Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 21

Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 21 UMRÆÐAN Þinn eigin fyrirtækjafulltrúi Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið Frítt greiðslukort fyrsta árið Sérstakur sparnaðarreikningur, þrepaskiptur, óbundinn með hærri innlánsvöxtum SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu Afsláttur á lántökugjaldi Sérstök bílalán á betri kjörum Vildarþjónusta fyrirtækja Vildarþjónusta fyrirtækja Í meira en 100 ár höfum við aðstoðað fyrirtæki við fjármálin. Við leggjum áherslu á langtímasamband og sérhæfðar lausnir sem taka mið af sérstökum aðstæðum og starfsumhverfi viðskiptavina okkar. Leyfðu okkur að aðstoða þig og nýttu tímann í annað. SPH – fyrir þig og fyrirtækið! AR G U S 06 -0 05 2 Alltaf að vinna? Um tilgang sveitarfélaga Hvað er sveitarfélag annað en samtök fólks sem býr á afmörkuðu svæði? Ekkert. Íbúar viðkomandi sveitarfélags koma sér saman um hvernig þeir geti sameiginlega uppfyllt óskir sínar um sameig- inlegar þarfir þeirra. Til þess eru kjörnir fulltrúar á fjögurra ára fresti. Þeir ákveða hvort og hve- nær á að byggja skóla, leikskóla, heilsugæslu, götur, útbúa lóðir til að eðlileg fjölgun íbúanna geti komið yfir sig skjóli, hvernig skuli losna við sorp og svo framvegis. Fyrir allt sem þarf að gera sam- eiginlega fyrir íbúana er svo inn- heimt gjald af íbúum viðkomandi sveitarfélags til að standa undir kostnaði við það sem íbúarnir sjálfir hafa ákveðið að gera. En hvað gerist svo? Jú, kosnir fulltrúar virðast ekki skilja hlut- verk sín sem skyldi. Þeir útbúa nokkrar lóðir, sem þeir setja síðan á uppboð. Þar með eru þeir að etja saman íbúunum og láta þá yf- irbjóða hver annan. Lóðir eiga ekki að kosta krónu meira en það kostar sveitarfélagið að gera þær byggingarhæfar. Það þýðir líka að sveitarfélagið þarf að láta gera nógu margar lóðir til að eftirspurn og framboð sé í jafnvægi. Sala þeirra greiðir kostnaðinn við að gera þær. Sorpið Íbúar eru hvattir til að flokka heimilissorpið. Dagblöð sér, pappi sér, mjólkurfernur sér. Umbúðir utan af heimilistækjum sem oftar en ekki eru úr plasti. Hvað svo? Jú, síðan eiga íbúarnir að flytja þessa sorteringu á næstu gáma- stöð, eða leita uppi gáma þar sem á að vera hægt að losna við her- legheitin. Þá er bara málið að ein- ungis eru kassar til að skila dag- blöðum og fernum í, annars staðar en á gámastöðvum. Sem sagt íbú- unum er gert að aka í sínum einkabifreiðum í næstu sorpu. Nú spyr ég hvaða vit er í því að láta fólkið flytja þessa ákveðnu gerð af úrgangi í sínum einkabílum? Hvað kostar það í bensíni og vegasliti? Er hægt að fara í strætó með plastið utanaf sjónvarpinu eða ís- skápnum í sorpu? Á sama tíma rekur sveitarfélagið sérsmíðuð tæki sem safna heimilissorpi ösku- bílanna. Auðveldlega mætti leysa þessi mál á svipaðan hátt og er gert í Danmörku og Belgíu. Þar er allt sorp og annað sem tilfellur sótt til fólksins. Heimilissorp einu sinni í viku og annar úrgangur svo sem pappi, plast, tré, fernur, um- búðir og þess háttar einu sinni í mánuði. Þar er ekki verið að þvæla fólki á sorpustöðvar að óþörfu. Hitaveita Þegar hitaskeið olli minni notk- un á heitu vatni en hitaveitan hafði reiknað með, var gripið til þess ráðs að hækka lítrann af heitu vatni. Þegar kuldaskeið árið eftir kom, var ekki lítrinn lækkaður sem hefði verið eðlilegt. Heldur var farið í reikningsleik og gefin sú skýring að raunverulega hafi heita vatnið lækkað!! og því ekki ástæða til lækkunar vegna meiri notkunar. Ég þekki til fjarvarmaveitu í Danmörku. Sú veita átti eftir árið afgang uppá eina milljón danskra króna. Þá var búið að greiða allan kostnað, svo sem endurnýjun lagna, laun og skatta auk afskrifta og tilleggs í varasjóð það árið. Hvað gerði nú þessi hitaveita við milljónina? Jú hún endurgreiddi hana til notenda sinna, sem jafn- framt eru eigendur veitunnar. Sem sagt lögðu afganginn ekki í rækjueldi, eða annað óskylt þeim rekstri sem til var stofnað og myndaði tekjuafganginn. Það er ekki hlutverk hitaveitu sem á að sjá íbúum fyrir heitu vatni að vasast í öðrum rekstri. Ef samtök íbúanna, þ.e. sveitarfélag- ið, hefur áhuga á því, eiga þeir að segja svo og innheimta gjald af íbúunum til þess að standa í því, en ekki nota tekjur af lóða- braski, eða allt of háu verði á heitu vatni til þess. Of mörg sveitarfélög Hér á höfuðborg- arsvæðinu, Kjalarnes í norðri, Hafnarfjörður í suðri, eru hvorki meira né minna en sex sveitarfélög. Sveitarfélög eru trúlega leifar íhalds-framsóknarveldisins þegar ráðamönnum þótti mikilvægt að hafa sem flesta af stuðnings- mönnum sínum í stjórn, félaga og valdastofnana sam- félagsins. Nú und- anfarin ár hafa sveit- arfélög utan höfuðborgarsvæð- isins verið að sam- einast. Það er sam- eiginlegt með stjórn sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæð- inu, að hvert fyrir sig úthlutar lóðum hvert á sinn máta, með ýmsum hætti, uppboðum, klíku eft- ir geðþótta o.s. framvegis. Nær væri að sameina þessi sex sveitarfélög í eitt og út- búa nægilegt magn lóða sem yrðu seldar á kostnaðarverði til þeirra sem áhuga hefðu á að koma sér upp húsaskjóli. Hverjir eru á móti sameiningu? Jú, auðvitað þeir sem fara með stjórn þeirra. Fólkið sem að þeim stendur og sveitarfélögin eiga að þjóna, hefur verið heila- þvegið og talin trú um að svona verði þetta að vera, því enginn þeirra sem hafa bitlinga hjá sveit- arfélögunum vill missa þá og það vald sem þeim fylgir. Því skyldi þurfa sex rafveitur, sex vatns- veitur, sex hitaveitur, sex sorp- hirður, sex bæjarstjóra, sex skipu- lagsstjóra, sex allt mögulegt? Í stærri samfélögum dettur engum þessi vitleysa í hug. Svo vitnað sé einu sinni enn til Danmerkur, þá ákvað ríkisstjórnin þar að sameina sjö sveitarfélög á Als og Jótlandi í eitt. Stærst af þessum sjö sveit- arfélögum er Söndeborg á Als. Ragnar L. Benediktsson fjallar um sveitarfélagafjöld- ann á höfuðborgarsvæðinu ’Nær væri að sameinaþessi sex sveitarfélög í eitt og útbúa nægilegt magn lóða sem yrðu seldar á kostnaðarverði til þeirra sem áhuga hefðu á að koma sér upp húsaskjóli.‘ Ragnar L. Benediktsson Höfundur er eldri borgari. Sveitarfélagið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.