Morgunblaðið - 06.03.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 23
UMRÆÐAN
Reykjavík
Skattstofan í Reykjavík
Bensínstöðvar í Reykjavík
Vesturland
Skattstofan á Akranesi
Sýslumannsskrifstofur Búðardal,
Borgarnesi, Stykkishólmi og Ólafsvík
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Vestfirðir
Skattstofan á Ísafirði
Sýslumannsskrifstofur í Bolungarvík
og Hólmavík
Bæjar- og hreppsskrifstofur
Reykhólahrepps, Tálknafjarðarhrepps,
Vesturbyggðar, Súðavíkurhreppur og
Kaldrananeshrepps
Sparisjóður Vestfirðinga; á Bíldudal,
Flateyri og Þingeyri
Norðurland vestra
Skattstofan á Siglufirði
Umboðsmenn:
Sigurbjörn Bogason, Sauðárkróki
Stefán Hafsteinsson, Blönduósi
Páll Sigurðsson, Hvammstanga
Norðurland eystra
Skattstofan á Akureyri
Umboðsmenn, bæjar- og
hreppsskrifstofur
Austurland
Skattstofan á Egilsstöðum
Verslunin Kauptún á Bakkafirði og
Vopnafirði
Essoskálinn á Breiðdalsvík
Samkaup á Djúpavogi
Bókhald GG á Fáskrúðsfirði
Sýslumannsskristofur Seyðisfirði,
Eskifirði, Neskaupsstað og Hornafirði
Suðurland
Skattstofan á Hellu
Bæjar- og hreppsskrifstofur
Skaftárhrepps, Ásahrepps, Rangárþings
eystra, Gaulverjabæjarhrepps, Hraun-
gerðishrepps, Villingarholtshrepps,
Hrunamannahrepps, Grímsnes- og
Grafningshrepps, Ölfuss, Skeiða- og
Gnúpverjahrepps og Bláskógabyggðar
Skrifstofa VÍS, Hveragerði,
Skrifstofa VÍS, Árborg (Selfossi)
Vestmannaeyjar
Skattstofa og skrifstofa sýslumanns
Reykjanes
Skattstofan í Hafnarfirði
Bæjar- og hreppsskrifstofur
Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði,
Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ,
Grindavík, Garði, Vogum og
Álftanesi
Sýslumannsskrifstofur Hafnarfirði,
Kópavogi og Keflavík
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Bensínstöðvar í Hafnarfirði,
Garðabæ, Kópavogi og á
Seltjarnarnesi
Hægt er að nálgast leiðbeiningar á neðantöldum stöðum
Framtalsaðstoð
er veitt í síma 511-2250 milli kl. 9 og 16.
Frá 15.-31. mars verður sú þjónusta einnig
veitt utan dagtíma, þ.e. til kl. 22 á virkum
dögum og kl. 12-19 um helgar.
Ný þjónusta
Skattyfirvöld hafa nú opnað fyrir þann
möguleika að flytja skattaupplýsingar raf-
rænt úr vefbanka yfir á framtalið. Íslands-
banki býður sínum viðskiptamönnum upp á
þessa þjónustu fyrstur banka, en búist er
við að aðrir viðskiptabankar fylgi í kjölfarið.
Framtal á vefnum
hefur verið opnað. Allir eiga að hafa fengið
veflykil sendan eða eiga varanlegan veflykil
frá fyrri árum. Sækja má um nýjan hafi hann
gleymst eða týnst.
Skattframtöl
hafa verið borin út til þeirra sem ekki
afþökkuðu framtal á pappír við síðustu
framtalsgerð.
Skilafrestur
er til 21. mars
Leiðbeiningar
hafa nú verið færðar í nýjan búning og eru afar
aðgengilegar til uppflettingar og stuðnings við
framtalsgerð á vefnum. Því hefur verið dregið
úr heimsendingu prentaðra leiðbeininga og
aðeins þeir sem töldu fram á pappír í fyrra fá
þær sendar heim.
Prentaðar leiðbeiningar má nálgast hjá skatt-
stjórum, umboðsmönnum þeirra, á ýmsum
sýslumanns- og bæjarskrifstofum og á bensín-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu (sjá nánar í
lista hér að neðan og á rsk.is).
Skattframtal 2006
rsk.is
Allar upplýsingar á
NÚ ER nýyfirstaðið prófkjör
Samfylkingarinnar í borginni og al-
veg ljóst að sá flokkur er á mikilli
siglingu og því full ástæða fyrir
okkur stuðningsmenn Sjálfstæð-
isflokksins að taka á
honum stóra okkar til
að ná borginni aftur
úr óráðsíu stjórn
vinstriaflanna. Sem
dyggur stuðnings-
maður Sjálfstæð-
isflokksins verð ég að
lýsa yfir miklum von-
brigðum með hversu
óáberandi frambjóð-
endur míns flokks
hafa verið síðan í nóv-
ember, og minni á að
skoðanakönnun er
ekki sama og kosning.
Undir forystu nýkjörins oddvita
hefur Sjálfstæðisflokkurinn horfið
úr umræðunni, og hefur hann leyft
frambjóðendum Samfylkingarinnar
að fara óáreittir með rakin ósann-
indi og kaupa sér fylgi fyrir skattfé
borgaranna á hátt sem engin for-
dæmi eru fyrir. Sóknarfærin fyrir
okkur sjálfstæðismenn eru ótelj-
andi í borginni, ekki síst þegar til
er að dreifa öllu því endalausa
klúðri sem núverandi meirihluti
hefur staðið fyrir undanfarin 12 ár.
Það svíður því mitt bláa sjálfstæð-
ishjarta að sjá fólkið sem leiðir
flokkinn minn sitja með hendur í
skauti og halda að ekkert þurfi að
gera til að ná borginni
aftur.
Hvar var Vilhjálmur
þegar Dagur B. Egg-
ertsson úthlutaði enn
einum skikanum úr
Vatnsmýrinni undir
bensínstöð? Hvar var
Vilhjálmur þegar Dag-
ur og Stefán segja í
beinni útsendingu í
Kastljósi að nýtt
sjúkrahús muni víst
rísa í Vatnsmýrinni,
þrátt fyrir að það eigi
eftir að fara í kynn-
ingu með íbúum á svæðinu? Hvar
var Vilhjálmur þegar farin var sú
leið að bjóða upp landskika í í Úlf-
arsfellinu, þar sem gera má ráð fyr-
ir að einbýlishúsalóðin fari á 15–20
milljónir? Hvar var Vilhjálmur þeg-
ar manneklan á leikskólunum og
frístundaheimilunum var okkur for-
eldra að sliga í haust? Það er ekki
bara þessi fjarvist oddvitans í um-
ræðunni sem ég set út á, það er
líka skortur á markvissum hug-
myndum um hvernig við sjálfstæð-
ismenn ætlum að bæta borgina
þegar við náum henni aftur. Eyja-
byggðin var frábær hugmynd og
það hefði verið hægt að spóla fram
úr Samfylkingunni með góðri út-
færslu á þeim þætti, en um leið og
gagnrýnin kom þá sáum við kjós-
endur undir iljarnar á okkar mönn-
um.
Það má eflaust færa rök fyrir því
að menn séu að vinna sína málefna-
vinnu, sem er gott og blessað, en
við sjálfstæðismenn verðum að átta
okkur á því að kosningabaráttan er
byrjuð af fullum þunga, og það er
ekki beðið eftir því að við verðum
tilbúnir. Það eru einungis 3 mán-
uðir til kosninga, sem er stuttur
tími í pólitík, og ég kalla hér með
eftir skeleggri framgöngu okkar
unga fólks sem listann prýðir og
getur skákað frambjóðendum Sam-
fylkingarinnar í hvaða máli sem er,
ef það bara fær til þess umboð og
tækifæri. En að sitja úti í horni og
taka sér sinn tíma í að „vinna sína
heimavinnu“ er hreinlega ekki í
boði, við höfum tapað borginni 4
kosningar í röð út af slíku klúðri og
það er óafsakanlegt að endurtaka
leikinn enn eina ferðina.
Sl. haust ritaði ég grein í Morg-
unblaðið um ófremdarástandið í
leikskólum borgarinnar, og skoraði
ennfremur á borgarfulltrúa minni-
hluta og meirihluta að mæta á for-
eldrafund sem var í leikskóla
barnsins míns. Þetta var stuttu fyr-
ir prófkjör minna manna og ég sá í
hendi mér að nú myndu þeir fjöl-
menna, sér í lagi þar sem fjölmiðlar
mættu á staðinn, og láta ljós sitt
skína. Mér til mikillar undrunar
mætti hins vegar borgarstjóri, sem
hafnað var af samherjum um sl.
helgi, og horfði framan í fullan sal
af reiðum foreldrum, en það mætti
ekki einn einasti fulltrúi minnihlut-
ans. Fullkomið tækifæri gekk þeim
úr greipum þann daginn. Svörin
sem ég fékk frá minnihlutanum var
að bókuð hefði verið harðorð gagn-
rýni í borgarráði þar sem lýst var
yfir óánægju með ástandið! Á þeim
tímapunkti áttaði ég mig á því að
oddvitinn á lista okkar telur, ein-
hverra hluta vegna, að kosninga-
baráttan fari fram á fundum í borg-
arstjórn og borgarráði, en ekki í
fjölmiðlum og hjá kjósendum.
Sú staða sem við sjálfstæðismenn
stöndum frammi fyrir í dag er að
leiðtogi Samfylkingarinnar hefur
mikið persónufylgi og nær að rífa
fólk með sér (en sumir myndu
segja að sjaldan hafi maður talað
jafn mikið án þess að segja nokk-
urn skapaðan hlut), og verður okk-
ur skeinuhættur. Það sem ég óttast
er að þegar Dagur og Vilhjálmur
mætast á opinberum vettvangi
muni Dagur kafsigla Vilhjálm, sem
virðist eiga mjög erfitt með að vera
skemmtilegur og hrífandi í fjöl-
miðlum, og kjósendur eigi eftir að
yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn í vor og
fara í Samfylkinguna einfaldlega af
því að Sjálfstæðisflokkurinn stefnir
hraðbyr í að verða leiðinlegasti
flokkurinn í borginni, með önugasta
fólkið og þurrustu framkomuna. Ég
veit vel að framkoma hefur lítið
með getu til að stjórna borginni að
gera, en staðreyndin er bara sú að
framkoman selur og hversu góður
sem listinn okkar er, þá stoðar það
lítið ef við ætlum að klúðra enn ein-
um kosningunum og dúsa í minni-
hluta enn eitt kjörtímabilið.
Ég skora á Sjálfstæðisflokkinn í
borginni að taka sig saman í andlit-
inu, koma fram af fullum þunga og
sýna hressa og litríka framkomu,
tjalda öllu sem til er og ná borginni
í vor! X-D, því borgin þolir ekki
meiri R-lista martröð.
Lýst er eftir borgarstjórnar-
minnihluta Sjálfstæðisflokksins
Haukur Skúlason fjallar
um frammistöðu
Sjálfstæðisflokksins ’Það svíður því mittbláa sjálfstæðishjarta
að sjá fólkið sem leiðir
flokkinn minn sitja með
hendur í skauti …‘
Haukur Skúlason
Höfundur er viðskiptafræðingur og
gallharður sjálfstæðismaður.