Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 25 ra með verslun í Grafarvoginum, en hafði aldrei getað sinnt bygging- um í norðurhluta höfuðborgarinnar. kið mat það sem svo að það væri afar gt fyrir neytendur að geta haft tvo að minnsta kosti í norðurhluta borg- þannig að það voru alveg gríðarleg ði fyrir BYKO að fá synjun í desem- 1,“ segir Ásdís Halla. ð hvaða skýringar BYKO hafi fengið kjavíkurborg á því að Húsasmiðjan gið aðra lóð í norðurhluta borgarinnar dís Halla í synjunarbréfið frá borg- r kemur fram að ekki sé unnt að út- YKO lóðinni, en þeim bent á að mögu- að félagið fái lóð í Höllum eða hlíð í landi Úlfarsfells, sem BYKO st um árið 1998. a eru samskiptin við Reykjavík- hnotskurn. En BYKO hélt áfram, og umsóknina um þá lóð, og hélt áfram ast eftir lóð í Halla- og Hamrahlíð- m,“ segir Ásdís Halla. setti fram skilyrði meiginlega umsókn sum tíma fór í gang samkeppni um kipulag um Úlfarsfellið hjá Reykja- rg, en lóðin eftirsótta er hluti af því nóvember 2001 kemur niðurstaða s, sem valdi tillögu frá arkitektinum afssyni. Halla segir að hún sé hrifin af skipu- rfisins, sem gerir ráð fyrir samþætt- nustu við hverfið með þjón- rna í miðjunni, og lögð áhersla á að u verslanir meðfram Vesturlandsvegi, æst leiðinni inn í hverfið, klárlega ekki slanir. Þar er gert ráð fyrir að fyr- g stofnanir geti byggt skrifstofu- i. ar þessi hugmyndafræði skipulags ðandi fyrir svæðið fékk BYKO þau ð að Reykjavíkurborg fyndist ekki eft- rvert að úthluta stórverslunum lóðum segir Ásdís Halla. Í kjölfar þessa fóru víkurborg og Mosfellsbær í samstarf u með sér samkomulag um að ráða arþjónustufélagið Nýsi hf. til að búa naráætlun um uppbyggingu bæj- a á mörkum sveitarfélaganna. ssu ferli var sagt við BYKO að ekki óð austan við veginn, og síðar var mur sett skilyrði um það að Smára- fasteignafélagið sem sér um fast- ál BYKO, myndi sækja um í samvinnu ratorg og Mötu, vegna þess að fyr- num yrði ekki úthlutað lóð hverju fyr- egir Ásdís Halla. kjavíkurborg gerði það að skilyrði að rirtæki tækju upp samstarf og óskuðu nlega eftir stórri lóð. Í fundargerðum um tíma kemur ítrekað fram að eggur meiri áherslu á að fá úthlutað og sér, og það gangi hratt og vel, þeg- ekið allt of langan tíma að fá lóð til að á. Þegar skilyrði um samstarf þessara fyrritækja var sett var endanlega úti- þau fengju lóðir austan megin við vegna þess að landsvæðið var of tak- Rýmið var hins vegar meira en nægjanlegt fyrir BYKO-verslun og það hefði verið óskastaðan fyrir fyrirtækið,“ segir Ás- dís Halla. Á endanum sættist þó BYKO á að sótt yrði um eina stóra lóð sem hugsuð yrði svipuð og Smáratorgið í Kópavogi. „Annað kom ekki til greina, aðrar lóðir voru ekki til og það voru skýr skilaboð borgarinnar.“ Eðlilegt að byrja á að breyta skipulaginu Árið 2004 gerðu svo Reykjavík og Mos- fellsbær með sér formlegt samkomulag um rammaskipulag svæðisins, undirritað af borgarstjóra og bæjarstjóra, þar sem fram kemur að sveitarfélögin ætli sér að vinna eftir þessu skipulagi. Í því kemur m.a. fram að svæðið austan Vesturlandsvegar, þar sem lóðin sem BYKO sótti um er, eigi að byggjast upp eftir árið 2008, og þar sé gert ráð fyrir t.d. umferðarmiðstöð, lögreglustöð, þjónustu- miðstöð fyrir gatnamálastjóra, gámastöð og/ eða bensínstöð. Vestan Vesturlandsvegar sé hins vegar gert ráð fyrir rýmisfrekum versl- unum. Þessi lýsing hefur einnig ratað inn í aðalskipulag Reykjavíkurborgar sem nú er í gildi. „Formaður skipulagsráðs, Dagur B. Egg- ertsson, segir hins vegar nú að ekkert sé því til fyrirstöðu að austan Vesturlandsvegar geti verið stór byggingarvöruverslun, sem geti byrjað framkvæmdir á þessu ári og opn- að á því næsta. Í samkomulaginu segir að uppbygging eigi að hefjast 2008 í fyrsta lagi, og að þar eigi að vera starfsemi í svipuðum anda og lögreglustöð, þjónustumiðstöð, gámastöð og svo framvegis. Ef Reykjavík- urborg ætlar að breyta um áherslur og nær samkomulagi um það við Mosfellsbæ að hafa rýmisfrekar stórverslanir austan megin við veginn er eðlilegt að byrja formlega á því að breyta skipulaginu og bjóða lóðina síðan út til áhugasamra fyrirtækja,“ segir Ásdís Halla. Bent hefur verið á að einkennilegt sé að BYKO geri mál vegna þessa gjörnings nú, þegar fyrirtækið hefur eftir 10 ára bið fengið úthlutað lóð hinum megin við Vesturlands- veginn. Ásdís Halla segir ástæðuna einfald- lega þá að staðsetningin austan við veginn sé mun betri fyrir verslun og þar sem fyrirtækið hafi ítrekað reynt að fá þá lóð sé ástæða til að ítreka þær óskir. Mikill landhalli felur verslanir Landhallinn vestan megin sé þannig að gólfflötur verslunarinnar sé 11 metrum neð- an við veginn, og svo skyggi tveggja metra há hljóðmön ennfremur á. „Þeir sem keyra í átt að Mosfellsbæ sjá því miður ekki einu sinni verslunina vestan við veginn, því hún er svo miklu neðar en vegurinn sjálfur,“ segir Ásdís Halla. Það andstæða á við um verslanir sem reistar verða austan við veginn, þær verði vel sýnilegar og áberandi frá veginum. Auk þess sé staðsetningin austan megin betri að því leyti að umferðarstraumurinn liggur á austurhluta vegarins síðdegis en einnig sé lóð austan megin nær uppbygging- arsvæðum Úlfarsfells og húsbyggjendum á þessu svæði. ndir byggingarvöruverslun út uhaus gæti ræðisreglu Morgunblaðið/Sverrir kið hafa reynt að fá úthlutað lóð í Reykjavík í 10 ár. brjann@mbl.is Í hvert sinn sem ég heyri eitt-hvað nýtt neikvætt um ál-vers- og virkjanafram-kvæmdir hugsa ég með mér: „Nú hlýtur listinn að vera tæmd- ur“. Í hvert sinn hef ég rangt fyrir mér. Listinn virðist vera ótæmandi. Það nýjasta er að skipafélögin voru að leggja sérstakt flutnigsgjald á almenn- ing til að standa undir tapinu á flutningum fyrir Impregilo og Bechtel. Stuttu áður en ég las þetta frétti ég að hátæknifyrirtæki væru að flýja landið með allt sitt hafurtask vegna óhagstæðs gengis sem eru ruðningsáhrif stór- iðjuframkvæmda. Rétt fyrir það las ég frétt um fiskvinnslufyr- irtæki sem varð gjald- þrota af sömu ástæðu. Þá hafði ég þegar frétt af fleiri fiskvinnslufyr- irtækjum og nokkrum sprotafyr- irtækjum á landsbyggðinni sem höfðu einnig orðið gjaldþrota vegna óhagstæðs gengis. Sum þessara sprotafyrirtækja voru mjög efnileg og höfðu þegar skipað sér sess á al- þjóðavettvangi. Fyrir stuttu átti ég spjall við mann sem rekur fjallaleiðsögufyr- irtæki en hann tjáði mér að fyr- irtækið væri að íhuga flutning til Nýja Sjálands - vegna eyðilegg- ingar á hálendi Íslands og óhag- stæðs gengis. Áður en ég heyrði af þessari afleiðingu stóriðjufram- kvæmda hafði ég heyrt hjá hag- fræðingi að það væri hagkvæmt fyrir þjóðarbúskapinn að hafa fjöl- breytni á atvinnumarkaði. Ég get ekki séð að það stuðli að fjölbreytni á atvinnumarkaði að drepa eða hrekja úr landi fiskvinnslu- og há- tæknifyrirtæki, smáiðnað, sprota- fyrirtæki og ferðamannaiðnaðinn fyrir eina tegund stóriðju. 70% raforkunnar fyrir erlenda stóriðju Ég las í blaði fyrir stuttu að raf- orkuverð til íslenskra fyrirtækja hefði hækkað umtalsvert. Vænt- anlega til þess að standa straum af lágu raforkuverði til stóriðju. Mað- ur frá ágætri brauðverksmiðju í Reykjavík hafði áhyggjur af því að þetta yrði erfitt fyrir fyrirtækið og gæti jafnvel riðið því að fullu. Nú hef ég vitað töluvert lengi að 70% af framleiddri raforku á Íslandi fer í 3 erlend stóriðjufyrirtæki, nánar tiltekið álframleiðslufyrirtæki. Af hverju eru þessi fyrirtæki ekki lát- in greiða niður lágt raforkuverð til Íslenskra fyrirtækja? Það getur ekki verið svo stór biti fyrir stóriðj- una að greiða örlítið meira fyrir raforkuna en sú hækkun myndi skipta sköpum fyrir smáiðnaðinn. Eða er það rökrétt að 30% notenda haldi uppi hinum 70%? Hér er enn ósagt að ef svo illilega vildi til að Alcoa, sem margsinnis hefur verið dæmt fyrir umhverfisglæpi, sigri í baráttunni um Kárahnjúkasvæðið þá myndu 80% framleiddrar raf- orku fara í erlenda stóriðju – 20% í smáiðnað og almenna notkun. Við skulum enn vona að þeim verði ekki kápan úr því klæðinu. Súrálið og rafskautin Á dögunum sótti ég ráðstefnu sem haldin var á Hótel Nordica undir heitinu „Orkulindin Ísland“. Þar komu saman virkjana- og stór- iðjusinnar til að stappa í hvorn ann- an álinu. Ég hjó eftir ýmsu alvar- legu sem fram kom á þessari ráðstefnu, meðal annars því að fulltrúi fyrirtækisins Enex, Gunnar Tryggvason, talaði fögrum orðum um að það væri góður kostur að framleiða hér rafskaut og súrál fyr- ir álbræðslu. Það myndi minnka millilandaflutninga og þar af leið- andi gera álframleiðslu umhverf- isvænni, en rafskaut eru notuð við álbræðslu og súrál er hráefni til ál- framleiðslu. Nú spyr ég: hefur þetta fólk séð báxíð-námusvæði eða kynnt sér afleiðingar súrálsfram- leiðslu á umhverfi, fólk og náttúru? Skoðum aðeins Jamaica, þar sem Alcan og Alcoa framleiða súrál úr báxíð jarðvegi. Þar er yfirborðs- jarvegur tættur upp og eyðilagður til að búa til báxíð-námur. Til að vinna eitt tonn af súráli úr báxíð- jarðvegi þarf svo að skilja eftir eitt tonn af úrgangsjarðvegi sem hefur sýrustigið ph14. Jarðvegi sem ekk- ert líf getur komið í snertingu við án þess að stein- drepast. Þessi vít- issódadrulla sígur of- an í grunnvatnið og eyðileggur drykkjar- vatn. Súrt regn fell- ur frá himnum. Paradísareyjan Jam- aica er að breytast í vítissótapoll. Þús- undir Jamaicabúa þjást af sjúkdómum í öndunarfærum af völdum súrálsfram- leiðslu og börn greinast með alvar- lega fæðingargalla af sömu völdum. „Rykið frá vinnslunni er þvílíkt að því má líkja við nýfallinn snjó“, las ég í viðtali við konu sem býr nálægt báxíð-námu á Jamaica. Viljum við þessa framtíð fyrir Ísland? Með til- komu rafskautaverksmiðju í Hval- firði mun Faxaflóasvæðið skipa sér í hóp mest menguðu svæða í norður Evrópu. Hversu djúpt ætlum við að sökkva í sorann hér á Íslandi? Eða er ég að misskilja þetta allt saman? Var það aldrei neitt eftirsóknarvert að eiga óspjallaða náttúru? Átti bara að gabba túristana hingað á fölskum forsendum? Eða er sjálfs- blekkingin þvílík að við trúum því virkilega að þrátt fyrir raf- skautaverksmiðju, súrálsfram- leiðslu og 4 álver til viðbótar mun- um við sem áður, geta sagt að Ísland sé hreint land með óspjall- aða náttúru? Ef svo er, þá er nú tími til kominn að vakna. Sviss og álið Annað sem talað var um á fyrr- nefndri ráðstefnu voru þeir kump- ánar „Guð og Guð Almáttugur“. Það var hinn skáldlegi Hallur Hallsson sem nefndi tvo svissneska áljöfra þessum nöfnum, en álsaga Íslands hófst fyrir tilstilli þessara tveggja manna sem flugu yfir land- ið og ráku augun í Vatnajökul. Þeir lögðu saman tvo og tvo og komust að því að þar sem svo stór jökull væri, hlytu að vera kraftmiklar jök- ulár sem tilvalið væri að virkja fyr- ir álbræðslu. Boltinn rúllaði hratt og fyrr en varði var risið álver í Straumsvík. Þetta var á sjöunda áratug síðustu aldar. Álvers- og virkjanasinnar tala af mikilli virð- ingu um þessa tvo Svisslendinga. Þakklæti til þeirra er ómælt, að þeir skyldu reka augun í pen- ingamaskínuna Vatnajökul. Það fylgdi hins vegar ekki í frásögn Halls af „Guði og Guði Almátt- ugum“, að í sömu viku og þessi ráð- stefna fór fram á Nordica, lokuðu Svisslendingar síðasta álverinu sínu. Það er nefnilega árið 2006 kæru stóriðjusinnar, ekki 1960! Er ekki dálítið hallærislegt að vera svona langt á eftir öðrum sið- menntuðum þjóðum? Nágranna- þjóðir okkar hafa nefnilega löngu gert sér grein fyrir því að það eru ómæld verðmæti í óspjallaðri nátt- úru og mengunarfríum svæðum. Er það ekki sorglegt að við Íslend- ingar, sem ennþá eigum dýrmæt- ustu landsvæði í heimi sökum hreinleika og fegurðar skulum kjósa yfir okkur grunnhyggið og skammsýnt fólk sem hefur það að markmiði að eyðileggja fyrir okkur þennan takmarkalausa auð? Stjórnvöld á Íslandi eru nærri heilli öld á eftir stjórnvöldum í ná- grannalöndum okkar og það er tími til kominn að við rísum upp og krefjumst þess að Ísland verði í takt við tímann. „Hrein“ orka Virkjanasinnar hafa lengi jórtrað á þeim rökum að það sé betra að framleiða „hreina“ raforku á Ís- landi með vatnsafli, heldur en að menga heiminn með orkufram- leiðslu frá kolum og öðrum meng- unarvaldandi efnum. Okkur beri því umhverfisleg skylda hér á Ís- landi til að ljá heiminum fossana okkar og árnar. Það fylgir hins vegar aldrei sögunni að orkugeta vatnsafls á Íslandi kemst ekki einu sinni á blað í samanburði við vatns- aflsorku annara svæða í heiminum, s.s. Evrópu og Afríku. Vatnsafls- orka Afríku mælist t.d. yfir 2200 TWH en hér á Íslandi einungis 30 TWH. Námundað við næsta hundr- að er vatnsaflsorka á Íslandi NÚLL. Það er því alrangt að okk- ur beri einhver skylda til að fram- leiða raforku fyrir heiminn. Auk þess binda jökulár gríð- arlega mikið magn af koltvísýringi þegar þær blandast sjónum og koma þannig í veg fyrir gróður- húsaáhrif. Íslenskar jökulár jafnast á við 25% af allri Afríku hvað þetta varðar og það væri stórkostlegt umhverfisslys fyrir alla plánetuna að stöðva þetta ferli með því að virkja jökulár landsins. Það er því langur vegur frá því að vatnsafls- orka sé hrein orka og í raun er það mjög alvarlegt að stjórnvöld og Landsvirkjun skuli leyfa sér að bera fram langa runu af viðlíka lyg- um til rökstuðnings á eyðileggingu landsins. Íslandi blæðir, Alcoa græðir Hið sorglegasta í öllu þessu er að það er hópur örfárra Íslendinga sem hafa lagst svo lágt að selja fjársjóð okkar allra á útsöluverði. Fjársjóð sem okkur ber skylda til að varðveita. Framtíðarsýn forstjóra Lands- virkjunar er að Ísland megi skipa sér í hóp helstu álframleiðsluríkja heims. Það er forvitnilegt að vita hversu margir Íslendingar deila með honum þessari framtíðarsýn. Í Gallupkönnun frá síðasta ári var spurt: Hvað af eftirfarandi finnst þér mikilvægast að byggja upp á Íslandi, hátækniiðnað, ferða- mannaiðnað, hefðbundinn iðnað, eða stóriðju? 46,7% völdu hátækni, 27,6% völdu ferðamannaiðnað, 15,8% hefðbundinn iðnað og ein- ungis 9,9% völdu stóriðju,. Við deil- um sem sagt ekki þessari framtíð- arsýn með hr. forstjóra Friðrik. Það er kannski þess vegna sem Landsvirkjun beitir öllum ráðum og eyðir hundruðum milljóna af al- mannafé til að sjóða saman lyga- áróður um ágæti stóriðju. Því mið- ur hefur þessi áróður borið árangur. Það hefur tekist að telja Austfirðingum trú um að Alcoa sé bjargvætturinn sem muni rífa upp stemninguna þegar augljóst er að það eru erlendir stóriðjurisar eins og Alcoa sem maka krókinn á okk- ar kostnað. Af hverju ætti þeim ekki að vera nákvæmlega sama þótt Reyðarál muni menga jafn mikið og 172.000 bifreiðar? Þeir þurfa ekki að búa þar eða starfa þar. Austfirðingar ættu að vera þeir fyrstu til að rísa upp og mót- mæla þessum framkvæmdum því hörmulegar afleiðingar álbræðslu munu fyrst og fremst bitna á þeim og börnum þeirra, líkt og íbúum Jamaica. Ég skora á stjórnvöld og Lands- virkjun að sýna hugrekki með því að segja sig úr liði afturhaldssinna og erlendra stóriðjurisa og ganga í lið með þeim 90,1% íslensku þjóð- arinnar sem þykir mikilvægast að byggja hér upp hátækni, ferða- mannaiðnað og almennan iðnað. Virkjum hausinn, verndum nátt- úruna. Stöðvum brj-álæðið Eftir Helenu Stefánsdóttur ’Ég skora á stjórnvöldog Landsvirkjun að sýna hugrekki með því að segja sig úr liði aftur- haldssinna og erlendra stóriðjurisa og ganga í lið með þeim 90,1% íslensku þjóðarinnar …‘ Helena Stefánsdóttir Höfundur er leikstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.