Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Baldvin Skær-ingsson var fæddur á Rauðafelli undir Austur-Eyja- fjöllum 30. ágúst 1915. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt 22. febrúar síð- astliðins. Foreldrar hans voru Skæring- ur Sigurðsson frá Rauðafelli og Krist- ín Ámundadóttir frá Bjólu í Rangárvalla- sýslu. Þau eignuðust 14 börn, þar af létust þrjú ung. Börnin sem komust á legg voru í aldursröð: Sigurþór, Aðalbjörg, Einar, tvíburarnir Baldvin, sem hér er minnst, og Georg, Ásta, Jakob, Anna, Rútur, Guðmann og Kristinn. Eru nú aðeins tveir yngstu bræðurnir á lífi. Hinn 16. maí 1937 kvæntist Baldvin Þórunni Elíasdóttur frá Bala í Þykkvabæ, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990. Foreldrar Þórunnar voru Elías Nikulásson og Kristín Mensaldersdóttir. Bald- vin og Þórunn eignuðust níu börn. Þau eru: 1) Kristín Elísa, f. 19. f. 15. janúar 1952, maki Halldóra N. Björnsdóttir, börn þeirra eru Kjartan Þór, Sigríður Þóra, Hall- dóra Þóra og Kristín Þóra. 7) Hrefna, f. 23. janúar 1954, maki Snorri Þ. Rútsson, sonur þeirra er Rútur og á hann einn son. 8) Bald- vin Gústaf, f. 30. ágúst 1957, maki Anna Gunnlaugsdóttir, börn þeirra eru Lára Dögg, Salka, Orri og Hrefna. 9) Hörður, f. 25. nóv- ember 1961, maki Bjarney Magn- úsdóttir, dætur þeirra eru Rúna Sif og Herdís. Baldvin hafði eign- ast 98 afkomendur þegar hann lést, og eru 96 þeirra á lífi. Baldvin vann öll almenn sveita- störf til 14 ára aldurs en þá fór hann í fyrsta skipti á vertíð til Vestmannaeyja. Hann fór til Eyja margar vertíðir þar til hann settist þar að 1936. Hann gerðist sjómað- ur og stundaði sjóinn fram yfir ár- ið 1960 samhliða báta- og húsa- smíði en þá fór hann í land og fékkst eingöngu við smíðar fram að gosi 1973. Eftir gos settist hann að í Mosfellssveit og starfaði í áhaldahúsi Mosfellshrepps og síð- ar við íþróttahúsið á Varmá, þar til hann lét af störfum kominn á átt- ræðisaldur. Síðustu tvo áratugina ferðaðist Baldvin mikið, bæði um Evrópu og Ameríku sem og innan- lands. Útför Baldvins verður gerð frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ágúst 1936, d. 19. júlí 2003, maki Hörður Runólfsson, þeirra börn eru Baldvin Þór, Sólrún Unnur og Smári Kristinn, barnabörnin eru átta og barnabarnabörnin þrjú. 2) Elías, f. 1. júní 1938, d. 16. sept- ember 2003, maki Halla Guðmundsdótt- ir, þeirra börn eru Þórunn Lind, Unnur Lilja, Kristín Elfa, Guðmundur, Sigrún, Eygló, Elísa og Baldvin, barna- börnin eru 22 og barnabarnabörn- in þrjú. 3) Baldur Þór, f. 19. júní 1941, maki Hugrún Hlín Ingólfs- dóttir sem er látin, börn hans eru Steinþór og Unnur, barnabörnin eru fimm. 4) Kristinn Skæringur, f. 29. júní 1942, maki Sigríður Mín- erva Jensdóttir, synir þeirra eru Sigurjón, Þórir og Baldvin, barna- börnin eru níu og eitt barnabarna- barn. 5) Ragnar Þór, f. 31. desem- ber 1945, maki Anna Jóhanns- dóttir, þeirra börn eru Jóhann Freyr, Hlíf, Þórunn og Ragna, barnabörnin eru sex. 6) Birgir Þór, Þá er pabbi búinn að kveðja eftir langa og hamingjusama ævi fyrir ut- an að missa mömmu og tvö elstu börnin sín. Við vorum níu systkinin svo það var í nógu að snúast á heim- ilinu, bæði að afla viðurværis og þjóna heimilinu. Við áttum yndislega for- eldra, væntumþykjan mikil og aldrei sagt eitt styggðaryrði þótt bægsla- gangurinn væri stundum í hámarki. Pabbi var einstaklega laghentur og vinnusamur enda varð hann að halda vel á spöðunum til að framfleyta þess- ari stóru fjölskyldu og tókst honum það frábærlega. Þegar við Anna fórum að búa reyndist hann fjölskyldu okkar betri en enginn, bæði við byggingu á hús- inu okkar og allan stuðning og hlýju við krakkana okkar. Svo komu öll ferðalögin bæði inn- anlands og utan sem voru eitt ævin- týri. Við systkinin og makar fórum með gamla manninn á æskuslóðir hans undir Eyjafjöllum þegar hann varð níræður nú í sumar. Það var stórkostlegur dagur og gaman að fylgjast með honum með hópinn sinn á þeim stað. Eins var að ganga með þér öll þessi ár sem við áttum saman, þau voru yndisleg. Betri pabba var ekki hægt að hugsa sér. Það verður tekið á móti þér með opnum örmum þegar mamma, Stína og Addi leiða þig um nýja heima. Þinn sonur, Ragnar Þór. Elsku Baldvin. Nú er komið að kveðjustund í bili. Þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir 45 árum tókst þú mér einstaklega vel. Með okkur tókst vinátta sem aldrei bar skugga á. Sam- an gátum við spjallað um alla hluti, þú sagðir mér margar sögur úr æsku þinni sem mér fannst alltaf jafngam- an að hlusta á. Síðan voru dægurmál- in rædd fram og aftur og síðast en ekki síst dreymdi okkur bæði drauma um ferðalög. Mörg ferðalögin fórum við saman, en einn staður varð eftir sem við ákváðum að skoða, það eru Feneyjar. Við töluðum um það árið 1963 en ekki komum við því í verk í þessu lífi. Þú varst ótrúlega mikill flakkari í þér, þú þurftir ekki mikla hvatningu til þess að fara í einhvern flæking eins og við sögðum. Þú hefur verið stór hluti af okkar lífi í gegnum árin og erum við Raggi ánægð með að börnin okkar og barna- börn hafa notið þess að kynnast þér og vera með þér á meðan þau voru að alast upp. Þú varst einstaklega barn- góður og natinn við þau þegar þau voru í kringum þig. Þegar stundin þín rann upp var það aðeins þremur vikum eftir að þú komst út í Eyjar til þess að fylgja Júl- íu tengdadóttur minni til grafar. Ég kveð þig með söknuði og þakk- læti en ég veit að þú varst saddur líf- daga. Það hefur verið tekið vel á móti þér á nýjum stað. Þórunn, Stína, Addi og aðrir sem á undan eru gengnir hafa tekið þér opnum örmum. Þín tengdadóttir, Anna Jóhannsdóttir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Með þessum orðum Valdimars Briem kveð ég þig, minn kæri tengda- faðir og vinur, Baldvin Skæringsson. Þegar sú stund kemur að ástvinur kveður er það ótrúlega sárt, eitthvað svo endanlegt. Ekkert verður sem fyrr. Maður fyllist söknuði, sérstak- lega yfir þessum hversdagslegu hlut- um s.s. að þú sitjir ekki við eldhús- borðið á Arnartanganum, að þú birtist ekki með þitt breiða bros og bjóðir góðan dag eða gott kvöld, laumir smánammi í krakkana eða í hundinn og fáir þér síðan sæti fyrir framan sjónvarpið og kötturinn stökkvi í fang þér. Það sem einkenndi þig var áhugi á lífinu. Þú varst rólyndur en glaðvær og hinn mesti dugnaðarforkur til allr- ar vinnu. Það lék allt í höndunum á þér og lausnirnar oft á tíðum sniðug- ar. En umfram allt varstu góður mað- ur, sérstaklega við börn og dýr. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. (V. Briem.) Minningarnar leita á hugann, hver á eftir annarri, ljúfsárar sumar en aðrar skondnari. Minningar um sam- verustundir í gleði og sorg og ekki síst ferðalögin. Ferðalagið um Klettafjöll- in á Vesturströnd Kanada og Íslend- ingabyggðir í Markerville var frá- bært og það var í þeirri ferð sem við kynntumst vel. Þú hafðir unun af því að ferðast og skoða þig um í framandi löndum en ekki síðri þóttu þér ferð- irnar undir Eyjafjöllin á æskustöðv- arnar, þangað fórum við á hverju sumri. Þú hafðir einnig taugar til Laugarvatns, hafðir unnið við smíði Héraðsskólans og þar valdir þú þér stað fyrir hjólhýsið þitt. Þær voru ófá- ar ferðirnar þangað. Oft komu hring- ingar frá þér þar sem þú sagðir okkur að hitinn væri um 30°C við hjólhýsið og hvort við ætluðum ekki að kíkja og Lyngdalsheiðin væri bara í góðu ástandi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Ég vil þakka þér fyrir að hafa verið mér samferða í tæpan aldarfjórðung og fyrir að standa ávallt með mér og hvetja mig til góðra verka. Mest af öllu vil ég þakka þér fyrir að hafa ver- ið börnum mínum frábær afi; nálæg- ur, þolinmóður, áhugasamur og kær- leiksríkur. Þú fræddir þau um liðna tíð með skemmtilegum sögum, þær voru allt- af skemmtilegar en e.t.v. voru þær ör- lítið ýktar sumar og þá kom hakan oft langt fram! Þú sýndir barnabörnun- um áhuga og því sem þau tóku sér fyrir hendur og þú fylgdist vel með öllu, hvort heldur sem það var námið, fótboltinn, píanóið eða hvaðeina. Þú mættir á fótboltaleiki og tónleika. Þú hlustaðir á hvað þau höfðu að segja og þau búa vel að því að hafa verið í góð- um tengslum við þig. Þeirra söknuður er mikill en minningarnar um góðan afa eru dýrmætar og gott veganesti. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín tengdadóttir, Halldóra Björnsdóttir. Jæja, afi minn, nú ert þú búinn að fá hvíldina þína en þú ert nú búinn að vera tilbúinn að fara í nokkur ár eða eins og þú sagðir sjálfur þá varstu bú- inn að skila þínu og vel það í þessu lífi. Það voru nú margar ferðirnar sem ég tölti niður Illugagötuna til að heim- sækja þig og ömmu, þú niðri í kjallara að smíða og amma í eldhúsinu tilbúin með mjólk og kökur handa mér í kaffitímanum. Síðan eru nú ógleym- anleg jólaböllin niðri í Gefjun sem þú hélst fyrir fjölskylduna þína, börn og barnabörn, en þá vorum við öll sam- ankomin enginn smáhópur enda áttuð þið amma níu börn og þvílíkan haug af barnabörnum. Var þá farið í ýmsa leiki eins og að vera með appelsínu bundna við mittið sem hékk niður að gólfi og reka eldspýtnastokk með appelsínunni í mark og gekk mikið á enda er keppnisskap Baldaranna þekkt langt út fyrir Eyjarnar. Þið amma fluttuð síðan upp í Mosó og var alltaf jafn gaman að koma þangað enda gafstu þér ævinlega mikinn tíma til að vera með okkur krökkunum og segja okkur sögur og leyfa okkur að koma með þér í vinn- una í Íþróttahúsinu þar sem þú varst húsvörður. Þú komst síðan ófáar ferð- irnar ofan úr Mosó til Eyja til að hjálpa mér við smíðar hérna heima og var alltaf jafn gaman að vinna með þér. Þú varst svo ofboðslega klár smiður og gafst þér alltaf tíma til að kenna mér um leið og við vorum að vinna saman. Mér er það líka sérstak- lega minnisstætt þegar ég keypti mér sjoppu hérna úti í Eyjum og ætlaði að stækka veitingasalinn um helming. Þá hringdi ég í þig og bað þig um að aðstoða mig þegar ég færi í þessar breytingar og var það alveg sjálfsagt. Síðan fimm dögum seinna þá hringd- irðu til að athuga hvort ég ætlaði ekki að fara að byrja. Ég ætlaði nú ekki að fara í það alveg strax en þegar þú varst búinn að hringja fjóra daga í röð og reka á eftir mér þá bara mættirðu og ruslaðir þessu af á nokkrum dög- um. Þegar ég kom í bæinn núna hin seinni ár, fór ég oft upp í Mosó til að ná í þig í bíltúr. Komum við þá yf- irleitt við á kaffihúsi eða bara á Kringlukránni þar sem ég fékk að bjóða þér upp á eitt eða tvö sérrí- staup. Þá var sko sögustund. Þú varst óþreytandi að segja mér sögur úr for- tíðinni, frá því að þú varst ungur og upp á þitt besta, af hverju þú fékkst viðurnefnið Baddirot á Siglufirði þeg- ar síldarævintýrið var upp á sitt besta þar, þegar þú varst handtekinn sem njósnari í Bretlandi í seinni heims- styrjöldinni, þegar þú varst talinn lát- inn og varst kominn inn í líkhús en þar gastu hreyft litla puttann og sást þá að þú varst lifandi. Okkar síðustu samverustund átt- um við fyrir þremur vikum, en þá var útför hennar Júlíu minnar og þú mættir og varst alla helgina hérna hjá okkur. Eftir útförina var matarboð hjá mömmu og pabba og voru öll börnin þín þar. Þú lékst á als oddi og var mikið hlegið. Mikið er ég þakk- látur fyrir að hafa átt þessa kvöld- stund með þér. Takk fyrir allt, elsku afi minn, mikið er ég ríkur að eiga all- ar þessar minningar frá samveru- stundum okkar í gegnum lífið. Jóhann Freyr Ragnarsson (Jói Ragg). Afi er farinn. Hann sagði okkur krökkunum sögur. Sögur af því, er hann var lítill drengur. Ein sú eftir- minnilegasta var skráð af henni Dóru og við viljum gera hana að okkar minningu um hann afa. Sagan gerðist fyrir rúmlega 80 árum: Níu ára gamall drengur var í vist á bæ einum undir Eyjafjöllunum. Bær- inn var gamall torfbær eins og þeir voru í gamla daga, burstabær. Brött hlíð var fyrir ofan bæinn en mikið og fallegt útsýni fyrir neðan hann. Úti var snjór og fallegt um að litast. Úti- húsin stóðu nokkurn spöl frá bænum, þar voru skepnurnar. Drengurinn var fátækur og gat ekki verið með fjölskyldu sinni. En þetta kvöld hafði verið öðruvísi en venjulega, það voru jól. Hann var saddur því að hann hafði fengið góðan jólagraut að borða. Þar sem hann sat við gluggann á bænum og hugsaði heim til mömmu sinnar, pabba og systkina, varð honum litið upp til him- ins. Hann saknaði þeirra sárt. Stjörnurnar voru óvenju tærar og fallegar, en ein vakti sérstaka athygli hans. Drengurinn hugsaði með sér: „Skyldi þetta vera jólastjarnan?“ Jólastjarnan hans, sem sendi geisla sína inn um litla gluggann til þess að minna hann á jólin? Sama stjarnan og beindi fjárhirðunum á Jesúbarnið fyr- ir 2000 árum? Honum leið strax betur. Honum fannst hann öruggari, þegar hann hugsaði til stjörnunnar. Skyldi hún vísa honum eitthvert í hans lífi? Drengurinn sofnaði vært með þessar hugsanir í kollinum. Um miðja nótt vaknaði hann við miklar drunur. Hann leit út um gluggann og sá ekkert nema blautan snjó. Það hafði komið snjóflóð. Snjór- inn hafði runnið niður hlíðina um nótt- ina þegar allir voru sofnaðir. Flóðið hafið tekið með sér stór björg sem höfðu brotnað og runnið með. Snjór- inn braut húsið og stóru björgin lentu ofan á. Allt fólkið flaut út og gömul kona sem var rúmliggjandi flaut með. Það var dimmt, kalt og blautt svo erf- itt var að sjá. Drengurinn fann bara, að flóðið þreif hann með sér og kast- aði honum til og frá. Allt varð svart, en skyndilega sá hann glitta í stjörn- una fögru á himninum. Hann missti ekki sjónar á henni. Reyndi að teygja hálsinn og leita hana uppi þar sem hann lá ósjálfbjarga. Margar hugsan- ir þutu í gegnum höfuð hans. Skyldi hann ekki lifa af, þar sem hann sá enn stjörnuna sína? Vinnumaður á bænum hafði fyrstur náð að komast upp úr flóðinu, og hann sótti hjálp á næstu bæi. Menn komu með hesta og byrjuðu að tína upp fólkið þar sem það lá meira og minna grafið í blautum snjónum. Allt í einu var drengurinn gripinn sterkum höndum og settur á hestbak. Hann nötraði og skalf af kulda. Þegar búið var að koma fólkinu til næstu bæja kom í ljós að allir höfðu bjargast. Mik- ill fögnuður greip um sig þegar fólki varð þetta ljóst. Allir voru rennblautir og fengu hlý og þurr föt til skiptanna. Drengurinn var settur í rúm, þar sem honum hlýnaði og hann var fljótur að sofna. Úti skein stjarnan og seinasta hugsun hans var sú, hvort þessi stjarna hefði leitt hann og fólkið á bænum lifandi úr flóðinu. Skyldi hún eiga eftir að leiða hann í gegnum lífið, vernda hann og vísa honum í örugga höfn? Í Mosfellsbæ gengur níræður mað- ur út í jólanóttina, eins og hann hefur gert í áratugi. Hann hefur eignast langt líf og horfir til himins eins og hann hefur gert ótal sinnum á jóla- nótt. Stjarnan er þarna, eins og hún hefur alltaf verið. Hún var ljósið, þeg- ar snjóflóðið kastaði honum út í myrkrið, úr litla bænum undir Eyja- fjöllum. Hún er ennþá ljósið hans, og hann hverfur inn í jólanóttina. Þetta er hann er afi minn. Þegar við horfum til himins, sjáum við stjörnuna hans afa. Stjörnuna, sem hann missti aldrei sjónar á. Hún var ljósið í lífi hans og lýsir honum nú inn í eilífðina. Hún verndaði hann fyr- ir 80 árum og mun áframvaka yfir honum. Takk fyrir allt, elsku afi. Takk fyrir ljósið, sem þú varst okkur. Halldóra, Kjartan, Sigríður og Kristín. Það er erfitt að reyna að finna rétt orð til að minnast afa. Afi var sá sem kenndi okkur svo margt en þó fyrst og fremst að takast á við lífið með bros á vör. Hann kenndi okkur að spila á spil. Það var sjaldan sem við náðum að vinna en þá var ekki langt í hláturinn hjá afa. Baldvin afi skemmti sér vel þegar hann var að spila við okkur barnabörnin og segja okkur sögur úr fortíðinni. Afi var mikill smiður og árin sem hann dvaldi mest hjá okkur í Eng- landi smíðaði hann ýmislegt handa okkur krökkunum, m.a. dúkkuhús, sandkassa og ávallt þegar eitthvað þurfti að laga eða smíða sögðum við einfaldlega: „Afi lagar þetta.“ En síð- ustu árin þegar eitthvað var verið að smíða sat afi bara hjá og var mikill eftirlitsmaður. Þegar pabbi og Ragn- ar bróðir hans tóku til handa við að smíða eitthvað stóð afi gjarnan hjá og fylgdist með hverri einustu hreyf- ingu. Honum fannst alltaf gaman að segja þeim til því þeir kunnu nú ekki alltaf vel til verka. Eitt sem einkenndi afa var að vasa- hnífurinn var ávallt á sínum stað. Allt- af fannst okkur það fyndið þegar hann tók upp hnífinn til þess að skafa allar matarleifar af kjammanum þeg- ar svið voru á borði. Þegar var farið í heimsókn til afa var hann ætíð með nóg af góðgæti til að bjóða okkur. Alltaf hafði hann áhyggjur af að það væri ekki nóg til handa okkur en það kom sjaldan fyr- ir. Á sumrin kom afi oft vestur á Ísa- fjörð með okkur og var búinn að eign- ast sitt eigið herbergi í sumarbú- staðnum og honum fannst æðislegt að fara í bíltúr eða í berjamó. Á kvöldin þegar hann var að fara að sofa heyrð- um við alltaf í honum inni hjá sér raul- andi, sem var merki um að hann væri mjög ánægður því honum fannst svo gaman að vera með okkur fjölskyld- unni. Hann var í essinu sínu þegar við keyrðum frá Ísafirði til Reykjavíkur og hann gat sagt okkur sögur af flest- um merkisstöðum á leiðinni. Í sorginni gleður það okkur að vita að afi er kominn til elskulegrar konu sinnar, hennar Þórunnar ömmu, og elstu börnin hans, þau Stína og Addi, munu taka vel á móti honum. Minning þín verður björt í hjarta okkar og munum við segja börnum okkar og barnabörnum frá þér. Ástkærar saknaðarkveðjur. Lára, Salka, Orri og Hrefna. Svona er gangur lífsins, nú er hann Baldvin föðurbróðir minn búinn að kveðja þennan heim. Það er óhætt að segja að andlát þessa sómamanns hafi orðið fyrr en maður hefði óskað, sér- staklega í ljósi þess að ég hafði hlakk- að mikið til að hitta þennan indæla frænda minn á ættarmóti fjölskyld- unnar sem er framundan. En hann BALDVIN SKÆRINGSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.