Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 32

Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 32
32 MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Laufey Marías-dóttir fæddist á Ísafirði 15. mars 1914. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 24. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Marías Ísleifsson, f. 20. nóvember 1880, d. 1. október 1943 og Guðmundína Sturl- ína Maríasdóttir, f. 6. nóvember 1882, d. 31. október 1954. Systkini hennar sammæðra voru Ingi- björg Elínmunda Helgadóttir, f. 1906, d. 1975, Guðmunda Sigur- jóna Helgadóttir, f. 1908, d. 1965, Jón Helgason, f. 1909, d. 1981, og Gunnar Þorgeir Ólafsson, f. 1917, d. 1992. Bróðir hennar samfeðra er Jón Vagn Maríasson, f. 1928. iam og Frances. 2) María, búsett í Kópavogi, var gift Finni P. Fróðasyni. Þau skildu. Þau eiga tvö börn, Hauk og Helgu. 3) Ei- ríkur Guðjón, búsettur í Reykja- vík, kvæntist Regínu Höskulds- dóttur. Þau skildu. Þau eiga sex börn, Ragnar Gunnar, Stein Jó- hann sem lést á fyrsta ári, Huldu Birnu, Ragnheiði, Höskuld og Al- freð Jóhann. 4) Þórir Sturla, bú- settur í Bandaríkjunum. Kona hans er Sigríður Hjaltadóttir. Þau eiga þrjá syni, Hjalta Má, Arnar og Ragnar. Barnabarna- börnin eru 23. Laufey bjó mestan sinn aldur á Ísafirði eða þar til 1977 er hún flutti til Reykjavíkur. Hún lék með Leikfélaginu á Ísafirði í fjöldamörg ár. Einnig söng hún í Sunnukórnum og kirkjukórnum á Ísafirði. Laufey rak hannyrðabúð á Ísafirði ásamt vinkonu sinni í nokkur ár. Þegar hún flutti til Reykjavíkur vann hún í Vöru- markaðinum og lauk hún sinni starfsævi þar. Útför Laufeyjar verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Laufey var trúlof- uð Alfreð Georgs- syni, f. 9. nóvember 1908, d. 24. mars 1937, og áttu þau einn son, Alfreð Georg, f. 1933, d. 1990. Kona hans var María Bára Frí- mannsdóttir, f. 1933, d. 1982. Þau eignuð- ust þrjú börn og María átti dóttur fyrir, Hervöru. Börn þeirra eru Erna Lína, Kristín Bára og Alfreð Georg. Laufey giftist 4. júní 1938 Ragnari Ásgeirssyni héraðs- lækni, f. 14. desember 1911, d. 16. maí 1981. Þau eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Ragnheiður Ása, búsett í Bandaríkjunum, var gift William Anderson. Þau skildu. Þau eiga tvö börn, Will- Elsku amma Laufey. Nú er loks komið að kveðjustundinni. Nú hef- urðu fengið þá hvíld sem þú hefur þráð lengi. Margar góðar minn- ingar rifjast upp fyrir mér þegar ég hugsa til baka. Eins og við höfð- um oft sagt þá voruð þið afi Ragn- ar miklir örlagavaldar í mínu lífi. Þið tókuð mér opnum örmum þeg- ar ég sextán ára gömul vildi koma til Ísafjarðar og taka þar gagn- fræðiprófið. Það var eins og að búa á fimm stjörnu hóteli, slík var þjónustan. Ég er mest hissa á því að ég skuli ekki hafa þyngst veru- lega þennan vetur því mér fannst ég vera að borða allan daginn. Amma var listakokkur og bakari. Það var notalegt að koma heim úr skólanum og þá beið eftir mér mið- degiskaffið og alltaf var „brúna“ kakan í aðalhlutverki. Ef amma var ekki heima þegar ég kom heim var hún búin að taka til kökur á disk með plasti yfir svo ég myndi nú ekki svíkjast um að borða. Á slaginu sjö á kvöldin settist afi við matarborðið og það brást ekki að hún var tilbúin með allt. Matar- og kaffitímar voru heilagir tímar og það þýddi ekki að tala um að koma of seint, það var ekki til umræðu. Þennan vetur kynntist ég mann- inum mínum og honum var mjög vel tekið af gömlu hjónunum. Hon- um var strax boðið að smakka hina frægu „brúnu“ köku og oft sátum við á Seljalandsveginum á kvöldin og gerðum henni góð skil. Ég ílengdist á Ísafirði og bjó áfram hjá ömmu og afa. Þegar við Doddi eignuðumst okkar fyrsta barn kom ekkert annað til greina en að láta hana bera nöfn beggja örlagavald- anna, Ragna Laufey. Þegar afi veiktist þurftu þau að flytja til Reykjavíkur og voru það þung skref fyrir hana ömmu. Hún sá ekkert nema Ísafjörð. Það var allt betra á Ísafirði, meira að segja sólin, hún þvældist bara fyrir aug- unum á ökumönnunum í Reykja- vík. Þá rúmlega sextug skellti hún sér í að taka bílpróf á Ísafirði áður en hún flutti suður. Síðan keyrði mín um allt fyrir sunnan. Á þess- um tíma bjó ég hjá henni og ég bauðst yfirleitt til að keyra ef við þurftum að fara eitthvað á bílnum. Ég var dauðhrædd með henni í bíl. Mér fannst hún alltaf keyra á miðjum veginum og svo bölsótaðist hún út í þessa ökumenn sem kunnu ekki að keyra. Ef ég spurði um rispurnar og beyglurnar á bílnum vildi hún ekkert ræða það hvernig þær komu til. Þegar við fjölskyldan bjuggum í Sandgerði kom amma reglulega í heimsókn og gisti þá iðulega hjá okkur yfir helgi. Þá helgi breyttust allar reglur á heimilinu. Sú gamla vildi morgunkaffi, hádegismat, miðdegiskaffi, kvöldmat og alltaf heimtaði hún kvöldkaffi og með því. Doddi mátti ekki gera neitt því ég átti að þjóna honum og öllum öðrum eins og sönn húsmóðir. Ég datt inn í þetta hlutverk, ómeð- vitað. Fjölskyldan skemmti sér vel yfir þessari breytingu og naut góðs af og vildi helst halda þessu áfram eftir að hún var farin en ég kom þeim ekki upp á það. Þetta var bara þegar amma Laufey kom í heimsókn. Elsku amma, ég veit að þú ert hvíldinni fegin enda búin að skila þínu og vel það. Afi og pabbi munu eflaust taka vel á móti þér í nýjum heimkynnum. Guð blessi minningu Laufeyjar Maríasdóttur. Kristín B. Alfreðsdóttir. Móðurafi minn, Björn Ólafsson, sagði við mig stuttu áður en hann dó: „Veraldlegir hlutir skipta engu máli, þú tekur ekkert með þér þeg- ar þú ferð.“ Á dánarbeðnum svar- aði ég honum því að það eina sem fylgir þér alltaf er ást og virðing þeirra sem kynntust þér. Eftir frá- fall hans átti ég bara ömmu Lauf- eyju eftir á lífi. Á námsárum mín- um urðum við amma miklar vinkonur og fór ég alltaf yfir til hennar á miðvikudögum til að þvo og horfa á Bráðavaktina. Þá var brún kaka í boði og nammi í skál. Amma var alltaf vel til höfð og þegar sjónin dapraðist hjálpaði ég henni að snyrta sig, á meðan sagði hún mér sögur. Þannig kynntumst við vel. Hún fæddist í Aðalvík en flutti ung til Ísafjarðar. Hún gekk í Húsmæðraskólann. Amma kynnt- ist afa og fór með honum til Reykjavíkur þar sem hann nam læknisfræði og hún læknisfrúar- fræði. Það kom sér líka vel því hún þurfti stundum að aðstoða hann við aðgerðir. Afi og amma voru síðustu læknishjónin í Trékyllisvík á Ströndum, í kringum 1940. Við amma fórum þangað fyrir nokkr- um árum, þar sem hún hitti fyrir gamla vini. Þau fluttu heim á Flat- eyri en þaðan á Ísafjörð þar sem afi var héraðslæknir og amma læknisfrú megnið af ævinni. Amma tók virkan þátt í félagslífi á Ísa- firði, var í leikfélaginu, Sunnukórn- um og rak um tíma verslun með Jönu vinkonu sinni sem var kölluð „lekkert og pent“. Eftir að afi veiktist fluttu þau til Reykjavíkur þar sem hann dó. Amma vann í Vörumarkaðinum uns hún hætti að vinna. Síðustu árin hrakaði ömmu minni. Ég var þakklát fyrir að geta rifjað upp gamla tíma fyrir hana. Undir lokin var þó erfitt að gleðja hana en mér til undrunar var það ekki ég sem náði bestu sambandi við hana heldur börnin mín. Það lifnaði alltaf yfir henni þegar þau komu í heimsókn. Hún mundi ekki hvað þau hétu en talaði um litlu stelpuna sem hoppaði í rúminu hjá henni og litla strákinn. Ég þakka ömmu minni margt og stundirnar sem við áttum saman eru nú geymdar í hjarta mínu. Ég elska þig amma og vona að þú tak- ir það með þér yfir. Þín Hulda Birna. Nú er hún farin, hún elsku amma Laufey. Hún átti langt og gott líf og var engri lík. Amma Laufey var stolt kona og vissi hvað hún vildi. Aldrei fór hún út úr húsi án þess að setja á sig varalit, negl- urnar lakkaðar og hárið tipp-topp. Amma var sko fín frú. Einnig var hún frábær húsmóðir og kunni sko að taka á móti gest- um. Alltaf hafði hún eina „brúna“ tilbúna ef gesti bar að garði. Brúna kakan hennar ömmu var sko sú allra besta súkkulaðikaka sem ég fékk. Alltaf var lagt á borð og drukkið kaffi og með því, sama hversu stutt ég sagðist geta stopp- að. Ef ég hjálpaði svo til með að leggja á borð þá skyldi nú aldeilis passa sig á að láta bollana réttum megin við kökudiskinn. Þegar tími var kominn til að kveðja í lok heimsóknar dró hún mig oft afsíðis og fyllti vasana af ýmiss konar góðgæti, sem ég svo japlaði á á leiðinni heim. Oftar en ekki var það blár Ópal og „smá hvítt“. Þó svo að ég væri komin á miðjan þrí- tugsaldurinn þá hélt hún áfram að lauma smá ömmunammi í vasann. Amma var líka af gamla skól- anum eins og sagt er. Ef svo vildi til að mamma var í heimsókn hjá henni þegar nálgaðist kvöldmat þá rak hún hana heim svo að pabbi fengi nú kvöldmatinn sinn á rétt- um tíma. Voru þá margir ánægðir. Síðustu sjö árin hef ég búið er- lendis og þess vegna ekki getað eytt miklum tíma með ömmu. Hún var orðin gömul og lúin og þegar ég kvaddi vissi ég aldrei hvort hún yrði til staðar í næstu Íslandsferð. Ég hitti ömmu síðast í júlí á síð- asta ári. Eins og ávallt þá stopp- uðum við hjá henni á leiðinni út á flugvöll og fengum okkur smá Nóa Kropp og „alvöru“ kók. Þegar tími var kominn til að fara þá vildi hún, eins og alltaf, ganga með okkur al- veg út að dyrum. Hún tók þétt- ingsfast í handlegginn á mér og Ómari, manninum mínum, og fylgdi okkur út. Ég gaf henni extra langt knús og kvaddi hana í síðasta sinn. Elsku amma mín, ég get því miður ekki verið viðstödd jarðar- förina þína. Ég mun minnast þín á minn hátt og geymi allar góðu minningarnar í hjarta mínu. Ég veit að þú ert á góðum stað, þar sem þú situr uppábúin við fínt kaffiborð með góðu fólki og passar upp á okkur hin. Hvíl í friði, elsku amma Laufey. Ragna Laufey. Við fráfall Laufeyjar, sem við kveðjum í dag hinstu kveðju, hafa komið upp í huga mér margar ljúf- ar minningar frá æskuárum mín- um tengdar henni og fjölskyldu hennar en Laufey var gift frænda mínum, Ragnari Ásgeirssyni hér- aðslækni á Flateyri. Fyrir ára- langa samferð með henni langar mig til að þakka af alhug nú þegar komið er að leiðarlokum. Fyrstu minningarnar eru frá Sólbakka þegar þau hjónin, Lauf- ey og Ragnar, bjuggu á efri hæð gamla timburhússins sem hval- fangarinn Hans Ellefsen byggði vestra. Eftir að fjölskyldan flutt- ist í hið nýbyggða sjúkraskýli á Flateyri þar sem íbúð læknis- hjónanna var á efri hæðinni varð styttra milli heimila okkar en áfram tengdust leikirnir þó Sól- bakka að nokkru leyti því tengda- foreldrar Laufeyjar bjuggu þar áfram og við krakkarnir áttum þar ófár stundirnar í leik og seinna við svolitla þátttöku í hey- skap og öðrum störfum við barna hæfi. Foringinn í leik okkar inni sem úti var jafnan elsta dóttir Lauf- eyjar og Ragnars, Ragnheiður Ása, sem var nokkru eldri en ég, yngri systkini hennar María og Eiríkur, bróðir minn, Einar Odd- ur og aðrir krakkar á okkar reki. Ég leit óskaplega mikið upp til Ragnheiðar Ásu, stóru frænku minnar, og átti á þessum bernsku- árum þá ósk heitasta að geta ver- ið eins og hún í einu og öllu! Hjá henni, sem ung fluttist vestur um haf, hefur hugur minn einnig dvalið nú þegar ég minnist allra góðu stundanna með henni á upp- vaxtarárum okkar. Ég minnist jólaundirbúnings, og jólaboða, endalausra leikja okkar krakk- anna sumar, vetur, vor og haust, úti og inni og finnst að Ragnheið- ur hafi alltaf átt uppástungurnar um leikina og fór jafnan létt með að semja nýja ef svo bar undir. Allt eru þetta einstaklega góðar og ljúfar minningar. Síðar varð heimili Laufeyjar og Ragnars á Túngötunni á Ísafirði fastur viðkomustaður okkar í „kaupstaðarferðum“. Yngsti sonur þeirra, Þórir, hafði þá bæst í systkinahópinn. Síðan liðu árin og við krakkarnir uxum úr grasi og héldum út í lífið sem beið okkar, reyndar flestra fjarri æskustöðv- unum vestra. Eftir áralanga bú- setu á Ísafirði fluttu þau hjónin suður en heilsubrestur Ragnars og síðar andlát langt fyrir aldur fram höfðu óhjákvæmilega áhrif á líf Laufeyjar. Henni brást þó ekki kjarkur heldur tókst á við erf- iðleikana með sannri prýði, lærði til dæmis að aka bíl til þess að geta heimsótt Ragnar á Vífils- staðaspítala og komist til vinnu. Í mörg ár eftir að Laufey flutti suður og allt fram á síðustu ár kom hún vestur til heimahaganna, venjulega að haustlagi þegar ber voru orðin vel þroskuð. Dvaldi hún þá daga hjá móður minni á Flateyri og þær yljuðu sér þá gjarnan við minningar frá liðnum dögum og fóru aðdáunarlega vel með upprifjun á atburðum, ekki síst spaugilegum, þótt komnar væru á efri ár. Mér eru einkar eftirminnilegar frásagnir Laufeyj- ar frá dögunum er Ragnar gegndi héraðslæknisstörfum í Árnes- hreppi á Ströndum um 1940 og ævintýralegum ferðum hennar með honum á landi og sjó. Ég hitti Laufeyju síðast nú fyrr í vetur og varð ljóst að fleira en sjónin hafði þurft undan að láta. Mér datt þá í hug að færa talið að gömlu, góðu dögunum á Flateyri og þá meðal annars að hinum ógleymanlegu leiksýningum sem Laufey tók ævinlega þátt í af lífi og sál. Það birti yfir henni þegar ég gat ennþá lýst kjólnum sem hún klæddist í Ævintýri á göngu- för og þegar ég minntist mótleik- ara hennar á sviðinu, Hjartar, Sigga Sam, Jóns Hjartar og fleiri samferðamanna sem flestir hafa kvatt á undan henni sviðið stóra sem og öll hin smærri. Nú er komið að leiðarlokum og kveð ég Laufeyju með virðingu og þökk. Börnunum hennar, barna- börnum og fjölskyldum votta ég innilega hluttekningu. Jóhanna G. Kristjánsdóttir. Föstudaginn 24. febrúar yfirgaf Laufey Maríasdóttir læknisfrú frá Ísafirði þennan heim, nær 92 ára gömul, og verður í dag lögð til hinstu hvílu við hlið eiginmanns síns Ragnars Ásgeirssonar héraðs- læknis á Ísafirði sem lést fyrir hartnær 25 árum. Í mínum huga hafa þessi miklu heiðurshjón geng- ið mér nánast í foreldrastað, þegar ég sem 17 ára unglingsstúlka trú- lofaðist syni þeirra Eiríki Guðjóni. Saman eignuðumst við Eiríkur sex börn. Sem barni var mér innprent- að að eitt það dýrmætasta í lífinu væri „að eiga góða að“. Með þeim hjónum fylgdi fallegur og góður ættbogi á báða bóga og lít ég á það sem forréttindi að hafa fengið að kynnast öllu því góða fólki sem alltaf hefur verið gott að eiga að. Í dag þegar Laufey tengdamóðir mín er kvödd hinstu kveðju er mér því efst í huga þakklæti, þakklæti fyrir elskusemina, umhyggjuna og tryggðina. Hún var mér góð tengdamóðir og börnunum mínum alveg einstök amma. Laufey þótti með fallegustu stúlkum á Ísafirði. Lítil stúlka bjó hún um tíma ásamt móður sinni í húsi afa míns, Ólafs Kárasonar kaupmanns á Ísafirði. Móðursystkinum mínum þótti hún svo einstök og svo falleg að þau kölluðu hana sín á milli „Ramona“. Þegar amma mín Fríða Torfadótt- ir lá sína banalegu kom læknirinn Ragnar Ásgeirsson að vitja hennar og í framhaldi af sinni vitjun setti hann síðan konu sína, Laufeyju, til að sitja yfir deyjandi konunni. Á þessum tíma þótti það sjálfsagt mál að læknisfrúin aðstoðaði mann sinn og það var oft hlutskipti Laufeyjar að starfa kauplaust með manni sínum að líkn og heilsu skjólstæðinga læknisins. Báðar höfðu þessar ágætu konur, tengda- móðir mín og amma, gert menn- ingarbæinn Ísafjörð frægan með leiklist og söng. Þegar amma mín Fríða dó mælti Lella frænka sem hélt í hönd móður sinnar við and- lát hennar: „Hönd í hönd, en helj- arbil á milli.“ Þessi orð Lellu komu í huga minn þegar ég síðast sat með vinkonu minni Laufeyju. Við héldumst í hendur, en dómurinn var þegar upp kveðinn. Við horfð- umst í augu, ég með sorg og sökn- uð í hjarta, vitandi hvert stefndi en augu hinnar deyjandi konu voru tindrandri af gleði: „Við erum búnar að vera svo lengi saman og það er búið að vera svo gaman hjá okkur.“ Þetta hlýtur að kallast að kveðja lífið með reisn. Ég þakka tengdamóður minni fyrir allt gott og fyrir þau forrétt- indi að hafa fengið að vera henni samferða í gegnum lífið. Börnum mínum og barnabörnum gat ekki hlotnast betri arfur en að hafa eignast Eirík, son Laufeyjar, sem föður og afa og að eignast þá góðu ömmu sem honum fylgdi og hún reyndist. Tengdafólki mínu öllu votta ég samúð mína og þakklæti. Sérstakar þakkir eiga Eiríkur og Kristín Alfreðsdóttir skilið fyrir alla þá einstöku alúð og umhyggju sem þau sýndu Laufeyju alla tíð. Blessuð sé minning fallegrar konu sem nú er látin! Regína. Með Laufeyju Maríasdóttur er genginn síðasti fulltrúi af kynslóð skyldmenna sem var okkur afar kær. Höfðingi heim að sækja, hjálparhella öllum þeim sem til hennar leituðu, stoð og stytta barna sinna og skyldmenna allra. Glæsileg félagslynd og glaðvær. Þær voru samrýndar móðir mín Elínmunda, og Laufey. Þegar Laufey og Ragnar, eiginmaður hennar, voru á Flateyri leið ekki það ár að mamma væri ekki hjá henni sumarpart og Laufey var tíður gestur í Norðurtanganum. Laufey Maríasdóttir var metnað- arfull fyrir hönd síns fólks og gerði sömu kröfur til þess og sjálfrar sín. Hún var ættrækin og vinföst og fylgdist af áhuga með högum skyldmenna sinna svo lengi sem hún hafði heilsu til. Hún var einstaklega hlý og góð við börn mín og barnabörn sem báru ávallt mikla virðingu fyrir systur ömmu sinnar. Um leið og ég þakka Lauf- eyju samfylgdina í meira en sjö áratugi votta ég börnum hennar og barnabörnum samúð mína. Arthur Gestsson og fjölskylda. LAUFEY MARÍASDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.