Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 39
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Viðtalstími hjúkr-
unarfræðings er kl. 9–11, leikfimi kl.
9, boccía kl. 10, félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16, handav.
kl. 9–16.30, smíði/útskurður kl. 9–
16.30, söngstund kl. 10.30, fé-
lagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund,
fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Handverksstofa Dal-
brautar 21–27 opin alla daga frá 8–
16. Sími 588 9533.
asdis.skuladottir@reykjavik.is
Dalbraut 18–20 | Notendaráðs-
fundur kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffitár með ívafi kl.
13.30, línudanskennsla kl. 18, sam-
kvæmisdans framh. kl. 19 og byrj-
endur kl. 20. Leikfélagið Snúður og
Snælda sýna leikritið Glæpi og góð-
verk í Iðnó miðvikudag kl. 14. Miða-
pantanir í Iðnó s. 562 9700.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinna kl. 9–12, Bossía kl. 9.20, gler-
og postulínsmálun kl. 9.30, Lomber
kl. 13.15 og kóræfing kl. 17.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Fé-
lagsvist kl. 20.30. Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar tvímenning alla
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13. Kaffi og með-
læti fáanlegt í spilahléi. Höfundur
Flateyjargátu mætir hjá Leshópi
FEBK í Gullsmára 7. marz kl. 20 og
talar um bakgrunn, gerð og efni
Flateyjargátu og sýnir sögusviðið á
sýningartjaldi. Ókeypis aðgangur.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi 9, 9.50 og 10.45 í
Kirkjuhvoli. Einnig er bókband kl. 10
og glerskurður kl. 13. Garðaberg er
opið kl. 12.30–16.30 og þar er bíó-
sýning kl. 13. Í Mýri er vatnsleikfimi
auka kl. 9.45. Myndin Ómur af söng
verður sýnd í Garðabergi kl. 13.
Tölvunámskeið í Garðaskóla kl. 17–
19.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnu-
stofur opnar kl. 9–16.30, sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl.
11. Frá hádegi spilasalur opinn vist,
brids, skák. Kóræfing kl. 14.30.Veit-
ingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi
Berg. Kl. 10.30 á þriðjud.og föstud.
er farið í létta göngu um nágrennið
(Elliðaárdalinn). Uppl.á staðnum og
s. 5757720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
handavinna, Kaffi, spjall, dagblöðin.
Kl. 10 bænastund. Kl. 12 hádegis-
matur. Kl. 13 hárgreiðsla. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnu-
stofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaik,
ullarþæfing og íkonagerð. Jóga kl.
9–11. Frjáls spilamennska kl. 13–16.
Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir s.
588 2320.
Hæðargarður 31 | Blöðin liggja
frammi, myndlistarsýningar Í Betri
stofu og Salnum. Kaffiveitingar.
Hægt er að fá dagskrána senda
heim. Sími 5683132. Netfang:
asdis.skuladottir@reykjavik. Not-
endaráðsfundur kl.10.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi
í Grafarvogssundlaug á morgun kl.
9.30.
Kvenfélag Garðabæjar | Kvenfélag
Garðabæjar heldur félagsfund á
Garðaholti 7. mars kl. 20. Konur frá
Kvenfélagi Kópavogs mæta á fund-
inn. Kaffinefndir 1-8-9-15-19.
Norðurbrún 1, | Smíði kl.9, upp-
lestur kl.10.30, opin vinnustofa
kl.13–16.30.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Brids félagsheim-
ilinu kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–15.30
handavinna. Kl. 9–10 boccia. Kl. 11–12
leikfimi. Kl. 11.45–12.45 hádegis-
verður. Kl. 13–16 kóræfing. Kl. 13.30–
14.30 leshópur. Kl. 14.30–15.45
kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12, bókband kl. 9, hárgreiðsla kl.
9, morgunstund kl. 9.30, fótaað-
gerðir kl. 9.30, boccia kl. 10, hand-
mennt alm. kl. 9–16.30, glerbræðsla
kl. 13, frjáls spilamenska kl. 13–16.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Vímulaus æska
kl. 20. Stuðningshópur foreldra.
Digraneskirkja | Aðalfundur
Íþróttafélags aldraðra Kópavogi
verður haldinn í Hjallakirkju 7. mars
kl. 14. Hádegisverður kl. 12 og helgi-
stundar kl. 13.
Grensáskirkja | Foreldrastund alla
mánudagsmorgna.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8.
bekk kl. 20–21.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri |
Heimilissambandið fyrir allar konur
kl. 15.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa
2 kl. 19. www.gospel.is - www.alfa.is.
Nýtt námskeið hefst í september,
hægt er að skrá sig á safn-
aðarskrifstofunni.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK
7. mars fellur inn í samkomu Kristni-
boðsvikunnar á Holtavegi 28, kl. 20.
Allir eru velkomnir á samkomuna.
Kristniboðssalurinn | Samkoma
miðvikudag 8. mars fellur inn í
Kristniboðsvikuna sem haldin er í
húsi KFUM og KFUK við Holtaveg
28, kl. 20. „Kristur lifir í mér“.
Ræðumaður: Margrét Jóhann-
esdóttir. Vitnisburður: Þórey Ingv-
arsdóttir. Kristniboðsþáttur: Birna
G. Jónsdóttir. Gospelkór KFUM og
KFUK syngur.
Laugarneskirkja | Kvenfélag
Laugarneskirkju heldur fund í
safnaðarheimilinu kl. 20. Allar konur
velkomnar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
HVAÐ gerir leikhús sem er óöruggt
með sig? Hvernig bregst það við
þegar því þykir það vera fast í hjól-
fari forms og hefða, grunar að heim-
urinn sé orðinn of flókinn og tættur
til að hægt sé að segja nokkuð af viti
um hann í þessum skrítna kassa sem
vantar í aðra hliðina? Hvað taka
listamennirnir til bragðs þegar þeim
finnst þeir ekki vera afl sem eftir er
tekið í umræðunni og eru kannski
orðnir dálítið leiðir á hefðbundnum
aðferðum og efnistökum?
Þeir búa til sýningar eins og Virkj-
unina. Sýningu þar sem bæði er
reynt að gera form- og innihaldsbylt-
ingu. Endursemja reglubókina um
hvað leikhús er, og á sama tíma taka
til umfjöllunar brýnustu viðfangsefni
nútímans. Í vissum skilningi ná Þór-
hildur Þorleifsdóttir og hennar fólk
báðum þessum markmiðum. Og í
öðrum mistekst þeim á hvorum
tveggja vígstöðvum.
Mikið hefur verið látið með höfund
verksins og talað um þá athygl-
isverðu ákvörðun hennar að skrifa
einfaldlega ógrynni af texta fyrir
örfáar raddir og láta leikhúsfólkinu
eftir að laga efniviðinn að sínum
þörfum og áhuga. Taka ákvarðanir
um hvaða persónur tala, og hvað
mikið er nýtt af hráefninu. Ýmis um-
mæli aðstandenda sýningarinnar
benda til að þeim þyki þetta harla at-
hyglisvert, gott ef ekki til eft-
irbreytni. Upphaf sýningarinnar þar
sem höfundurinn situr við vinnu sína,
kynnir sig og afhendir verkið leik-
hópnum með „notkunarleiðbein-
ingum“ bendir til að þeim þyki þetta
svo nýstárlegt að áhorfendur þurfi
sérstakan stuðning inn í verkið,
nokkuð sem hefur ekki þurft þegar
verkum annarra skálda er umstaflað.
Reyndar þykir mér þessi ráðstöfun
bæði hallærisleg og algerlega óþörf.
Elfride Jelinek skrifaði skáldverk í
beinni ræðu fyrir nokkrar raddir og í
stað þess að gefa það út ákvað hún að
bjóða það leikhúsfólki til meðferðar.
Hér er einfaldlega um leikgerð að
ræða. Og þær þekkjum við íslenskir
leikhúsgestir mæta vel.
Það er utanaðkomandi nátt-
úrulega ógerningur að átta sig á
hvar verkaskipti Jelinek, Maríu
Kristjánsdóttur leikgerðarhöfundar
og Þórhildar leikstjóra liggja. Hver
ákvað að þrír leikarar skiptu milli sín
texta Geitapéturs, og Heiðurnar
væru líka þrjár? Það er sérstaklega
snúið að leggja mat á framlag Maríu,
sem býr til leikhandrit úr texta-
hlemmi Jelinek. Mjög margt af því
sem mótar sýninguna í grundvall-
aratriðum eru áreiðanlega leik-
stjórahugmyndir, afstaða persóna til
þess sem þær segja, búningar jafn-
vel, því eiginlegri persónusköpun
hefur að mestu verið ýtt til hliðar og
týpur settar í þeirra stað. Þetta er
allt saman mjög litríkt og fjölbreytt,
og þrátt fyrir að engin saga sé sögð
er nokkuð klár undirliggjandi fram-
vinda, frá því upp vekjast verkfræð-
ingar með drauma þar til martrað-
arkennd afmælisveisla virkjunar-
innar er haldin í lokin.
Virkjunin er sýning vitsmunanna.
Þegar persónusköpun, þróun, sögu,
dramatískum samskiptum er fórnað
verður það sem eftir stendur allsráð-
andi. Hér er það predikun. Virkjunin
er sýning textans.
Hið brotakennda form sýning-
arinnar hefur á sér revíublæ sem enn
magnast við tónlistarnotkunina.
Sönglögin sem frá allsendis gam-
aldags sjónarhóli voru afbragðsvel
útsett af Jóhanni G. og skörulega
flutt, sérstaklega Schubert-kórarnir.
Textar Davíðs Þórs beittir og
hnyttnir en áttu sinn þátt í því að þar
sem umræðuefnið eru samtímamálin
þá var á stundum engu líkara en
maður væri staddur við upptöku á
óvenju lítið fyndnu áramótaskaupi.
Textinn í Virkjuninni er marg-
slunginn, flókinn, þvælinn. Það sem
heldur í honum lífinu er ástríða höf-
undarins, auðheyrð þörf hennar til
að skoða samtíma sinn og sögu þjóð-
ar sinnar og gefa skýrslu úr þeirri
skoðunarferð. Þórhildur og María
leggja vitaskuld áherslu á að tengja
verkið framkvæmdunum miklu á
Kárahnjúkum og íslenskri stór-
iðjustefnu og það gengur að miklu
leyti upp, sérstaklega í einhverju
besta atriði sýningarinnar, ræðu
hins pelsklædda ráðherra, sem
Nanna Kristín leikur, um ágæti
virkjunar og náttúru. En á köflum er
samt þjóðarsálgreining höfundar of
austurrísk til að hitta beint í það
mark.
Þótt hið miðlæga viðfangsefni sé
stórvirkjun sem reist var í Ölpunum
á eftirstríðsárunum og það viðhorf til
náttúrunnar sem birtist í slíkri beisl-
un þá beinir Jelinek sjónum sínum
um víðara svið. Kapítalismi, kynja-
pólitík, neysluþjóðfélagið, íþrótta-
mannadýrkun. Þessir þættir eru
sammannlegir, í það minnsta sam-
vestrænir og eiga því ekki síður er-
indi við okkur en virkjanaræðurnar.
Stundum hittir höfundur í mark,
sumt kveikir sennilega hugmyndir,
oftast er hún fyrst og fremst óljós.
Og aldrei þótti mér sem verið væri
að segja eitthvað sem ekki mætti
finna með því að fletta í gegnum svo
sem eins og mánaðarskammt af
Mogganum, horfa á Silfur Egils og
lesa nokkur vel valin blogg þar sem
virkjunum, kapítalisma, neyslu-
hyggju, sexisma og alþjóðavæðingu
er lesinn pistillinn.
Virkjunin nær semsagt klárlega
því markmiði að vera augljóslega
um, og innblásin af, heitustu um-
ræðuefnunum. En hún hefur fjarska-
lega lítið nýstárlegt, eftirminnilegt,
ögrandi eða áhugavert um þau að
segja.
Virkjunin nær heldur ekki að
leysa það sem ég upplifi sem stærsta
vanda beinskeytts pólitísks leikhúss;
hún er sérsniðin fyrir þá sem eru
sammála því sem kemur fram í
henni. Á ensku er talað um að pre-
dika yfir kórnum. Það er í sýning-
unni allri yfirlætistónn besserviss-
ersins, sem er illþolandi nema maður
sé sammála honum í meginatriðum
og getur hlegið að þvi hvað hinir eru
mikil fífl. Hvers vegna ætti einhver
sem hefur aðra sýn á fyrrupptalin
umræðuefni að sitja undir þessu?
Hvers vegna ætti hann að borga sig
inn?
Þetta yfirlætislega viðhorf er inn-
byggt í textann en gegnsýrir líka alla
sýninguna. Leikstíllinn er háðskur,
óinnlifaður, groddalegur í fyrr-
nefndum áramótaskaupsstíl. Nær að
vera skemmtilegur á köflum en verð-
ur fljótlega þreytandi. Þegar verk-
fræðingarnir í fyrri hlutanum setja á
sínar ógurlegu ræður um köllun sína
þá segir afstaða leikaranna: „óskap-
lega er ég vitlaus að hafa þessar
kjánalegu skoðanir.“ Auðvitað má
gera svona, en mig grunar að áhrifa-
mátturinn hefði orðið meiri ef stólpa-
leikararnir Arnar, Atli og Baldur
Trausti hefðu staðið með sínum
mönnum og látið áhorfendum eftir
að koma auga á sprungurnar í við-
horfum þeirra. Það fær Ólafur
Steinn að gera í litlu atriði þar sem
ungur maður hreyfir andmælum. Og
gerir vel. Engin skopfærsla þar,
nema eigi að skilja Che Guevara-
bolinn sem slíkan.
Það sterkasta við frammistöðu
leikhópsins verður að teljast vald
hans yfir textanum og víðast hvar
hugvitssamleg vinna við að kalla
fram blæbrigði í flaumnum. Í svona
sketsakenndri sýningu eiga flestir
sín góðu hlutverk og önnur sem ekki
skilja neitt eftir. Þær María, Sólveig
og Þórunn Clausen eru skemmti-
legar Heiður. Þórunn Lárusdóttir
sannfærandi skáldkona, ekki henni
að kenna hvað það er barnaleg hug-
mynd að hafa hana með. Konurnar í
sýningunni reyndar allar flottar í
ágætlega sniðugu en afar skauplegu
atriði á sólarströnd. Að sama skapi
var eiginlega óþægilegt að horfa á
þær í lokaatriðinu þar sem mæður
sona sem fórnað hefur verið á altari
kapítalismans hefja upp raust sína í
grískum stíl. Yfirkeyrt, klunnalega
sviðsett, og átti greinilega að vera
þannig. Atriðið sagði mér ekkert um
móðursorg, það sagði mér bara að
höfundum sýningarinnar þykir ein-
læg og innlifuð tjáning hennar á sviði
úrelt. Ég veit það ekki.
Gísli Pétur er allt að því of hlægi-
legur sem austurevrópskur fyrrver-
andi verkamaður. Björgvin Franz
kraftmikill þar sem stíflunni er lýst í
stíl íþróttafréttamanns. Rúnar
Freyr skrambi góður Hans, sem dó
við framkvæmdirnar og er grafinn í
stíflugrunninnum. Sennilega er
trúðanálgun hans eina færa leiðin til
að vera bæði háðskur og brjóst-
umkennanlega sannur.
Umgjörð sýningarinnar er einkar
glæsileg hjá Sigurjóni Jóhannssyni,
og þótt vatn á leiksviði sé einhver
þreyttasta klisjan þá réttlæta stíflu-
veggirnir hans þá notkun hér. Bún-
ingarnir eru stór hluti af týpusköp-
uninni og afar kostulegir hjá Filippíu
I. Elísdóttur. Vinna Auðar Bjarna-
dóttur með aukaleikarana prýðileg
svo langt sem hún nær og mitt vit
dugir til.
Virkjunin er virðingarverð tilraun
til að gera Þjóðleikhúsið gildandi í
samfélagsumræðunni. Ég held að
það takist ekki sem skyldi. Til þess
er of lítið áhugavert eða nýtt að finna
í ritgerðinni sem sýningin byggist á
og hugmyndirnar of óskýrar og
flóknar til að ein heimsókn í leik-
húsið skili öðru en yfirborðskenndri
mynd af innihaldi þeirra.
Sýningin er áhættusöm ferð út
fyrir hefðbundna ramma hins borg-
aralega leikhúss. Það er áhættunnar
virði, en árangurinn að þessu sinni er
ekki sú opinberun sem leikhús-
þreytta virðist þyrsta í.
Textaleikhúsið
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Virkjunin
Höfundur: Elfride Jelinek. Þýðandi: Haf-
liði Arngrímsson, aðlögun: María Krist-
jánsdóttir, söngtextar: Davíð Þór Jóns-
son. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir,
leikmynd: Sigurjón Jóhannesson, bún-
ingar: Filippía I. Elísdóttir, tónlistarstjórn
og undirleikur: Jóhann G. Jóhannsson,
sviðshreyfingar: Auður Bjarnadóttir.
Leikendur: Arnar Jónsson, Atli Rafn Sig-
urðarson, Ármann Guðmundsson, Baldur
Trausti Hreinsson, Björgvin Franz Gísla-
son, Elís Phillip Scobie, Gísli Pétur Hin-
riksson, Hjalti Stefán Kristjánsson, Ísak
Eiríksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
María Pálsdóttir, Nanna Kristín Magn-
úsdóttir, Ólafur Steinn Ingunnarson, Páll
S. Pálsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sólveig
Arnarsdóttir, Þórunn Clausen og Þórunn
Lárusdóttir.
Stóra sviðið 3. mars.
„Virkjunin er sýning vitsmunanna. Þegar persónusköpun, þróun, sögu,
dramatískum samskiptum er fórnað verður það sem eftir stendur allsráð-
andi. Hér er það predikun. Virkjunin er sýning textans,“ segir Þorgeir
Tryggvason um Virkjunina eftir Elfriede Jelinek í Þjóðleikhúsinu.
Þorgeir Tryggvason