Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 45
Framúrskarandi samsæristryllir þar sem George
Clooney sýnir magnaðan leik.
ALLT TENGIST
Á EINHVERN
HÁTT
eeee
Ö.J. Kvikmyndir.com
Frá höfundi „Traffc“ eeee
V.J.V. Topp5.is
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta aukahlutverk karla/George Clooney og
besta frumsamda handritið.2
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
UNDERWORLD kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
CASANOVA kl. 8 - 10:10
BLÓÐBÖND kl. 6 - 8 - 10
PRIDE AND PREDJUDICE kl. 8 - 10:15
BAMBI 2 kl. 6
SYRIANA kl. 6 - 8 - 10:40 B.i. 16 ára
SYRIANA VIP kl. 4:45 - 8 - 10:40
BLÓÐBÖND kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
CASANOVA kl. 3:30 - 5.45 - 8 - 10:20
NORTH COUNTRY kl. 8 B.i. 12 ára
BAMBI 2 m/Ísl tal. kl. 4 - 6
DERAILED kl. 10:40 B.i. 16 ára.
MUNICH kl. 9 B.i. 16 ára.
OLIVER TWIST kl. 3.30 B.i. 12 ára.
KING KONG kl. 4 B.i. 12 ára.
THE PINK PANTHER kl. 6 - 8 - 10:10
BLÓÐBÖND kl. 6 - 8 - 10:10
UNDERWORLD 2 kl. 10:10 B.i. 16 ára.
DERAILED kl. 8 B.i. 16 ára.
BAMBI 2 m/Ísl. tali kl. 6
KEVIN
KLINE
STEVE
MARTIN
JEAN
RENO
BEYONCÉ KNOWLES
... og heimsins frægasta rannsóknarlögregla gerir allt
til þess að klúðra málinu…
Bleiki demanturinn
er horfinn...
eee
V.J.V. topp5.is
eeee
S.V. mbl
eeee
A.G. Blaðið
G.E. NFS
eee
Ó.H.T. RÁS 2
Fermingarblað
Morgunblaðsins
Sérblað helgað fermingum fylgir
Morgunblaðinu föstudaginn 17. mars
• Fermingarfötin í ár
• Ljósmyndirnar, albúm, rammar og myndabækur
• Skreytingar á veisluborðið
• Veislan heima eða í leigðum sal
• Fullt af spennandi uppskriftum
• Maturinn og drykkur í veislunni
• Blóm, kerti og servíettur
• Hugmyndir að gjöfum
• Eftirveislan fyrir unglingana, tónlist, matur og drykkur
• Heimilið gert fínt fyrir fermingardaginn
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16 þriðjudaginn 14. mars
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín
Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
WOODY Allen hefur verið vægast
sagt mistækur í kvikmyndagerð sinni
undanfarinn áratug, og eftir að hafa
horft upp á a.m.k. þrjú alvarleg
glappaskot í röð hjá leikstjóranum frá
árinu 2002 hafa jafnvel dyggustu
Allen-aðdáendur spurt sig hvort snill-
ingurinn Allen sé búinn að kveðja fyr-
ir fullt og allt og eftir sitji hjóm eitt.
Það getur verið erfitt að trúa því að
svo snjöllum leikstjóra og handrits-
höfundi geti svo ítrekað orðið á í
messunni, og einmitt af þeim sökum
eru menn ef til vill fljótari að hrópa
húrra en efni standa til þegar Allen
nær að senda frá sér mynd sem er í
besta falli skítsæmileg. Hér er sem
sagt átt við nýjustu kvikmynd Allens
Match Point (Úrslitastigið), en hún
hefur verið sögð boða allt frá end-
urkomu Allens til afturhvarfs til snill-
innar sem Allen sýndi með hinni frá-
bæru kvikmynd sinni frá árinu 1989
Crimes and Misdemeanors (Glæpir
og afbrot).
Líta má á Match Point sem nokk-
urs konar endurvinnslu á Crimes and
Misdemeanors, sem verður að teljast
eitt af bestu verkum Allens. Bein
tengsl eru milli söguþráða myndanna
og þess kaldranalega tóns sem ein-
kennir örlög sögupersóna og úrlausn
flækjunnar í kvikmyndunum. Margir
hafa af þessum sökum líkt Match
Point við Crimes and Misdemeanors,
en í mínum augum verða tengslin að-
eins til þess að undirstrika augljósa
veikleika og hugmyndaskort fyrr-
nefndu kvikmyndarinnar í sam-
anburði við þá síðarnefndu. Maður
spyr sig óneitanlega hvort Allen sé
orðinn svo uppiskroppa með hug-
myndir að hann sé farinn að sækja í
sín eigin fyrri verk í tilraun til þess að
koma fram með eitthvað af viti.
Segir þar frá ungum tennisleikara,
Chris Wilton (Jonathan Rhys-
Meyers), sem ákveður að hætta at-
vinnumennsku og gerast leiðbeinandi
í fínum tennisklúbbi í London. Hann
kynnist einum klúbbgestanna, Tom
Hewett (Matthew Goode), í gegnum
sameiginlegan áhuga á óperu og fær
þar með aðgang að þeim ríkmannlega
heimi sem Tom og fjölskylda hans til-
heyra. Fyrr en varir er Chris tekinn
saman við Chloe (Emily Mortimer)
systur Toms og opnast með því leið
inn á örugga framabraut í stórfyr-
irtækinu sem faðir Chloe rekur.
Glæst framtíð blasir við Chris, en
hjarta hans og ástríður reka hann þó í
aðrar áttir er hann heillast af hinni
föngulegu en fátæku og ættlausu
bandarísku leikkonu Nolu Rice
(Scarlett Johansson).
Allen bryddar hér upp á þeirri nýj-
ung að hvíla hið rótgróna sögusvið
sitt, Manhattan, og færa sig um set
yfir í álíka heillandi stórborg-
arumhverfi, þ.e. miðborg London.
Hér fellur Allen þó í sömu gryfju og
einkennir staðnaðar og ýktar fram-
setningar hans á lífsstíl menning-
arvita á Manhattan. Myndin sem
dregin er upp af enskri yfirstétt er
svo einhliða og stöðluð að erfitt reyn-
ist að lifa sig inn í söguna og þær
mannlegu tilfinningar sem henni er
ætlað að takast á við. Persónur sög-
unnar skortir alla vídd og sama er að
segja um þá samfélagsmynd sem
dregin er upp. Þar birtir Allen okkur
hin kaldranalegu lögmál efnishyggju,
stéttskiptingar og borgaralegra við-
miða, sem verða á endanum til þess
að „drepa“ ástríðurnar og hugsjón-
irnar sem sögupersónan Nola Rice
(Scarlett Johansson) er fulltrúi fyrir.
En framsetning Allens á þessum
ósamræmanlegu andstæðum fellur of
nálægt einfaldaðri skopmynd sem
e.t.v. skapast af því ójafnvægi sem er
í samspili hins harmræna og kald-
hæðna í verkinu. Útfærsla sögunnar
hefur því fremur kosti góðs hand-
verks en margræðrar sögu. Sams
konar tilþrifaleysi einkennir frammi-
stöðu leikara, fremur grunnt er á
túlkun þeirra Jonathans Rhys-
Meyers og Scarlett Johansson í hlut-
verkum Chris og Nolu, en aukaleik-
arar á borð við Matthew Goode,
Brian Cox og Penelope Wilton eiga
góða spretti í sínum hlutverkum.
Eins og oft áður leitast Allen
reyndar við að dýpka samhengið með
því að koma að vísunum í skyld frá-
sagnarþemu í verkum Dostojevskíjs
og sígildum óperum og söngleikjum.
Þá eru undirliggjandi spurningar um
þátt heppni og tilviljana og ein stór
tennislíking nokkurs konar rammi ut-
an um kaldhæðnislega söguna. En
allt er þetta of snyrtilegt, of klippt og
skorið og of yfirborðskennt til þess að
ég geti tekið undir með þeim sem lofa
Match Point sem „endurkomu
Allens“. Það að slík meðalmennska
skuli ávinna Allen hrós og klapp á
kollinn er reyndar enn einn vitn-
isburðurinn um hversu mikið vatn er
runnið til sjávar síðan hann var upp á
sitt besta.
Haganleg handavinna
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
Leikstjórn og handrit: Woody Allen.
Aðalhlutverk: Jonathan Rhys-Meyers,
Scarlett Johansson, Emily Mortimer,
Matthew Goode, Brian Cox og Penelope
Wilton. Bandaríkin /Bretland/
Lúxemborg, 124 mín.
Úrslitaslitastigið (Match Point)
„Það getur verið erfitt að trúa því að svo snjöllum leikstjóra og handrits-
höfundi geti svo ítrekað orðið á í messunni, og einmitt af þeim sökum eru
menn ef til vill fljótari að hrópa húrra en efni standa til þegar Allen nær að
senda frá sér mynd sem er í besta falli skítsæmileg,“ segir gagnrýnandi um
kvikmyndina Match Point.
Heiða Jóhannsdóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111